Morgunblaðið - 09.05.1998, Síða 72
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
HROSSARÆKTARSAMTÖK
á Norðurlandi utan Skagafjarð-
ar, á Austurlandi og í Skafta-
fellssýslum hafa sent erindi til
yfirdýralæknis þar sem óskað
er eftir því að embættið fari
fram á opinbera rannsókn á því
hvemig smit barst í hross í
Skagafirði.
Halidór Runólfsson yfirdýra-
læknir sagði í samtah við Morg-
unblaðið að engin ákvörðun
lægi fyrir um aðgerðir í málinu,
en hann hyggst fara yfir það
með lögfræðingi embættisins.
Hrossaræktarsamband
Skagfirðinga hefur einnig sent
erindi til yfirdýralæknis þar
sem farið er fram á að reynt
verði að draga úr útbreiðslu
veikinnar eftir fóngum og hvet-
ur yfirdýralækni til að gera
ráðstafanir til þess.
Ákvarðanir um vamarlínur
eftir helgi
Á fundi yfirdýralæknis með
hagsmunaaðilum í gær voru
engar ákvarðanir teknar um
breyttar varnarlínur vegna
hitasóttar í hrossum. Gert er
ráð fyrir að þær Hggi fýrir
strax eftir helgi. Fundurinn var
haldinn í kjölfar þess að hita-
sóttin hefur borist í hross á ein-
um bæ í Skagafirði og þar með
inn á áður ósýkt svæði. Síðdeg-
is í gær hafði veikin ekki borist
á fleiri bæi í Skagafirði, en
nokkur umferð fólks hefur ver-
ið á bæinn að undanfómu. Tel-
ur yfirdýralæknir því þjóna litl-
um tilgangi að setja bæinn í
einangrun.
Á fundinum vom fulltrúar
Landssambands hestamanna,
hrossaræktenda, hestaleigna,
útflytjenda, markaðsmanna og
landsmótsins á Melgerðismel-
um. Óskuðu þeir allir eftir að
ákvarðanir um næstu aðgerðir
MHÉk yrðu teknai’ fljótt.
Hrossa-
ræktend-
ur vilja
opinbera
rannsókn
máluð á
vegginn
MIKIÐ er um að vera í Hjalla-
skóla í Kópavogi um þessar
mundir. Skólinn fagnar fímm-
tán ára afmæli sínu og af því
tilefni hafa nemendur hans
verið að mála á veggi og vinna
ýmis verkefni tengd sjónum. I
dag verður boðið upp á dagskrá
með ýmsum uppákomum og
sýningum. Þessir krakkar voru
að mála í Hjallaskóla í góðviðr-
inu í gær. Sólin hefur líklega
verið þeim ofarlega í huga en
þau voru búin að mála eina
stóra, gula á vegginn.
Fundur um skipulagsmál YSÍ haldinn um miðja næstu viku
Sambandsstjóm heimilt
að breyta árgjöldum
FUNDUR nefndar þeirrar sem fjallað hefur um
skipulagsmál Vinnuveitendasambands íslands
verður haldinn um miðja næstu viku og er þess
vænst að þá skýrist hvaða skref verði næst tekin
í málinu. Viðræður lágu niðri um tíma vegna for-
mannskosninganna. Aðalfundur VSI sem haldinn
var á fimmtudag heimilaði sambandsstjóm að
breyta árgjöldum til sambandsins vegna ársins
1998 í samræmi við mögulega niðurstöðu sem
verður varðandi skipulagsmál samtakanna.
Framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands
fslands, sagði að fundur í þeim hópi sem rætt
hefði skipulagsmál væri ráðgerður 14. þessa
mánaðar. Ákveðnar hugmyndir hefðu verið til
umfjöllunar í aðildarfélögunum sem þátt tækju í
umræðunni og þess væri vænst að viðbrögð fé-
laganna kæmu fram á þessum fundi, þannig að
hægt yrði að ákveða hver næstu skref yrðu.
Samkvæmt núverandi skipulagi Vinnuveit-
endasambandsins geta bæði félög eins og Sam-
tök iðnaðarins átt aðild að því og einnig geta ein-
stök fyrirtæki átt beina aðild að sambandinu.
Greiðsla til sambandsins nemur 0,34% af launum
síðastliðins árs. Samkvæmt samningi sem gerður
var við Landssamband íslenskra útvegsmanna
þegar það gekk 1 samtökin miðast greiðslur út-
vegsmanna við kauptryggingu sjómanna.
Þórarinn sagði að þá hefði verið á því byggt að
greiðslurnar ættu við kjarasamningstengdar
greiðslur en ekki hlutaskipti, en þau sjónarmið
sem fram hefðu komið síðan væru þess efnis að
ekki væri eðlilegt jafnvægi milli atvinnugreina í
greiðslum. Engar formlegar kröfur um uppsögn
á þessum samningi eða endurskoðun hefðu ennþá
komið fram í framkvæmdastjórn samtakanna „en
í umræðunni um endurskoðun á skipulagi hefur
verið lögð mikil áhersla á það að það verði jöfn,
samkvæmt einhverjum skilgreindum reglum,
kostnaðarþátttaka fyrirtækjanna í hagsmuna-
þjónustunni. Þess vegna líka þannig að það verði
farið að selja út þjónustu í meira mæli,“ sagði
Þórarinn ennfremur.
Þyrlulæknar Landhelgisgæslunnar hafa ekki fengið laun í hálfan fímmta mánuð
Hætta störf-
um eftir helgi
LÆKNAR sem starfa á björgunar-
þyrlum Landhelgisgæslunnar hafa
ákveðið að hætta störfum frá og
með næstkomandi þriðjudegi.
Læknarnir sex hafa ekki fengið
greidd laun fyrir störf sín á þyrlun-
um í fjóra og hálfan mánuð og líta
svo á að sér hafi verið sagt upp.
Ágreiningur er uppi innan stjórn-
kerfisins um hver eigi að greiða
laun þyrlulæknanna.
Hefur ekki gengið að
fá Qárveitingu
Friðrik Sigurbergsson, einn
læknanna, segir að Landhelgisgæsl-
an hafi greitt þeim laun fyrir störf
þeirra á þyrlunum fram til 31. des-
ember á síðasta ári. Um áramótin
hafi því hins vegar verið hætt þar
sem Hafsteinn Hafsteinsson, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar, hafi
lýst því yfir að þessar launagreiðslur
heyrðu undir heilbrigðisþjónustuna.
„Það getur eitthvað verið til í því
en við höfum barist við að fá ein-
hvem til að taka okkar mál upp frá
því fyrir áramót. Það hefur gengið
brösuglega. Við höfum hótað að
hætta vegna þess að við lítum á það
sem uppsögn að fá ekki greitt fyrir
þessa starfsemi. Frá því í byrjun
apríl höfum við svo alltaf framlengt
frestinn um hálfan mánuð í senn í
von um að þessu máh verði kippt í
lag. Fyrir um það bil mánuði tók
Kristján Erlendsson, skrifstofu-
stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, mál-
ið að sér. Við höfum verið í samráði
við hann um hvernig hægt sé að
koma þessu fyrir en það þarf ein-
hverja fjárveitingu til að reka
þetta. Það hefur ekki gengið enn-
þá,“ sagði hann.
„Martröð líkast"
Að sögn Friðriks rennur út frest-
ur sem læknarnir gáfu síðast næst-
komandi þriðjudag. Hann segir að
þeir hafi nú ákveðið að framlengja
hann ekki frekar og hætta störfum
eftir helgina. „Þolinmæði okkar er
þrotin,“ sagði hann.
Friðrik tók það fram að málið
snerist ekki um kjarabaráttu þeirra
heldur það hver ætti að greiða þeim
fyrir þessa starfsemi eða hvort það
væri yfirleitt einhver vilji fyrir því
að hafa lækni á þyrlunni. „Það virð-
ist ekki vera htið á þetta sem neitt
forgangsverkefni," segir hann.
„Þetta hefur verið martröð líkast."
Sendinefnd frá
Daimler-Benz
Viðræður
um til-
raunir
með vetni
SENDINEFND háttsettra fulltrúa
frá Daimler-Benz er nú stödd á ís-
landi og á í samningaviðræðum við
viðræðunefnd iðnaðarráðherra um
tilraunir með vetni á strætisvagna,
bíla og fiskiskip, með skammtíma-
markmið og langtímamarkmið í
huga, að sögn Hjálmars Árnasonar
alþingismanns, formanns íslensku
viðræðunefndarinnar.
I hópnum er m.a. einn af varafor-
setum Daimler-Benz og með í fór er
einnig háttsettur fulltrúi frá
kanadíska fyrirtækinu Ballard, sem
er í fararbroddi í heiminum á sviði
efnarafala, að sögn Hjálmars. Er-
lenda sendinefndin kom til landsins
sl. fimmtudag og í gærmorgun var
haldinn kynningarfundur til undir-
búnings viðræðunum sem standa
fram yfir helgi. Hjálmar vildi ekki
tjá sig frekar um viðræðumar en
sagði að þær væru mjög þýðingar-
miklar. „Við verðum í stífum samn-
ingaviðræðum fram yfir helgina,"
sagði Hjálmar.
Sólin