Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 2S Mac- Gregor látinn SIR Ian MacGregor, skozki iðnjöfurinn sem Margaret Thatcher tefldi fram til að kljást við verkföll kolanáma- verkamanna Bretlands á fyrri hluta níunda áratugarins, lézt á mánudag, annan í páskum, 85 ára að aldri. Banamein hans var hjartaáfall. MacGregor, sem varði dágóðum hluta starfsævi sinnar í Bandaríkj- unum, var formaður brezka kolaráðsins á meðan á hörð- ustu verkfallsaðgerðum kola- námaverkamanna stóð 1984-1985, þegar þeir voru, undir forystu Arthurs Scarg- ills, í verkfalli í heilt ár. Thatcher lét svo um mælt um MacGregor í The Times í gær, að hann hefði borið með sér ferskan vind í segl brezks iðn- aðar og hann hefði verið „snilldarpersóna". En verka- lýðsleiðtogar kenna honum um að fækkað var um fleiri en 100.000 störf í stál- og kolaiðn- aði Bretlands. Misskipting auðs að aukast? SVO VIRÐIST sem hætta sé á að bilið milli ríkra og fátækra í Bretlandi, sem á undanförnum árum hefur verið að minnka, fari að aukast á ný, eftir nýjum tölum brezku hagstofunnar að dæma. Sérfræðingar óháðrar brezkrar stofnunar, sem sér- hæfir sig í rannsóknum á skattamálum (IFS), segja hins vegar að fjárlagafrumvarpið sem Gordon Brown fjármála- ráðherra kynnti í síðasta mán- uði lofi góðu um að brezka skattakerfíð muni skila meiri árangri í að jafna dreifingu lífs- ins gæða til þegnanna. Varar við falli stjórnar FORMAÐUR Frjálsa demókrataflokksins í Þýzka- landi (FDP), sem er í stjórnar- samstarfi með flokki Helmuts Kohls kanzlara, varaði við því í gær að stjórnarflokkarnir gætu tapað meirihluta sínum á þingi í kosningunum í septem- ber, ef þeir héldu áfram inn- byrðiserjum þeim sem borið hefur á að undanfórnu. Sagði flokksformaðurinn, Wolfgang Gerhardt, að deilur frammá- manna CDU, flokks Kohls, og systurflokks hans í Bæjara- landi, CSU, sköðuðu möguleika stjórnarflokkanna í kosninga- baráttunni. Karamanlis þungt haldinn CONSTANTIN Karamanlis, fyrrverandi forseti Grikklands, lá þungt haldinn á sjúkrahúsi í Aþenu í gær, bundinn við önd- unarvél. Karamanlis, sem er 91 árs, var lagður inn á sjúkra- húsið á þriðjudag fyrir páska með lungnabólgu og á páska- dag fékk hann vægt hjartaá- fall. Á löngum stjórnmálaferli sínum gegndi Karamanlis sex ráðherrastöðum, en stærstu pólitísku sigi-ar hans eru taldi vera hlutverk hans í að koma herforingjastjórninni frá völd- um 1974 og að koma Grikk- landi inn í Evrópubandalagið. Hann dró sig í hlé 1995. Irakar andmæla skýrslu SÞ Genf. Reuters. IRAKAR vísuðu í gær til föðurhús- anna skýrslu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um virðingu fyrir mannréttind- um í landinu, þar sem m.a. var full- yrt að í Bagdad hefðu farið fram rúmlega 1.500 aftökur af pólitískum ástæðum í fyrra. íraska sendinefndin hjá Mann- réttindaráði SÞ kvaddi sér hljóðs og sagði að skýrslan, sem skrifuð var af Max van der Stoel, fyrrverandi utanríkisráðherra Hollands og sér- stökum skýrsluskrifara SÞ um mannréttindamál í Irak síðan 1991, væri „ekkert annað en endurtekn- ing á sömu aðdróttununum og ásök- ununum". Skömmu áður hafði van der Stoel kynnt skýrslu sína fyrir fulltrúun- um í ráðinu, sem alls eru 53, og sagði m.a. að því miður gæti hann ékki séð að nokkur raunveruleg breyting hefði orðið er varðaði virð- ingu fyrir mannréttindum í írak á undanfórnu ári. Þvert á móti yrði íraska þjóðin enn að þola þjáningar undir einhverri miskunnarlausustu einræðisstjórn sem setið hafí nokk- urs staðar í heiminum frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Hvað er svona merkilegt við það...? London. The Daily Telegraph. BRESKI skemmtikrafturinn og rit- höfundurinn Ben Elton, sem verið hefur dyggur stuðningsmaður stjórnar Verkamannaflokksins, hef- ur gagnrýnt harðlega þá „hræði- legu“ áráttu sem hann segir stjórn- völd haldin yfir hugmyndinni um „svala Bretland" (Cool Britannia). Á síðasta áratug var Elton óþreytandi við að skammast út í Margaret Thatcher, þáverandi for- sætisráðherra, og segist hann nú vera alveg jafnmiður sín vegna til- rauna Tonys Blairs, forsætisráð- herra, til að endurskapa ímynd Bretlands sem mótanda tísku- strauma um allan heim. „Ég kaus Verkamannaflokkinn, en ekki vegna þess að þeir vita hvað Oasis er og það kýs enginn Ihaldsfiokkinn þótt William Hague [formaður hans] láti sjá sig með hafnaboltahúfu," sagði Elton í grein er hann ritaði í Radio Times undir fyrirsögninni: „Svala Bret- land. Þvfiíkt endemis bull.“ Til- raunir til að gera allt „svalt“ hafi gengið út í öfgar. Elton segir um Blair: „Forsætis- ráðherrann hefur sagt opinberlega að hann vilji búa Bretalandi nýja ímynd. En sannleikurinn er sá, að það er ekki hægt að kaupa svalann og það er ekki hægt að búa hann til með vörumerki. Réttur klæðnaður kostar bara peninga, en það þarf frumkvæði til þess að klæðast rangt. Og ég myndi gjarnan vilja vita hvað er svona merkilegt við að vera svalur." Sonur Lennons segir stjórnvöld ábyrg New York. The Daily Telegraph. YNGSTI sonur Johns Lennons sagði á mánudag að morðið á föður sínum fyrir hátt í 20 árum hefði verið framið að undirlagi bandarískra stjómvalda. Sean Lennon er 22 ára og í síðasta mánuði kom út fyrsti hljómdiskur hans. Hann sagði í viðtali við tímaritið New Yorker að John Lennon hefði verið í fararbroddi í menningarlegri byltingu og Bandaríkjastjórn hefði ekki getað lokað augunum íyrir því. „Hann var hættulegur stjóm- völdum,“ sagði Sean um föður sinn. „Ef hann hefði sagt: Sprengið Hvíta húsið í loft upp á morgun, þá hefðu tíu þúsund manns orðið við því. Sagan sýnir að stjómvöld myrða friðarsinnaða byltingarmenn." Mark Chapman skaut Lennon til bana fyrir utan heimili hans í New York 1980. Sean sagði að þeir sem héldu að Chapman hafí verið einn að verki og haft sínar eigin ástæður íyrir verknaðinum væm annað hvortviti sínu fjær eða mjög bama- legir. „Eða hafa ekki velt þessu íyrir sér. Það var Bandaríkjunum í hag að faðir minn væri myrtur. En það sló í bakseglin fyrir þeim [sem vildu hann feigan] þvi að þegar hann var látinn jukust völd hans. Þeim varð ekki að ósk sinni.“ Vorum að fá til sölu efri hæð og ris á þessum eftirsótta stað. Samliggjandi stofa og eldhús, 3 herb. og baðherb. á hæðinni. Eitt herb. er (risi sem að öðru leyti er óeinangrað. Gott útsýni. Frábær staðsetning. Ekkert áhv. V. 9,7 m. 7817. Flókagata — glæsileg Vorum að fá í sölu 75 fm 3ja herb. neðri hæð í þríbýli við Miklatún. Auk þess fylgir um 20 fm herb. í kj. Hæðin hefur ; öll verið standsett á sérlega smekklegan hátt. Parket. Suðursvalir. Gróin lóð til suð- urs. Áhv. 4,2 m. í húsbr. Nán- ari upþl. veitir Ragnheiður. 7850. S|e|EIGNAMIÐLUNIIV -IL^ \U) -t. bMi/. ___________________________ Starfsmenn: Sverrir Kristinsson Wgg. fasteignasali, sðlustjóri, Þorleifur St.Guðmundsson.B.Sc.. sölum.. Guðmundur Sigurjónsson Iðgfr. og lögg.fasteignasali, skjalagerð. Stefán Hrafn Stefánsson lögfr., sðlum., Magnea S. Svernsdóttir. Iðgg. fasteignasali, sölumaður, Stefán Árni AuöóHsson, sðlumaður, Jóhanna Valdimarsdóttir. auglysingar, gjaldkeri. Inga Hannesdóttir, affl slmavarsla og rltari, Ólöf Steinarsdóttir. öflun skjala og gagna, Ragnheiður Ó. Agnarsdóttir.skrtfstofustðrf. Sími 5J5JÍ 9ODO * Fax 5J5J5 9095 • SÍAiimúla 2 I Á horni Mímisvegs og Freyjugötu Vaknar, þú méd Þú byltir þér 80% minna á Tempur heilsudýnunni! n, ktr/swfa/ - 4^ ftliOTJÍÍ-PEDIC HEILSUDÝNA 21. ALDARINNAR Rannsóknir sunnu þuð! er lykilorðið Einstakir eiginleikar Þrýstipunktar ó sprina- dýnu í hæsta gæðaflokki Tempur dýnurnar voru þróaðar af (geimvísindastofnun Bandaríkjanna). leikar Tempur felast fyrst og fremst þrýstijöfnunareiginleikum efnisins. Dýnan lagar sig að hita og þrýst- ingi likamans. Þar af leiðandi myndast engir þrýstipunktar á stöðum s.s. herðum, mjöðmum, öxlum og höndum. Þannig helst blóðstreymi óheft, stirðleiki og verkir heyra sögunni til. NASA Eigin- Þrýstipunktar á Tempur heilsudýnunni Það er engin tilviljun að kírópraktorar, sjúkraþjálfar, iæknar og sérfræðingar um allan heim mæla aðeins með Tempur-pedic heilsudýnunni. Hjú Rud'tx íærð þú öU sveín herbet gishúsgogn. GlæsUeg rúm og yaf'Qr ,r Lurgo oy Voughun. Tinrslvrðir rúmbotnor. Radix ■ Grensásvegi 16 ■ S:588-8477 ■ Fax:588-8475
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.