Morgunblaðið - 09.05.1998, Page 66

Morgunblaðið - 09.05.1998, Page 66
66 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM Eurovision-söngvakeppnin ÞAÐ HEFUR gengið á ýmsu í sögu Eurovision. Svíar sendu inn lagið Diggi-Loo Diggi-Ley, Bretar reyndu Boom Bang-a-Bang og Spánverjar endurtóku La La La 138 sinnum. Núna er komið að kyn- skiptingnum og dragdrottningunni fyrrverandi Dönu International að standa fyrir sínu og gera bókstafs- trúarmönnum heima í Israel skömm til, en þeir mótmæltu því harðlega er hún var valin sem full- trúi þjóðarinnar. 100 milljónum sjónvarpsáhorf- enda um alla Evrópu stendur til boða næstkomandi laugardagskvöld r J að fylgjast með því hvaða hljóm- sveit ber sigur úr býtum í keppninni sem var stökkpallur á sínum tíma fyrir sænsku sveitina ABBA. En síðan þá hefur keppninni hrakað mjög að gæðum. Svo mjög að Frakkar drógu sig út úr keppninni í mótmælaskyni og kölluðu keppnina: „minnisvarða heimskulegs blaðurs og meðalmennsku". Mörg atvik eru fólki minnisstæð úr sögu Eurovision. Til dæmis þeg- ar Finnland reyndi að koma skila- boðum áleiðis til leiðtoga risaveld- anna með laginu „Don’t Drop That Neutron Bomb On Me“ eða „Ekki varpa kjarnorkusprengju á mig“. Eða þegar Jórdanía rauf útsend- ingu frá keppninni og sendi út mynd af blómum þegar lag ísraels var flutt. Norðmenn reyndu að útsetja lag með hreindýrakalli Lappa. Það gekk ekki nógu vel þannig að þeir sendu inn ballöðu um byggingu raf- orkuvers með virkjunum. En það eru Portúgalir sem hafa beðið einna skarðastan hlut frá borði. Þeir hafa MELANIE Cohl er yngsti þátttakandinn. Hun er frá Belgíu og er aðems 16 ára. tekið þátt 33 sinnum og aldrei náð hærra en í 6. sæti. Breska ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á „svala“ ímynd Bretlands sem frjálslegs og nútímalegs lands sem gegni forystuhlutverki í menn- ingarheiminum. Á laugardag mun BBC hins vegar eyða tæpum 3 milljörðum króna í útsendingu og kynningu á keppni sem margir álíta „tímaskekkju" og „minnisvarða um vondan smekk“. Enda voru þeir sem héldu um pyngjuna hjá ríkissjónvarpinu í Ir- landi orðnir örvæntingarfullir þegar írskar sveitir unnu keppnina fjórum sinnum og írar þurftu að halda keppnina í hvert skipti. En BBC er að gera sitt besta til að stokka upp ímynd keppninnar og víst er að ef einhver sjónvarpsstöð er fær um það eru fáar betur til þess fallnar en BBC. GUILDO Horn hefur vakið mikla athygli, en hann er fulltrúi Þýska- lands. -^^-^+rúTBreta og „f* lMAANl er titlinum mUnSSnaogThe Víave^ SeW unnu í fyrra' jM (fij) Metabo Málningarheílll allt að 70% tímaspamaður Meindl Island herra- og dömuskór Gönguskór úr hágæða leðri. Gore-lex í innra byrði og góð útöndun. Vibram Multigriff sóli. -góBir í lengri gönguleröir. Umhverfisvæn og fljótleg aðferð til að fjarlægja málningu. Einnig notaður fyrir óheflaðan við. Melabo Sölustaðir um allt land PÁLL Óskar tók þátt í Eurovision í fyrra fyrir fslands hönd. Páll Óskar lýsir Eurovision Söguleg keppni Sími 535 9000 „ARKITEKTÚRINN hér er svo- lítið brjálaður. Þetta er svona blanda af Feneyjum og Kópa- vogi,“ segir Páll Óskar Hjálmtýs- son, sem er staddur í Birming- ham, þar sem keppnin fer fram, og mun lýsa henni í Sjónvarpinu. „Þessi keppni gæti orðið sögu- leg fyrir margra hluta sakir,“ segir Páll Oskar. „Málið er að í fyrsta sinn í 43 ára sögu Eurovision þá munu engar ósýnilegar dóm- nefndir gefa stig heldur áheyrendur heima í stofu víða um Evrópu í gegnum síma. Það var gerð til- raun með þetta á síðasta ári sem heppnaðist rosalega vel. Sú tilraun leiddi í ljós að áheyr- endur heirna í stofu voru engan veginn á sama máli og dómnefndirnar. Þannig að núna verður mjög spennandi að sjá hvaða lög eiga eftir að ná toppsætunum og ég er þess fullviss að þetta símakosninga- kerfi á algjörlega eftir að bjarga Eurovision sem skemmtiefni í sjónvarpi fram á næstu öld. Eins og margir vita var þessi keppni alveg að missa af strætó.“ Þýðir þetta ekki að enskumæl- andi þjóðir hafa forskot? „Þær gætu haft pínulítið for- skot á þessu ári. Hreinlega vegna þess að bæði írska og enska lagið eru ágæt. En svo má ekki gleyma því að á næsta ári verður reglun- um breytt enn frekar. Þá ráða löndin á hvaða tungumáli þau syngja. Auðvitað munu allir syngja á ensku. Árið sem Abba vann með Waterloo máttu allir syngja á ensku. Eg held að horfið hafi verið frá þeirri pælingu vegna þess að mönnum fannst keppnin missa al- þjóðlegt yfirbragð. Því miður hefur reynslan sýnt að tungumál- ið hefur stundum orðið keppend- um Þrándur í Götu, sérstaklega löndum eins og Hollandi, Finn- landi, íslandi og öllum slavnesku löndunum." Hvaða lönd verða fremst í flokki í Eurovision í ár? „Athyglin beinist aðallega að fimm löndum, sem hafa staðið sig bæði mjög vel á æfingum og al- gjörlega hrifið með sér fjölmiðla undanfama viku. Það er lagið frá Finnlandi," segir Páll Óskar, „sem ég vil helst að vinni,“ skýtur hann inn í og hlær. „Af því það yrði yndislegt að halda keppnina í Helsinki. Og Finnar hafa góð tök á tækninni og gætu búið til alveg mjög tæknilega fullkomið sjónvarpsefni úr Eurovision. Svo em veðbankarnir með England og írland í fyrsta sæti, - það var svo sem auðvitað. Franska lagið kemur sterkt til Ieiks. En sá keppandi sem er al- gjörlega búinn að taka allt í nefið héma undanfama viku er Dana International frá Israel, sem syngur „teknópopp“-slagarann Diva. Hún brýtur blað í sögu Eurovision bara með nærvem sinni vegna þess að hún er fyrsti kynskiptingur sem tekur þátt í keppninni. Fyrir utan að lagið hennar er alveg yndislegt og kemur sterk- lega til greina sem sumarsmellur á dansstöðum Evrópu, þá er þetta örugglega flottasta og fallegasta „transa“ sem ég hef á ævinni séð. Þótt fáir komist með tærnar þar sem Díana Ómel hefur hælana. Þess má geta að Jean Paul Gaultier hannar kjólinn sem hún syngur í og verður viðstaddur keppnina á morgun.“ Síðan er ungur fulltrúi frá Belgíu í keppninni? Em þeir að endurtaka leikinn? „Þú ert að tala um Melanie sem syngur lagið Dis Oui,“ segir Páll Oskar. „Hún er 16 ára en Sandra Kim var 14 ára þegar hún vann keppnina. Melanie er á hinn bóg- inn rétt svo búin að ná Eurovision lögaldrinum. Eftir daga Söndm Kim var keppnin nefnilega bönn- uð innan 16 ára. Fólki fannst það svolítið ýkt að senda allt niður í 8 ára böm til að keppa í Eurovision og lenda í öllu þessu álagi sem fylgir keppninni og fjölmiðlaíra- fári. Laginu er spáð ágætis gengi í veðbönkum, en ég hef því miður ekki séð hana á æfingum ennþá og það borgar sig ekki að segja eitt né neitt fyrr en maður hefúr séð þetta fólk á sviði.“ Kveikir þetta ekkert í þér? „Minningarnar um „Eurovisionland" em að hrannast upp hjá mér núna,“ svarar Páll Oskar. „Ég er búinn að hitta mik- ið af fólki sem var hérna í fyrra. Og þá er ég fyrst og fremst að tala um aðdáendur ýmiss konar og fulltrúa Eurovision-aðdáenda- klúbba sem eru starfræktir víða um Evrópu. Og að því leytinu líð- ur mér eins og blóma í eggi. Þetta er líka stemmning sem á engan sinn líka í heiminum. Hér em allra þjóða kvikindi saman komin af einni og sömu ástæð- unni. Og það gerist ekki á hverj- um degi. Móttökumar hafa verið alveg hundrað prósent höfðinglegar. En mér finnst það líka ágætt að vera að lýsa keppninni beint, lok- aður í einhverjum kassa, af því að þá get ég verið pínulítið eins og fluga á vegg. Ég er algjörlega hinum megin við borðið. Svo held ég að ég eigi því láni að fagna að vera kannski eina núlifandi manneskjan í heiminum sem er gallharður Eurovision að- dáandi og hef Ient í þeirri öfunds- verðu aðstöðu að vera í dóm- nefnd fyrir íslands hönd árið 1996, þátttakandi í keppninni ár- ið 1997 og síðan lýst keppninni árið 1998 í beinni útsendingu. Þetta held ég að sé aðstaða sem enginn Eurovision aðdáandi hef- ur komist í fyrr né síðar og ég er ákafiega þakklátur fyrir það.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.