Morgunblaðið - 09.05.1998, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
I
1
I
I
I
j
i
I
I
i
J
J
■
KOSNINGAR '98
Rútuferð um
Hafnarfjörð
EKKI er ýkja langt
síðan að orðið mengun
fór að heyrast í mæltu
máli, hvað þá heldur
sjónmengun. AUsleysi
forfeðra okkar neyddi þá
til að gjömýta allt tiltækt
svo hægt væri að komast
af í okkar harðbýla landi.
Er það kaldhæðnislegt
að velmegunin skuli hafa
leitt okkur nútímamenn í
þær ógöngur sem við er-
um nú komnir í vegna
þjösnaskapar okkar við
náttúru landsins.
Eitt bæjarfélag virðist
hafa tekið vafasama for-
ustu í að menga og eyði-
leggja sitt nánasta um-
hverfi „Hafnarfjörður" bærinn sem
eitt sinn hafði alla burði til þess að
verða athygliverðasti bær landsins og
þótt víðar væri leitað sökum sérstöðu
hraunsins sem hann er byggður í. Þar
kúrði byggðin fyrrum milli hraun-
dranga og blágresi og berjalyng
breiddi úr sér í hraunbollum.
Upp úr 1970 var farið að byggja
Norðurbæinn, svæðið milli gamla
I dag er Hafnfírðingum
boðið í ferð, segir Guð-
rún Sæmundsdóttir,
til að skoða bæinn.
bæjarins og Garðahrepps. Þama urðu
fyrstu skipulags- og umhverfisslysin.
Allt gamla hraunið var sléttað út svo
aðeins húsin sem standa í útjöðrum
hraunsins hafa ennþá hraunbolla sína
og kletta. Eitthvað vora menn famir
að átta sig á mistökunum þegar 2.
áfangi var byggður, þar má sjá klett
og klett á stangli, og þar sem síðast
var byggt fékk hraunið að halda sér
eins og kostur var.
í hinum enda bæjarins í hraunun-
um fyrir sunnan Hafnar-
fjörð er hins vegar eins
og brjálæðingar hafi ver-
ið á ferð. Stórvirkum vél-
um var beitt á hraunið og
það spænt upp að því er
virðist án sýnilegs skipu-
lags, og til að bæta gráu
ofan á svart fengu alls
konar fyrirtæki frítt spil
til þess að mynda þama
stærsta ruslahaug sem
sést á landinu. Er svæðið
orðið slík hryggðarmynd
að leita verður allt austur
fyrir jámtjaldið sáluga til
að finna annað eins.
En ekki er öll sagan
sögð, í höfnina góðu sem
bærinn er kenndur við
em nú búið að leggja ferlegum flotkvi-
um eins og til að undirstrika bæjar-
braginn. Er eins gott að fyrirheit um
100 störf í tengslum við þessi ferlíki
standist en reynist ekki eitt ævintýrið
enn sem við íslendingar höfum verið
svo órög að leggja út í.
A laugardaginn gefst Hafnfirðing-
um kostur á rútuferð um bæinn i leið-
sögn kunnugra þar sem „herlegheit-
in“ verða skoðuð. Fyrsti áfangi skoð-
unarferðarinnar er fjallið sem allt í
einu reis í miðbænum, „nýja flotkví-
in“, þaðan verður ekið vestur á Malir
og skoðað það sem eftir er af 5.000 ára
gömlu hrauninu sem tilheyrir Hafnar-
firði. Komið verður við á ýmsum stöð-
um sem vert er að kíkja á og ekið suð-
ur í hraun og endað í Straumi.
Hafnfirðingar era hvattir til að
mæta og koma með ábendingar um
það sem betur mætti fara í bænum
okkar. (Þama er kjörið tækifæri fyrir
þá sem hafa áhuga á að sjá Hafiiar-
fjarðarbrandara með öfugum for-
merkjum í verki.)
Höfundur er skrifstofumaður bjá
Sjálfsbjörg og er í 10. sæti F-listans
{ Hafnarfírði.
Guðrún
Sæmundsdóttir
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998
Graskorn 5kg
Aburðarkalk
5kg.
Jktf%
Mosaeyðir
Mosatætari
kr. ll»9QQj
Einar Falur Ingólfsson fjallar um púrtvín, þjóðardrykk Portúgala
í blaðinu á sunnudaginn.
Í:TÆ»2jSK
ólík blæbrigöi frá
hinum einstöku
framleiðendum.“