Morgunblaðið - 09.05.1998, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HÚS Langeverslunarinnar undir Búðarklettum um aldamót.
Ljósmynd/Sigfús Eymundsson. Þjóðminjasafn
Verslunarreksturs Langes
í Borgarnesi minnst
Minninga-
skjöldur settur
á Pakkhúsið
Borgarnesi - Hópur fólks frá
Bergen í Noregi kom laugardaginn
2. maí til Borgarness til að afhjúpa
minningarskjöld á eitt elsta hús
bæjarins sem gengur undir heitinu
Pakkhúsið. Fólkið kom frá stofnun
sem kennd er við kaupmanninn Jó-
hann Caspar Lange en hún er í ná-
grenni Bergen.
Athöfnin hófst með því að Anders
Kvam stjórnarformaður
Langestofnunarinnar bauð gesti
velkomna í Pakkhúsinu og af-
hjúpaði síðan skjöld utan á húsinu.
Þar er þess minnst að Jóhann
Lange hafi rekið þar verslun. Guð-
mundur Guðmarsson safnahússtjóri
flutti stutt ávarp og Kristín P. Hall-
dórsdóttir leiðsögumaður sagði frá
húsunum er Lange lét byggja. Þór
Magnússon þjóðminjavörður var
viðstaddur afhjúpunina og eftir
hana undirritaði hann friðlýsingar-
skjöl um bryggjuna sem er við Suð-
umes og var byggð í tíð Langes og
fiskreiti sem eru þar einnig.
Langestofnunin bauð gestum til
hádegisverðar og einnig var athöfn í
Safnahúsi Borgarfjarðar þar sem
Gerd Laastad, framkvæmdastjóri
Langestofnunarinnar, tilkynnti að
afhent yrðu Ijósrit af öllum bréfum
sem bárust Lange vegna viðskipta
hans við ísland. Edgar Hovland,
prófessor við háskólann í Bergen,
flutti erindi um verslunarrekstur
Langes í Borgamesi.
Námsstyrkur
Að því loknu tilkynnti Anders
Kvam að Langestofnunin í samráði
við háskólann í Bergen myndi veita
íslenskum nemanda við Háskóla Is-
lands styrk að upphæð 32 þús.
norskar krónur til að kynna sér þau
gögn sem em í héraðsskjalasafninu
í Borgarnesi og hjá Langestofnun-
inni í Noregi og fjalla um verslunar-
umsvif Langes og skila því í ritgerð-
arformi sem væri hæft til útgáfu.
Stuðlaði að verslunar-
rekstri í Borgarnesi
Jóhann Kasper Lange studdi Jón
Jónsson frá Okrum eða Akra-Jón
til að hefja verslunarrekstur í
Borgarnesi. Lange lánaði Jóni fé til
að byggja verslunarhús og íbúðar-
hús á ámnum 1877-78. Hann versl-
aði síðan við Jóhann Lange frá
Noregi allt til ársins 1886. Þá yfir-
tók Lange reksturinn vegna þess
að hann gekk ekki nægilega vel hjá
Akra-Jóni. Eftir það rak Jóhann
Morgunblaðið/Ingimundur
ÞÓR Magnússon þjóðminjavörður undirritar frið-
lýsingarskjöl vegna bryggju við Brákarsund.
ANDERS Kvam, stjórnarformaður Langestofnun-
arinnar, afhjúpar skjöld til minningar um Jóhann
Caskar Lange kaupmann í Pakkhúsinu Brákar-
braut 15 Borgarnesi.
Lange verslunina til ársins 1907
þar til hann seldi hana Jóni Björns-
syni frá Bæ.
Á þeim tíma var hann með versl-
unarstjóra í Borgamesi. Þeirra
kunnastur var Thor Jensen og það
var í hans tíð sem „Pakkhúsið" var
byggt árið 1889. Einnig var byggð
bryggja úti við Brákarsund af
Lange. Annar kunnur verslunar-
stjóri var Bjering sem tók við af
Thor Jensen.
Jóhann Lange átti ekki erfingja
en hann notaði það fé sem hann
hafði eignast til að kaupa land
skammt fyrir utan Bergen og stofna
tvo sjóði. Á þessu landi ætlaðist
hann til að fólk gæti notið útivistar
sér til ánægju.
Áhugi fyrir Borgarnesi
Fyrir fjórum ámm komu fulltrú-
ar frá Langestofnuninni til Borgar-
ness til að forvitnast um hvað hér
væri að finna af minjum um veru
Jóhanns Langes. Það kom þeim á
óvart hvað til er heillegt safn í Hér-
aðsskjalasafni Borgarfjarðar af
verslunarskjölum frá þessum tíma.
Þar er að finna fjölda verslunar-
bóka og bréfabóka.
Þetta fólk hefur haft samband við
Héraðsskjalasafnið síðan og sýnt
mikinn áhuga á þeim húsum sem
em hér en þau eru heillegustu minj-
ar frá umsvifum Jóhanns Lange á
íslandi, en hann verslaði víðar á Is-
landi t.d. á Borðeyri og á Akranesi.
Stofnun Jóhanns Langes í Noregi
gaf út árið 1995 bók um æviferil Jó-
hanns Langes. Nefnist hún: „Til en
artig forlystelse for det spaserende
publikum“, Johann Lange og
Fjpsanger Hovedgárd. Með heim-
sókn sinni til íslands nú hefur stofn-
unin sýnt áhuga sinn í verki fyrir
því að umsvif Langes á Islandi séu
gerð ýtarleg skil.
ATHUGID
Frá og með 9. maí hefur Ölgerðin Egill
Skallagrímsson fengið nýtt símanúmer.
ATH!! NÝTT SÍMANÚMER
Skiptiborð
Faxnúmer
Pöntunarsímsvari allan sólarhringinn
Morgunblaðið/Egill Egilsson
' V pmœmmm
L-AiíSÍÉ' &
Varnar-
garður ris-
inn við Sól-
bakka
Flateyri - Lokið er við varnar-
garðana fyrir ofan Flateyri fyrir
nokkru. Aðeins þurfti að leggja
lokahönd á varnargarð fyrir of-
an Sólbakka en hann er iægri og
ekki eins fyrirferðarmikill og
varnargarðarnir sem fyrir eru.
Þeirri vinnu lauk nokkrum dög-
um eftir að lokið var vinnu við
varnargarðana.
Á Sólbakka stóð á sinum tíma
Ráðherrabústaðurinn sem nú er
við Tjarnargötuna í Reykjavík. Á
Sólbakka búa hjónin Einar Odd-
ur Kristjánsson alþm. og Sigrún
Gerða Gísladóttur hjúkrunar-
fræðingur.
Framundan hjá Klæðnings-
mönnum eru framkvæmdir við
lokafrágang svæðisins þaðan
sem jarðvegurinn í garðana var
tekinn.