Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 21
( 1. grein laga um stjórn fiskveiða segir að fiskimiðin í efnahagslögsögu íslands
séu sameign þjóðarinnar. Þrátt fyrir það hefur nokkrum fyrirtækjum og einstaklingum
verið gefinn einkaréttur til þess að nýta sameign okkar, Auðlindin gengur nú kaupum
og sölum örfáum einstaklingum tii ævintýralegs ábata.
Hvaða rétt átt þú?
á Alþingi er nú tekist á um auðlindir landsins. ( orði kveðnu á miðhálendi landsins
að teljast sameign okkar allra. En það á samt að skipta hálendinu upp á miðja jökla
í ræmur milli 42 sveitarfélaga þar sem búa um 4% þjóðarinnar og fá þeim í hendur
vald til að skipuleggja nýtingu á landi og landgæðum á miðhálendinu sem telur
40% af öllu flatarmáli íslands.
Hvaða rétt átt þú?
Útivistarsamtök, fólk og fyrirtæki í ferðaiðnaði, náttúruverndarsamtök, áhugafólk
um gróðurvernd og 96 af hverjum 100 (slendingum eiga engan rétt að hafa tii
aðildar að ákvörðunum um skipulag og nýtingu miðhálendisins og auðlinda þess.
Og meira stendur til...
í skjóli öflugs þingmeirihluta hyggjast Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur
ákveða að öll verðmæti í jörðu á hvaða dýpi sem þau liggja - djúphiti, málmar,
önnur jarðefni, olía - skuli teljast ævarandi eign hvers jarðeiganda og skuli þjóðin
greiða þeim fullar bætur fyrir ef hún nýtir slík verðmæti í sína þágu.
Hvaða rétt átt þú?
Jafnaðarmenn berjast fyrir því að miðhálendið sé eitt stjórnsýslusvæði
þar sem allir landsmenn hafi sama rétt til áhrifa og fyrir því að auðlindir
í iðrum jarðar séu sameign okkar allra.
Hver og einn verður nú að skoða hug sinn og spyrja: Hafi sérhagsmunaöflin
sigur - hvar er þá landið mitt? Eiga þeir stuðning skilið sem vilja halda
áfram að afhenda hinum fáu forræði á auðlindum íslands fyrir ekkert?
Jafnaðarmenn