Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1997 29
Draumsins Harpa
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Harpa vekur von og kæti
vingjarnleg og kvik á fæti.
ÞESSI gamli húsgangur talar
fyrir hönd tímans sem nú fer í
hönd, tímans þegar jörðin vaknar
af svefni vetrar og ltfið opnar augu
sín í spum um gróanda og gnótt
daga til fegrunar og skrúðs.
11817)3 draumsins er einnig komin
á stjá og boðar dreymendum betri
tíð, fyllri svefhtíma þar sem fyrr-
um ókunn lönd draumsins verða
nú könnuð á draumtíma til aukins
skilnings á þeim inm-a veraleik
sem maðurinn er. Þessar sjálf-
ræktar ferðir draumsins inn til
dulvitundar og út til meðvitundar
gera dreymandann smám saman
að fróðum manni um innri málefni
jafnt sem ytri, líkt og ferðamaður
um Island verður fróðari með
hverri ferð um landið og engin ein
er annarri lík. A ferðum sínum um
Draumalandið verður
dreymandinn vísari
um gildi þess að rýna í
svörðinn jafnt sem að
horfa vítt og safna í
sarp sinn sjaldséðum
draumtáknum en
skoða þau algengu.
Litbrigði táknanna og
form veita honum inn-
sýn í þá miklu bók
draumanna sem hann
skapar með ferðum
sínum um innlönd
draumsins. Hann fær-
ir í bókina og skráir
ferðir sínar og fundi, safhar tákn-
um, litrófi, meiningum, áferð og
efni margs konar ásamt ýmsum
öðrum tilbrigðum draumsins í
registur landsins, því hóll er ekki
bara hóU, hann er Harpa þín og
gæfa.
Draumar „Öldu“
I. Ég var á leiðinni í Bónus í
Holtagörðum að gera innkaup.
Þetta var heillöng vegalengd að
ganga (rösklega) eins og ég er
vön. Leiðin lá öll eftir prömmum
(flotbrúm) úr tré úti á sjó, ég gekk
og gekk en alltaf á sjó. Loks þyk-
ist ég sjá tvær ungar léttklæddar
stúlkur spöl á undan mér, þær
voru fallegar, ljóshærðai- í faUeg-
um kjólum. Sól skein á heiði á
þessum faUega sumardegi. Ég
herti gönguna tU að ná þeim en
þær komu að einhvers konar
vindubrú sem mér sýndist snar-
brött brekka upp á annan veginn
og jafnbrött niður hinn. Þær
hlupu niður bröttu brekkuna en
ég nálgaðist þær meii- og meir.
Þegai- ég kem að brúnni, steðja ég
upp og húrrast niður hinumegin á
rassinum. Fannst mér snerpan og
krafturinn geisla af mér. Þegar ég
stend upp sé ég gamlan mann sem
var í útsýnistumi úr gleri, hann
leit á mig aðdáunaraugum og mér
fannst svipurinn segja „sko þetta
getur hún enn sú gamla“.
Skömmu síðar varð lítið ljóshært
grátandi stúlkubam á vegi mín-
um, ég tók það í fangið og fann að
ég ætlaði ekki að sleppa því aftur.
II. Mér og mínu fylgdarliði
hafði verið boðið í mat í húsi í
Hafnarfirði. Sú sem bauð hét
Erla og hafi verið yfirmaður
minn um skeið. Að máltíð lokinni
var ég ein frammi í forstofu með
tveim svörtum hundum og
nokkram börnum. Allir vildu út
að leika sér svo ég opnaði hurð-
ina, en þá fann ég til mikils ótta
vegna hugsanlegrar reiði Erlu.
Að heimboðinu loknu eram við
staddar úti í garði Erlu sem hún
sýnir mér. Hún er stolt af garðin-
um sem er listaverk vegna forms-
ins sem jarðvegurinn er látinn
mynda. Hún leiðir litinn dreng og
við göngum eftir þessum óvenju-
legu formum og komum þar sem
garðurinn er lægri, þar vaxa
nokkur nýgróðursett tré í röð.
Fyrsta tréð var fallegt afbrigði af
dýrmætu japönsku tré. „Þú mátt
eiga tréð,“ segir Erla.
III. Ég var í vinnusal í húsi,
þetta var lítill salm- málaður fól-
grænn í hólf og gólf. Vélar og
túrbínur era á víð og dreif og ein
er biluð, sú lítur út eins og stór
suðupottur og úr henni hafði lekið
dökkm- vökvi sem hylur gólfið.
Undirmaður minn hefur gert mis-
tök og ég er reið, læt skammirnar
dynja á honum þó ég viti að ég
eigi að stilla mig og það geti
reynst mér dýrkeypt því þessi
vera sem er ekki maður en í
mannslíki með hulið andlit er
hættuleg og valdamikil. Ég skipa
honum að þrífa gólfið, hann lætur
sem ekkert sé og byrjar að þrífa.
IV. Ég stend fyrir utan bygg-
ingu á mörgum hæðum. Það er
kvöld og hryssingslegt veður, til
vinstri handan við breiða umferð-
argötu era lögreglumenn að reka
áfram hóp af nöktu fólki, það er
skelft og skjálfandi. Sjórinn gutlar
þama við ströndina meðfram göt-
unni. Fólkið hafði verið nakið á
bát úti á flóanum við ósæmilegt
athæfi.
V. Guðrún vinkona mín bað mig
að baka köku eða skreyta rjóma-
tertu. Ég sé enga tertubotna á
eldhúsborðinu en þar er gömul
hrærivél og skálin full af þeyttum
rjóma. Meira er ekki að sjá í eld-
húsinu sem er gamalt og þröngt
en Guðrún var í vinnunni.
Ráðning
Draumamir fimm snúast um
þig, persónu þína og innviði.
I. Draumurinn sýnir kraft þinn,
áræði og langanir (gekkst rösk-
lega/húrrast niður/stúlkumar létt-
klæddu) sem þú virðist ekki hafa
notið sem skyldi til þessa eða ekki
(geng eftfr prömmum) fengið að
framkvæma. Maðurinn í glertum-
inum gefur vísbendingu um orsök
hömlunar þinnar og bai-nið er
barnið í þér sem þú ert nú að ná
aftur til þín.
H. Erla (nafnið þýðir smáó-
happ) vísar til samviskubits eða
trega vegna íyrram framkvæmda-
leysis (í Hafnarfu-ði) þíns. Garður-
inn er þinn innri veruleiki og
seinni hluti draumsins bendfr á
breytingar til góðs (japanska tréð
og orðErlu).
III. í þriðja drauminum ertu að
vinna úr þínum málum og undir-
maður þinn, sá hættulegi ert þú
sjálf eða þættir í þér sem þú hefur
vanrækt. Þú hreinsar út hvað sem
tautar og raular (dökki vökvinn).
IV. Breytingunum sem fyrstu
draumamir þrír tala um fylgir
uggur og innri ótti um hvort þú
sért að gera rétt eða eitthvað
ósæmilegt með hegðun þinni og
það kemur fram í fjórða draumn-
um.
V. Og Guðrún (nafnið merkir
lukka) segii- með fjaivera sinni að
þú ein getir farið leiðina gegnum
di-aumana fimm og uppskorið
gósentíð (þeytti rjóminn í skálinni)
í gleði/lukku.
• Þeir lesendur sem vilja fá
drauma sína birta og ráðna
sendi þá með fullu nafni, fæð-
ingardegi og ári ásamt heimilis-
fangi og dulnefni til birtingar
til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni I
103 Reykjavík
Mynd/Kri.stján Kristjánsson
VIÐ draumsins lind hjá Hörpu hugans.
Líföndun
Að anda er að lifa
GuBrún Arnalds verfiur mefi kvöldnámskeifi I líföndun
dagana 20., 21., 27. og 28. mal og helgamámskeiö 30. og 31. mal.
Langar þig til aö fá aukna starfsorku og ItfsgleÖi og sjá líf þitt í skýrara Ijósi?
Langar þig til aö opna fyrir nýja möguleika og ftnna gleðina í líðandi stundu?
Ef viö lærum aö anda léttar veröur líf okkar ósjálfrátt léttara
Nýturþú andartaksins?
Hildur Jónsdóttir s: 895 9447 / 551 9447
Bókanir og allar nánari upplýsingar.
OSRAM DULUX EL CLASSIC ...sem lifir í 12.000 klukkutíma
VEISLA
Eldhústæki á ótrúlegagóðu verði
Uppþvottavélar
Verð frá
45.885.-
Bakarofnar
Verð frá
29.90a-
Örbylgjuofnar Helluborð
Verð frá
14.900.-
Verð frá
17.000.-
Kæliskápar
Verð frá
19W#'
Auk þess viftur, háfar, þurrkarar
og þvottavélar í miklu úrvali.
PFA F
‘Heimilistœkjaverslun
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 333 2222