Morgunblaðið - 09.05.1998, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 09.05.1998, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Verkamaimaflokkurimi hélt sínu í sveitarstjórnarkosningum Áhugaleysi kjós- enda einkennandi London. Reuters. BRESKI Verkamannaflokkurinn gekk í fyrradag í gegnum sína fyrstu prófraun frá því hann komst til valda fyrir ári þegar fram fóru sveitar- og bæjarstjómarkosning- ar á Bretlandi. Ahugaleysi ein- kenndi kosningamar og er talið að tveir af hverjum þremur kjósend- um hafi setið heima. íhaldsflokkur- inn vann nokkuð á, um 250 sæti, á meðan Verkamannaflokkurinn tap- aði tæplega 100 sætum. Frjáls- lyndir demókratar töpuðu sömu- leiðis um 100 sætum. Alls var kosið um rúmlega 4.000 sæti í bæjar- og sveitarstjómum víðsvegar á Bretlandi og þrátt fyrir nokkra breytingu á sætaskipan hafði það ekki mikil áhrif á það hver fer með völdin. Nánast und- antekningarlaust hélt núverandi meirihluti. Þótt Ihaldsflokkurinn ynni nokkur sæti af hinum flokkun- um telja stjómmálaskýrendur Tony Blair forsætisráðherra og flokk hans hafa staðist eldskírnina. Hann hlaut nú 38% greiddra at- kvæða í staðinn fyrir 44% í þing- kosningunum fyrir ári þegar hann komst til valda. Ihaldsflokkurinn stóð nokkuð í stað, hlaut 32%, en Frjálslyndir unnu á, hlutu 25% fylgi í kosningunum. Stjómmálaskýrendur benda á að það sé einmitt vaninn að ríkjandi stjómvöld tapi fylgi í sveitarstjórn- arkosningum og árangur Ihalds- manna sé því ekki hægt að túlka sem sigur, mikiu fremur sé hægt að segja að flokkurinn standi al- mennt í stað sem hljóti að vera nokkur vonbrigði. Helsta áhyggju- efni Blairs er þess vegna ekki slæm útkoma heldur frekar hversu lítinn áhuga kjósendur sýndu kosn- ingunum, sem og sérstakri at- kvæðagreiðslu í London þar sem kosið var um þá hugmynd Blairs að taka á nýjan leik upp embætti borgarstjóra. Áhugaleysi kom niður á V erkamannaflokknu m Áhugaleysi kjósenda er talið hafa komið niður á fylgi Verka- mannaflokksins. John Prescott að- stoðarforsætisráðherra taldi stuðn- ingsmenn flokksins hafa sofið á verðinum, verið of sigurvissa til að hafa fyrir því að mæta á kjörstað. Reuters TONY Blair og kona hans Cherie á kjörstað að morgni fimmtudags. Það væri vissulega áhyggjuefni. í Salford, þar sem Verkamanna- flokkurinn hefur jafnan getað treyst á sigur, var kosningaþátt- taka einungis 10% og sagði Blair við blaðamenn að slíkar tölur sýndu nauðsyn þess að breyta fyr- irkomulagi sveitarstjóma og færa í nútímalegra horf. William Hague, leiðtogi íhalds- flokksins, teldi úrslitin skref í rétta átt fyrir íhaldsflokkinn, en kosn- ingamar voru einnig frumraun hans sem flokksleiðtoga. Tony Bla- ir fagnaði hins vegar stuðningi kjósenda við tillögu sína um að stofna til 25 manna borgarráðs og borgarstjóraembættis í London. Mikill meirihluti, eða um 72%, samþykkti tillöguna og er nú stefnt að því að efna til svipaðra kosninga í öðrum stærri borgum Bretlands. Sem fyrr er þó áhyggjuefni fyrir Blair hversu fáir sáu ástæðu til að mæta á kjörstað, einungis 34% kjósenda tóku þátt í atkvæða- greiðslunni. Vandasamt verður fyrir Verka- mannaflokkinn að útnefna fram- bjóðanda í hlutverk borgarstjóra þvi talið er að Ken Livingstone, einn af helstu gagnrýnendum Bla- irs innan flokksins, hafi mikinn stuðning í embættið. Livingstone sagðist í gær telja ólíklegt að Blair myndi beita sér gegn útnefningu sinni en ekki verður ákveðið fyrr en seinna í sumar hvernig að valinu verður staðið. Aðrir sem nefndir hafa verið sem mögulegir fram- bjóðendur eru t.d. Oskarsverð- launaleikkonan Glenda Jackson, sem nú situr á þingi, og hinn um- deildi ráðherra íþróttamála, Tony Banks. Þá hefur nafn Richard Bransons, forstjóra Virgin-sam- steypunnar, oft heyrst nefnt í þessu sambandi en hann hefur sjálfur lítið vilja gefa út á þann möjguleika að hann fari í framboð. Ihaldsmenn hafa hins vegar lof- að prófkjöri meðal félagsmanna sinna um hver verður frambjóð- andi þeirra. Sem stendur er talið að rithöfundurinn og fyrrverandi flokksformaðurinn Jeffrey Archer lávarður standi fremstur meðal jafningja, en flokksforystan er tal- in hafa ýmislegt við hann að at- huga. Rætt er um að langhlaupar- inn og ólympíumeistarinn fyrrver- andi Sebastian Coe komi einnig til greina, en hann tapaði þingsæti sínu í fyrra. Eitt ár síðan Blair tók við völdum Eitt ár er nú liðið frá stórsigri Verkamannaflokksins í þingkosn- ingum sem batt enda á 18 ára valdatíð íhaldsmanna á Bretlandi. Flokkurinn stendur í flestum til- fellum vel á þessum tímamótum og leiðarahöfundar The Economist sögðu t.d. í vikunni að þótt ýmis- legt gagnrýnivert hefði gerst í valdatíð Tonys Blairs væri engin ástæða til annars en hrósa honum fyrir vel unnin störf. Þar ber hæst þann árangur sem náðst hefur á N- Irlandi, en kosið verður um friðar- samkomulag þar 22. maí næstkom- andi. Hvað efnahagsstjómun varð- ar telur The Economist Blair hafa staðið sig bærilega, hann hefði ekki tekið upp stjómarhætti „gamla“ Verkamannaflokksins heldur hald- ið á loft sérstakri útgáfu sinni af „Thatcherisma". „Bretlandi líkar vel við „nýja“ Verkamannaflokldnn og þar sem hér er komið sögu er ekki margt sem hægt er að láta sér mislíka“ era lokaorð leiðarans. Reuters ANNAN og Nane eiginkona hans heimsóttu þorpið Mwurire í ná- grenni Kígalí, höfuðborgar Rúanda, þar sem komið hefur verið fyrir safni til minningar um þá er féllu í þjóðarmorðunum 1994. Kofí Annan á ferð um átta Afríkuríki Fékk óblíðar við- tökur í Rúanda Kígalí. Reuters. KOFI Annan, aðalritari Samein- uðu þjóðanna, sagðist í gær hafa vitað fyrirfram að ferð sín til Rú- anda yrði ekki auðveld en að hann hefði ávallt verið vinveittur íbúum Rúanda og að hann yrði það áfram. Annan, sem nú er á átta landa ferðalagi um Afríku, var gagnrýnd- ur á fimmtudag af utanríkisráð- herra Rúanda fyrir að hafa ekki gert nægilega mikið til að koma í veg fyrir þjóðarmorðið í landinu árið 1994 þegar talið er að um 800.000 Tútsímenn hafi verið myrt- ir af þáverandi stjórnarherram. Annan var þá yfírmaður friðar- sveita Sameinuðu þjóðanna. Jafnframt telur Pasteur Bizim- ungu, forseti Rúanda, Annan hafa sýnt hroka í ræðu sem hann hélt fyrir þingmenn í Kígalí, höfuðborg Rúanda, en þar hvatti hann stjóm- völd til að gera yfirbót og sýna mildi gagnvart þeim er nú bíða dóms vegna þjóðarmorðanna. Stjómvöld í Rúanda telja að Annan hefði sjálfur átt að gera yf- irbót vegna aðgerðarleysis SÞ og til að mótmæla ummælum Annans hunsuðu Bizimungu og aðrir helstu stjórnarherrar í Rúanda því kvöld- verðarboð sem haldið var til heið- urs Annan. Áður en hann yfirgaf Rúanda átti Annan þó fundi með forsetanum og sagði eftir hann að samtal þeirra hefði verið gott og að hann væri sannfærður um vilja stjómvalda til að stýra landinu á sanngjarnan hátt. Dole hrifinn af Viagra Washington. Reuters. BOB Dole, fyrrverandi forseta- frambjóðandi í Bandaríkjunum, sagði á fimmtudag að hann hefði tekið þátt í tilraunum með nýja getuleysistöfralyfíð Viagra, eftir að hann hafði sigrast á krabbameini í blöðru- hálskirtli. „Þetta er frábært lyf, ég vildi að ég hefði keypt hlut fyrr,“ sagði hann í viðtali við Larry King á sjónvarpsstöðinni CNN, og skírskotaði þar til þess, að verð hlutabréfa í lyfjafyrirtæk- inu Pfizer snarhækkaði eftir að bandaríska matvæla- og lyíjaeft- irlitið (FDA) samþykkti sölu á lyfinu. Tilraunir voru gerðar með virkan lyfsins á rúmlega 3.000 karlmönnum og leiddu í ljós að Iyfið vann gegn getuleysi af völdum sykursýki, mænuskaða og aðgerð á blöðruhálskirtli. Dole sagði að lyfið virkaði vel. „Milljónir manna þjást af getu- leysi, og þetta gæti verið fyrsta skrefíð,“ sagði hann. I / / I Verð frá Syngur pu i bil? Mazda 323 f 1.595.000 Nú fylgir geislaspilari ásamt geislaplötu að eigin vali. °P»ð laugardag fra 12 til 16 y Umboðsmenn: Akranes: Bílás sf. • ísafjörður: Bílatangi ehf. • Akureyri: BSA hf. • Egilsstaðir: Bilasalan Fell • Selfoss: Betri bílasalan • Vestmannaeyjar: Bifreiðaverkstæði Muggs
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.