Morgunblaðið - 09.05.1998, Side 12

Morgunblaðið - 09.05.1998, Side 12
12 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Listin í hálendinu - hálendið í listinni Mótmæla- fundur á Kjarvals- stöðum HÓPUR lista- og vísindamanna ásamt félögum náttúruvemdar- og útivistarfólks, stendur að táknrænum mótmælum á Kjarvalsstöðum í dag, til að berjast fyrir sjónarmiðum sín- um varðandi hálendið. „Menn eru mjög ósáttir við það sem er að gerast á Alþingi og era að hugsa sinn gang,“ sagði Haukur Jóhannesson, forseti Ferðafélags Islands. Haukur sagði að fundurinn á Kjar- valsstöðum væri haldinn í framhaldi af fundinum á Hótel Borg. Að sögn Steinunnar Sigurðardótt- ur rithöfundar hefst fundurinn á Kjarvalsstöðum kl. 15.30. Fjallað verður um listina í hálendinu - há- lendið í listinni. „Þeir sem koma fram eru Ólafur Gíslason sem flytur erindi um hálendið í málverkinu," sagði hún. „Síðan kemur fólk og velur sér eitthvert efni til að lesa upp eins og stutta kafla úr bókmenntunum okkar eða jafnvel úr ritgerðum eða talar frá eigin brjósti. Þetta verður blanda af lista- og vísindamönnum." Þeir sem koma fram era Hilmir Snær Guðnason leikari, Bryndís Brandsdóttir jarðeðlisfræðingur, Er- lingur Gíslason leikari, Pétur Gunn- arsson rithöfundur, Ásta Óiafsdóttir myndlistarkona, Ari Trausti Guð- mundsson jarðeðlisfræðingur og Trausti Valsson skipulagsfræðingur. Egill Hreinsson prófessor leikur á pí- anó í hléi. Morgunbiaðið/Ásdís Vel miðar á Laugaveginum FRAMKVÆMDIR við endurbygg- ingu Laugavegar milli Barónsstígs og Frakkastígs eru hálfnaðar. Á gatnamótum Bardnsstígs og Lauga- vegar er verið að Ieggja skdlprör og skipta um jarðveg og á öðrum stöð- um eru lagðar njrjar hitaveitulagn- ir. Á mdtum Frakkastígs og Lauga- vegar verður á mánudag byijað að malbika akbrautina 40-50 metra inn á Laugaveg og síðan verður farið að leggja gangstéttarsteina. I Sálumessu syndara var brotið gegn persónufriði og einkalífí Esra og Ingólfur greiði 350 og 450 þús. kr. sekt ESRA S. Pétursson og Ingólfur Margeirsson voru í gær dæmdir til að greiða sektir í ríkissjóð, Esra 350 þús. kr. fyrir brot gegn friðhelgi einkalífs og þagnarskyldu lækna og Ingólfur 450 þús. kr. fyrir brot gegn friðhelgi einkalífs. Þeir voru og dæmdir til greiðslu málsvamarlauna og sakarkostnaðar. Esra var gefíð að sök að hafa skýrt frá sjúkdómum, sjúkrasögu og öðrum einkamálum fyrrverandi sjúklings síns, sem hann hafði kom- ist að sem læknir og látið birta opin- berlega í bókinni Sálumessu synd- ara sem gefin var út í október á síð- asta ári af útgáfufélaginu Hrísey ehf. I bókinni skráði Ingólfur Mar- geirsson æviminningar Esra. Ingólfi er gefið að sök að hafa i samvinnu við Esra birt frásögn hans af einka- málefnum fyrrverandi sjúklings hans í bókinni. Ingólfur er einn aðal- maður í stjórn og framkvæmdastjóri Hríseyjar ehf. Umfjöllunin hluti af ævisögu Esra I dóminum kemur fram að Esra hafi ekki litið svo á að hann hafi birt frásögn af sjúkdómi konunnar eða sjúkraskrá hennar heldur væri um- fjöllun um hana og ástarævintýri þeima hluti af ævisögu hans sem gæti haft gildi fyrir aðra sem hana lesa. Þá kvaðst hann ekki líta svo á að hann hefði brotið trúnað við hana með því að birta frásögnina. í bók- inni kemur fram beram orðum að Esra leit á sig sem geðlækni konunn- ar og á hana sem sjúkling sinn. Af hálfu Esra og Ingólfs var því haldið fram að birting þeirra upplýs- ínga sem málið snýst um njóti vernd- ar stjórnarskrárinnar, með því að öllum sé þar tryggður réttur til að láta í ljósi hugsanir sínar, svo og lagaverndar Mannréttindasáttmála Evrópu þar sem mönnum sé einnig tryggður réttur til tjáningarfrelsis. Ríkir almennir hagsmunir standi til þess að menn geti birt upplýsingar sem þessar opinberlega án þess að eiga á hættu lögsókn. Dómurinn féllst ekki á þessa máls- ástæðu. Einkalíf manna njóti frið- helgi sem ekki verði skert nema með lögum. Menn vei'ði að ábyrgjast fyrir dómi hugsanir sínar sem þeir birta og að Mannréttindasáttmálinn geri ráð fyrir því að með lögum sé heimilt að setja tjáningarfrelsinu þær skorð- ur sem nauðsynlegar séu í lýðræðis- legu þjóðfélagi, m.a. til að vernda mannorð manna og til að koma í veg fyrir uppljóstrun trúnaðarmála. I ljósi þessa var Esra sakfelldur fyrir brot gegn læknalögum og almennum hegningarlögum. Ingólfur sagði fyrir dómi að hann hefði haft nokkrar áhyggjur af því hvort birting umrædds efnis myndi á einhvem hátt raska lífi tveggja sona konunnar, fæddra 1982 og 1986, og hefði hann ætlað að hafa samband við konuna sem fer með forræði yfir þeim vegna þess. Hún hafði þó sam- band við hann áður en til þess kom, fékk að lesa yfir próförk og gerði at- hugasemdir við nokkur atriði. Ingólfur sagðist hafa breytt þeim og gætt þess um leið að það kæmi ekki niður á frásögn Esra. Hins vegar hefði konan sagt að hún efaðist um að þeim Esra væri heimilt að birta frásögnina. Ætluðu að hafa fjárhagslegan ávinning af bókinni í niðurstöðu dómsins segir að brot Ingólfs og Esra gegn persónufriði og einkalífi konunnar sé stórfellt og sið- ferðislega mjög ámælisvert. „Þá er á það að líta að brotið er framið í tengslum við útgáfu bókar sem ætla verður að varðveitist lengi, bæði á söfnum og í eigu margra, andstætt því sem gegnir um blöð og tímarit. Þá verður og að taka tillit til þess að ákærðu ætluðu að hafa fjárhagsleg- an ávinning af bókinni. Þegar ákærða Esra er gerð refsing ber að hafa hliðsjón af því að honum gat ekki dulist að uppljóstrun hans var alvarlegt trúnaðarbrot gagnvart [...] heitinni. Á hinn bóginn ber að líta til þess að hann er maður aldrað- ur og eins þess að hann hefur verið sviptur lækningaleyfi.“ „Að því er varðar refsingu ákærða Ingólfs Amar er það til þyngingar henni að hann gerði sér grein fyi'ir því að brot hans gæti raskað tilfinn- ingum bama [...].“ Dóminn kváðu upp Pétur Guð- geirsson héraðsdómari og meðdóms- mennirnir Auður Þorbergsdóttfr og Steingrímur Gautur Kristjánsson héraðsdómarar. Athugasemd frá dómsmála- ráðuneytinu MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd: Vegna greinar Guðmundar G. Þórarinssonai' verkfræðings í Morgunblaðinu 8. maí 1998 vill dóms- og kirkjumálaráðuneytið koma á framfæri eftirfarandi at- hugasemdum og leiðréttingum við rangfærslum: I grein sinni gerir Guðmundur að umtalsefni meðferð sýslumannsins á Akranesi á máli vegna innheimtu dómsektar og opinberra gjalda hjá Þórði Þ. Þórðarsyni, (ÞÞÞ) sem bú- settur er á Akranesi. Hinn 21. janúar 1998 gerði sýslu- maðurinn á Akranesi samning við ÞÞÞ um greiðslu á eftirstöðvum sektar að upphaflegri fjárhæð 50 milljónir króna og sakarkostnaðar, samkvæmt dómi Hæstaréttar frá 12. júní 1996. Samkomulagið hljóð- aði upp á greiðslu fimm milljóna króna af 42,5 milljóna króna eftir- stöðvum á árinu 1998. Þá segir í samkomulaginu að samið verði um framhald greiðslna í síðasta lagi í janúar 1999. Dómsmálaráðuneytið fékk vit- neskju um samkomulagið 29. janú- ar 1998, og sendi sýslumanninum á Akranesi bréf þann sama dag, þar sem ráðuneytið lýsti þeirri skoðun sinni að samkomulagið væri ský- laust brot á 2. mgr. 52. gr. al- mennra hegningarlaga um greiðslufrest sekta, sbr. lög nr. 57/1997, og að ráðuneytið liti málið alvarlegum augum. Þar sem sektin hefði komið tO innheimtu hjá sýslu- manninum á Akranesi 11. júlí 1997 hefði ekki verið heimilt að veita lengri greiðslufrest á sektinni með samkomulagi en eitt ár. I umræddu samkomulagi er hins vegar enginn greiðslufrestur af- markaður þar sem ákveðið er að semja eigi um eftirstöðvar skuldar- innar í síðasta lagi í janúar 1999, allt að hálfu ári eftir að heimill há- marksgreiðslufrestur samkvæmt lögum rynni út. Sagði jafnframt í bréfinu að þar sem farið hefði verið út fyrir lögbundnar heimildir til þess að semja um greiðslufrest liti ráðuneytið svo á að samkomulagið væri ógilt. Með bréfi ráðuneytisins, dags. 30. janúar 1998, var sýslu- manninum á Akranesi gefinn kost- ur á að tala máli sínu, en í bréfinu var lýst þeirri fyrirætlan ráðuneyt- isins að veita sýslumanni áminn- ingu á grundvelli 21. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Taldi ráðu- neytið að gerð samkomulagsins af hálfu sýslumanns væri ámælisverð. í kjölfar ítarlegra andmæla sýslumannsins á Akranesi tók ráðuneytið þá ákvörðun 2. mars 1998, að veita sýslumanninum á Akranesi áminningu. Kemur m.a. fram í áminningu ráðuneytisins að jafnvel þótt ekki væri tekið tillit til Athugasemd frá forstjóra VIS MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá Axeli Gíslasyni, for- stjóra Vátryggingafélags íslands hf. ,Að gefnu tilefni og vegna opin- berrar umfjöllunar um störf Helga S. Guðmundssonar fyrir Vátrygg- ingafélag íslands hf. vill undirritaður upplýsa eftirfarandi: Helgi S. Guðmundsson hefur starf- að hjá Vátryggingafélagi Islands hf. frá stofnun þess árið 1989. Hann starfaði áður hjá Samvinnutrygging- um gt. og hefur samtals 16 ára starfsferil að baki í vátryggingum. Helgi hefur um margra ára skeið gegnt starfi sölustjóra atvinnutrygg- inga hjá VÍS. í því starfi ber hann ábyrgð á sölu vátrygginga til fyrir- tækja og stofnana og stýrir hópi sölumanna er starfa á því sviði. Launakjör Helga í þessu starfi eru föst mánaðarlaun, en ekki sölu- eða umboðslaun af viðskiptum. Það hefur því aldrei staðið til að Helgi S. Guðmundsson fengi um- boðs- eða sölulaun í neinu formi af tryggingasölu til Landsbanka ís- lands hf. ákvæða 52. gr. almennra hegning- arlaga þá stæðust skilmálar sam- komulagsins ekki þær ólögfestu reglur sem myndast höfðu um af- borgunarsamninga á sektum lyrir 1. júlí 1997. Framangreindir samn- ingsskilmálar væra því ámælis- verðir, hvernig svo sem litið væri á málið, og óyggjandi væri að sýslu- maðurinn hefði með undirritun þessa samkomulags sýnt af sér vankunnáttu og óvandvirkni í starfi. I áminningu þessari var ekki tek- ið á öðrum atriðum en umræddu samkomulagi. Á það má hins vegar benda að við skoðun fjármálaráðu- neytisins á innheimtu sýslumanns- ins á opinberam gjöldum í máli ÞÞÞ var tekin sú ákvörðun að taka úr þans höndum innheimtu þeirra. I grein sinni víkur Guðmundur G. Þórarinsson að þeim fullyrðing- um sýslumannsins á Akranesi, að dómsmálaráðuneytið hafi á undan- fómum árum samið við nokkra að- ila um greiðslu sekta. Hér er um rangfærslu að ræða. Hið rétta í málinu er að í fáeinum tilvikum hafa lögi-eglustjórar leitað eftir að- stoð ráðuneytisins við gerð samn- inga um greiðslu hærri sekta. Dæmi eru um frá gamalli tíð að ráðuneytið hafi gert beint samn- inga um greiðslu sekta, en á síðustu áratugum hefur ráðuneytið einung- is haft milligöngu um samnings- gerð eftir málaleitan lögreglu- stjóra, síðast árið 1991. Tilgangur- inn með þeirri milligöngu var að tryggja að samkomulag væri í sam- ræmi við lög og venjubundna fram- kvæmd. Sýslumaðurinn á Akranesi bar samkomulag það sem hann gerði við ÞÞÞ 21. janúar sl. ekki undir ráðuneytið, svo sem telja hefði mátt eðlilegt vegna þeirra hagsmuna sem í húfi voru, svo og í ljósi þeirrar gríðarlegu umfjöllunar sem málið hafði fengið. í greininni gerir Guðmundur því skóna, að dómsmálaráðuneytinu hafi borið að mæta á uppboð á skuldabréfum sem tekin voru fjár- námi í málinu og gæta hagsmuna ríkissjóðs, og fá fordæmi séu um slíka vanrækslu. Vegna þessa vill dómsmálaráðuneytið taka fram, að það er ekki hlutverk ráðuneytisins að gæta hagsmuna ríkissjóðs hvað þetta varðar, og hefur ráðuneytið aldrei mætt á uppboð í þeim til- gangi. Fulltrúi ríkissjóðs á uppboð- inu og sá sem gæta á hagsmuna hans hvað þetta varðar er hins veg- ar sýslumaður, sem innheimtumað- ur opinberra gjalda. Sýslumaður tilkynnti fjármála- ráðuneytinu um fyrirhugað uppboð, sem ákvað að bjóða ekki í bréfin, af ástæðum sem áður hafa verið ítar- lega raktar í fjölmiðlum. Var það meðal annars byggt á því að fyrir uppboðið hafði sýslumaður sett skuldabréfin til tryggingar sektar- greiðslu í stað opinberra gjalda, ráðstöfun sem ríkisendurskoðun gagm-ýndi harkalega í skýrslu sinni um málið frá því í janúar sl. í grein sinni fjallar Guðmundui' ennfremur um, að samkomulag það sem sýslumaðurinn gerði hafi ekki verið við dómþola, heldur ættingja hans. Vekur þessi fullyrðing undr- un, þar sem samkomulagið frá 21. janúar sl. er augljóslega milli ÞÞÞ, sem undirritar það sjálfur, og sýslumannsins á Ákranesi. Að síðustu er rétt að taka fram, að hagsmunir ríkissjóðs af inn- heimtu og greiðslu sekta era ekki fjárhagslegir. Sektir eru refsing sem ber að fullnægja samkvæmt aðalefni sínu. Greiðist sekt ekki, í samræmi við ákvæði laga, er unnt að grípa til vararefsingar, og ná þannig fram fullnustu refsingar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.