Morgunblaðið - 09.05.1998, Side 2
2 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BERGLJÓT Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðarinnar
í Björgvin.
Hefðarbrot
Bergljótar veldur
urg í Björgvin
Böðvar Bragason í hálfs árs veikindaleyfí
Georg Lárusson settur
lögreglustjóri í Reykjavík
„ÞAÐ er engin hætta á því að ég
þurfi að segja upp,“ sagði
Bergljót Jónsdóttir, fram-
kvæmdasfjóri Listahátíðarinnar
í Björgvin, í samtali við Morgun-
blaðið í gær en borgarstjórn og
íbúar Björgvinjar eru æfir
vegna þess að hún hefur ákveðið
að lag sem flutt hefur verið við
opnun hátíðarinnar undanfarin
40 ár verði ekki flutt að þessu
sinni.
„Ég er með alla sljórn Lista-
hátíðarinnar í Björgvin á bak
við mig í þessu máli og á þess
vegna ekki von á því að hún segi
mér upp. Þetta er stórmál hér í
borginni þótt öllum utan borgar-
markanna þyki þetta einungis
dæmigert fyrir íhaldssemi
Björgvinjarbúa og þjóðemis-
hyggju en í þessu máli hefur
nokkuð borið á andstöðu við mig
sem útlending."
Norski þjóð-
söngurinn sunginn
Málið snýst um lag eftir Jo-
hann Nordal Brun sem kallað er
Björgvinjarsöngurinn en
Bergljót segir að ekki sé nægur
tími til að flytja það á opnunar-
hátíðinni.
„Við tengjum hátíðina að
þessu sinni við tónlistarvöku
sem Edvard Grieg hélt fyrir
réttum 100 árum í Björgvin og
litið er á sem eins konar kveikju
eða upphaf að núverandi hátíð.
Til að undirstrika þessa teng-
ingu ætlum við að hefja opnun-
ardagskrána á sama lagi og Gri-
eg hóf sína tónlistarvöku á; í lok
þessa lags er norski þjóðsöngur-
inn sunginn og þess vegna er
ekki hægt að koma Björgviiyar-
söngnum fyrir í dagskránni
lfka.“
í norskum fjölrniðluin í gær
var þess krafist að Bergljótu
yrði sagt upp störfum en jafn-
framt haft eftir henni að hún
myndi ekki breyta ákvörðun
sinni. í Bergens Tidende segir
að Björgvin sé lömuð af sorg,
jafnvel veitingahús muni hafa
lokað á upphafsdegi hátíðarinn-
ar og borgarbúar muni snið-
ganga viðburði hennar.
Viðtöl eru við ijölda frammá-
manna í norskum menningar-
heimi og segjast flestir harmi
slegnir yfir þessari ákvörðun
Bergljótar. Menningarfulltrúi
borgarinnar, Bjorn Holmvik,
segir það spumingu um að
Björgvin haldi sjálfsímynd sinni
að Björgviiyarsöngurinn verði
sunginn við opnunarhátfðina.
Sumir líta hins vegar á þetta
sem skondna uppákomu.
Hér er hefðum
aldrei breytt
í samtali við Morgunblaðið
sagði Frode Gryten, blaðamaður
á Bergens Tidende, að Björg-
vinjarbúum væri fúlasta alvara
með mótmælum sfnum. „Þú get-
ur allt eins bergt á eiturbikar og
reynt að breyta út af hefðum
hér í Bergen. Bergljót er mjög
huguð að ætla að reyna þetta en
hér í Björgvin er fólk ny'ög fast-
heldið á hefðir, hér er hefðum
aldrei breytt. Ef hún skiptir
ekki um skoðun verður hún að
segja af sér.“
Bergljót sagði að Stórþingið
hefði ákveðið að láta þetta mál
ekki til sín taka en skýrt var frá
því í norskum dagblöðum í gær
að þingið myndi fjalla um um-
deilda ákvörðun hennar. „Menn-
ingarmálaráðherra og Stórþing-
ið hafa komist að þeirri niður-
stöðu að þetta sé ekki þeirra
mál, heldur mitt.“
DÓMSMÁLARÁÐHERRA setti í
gær Georg Kr. Lárusson varalög-
reglustjóra til þess að gegna störfum
lögreglustjórans í Reykjavík í veik-
indaleyfi Böðvars Bragasonar til 15.
nóvember nk. Georg gegndi embætti
sýslumannsins í Vestmannaeyjum til
1. maí sl. þegar hann tók við embætti
varalögreglustjóra í Reykjavík.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra sagði í gærkvöldi að Böðvar
hefði óskað eftir því að fá veikinda-
leyfi og tekin hefði verið ákvörðun
um það í dómsmálaráðuneytinu að
veita honum sex mánaða leyfi af
þeim sökum. í beiðni Böðvars hefði
ekki verið óskað eftir leyfi í ákveð-
inn tíma, en niðurstaðan hefði orðið
þessi í „góðu samkomulagi milli
hans og ráðuneytisins“.
Vill bæta ímynd lögreglunnar
í Reykjavík
Georg sagði þegar náðist í hann í
Vestmannaeyjum í gærkvöldi að
framundan væri spennandi og
ögrandi verkefni.
„Ég hef mikinn hug á að gera það,
sem í mínu valdi stendur, til þess að
bæta ímynd Lögreglunnar í Reykja-
vík og koma því til betri vegar, sem
kann að hafa farið aflaga,“ sagði
hann. „Ég hef nú verið þarna eina
viku og þekki ekki mikið til starf-
semi stofnunarinnar, en geri mér
hins vegar grein fyrir því að þama
eru mikil verkefni framundan.“
Kosningavefur
Morgunblaðsins
Spurt og
svarað á
Netinu
NOTENDUM Kosningavefjar
Morgunblaðsins á Netinu gefst
kostur á að senda umsjónarmanni
vefjarins í tölvupósti spumingar til
framboðslista í einstökum sveitarfé-
lögum um allt land. Spumingunum
er komið áfram tU framboðanna og
svörin birt á Kosningavefnum jafn-
skjótt og þau berast.
Forsenda þess að hægt sé að veita
þessa þjónustu er að viðkomandi
framboð hafi búnað tU að taka við
spumingunum og svara þeim í
tölvupósti. Forsvarsmenn framboðs-
lista em hvattir til að senda Kosn-
ingavefnum upplýsingar um netfang
sitt. Netfang Kosningavefjarins er
kosning@mbl.is.
Netnotendur, sem senda vUja
framboðslistum fyrirspurn, velja
síðuna „Spurt og svarað“ á Kosn-
ingavefnum, smella á hnappinn „Ert
þú með spurningu?" og fylla út fyr-
irspumarform, sem þá birtist á
tölvuskjánum. Kosningavefnum má
tengjast frá Fréttavef Morgunblaðs-
ins eða með því að slá inn slóðina
http://www.mbl.is/kosningar.
Fyrir skömmu skilaði Ragnar
Hall, settur ríkislögreglustjóri,
skýrslu þar sem fundið var að
starfsháttum lögreglunnar í Reykja-
vík við vörslu fíkniefna. Þá stendur
yfir rannsókn dómsmálaráðuneytis-
ins á fjárreiðum lögreglustjóraemb-
ættisins í Reykjavík, sem fyrst og
fremst beinist að innheimtu sekta
hjá embættinu og er von á skýrslu
um hana í næstu viku.
„Ég geri ráð fyrir því að ráðu-
neytið geti tekið afstöðu til þessara
tveggja skýrslna í næstu viku,“
sagði Þorsteinn þegar hann var
spurður hvort leyfi Böðvars tengdist
þessum málum lögreglunnar á
nokkurn hátt.
Að auki er verið að vinna þriðju
skýrsluna um Lögregluna í Reykja-
vík hjá Rfldsendurskoðun. Þar er á
ferð fjárhagsendurskoðun á emb-
ætti lögreglustjóra í Reykjavík.
Morgunblaðið spvuði Böðvar
Bragason hvort veikindaleyfið tengd-
ist framangreindum málum á ein-
hvern hátt. „Veikindi og uppskurður
tengjast ekki þeim málum sem eru í
gangi hjá lögreglunni hverju sinni.
Það er alveg ljóst,“ svaraði Böðvar.
Aðspurður hvort hann kæmi aftur til
starfa hjá Lögreglunni í Reykjavík
sagðist Böðvar hafa leyfi frá störfum
til 15. nóvember.
Erfið mál fyrir lögregluna
Georg kvaðst ekki eiga von á því
SJÓNVARPSSTÖÐIN BBC 1 ætl-
ar að gera sjónvarpsþátt um ferð
hljómsveitarinnar Spice Girls á
hvalaslóðir. I þættinum verður
fylgst með Kryddstúlkunum
skoða hvali og stóð upphaflega
til að þátturinn yrði að hluta til
tekinn upp hér á landi. Nú virðist
sem áætlanir BBC hafi breyst.
Joe Sarsby, framleiðandi þátt-
arins, segir allt útlit fyrir að
þátturinn verði tekinn upp í
Karíbahafinu. Sarsby hefur m.a.
framleitt náttúrulífsþætti Davids
Attenborough.
að þessi mál myndu gera sér sér-
staklega erfitt fyrir.
„En auðvitað eru þetta erfið mál
fyrír lögregluna," sagði hann. „Það
er hins vegar okkar verkefni að
horfa til framtíðar og byggja upp.
Væntanlega má ætla að þetta hafi
skaðað lögregluna með einhverjum
hætti, en það er þá mitt hlutverk að
bæta úr því eftir því sem mögulegt
er.“
Georg sagði að sitt stutta sam-
starf við Böðvar Bragason hefði lof-
að góðu og hann ætti von á því að
eiga samstarf við hann meðan á
veikindaleyfinu stæði. „Ég reikna
með því að ég fái að leita til hans
með þau mál, sem á þarf að halda,“
sagði hann.
Setti engin skilyrði
Georg vísaði á bug að hann hefði
lagt fram þá kröfu við dómsmála-
ráðuneytið að Böðvar færi frá og
gert það að skilyrði fyrir því að hann
kæmi til starfa. „Það er alrangt,“
sagði hann. „Ég hef hvorki formlega
né óformlega sett fram þá kröfu á
neinum vettvangi. Ég hef engin skil-
yrði sett fram um samskipti mín við
lögreglustjórann."
Þorsteinn Pálsson sagði að það
væri úr lausu lofti gripið að Georg
hefði sett fram kröfur um að þurfa
ekki að starfa með Böðvari enda
hefði hann tekið við embætti vara-
lögreglustjóra frá og með 1. maí.
„Við erum mjög leið yfír þessu
þótt það sé reyndar ekki alveg
frágengið. Upphaflega var ein-
göngu gengið út frá því að taka
þáttinn upp þar sem aðstæður til
hvalaskoðunar væru bestar á til-
teknum túna. Ráðgert er að tök-
ur verði í janúar og febrúar á
næsta ári og á þessum tíma virð-
ist sem það henti best að taka
upp í Karíbahafinu. ísland er þó
ennþá inni í myndinni og það
ræðst endanlega innan eins mán-
aðar hvort það verður fyrir val-
inu,“ sagði Sarsby.
BBC myndar Spice
Girls á hvalaslóðum
MORGUNBLAÐSINS
ÞEGAR VIÐ VILJUM
Á FLYTJUM VIÐ FJÖI
EINSAGAN -
ÓSKRIFUÐ SAGA
Sérblöð í dag
Fylgstu
með
nýjustu
fréttuni