Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Um 90 kennarar á Akur- eyri segja upp störfum Morgunblaðið/Kristján BJÖRG Dagbjartsdóttir, talsmaður kennara, greindi frá ástæðum uppsagnar sinnar utan við bæjarskrif- stofurnar á Akureyri, en um 100 réttindakennarar í bænum sögðu upp störfum í gær vegna óánægju með að bæjaryfirvöld vildu ekki ræða við þá um kjaramál. UM 90 kennarar á Akureyri lögðu leið sína á skrifstofu Akureyrar- bæjar eftir hádegi í gær og afhentu Jakobi Bjömssyni bæjarstjóra af- rit af uppsagnarbréfum sínum en áður höfðu þeir fengið skólastjór- um í grunnskólum bæjarins upp- sagnir sínar. Uppsagnirnar taka gildi 1. september. Um 215 manns starfa við kennslu á Akureyri, þar af eru réttindakennarar um 160. „Mér er ekki fógnuður í huga,“ sagði Björg Dagbjartsdóttir, tals- maður kennara á Akureyri, en hún taldi að eins væri ástatt með fleiri úr hópnum, fæsta langaði að hætta kennslu. „Ég er ósátt við að bæjaryfirvöld á Akureyri skyldu ekki vilja ræða við okkur gi-unnskólakennara um kjaramál eins og við óskuðum eftir 20. mars síðastliðinn,“ segir í upp- sagnarbréfi Bjargar og einnig að hún sé ósátt við þá þróun sem orðið hafi innan grunnskóla á Akurevri, réttindakennurum hafi fækkað og þá nefndi hún framkvæmd á blönd- un fatlaðra nemenda í almenna bekki, skortur væri á fagfóiki til að annast og gæta réttar þessara nemenda sem mest ættu á bratt- ann að sækja en það veldur ómældu auknu álagi sem ei’fitt og á stundum er ógerlegt að mæta. Betri kjör bjóðast annars staðar Björg sagði að síðustu kjara- samningar hefðu aðeins tryggt lág- markslaun og reyndustu kennar- amir hefðu minnst borið úr býtum. „Hugmyndir okkar um breytingar á kjörum kennara á Akureyri miða m.a. að því að þetta fólk haldi áíram kennslu en hverfi ekki til annarra betur launaðra og þægi- legra starfa eins og dæmin sanna. Fækkun réttindakennara og fjölg- un leiðbeinenda í kennslustörfum í grannskólum bæjarins væri óþol- andi, fyrir foreldra, nemendur, kennara og bæjaryfii-völd. Hún sagði að fordæmi væra fyrir því að gerðir væra sérsamningar við aðra starfshópa á Akureyri þannig að kennarar væra ekki að fara ótroðn- ar slóðir. „Petta hlýtur að kalla á þá ábyrgð bæjaryfirvalda að ræða við hjú sín, það er ekki skynsam- legt að vísa þeim á dyr við þessar aðstæður,“ sagði Björg en hún kvaðst vita til þess að kennuram á Akureyri hefðu boðist betri kjör annars staðar og einhverjir væra að hugsa sér til hreyfings, að flytja búferlum með fjölskyldur sínar. Viðræðufundi verði hraðað Jakob Bjömsson bæjarstjóri sagði að viðbrögð sín við uppsögn- unum væra fyrst og fremst von- brigði. Akureyrarbær, eins og önn- NEMANDI í 10. bekk í Brekku- skóla á Akureyri brenndist illa á hendi í gærmorgun er heimatilbú- in reyksprengja fuðraði upp í höndum hans. Atvikið átti sér stað á lóð skólans og var drengurinn fluttur til aðhlynningar á slysa- deild FSA. ur sveitarfélög í landinu, hefði lagt sitt af mörkum til að bæta kjör kennara við síðustu kjarasamn- inga. Kennarar hefðu óskað eftir viðræðum í mars og einn fundur verið haldinn í kjölfarið, en bæjar- ráð hefði svo vísað erindinu til launanefndar sveitarfélaga sem hefði samningsumboð fyrir Akur- eyrai'bæ. Hún hefði óskað eftir við- Sveinbjörn Markús Njálsson, skólastjóri Brekkuskóla, sagði að samkvæmt upplýsingum sínum hafi pilturinn hlotið 2. stigs brana í lófa og 1. stigs brana á upphand- legg. „Eftir atvikið var rætt við nemendur og þeim gerð grein fyrir alvöra málsins. I kjölfarið var ákveðið að hætta við lokaball nem- enda í 8., 9. og 10. bekk sem fram átti að fara í kvöld (gærkvöld) en ræðum við samtök kennara og hafa bæjaryfirvöld á Akureyri lagt áherslu á að þeim fundi verið hrað- að. „Ég vona svo sannarlega að þar finni menn einhvern möguleika á að höggva á þann hnút sem málið er í,“ sagði Jakob. „Þetta er háal- varlegt mál og ljóst að frekar hefði þurft á því að halda að fjölga rétt- indakennuram í bænum en hitt.“ ágóði af ballinu átti að renna í ferðasjóð nemenda í 10. bekk.“ Mesta mildi þykir að ekki urðu frekari slys á fólki þegar reyk- sprengjan fuðraði upp. Þá voru reyksprengjur sprengdar inni í skólanum og fór reykur víða um skólann. Þessi uppákoma nemenda var án vitundar stjómenda skólans en hún fór alfarið úr böndunum með fyrrgreindum afleiðingum. Ungmennafélag Akureyrar Tíu ára afmælis- hátíð UNGMENNAFÉLAG Akur- eyrar fagnar tíu ára afmæli sínu nú í vor. Af því tilefni efn- ir félagið til afmælishátíðar í kaffiteríu Iþróttahallarinnar á Akureyri á morgun, sunnudag- inn 10. maí og hefst hún kl. 15. Dagskráin er fjölbreytt, en m.a mun fyrsti formaður fé- lagsins, Sigurður P. Sig- mundsson, segja frá aðdrag- anda að stofnun þess, ung- mennafélagar flytja tónlist og margvísleg skemmtiatriði og fjölbreyttar veitingai' verða á boðstólum. Allir iðkendur á vegum félagsins, aðstandend- ur þeirra og aðrir velunnarar ungmennafélagshreyfingar- innar eru velkomnir til hátíð- arinnar. Kór MA með vortónleika KÓR Menntaskólans á Akur- eyi'i, undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, heldur vor- tónleika á gamla sal MA, sunnudaginn 10. maí kl. 21.00. Þetta er lokahnykkurinn á vetrarstarfi kórsins. Efnis- skráin er fjölbreytt og inni- heldur m.a. fjölda útsetninga á íslenskum þjóðlögum. Messur AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14 á morgun, heimsókn frá Bústaðakirkju í Reykjavík, sr. Pálmi Matthías- son prédikar. Kór Bústaða- kirkju syngur. Mömmumorg- unn í Safnaðarheimili kl. 10 til 12 á miðvikudag. Fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 17.15 á fimmtudag, bænaefnum má koma til prestanna. GLERÁRKIRKJA: Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 14 á morgun. Bamakór kirkjunnar syngur. Veitingar í safnaðarsal að guðsþjónustu lokinni og mun barnakórinn syngja nokk- ur lög. Fundur æskulýðsfé- lagsins verður kl. 17 sama dag. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli verður kl. 11 á morgun, hjálpræðissamkoma kl. 17 og unglingasamkoma kl. 20. Heimilasambandið verður kl. 15 á mánudag, hjálpar- flokkur sama dag kl. 20.30. Krakkaklúbbur kl. 16. á mið- vikudag og Alfa-námskeið kl. 19.30. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl. 18 í dag, laugardag, og kl. 11 á morgun, sunnudag, í kirkjunni við Eyrarlandsveg 26. LAUGAL.PRESTAKALL: Messað verður í Saurbæjar- kirkju kl. 11 á morgun, sunnu- dag. Sama dag verður messað á Grund kl. 13.30 og á Krist- nesspítala kl. 15. Aksjón Laugardagur 9. maí 17.00 ^Helgarpotturinn Helgarþáttur Bæjarsjónvarps- ins í samvinnu við Dag. Sunnudagur 10. maí 17.00 Þ-Helgarpotturinn (e) MÁNUDAGUR11. maí 21.00 ^Helgarpotturinn (e) KAUPVANGSSTRÆTl 23 Til sölu mjög vandað íbúðar- og atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum. Neðri hæð, forstofa, flísalögð, og salur, eitt skrifstofu- herbergi og góð geymsla auk snyrtingar og þvottahúss. Á efri hæð er glæsileg lúxusíbúð með parketi á gólfi og vönduðum innréttingum. Hentar vel þeim sem gætu verið með t.d. eigin atvinnustarfsemi á neðri hæðinni. Mögulegt væri að fá eignina leigða. S. 462 1744, 462 1820, fax 462 7746. Lögmaður Jón Kr. Sölhes hrl. FÁSTEI ÍASm'S Sölumenn: ItY<>(it) Ágústa ÓLafsdóttir, BHKKKIIGIITIi 4 Björn Guðmundsson. S Y SLUMAÐURINN Á AKUREYRI Utankj örfundaratkvæðagreiðsla Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara laugardaginn 23. maí 1998 er hafin. Kosið er á skrifstofu embættisins á Hafnarstræti 107, Akureyri, 3. hæð, alla virka daga frá kl. 09.00 til 15.00, frá kl. 17.00 til 19.00 og kl. 20.00 til 22.00. Um helgar er kosið milli kl. 14.00 til 17.00. Á skrifstofu embættisins í Ráðhúsinu á Dalvrk er kosið milli kl. 09.00 og 15.00 alla vira daga svo og á öðrum tímum eftir sam komulagi við Gíslínu Gísladóttur, fulltrúa á Dalvík. Kosið er hjá hreppstjórum f Grýtubakkahreppi, Grímsey og hjá settum hreppstjóra í Hrísey, Gunnari Jónssyni, eftir samkomulagi við þá. Sýslumaðurinn á Akureyri, 8. maí 1998. Bjöm Jósef Arnviðarson. Uppákoma nemenda í Brekkuskóla fór úr böndunum Piltur brenndist illa á hendi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.