Morgunblaðið - 09.05.1998, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Félagsmálaráðherra eftir afgreiðslu sveit-
arstjórnarfrumvarpsins tii þriðju umræðu
Lagasetningar
um hálendið
mikil framför
í.-fJSjjpS*.
- T y ■ --7 -- r i
TILMAN Bartsch og móðir hans voru þakklát fyrir þau skjótu við-
brögð sem íslendingar sýndu ákalli þeirra, en drengurinn, sem er ell-
efu ára, er haldinn sjaldgæfum sjúkdómi sem gerir vart við sig þegar
hitinn fer yfir 20°C.
Skjót viðbrögð
Islendinga
FRUMVARP félagsmálaráðherra
til sveitarstjórnarlaga var afgreitt
til þriðju umræðu á Alþingi í gær
með 30 atkvæðum stjómarþing-
manna en 19 þingmenn greiddu
ekki atkvæði. Fjarverandi voru 14
þingmenn. Aður hafði verið felld til-
laga þingmanna Alþýðubandalags-
ins og óháðra um að vísa frumvarp-
inu frá. Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra kvað þessi úrslit ekki
koma sér á óvart og telur lagasetn-
ingar um hálendismálin mikla
framfór.
Fjölmargir þingmenn gerðu
grein fyrir atkvæði sínu og í fram-
haldi af því að felld var tillaga al-
þýðubandalagsmanna lýsti Svavar
Gestsson því yfir að þingmenn
flokksins myndu ekki greiða at-
kvæði við afgreiðslu frumvarpsins.
Andstaða á
misskilningi byggð
Félagsmálaráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið að önnur um-
ræða um frumvarpið hefði tekið
óþarflega langan tíma. Hann sagði
það sorglega við hana vera það að
andstaða við frumvarpið væri á
miklum misskilningi byggð. Ástæð-
an væri sú að í tengslum við þetta
frumvarp ætti að afgreiða frum-
varp um þjóðlendur og nýtingu
auðlinda í jörð og ákveðið væri
einnig að breyta skipulags- og
byggingarlögum. í þeim væru
ákvæði um að hálendið skuli skipu-
leggja sem eina heild og þess gætt
að aðalskipulagstillögur einstakra
sveitarfélaga væru í samræmi inn-
byrðis og við heildina.
Páll Pétursson sagði land allt nú
innan marka sveitarfélaga sem
tryggði þar með eðlilega stjóm-
sýslu á hálendinu, t.d. á jöklum
sem hefði vantað. A þeim færi nú
fram hvers kyns og vaxandi ferða-
þjónusta sem væri í raun utan við
lög og rétt. Taldi félagsmálaráð-
herra þessa lagasetningu mikla
framför.
Þá sagði Páll Pétursson að þjóð-
lendufrumvarpið kvæði á um að
allt land sem hvorki sveitarfélög né
einstaklingar gætu sannað eignar-
rétt sinn á skyldi verða þjóðareign
og bæri forsætisráðherra að fara
með forræði þess. Ráðherrann
sagði lögin eiga að tryggja að sam-
ræmi væri í skipulagi hálendisins,
að það væri ein heild og að aðal-
skipulag sveitarfélaga væri í sam-
ræmi við það.
ÞÝSKI drengurinn og móðir
hans, sem Morgunblaðið greindi
frá í gær að leitaði sumarheimilis
í Reykjavík eða nágrenni, hefur
fundið dvalarstað á fslandi.
Drengurinn er ellefu ára gamall
og haldinn mjög sjaldgæfum sjúk-
dómi sem gerir vart við sig þegar
hitastig fer yfir 20°C. Þónokkrir
Islendingar höfðu samband við
þau strax í gær og hafa þau fund-
ið heimili frá miðjum maí til loka
ágústmánaðar, en vantar ennþá
heimili í september, þar sem enn
er of heitt fyrir drenginn í heima-
bæ hans á þeim árstíma.
Petra Bartsch, móðir drengs-
ins, kvaðst hafa orðið undrandi
þegar boð fóru að berast frá ís-
Iandi um að hýsa þau í sumar:
„Ég varð ákaflega hissa og jafn-
framt ótrúlega glöð þegar ég
fékk hringingar og símbréf frá ís-
landi í morgun [í gær] af því að ég
vissi ekki að bréfið hefði birst í
blaðinu," sagði Petra Bartsch
þegar Morgunblaðið talaði við
hana í gær. Hún sagði að þau
kæmu til landsins á næstunni
enda væri nú tuttugu og fimm
stiga hiti í Þýskalandi og Tiiman
þyrfti að vera inni allan daginn til
að forðast að einkenni sjúkdóms-
ins kæmu fram.
Petra sagði að hún og eigin-
maður hennar myndu ákveða um
helgina hvaða boð væru ákjósan-
legust fyrir Tilman og þarfir
hans, en hann gæti ekki verið öllu
lengur í Þýskalandi vegna hitans.
Yínlands-
fundar
minnst
með mynt-
sláttu
ÞÚSUND ára afmælis ferða Leifs
Eiríkssonar til Vesturheims og Vín-
landsfundar hans verður minnst í
Bandaríkjunum árið 2000 með
myntsláttu og farandsýningum, að
því er talsmaður Hvíta hússins hef-
ur tilkynnt.
I frétt Reuters um málið segir að
bandarísk og íslensk stjómvöld hafí
myndað samstarfshóp sem ber nafn
Leifs er hafi það verkefni að undir-
búa hátíðahöld í tilefni landafunda
hans, „sem sigldi til Ameríku næst-
um því 500 árum á undan Kristófer
Kólumbusi," eins og segir í fréttinni.
Talsmaður Hvíta hússins sagði að
Bandaríkjamenn og íslendingar
myndu minnast tímamótanna sam-
eiginlega með útgáfu minnispenings,
tveggja ára farandsýningu á vegum
Smithsonian-stofnunarinnar um arf-
leifð víkingahna og sérstökum vef
um fomsögur Islendinga á Netinu.
I frétt Reuters er klykkt út með
frásögn af því að Leifur Eiríksson
hafi siglt 3.000 kílómetra vegalengd
frá Grænlandi til L’Anse aux Mea-
dows á Nýfundnalandi árið 1.000 á
opnu skipi sem knúið hafi verið
áfram fyrir aðeins einu segli eða sex
mönnum undir árum.
Mun fleiri
ferðamenn
en á sama
tíma í fyrra
SEX ÞÚSUND og þrjú hundruð
fleiri erlendir ferðamenn hafa lagt
leið sína til landsins fyrstu fjóra
mánuði ársins miðað við sama tíma í
fyrra og nemur aukningin um 17%.
í fréttatilkynningu frá Ferðamála-
ráði íslands segir að í aprílmánuði sl.
hafi 15.581 erlendur ferðamaður
komið til landsins, sem er 30% aukn-
ing miðað við aprílmánuð 1997, en þá
komu alls 12.503. í aprílmánuði sl.
hafa því að meðaltali komið 500 er-
lendir ferðamenn til landins á dag.
Flestir hinna erlendu gesta komu frá
Bretlandi eða 3.697, 2.550 komu frá
Bandaríkjunum, 1.980 frá Dan-
mörku og 1.693 frá Svíþjóð.
90% fleiri en fyrir sex árum
lO N N K ®
8 § 8 S 8
| 5 1 i 1
I | | j I
ð é5 ð
•S
173 17,4
11,4
9,9
113
y
Yí
Si J§3 36 o
23,3
18,4
17,317,4 17,4
Alþýðuflokkur
Framsóknarflokkur
Sjálfstæðisflokkur
Fylgi stjórnmálaflokka í kosningum 1995
og í skoðanakönnunum síðan
Spurt í apríl-maí 1998
Hvað myndu menn kjósa í alþingiskosningum nú?
Apríl-
Kosn. Feb. Maí Nóv. maí
1995 1997 1997 1997 1998
Annað 1,9 0,8 0,0 0,3 0,4
;*k
.uíjimjiijj
7,2
43 4,8 m
0ÖDS&B 1.
10,9
33 3,7
Alþýðubandalag
Kvennalisti
' 1? 1 w w wdffJI
Þjóðvaki Jafnaðarmannaflokkur
5,5 ri
[f!
Litlar breytingar á fylgi flokkanna til Alþingis samkvæmt könnun Félagsvísindastofmmar
Sjálfstæðisflokkur fengi 44,7%
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
fengi mest fylgi flokkanna, eða
44,7% atkvæða, ef gengið yrði til
alþingiskosninga nú. Þetta er nið-
urstaða skoðanakönnunar, sem Fé-
lagsvísindastofnun Háskóla ís-
lands gerði fyrir Morgunblaðið 16.
apríl til 5. maí síðastliðinn. Fylgi
flokksins er nánast það sama og í
síðustu könnun stofnunarinnar í
nóvember á síðasta ári, en þá
mældist það 44,5%.
Framsóknarflokkurinn er sömu-
leiðis á sama róli og í nóvember,
fékk bæði þá og nú 17,4% fylgi.
Fylgi Alþýðubandalagsins er nú
15%, en var 14,2% í nóvember. Al-
þýðuflokkurinn fær nú 11,8% en
hafði 9,9% í nóvember. Kvennalist-
inn fékk 2,2% í nóvember en hefur
nú 3,1% fylgi. Engin þessara fylgis-
breytinga er tölfræðilega marktæk.
Einu marktæku breytingamar
eru annars vegar fylgisaukning
Þjóðvaka, sem fékk 0,8% fylgi í
nóvember en nýtur nú stuðnings
2,1% svarenda, og samdráttur í
fylgi „Jafnaðarmannaflokks“ eða
sameiginlegs framboðs vinstri
manna, sem ýmsir svarendur hafa
nefnt að fyrra bragði í könnunum
undanfarið. I nóvember nefndu
10,9% þennan möguleika en helm-
ingi færri nú, eða 5,5%.
Sjálfstæðisflokkur
með 52,7% í Reykjavík
Þegar svarendahópnum er skipt
niður í smærri hópa vekur athygli
að fylgi Sjálfstæðisflokksins til Al-
þingis er 52,7% í Reykjavík, en fylgi
flokksins fyrir komandi borgar-
stjómarkosningar hefur mælzt um
40% í könnunum að undanfomu.
Þegar úrtakinu er skipt eftir
kyni kemur í Ijós að mestur munur
er á fylgi kynjanna við Sjálfstæðis-
flokk og Kvennalista. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur 49,4% fylgi hjá
körlum en 39,5% hjá konum.
Kvennalistinn nýtur hins vegar
stuðnings 5,9% kvenna en 0,8%
karla.
Svipaður stuðningur
við stjórnina
Spurt var um stuðning við ríkis-
stjómina og reynist bæði stuðnings-
Hvort mundir þú segja að
þú værir stuðningsmaður
ríkisstjórnarinnar eða
andstæðingur?
Hljtfall þeirra sem svara
Nóv’97 Apríl/Maf ’98
mönnum hennar og andstæðingum
hafa fækkað lítillega, en hlutlausum
fjölgað. Af þeim, sem svara spum-
ingunni, segjast 45,2% stuðnings-
menn stjómarinnar (46,9% í nóvem-
ber), 24,9% andstæðingar (28,9% í
nóvember) og 29,9% hlutlausir
(24,2% í síðustu könnun).
í könnun Félagsvísindastofnun-
ar var stuðzt við slembiúrtak úr
þjóðskrá, sem náði til 1.800 manns
á aldrinum 18 til 80 ára, af öllu
landinu. Nettósvarhlutfall er
72,5%, sem telst ágætt í könnun af
þessu tagi. Félagsvísindastofnun
telur að úrtakið endurspegli þenn-
an aldurshóp meðal þjóðarinnar
allvel.
Spurt var hvað menn myndu
kjósa ef alþingiskosningar yrðu á
morgun. Þeir, sem sögðust ekki
vita það, voru spurðir aftur hvað
þeir teldu líklegast að þeir kysu.
Segðust menn enn ekki vita, vom
þeir spurðir hvort líklegra væri að
þeir kysu Sjálfstæðisflokkinn eða
einhvern vinstri flokkanna og
þeim, sem sögðust myndu kjósa
vinstri flokka, deilt niður á þá
í hlutfalli við svörin við fyrri
spurningum. Með þessu fer
hlutfall óákveðinna úr 32,9%
eftir fyrstu spurninguna niður í
7,5%.
Alls segjast 8,1% myndu skila
auðu eða kjósa ekki og 14,2% neita
að svara.
Heildarfjöldi erlendra ferðamanna
sem komið hafa til landsins frá janú-
ar til apríl í ár er 43.660 en voru þeir
37.381 á sama tímabili í fyrra. Mest
hefur fjölgunin á milli ára orðið á
ferðamönnum frá Danmörku, eða
26% og frá Bretlandi um 25%.
I fréttatilkynningunni segir að
verulegur árangur hafi náðst í
auknum umsvifum ferðaþjónustu
utan hins hefðbundna ferðamanna-
tíma á undanfömum árum. Til sam-
anburðar er bent á að fyrir sex ár-
um komu hingað til lands 23.000
gestir fyrstu fjóra mánuði ársins, en
nú eru þeir um 90% fleiri.
Sfld til Eski-
fjarðar
NÓTASKIPIÐ Guðrún Þorkels-
dóttir frá Eskifirði landar 900 tonn-
um af sfld á Eskifirði í dag. Sfldin er
„stór en horuð" að sögn Emils
Thorarensen, útgerðarstjóra Hrað-
frystihúss Eskifjarðar.
Sfldin veiddist djúpt úti af Reyðar-
firði og að sögn Emils lýstu sjómenn
því þannig að „smápeðrur“ af sfld
væru á svæðinu. Hún stæði djúpt á
daginn en grynnkaði á kvöldin og þá
næðu menn dálitlum afla.
í
.
;
s
(
<