Morgunblaðið - 29.05.1998, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skaðabótaskylda Lífeyrissjóðs sjómanna staðfest í Hæstarétti
Skerðing lífeyris ólögmæt
HÆSTIRÉTTUR hefur í prófmáli staðfest þann
úrskurð héraðsdóms að ákvörðun Lífeyrissjóðs
sjómanna frá árinu 1994 að skerða lífeyri þeirra
sem hófu töku hans yngri en 65 ára hafi verið
ólögmæt. Niðurstaða Hæstaréttar var að því
leyti ólík dómi héraðsdóms að ríkið var sýknað af
bótakröfu og ber Lífeyrissjóður sjómanna því all-
an kostnað af henni.
Málavextir eru þeir að Svavar Benediktsson
sjómaður hóf töku lífeyris á árinu 1991 þegar
hann varð sextugur, eins og hann hafði rétt til
samkvæmt þágildandi lögum. Árið 1994 voru sett
ný lög um Lífeyrissjóð sjómanna sem áttu að
taka á fjárhagsvanda hans, en samkvæmt trygg-
ingafræðilegri úttekt á sjóðnum átti hann ekki
fyrir skuldbindingum.
í nýju lögunum var ekki tiltekið hvemig fara
skyldi með réttindi sem áunnin voru samkvæmt
eldri ákvæðum, en þar sagði að um nánara skipu-
lag sjóðsins og starfsemi hans skyldi fjalla í
reglugerð sem samin væri af sjóðsstjóminni.
Reglugerðin skyldi einnig hljóta staðfestingu
fjármálaráðherra, Alþýðusambands íslands, Far-
manna- og fiskimannasambandsins og fleiri hags-
munasamtaka.
Lífeyrislækkun staðfest af ráðherra
Sjóðsstjómin ákvað að mæta fjárhagsvandan-
um með því að lækka lífeyri þeirra sem hófu líf-
eyristöku yngri en 65 ára, enda var talið að vand-
ann mætti rekja til þessa hóps. Reglugerð þessa
efnis var samin af stjóminni og hlaut staðfest-
ingu eins og tiltekið var í lögunum, meðal annars
af ráðherra.
Svavar Benediktsson leitaði réttar síns vegna
þeirrar eigna- og réttindaskerðingar sem hann
taldi sig hafa orðið fyrir við breytinguna, íyrst til
umboðsmanns Alþingis en síðan til dómstóla.
í dómi héraðsdóms frá miðju síðasta ári segir
að skerðing lífeyris Svavars hafi verið brot gegn
eignarréttarákvæði og jafnræðisreglu stjómar-
skrárinnar. Héraðsdómur taldi bæði Lífeyrissjóð
sjómanna og ríkissjóð bótaskylda, því að með því
að krefjast staðfestingar ráðherra á reglugerð
sjóðsins hafi löggjafinn ætlað að tryggja að í
henni væm ekki ákvæði sem gengju á svig við
lög. Með staðfestingu ólögmætrar reglugerðar
hafi ráðherra bakað sér bótaábyrgð.
Lífeyrissjóður sjómanna ákvað þegar að áfrýja
málinu til Hæstaréttar. Hæstiréttur taldi að
bótakröfu væri ekki réttilega beint gegn ríkinu,
því það væri ekld í fyrirsvari fyrir Lífeyrissjóð
sjómanna. Að öðra leyti var dómur héraðsdóms
staðfestur.
Leiðangurinn á Mount McKinley
Urðu að snúa aft-
ur vegna óveðurs
og veikinda
FIMM íslendingar, sem ætluðu að
klífa fjallið Mount McKinley í
Alaska, komust ekki á inn þess og
urðu að snúa við vegna veðurs og
veikinda.
Þeir Styrmir Steingrímsson, Atli
Þór Þorgeirsson og Hörður Sig-
urðsson úr Hjálparsveit skáta í
Kópavogi og Haukur Grpnli og
Matthías Sigurðsson frá Björgun-
arsveit Ingólfs, komust tvisvar upp
í 5.200 metra hæð en urðu frá að
hverfa í bæði skiptin. Að sögn
Harðar hefur veðrið á þessum slóð-
um verið mjög slæmt og enginn,
sem hefur reynt að klífa fjallið,
komist á tind þess á tímabilinu.
Hörður og Atli fengu maga-
kveisu og komu niður af fjallinu í
gær. Að sögn Harðar veiktust þeir
vegna mengunar í snjónum. Styrm-
ir, Matthías og Atli voru væntan-
legir niður í morgun, en veður hef-
ur hamlað för þeirra.
Tveir menn fórust á meðan
fimmmenningarnir voru á leið upp
fjallið. Öðram manninum kynntust
Islendingarnir vel og urðu Haukur
og Hörður samferða félaga hans
niður fjallið í gær.
Þrátt fyrir að íslendingarnir
kæmust ekki á tindinn segir Hörð-
ur að ferðin hafi verið skemmtileg
og lærdómsrík.
Fjallið Mount McKinley er 6.194
m á hæð og er hluti af Denali þjóð-
garðinum í Alaska. Það var fyrst
klifið árið 1913. Það er verulega
kalt í hlíðum þess, en frostið getur
farið niður í 40 gráður.
Morgunblaðið/Golli
Vorfagnaðarpylsur
í Grandaskóla
NEMENDUR Grandaskóla og
foreldrar þeirra sporðrenndu
1.500 pylsum á vorfagnaði for-
eldrafélagsins og foreldraráðs-
ins sem haldinn var í gær.
Lúðrasveit vesturbæjar spilaði
fyrir gesti og á flóamarkaði var
hægt að gera reyfarakaup á
óskilamunum liðins vetrar.
Utanríkisráðherrar ræða málefni
Sophiu G. Hansen
Samstarf við tyrk-
neska ráðamenn
HALLDÓR Ásgrímsson utanrík-
isráðherra hefur ákveðið að senda
Stefán H. Jóhannesson, skrif-
stofustjóra almennrar skrifstofu
utanríkisráðuneytisins, til Tyrk-
lands til samstarfs við starfsmenn
tyrkneska utanríkisráðuneytisins
og aðra fulltrúa tyrkneskra
stjómvalda.
í frétt frá utanríkisráðuneytinu
segir að ráðherra hafi fundað með
Ismail Cem, utanríkisráðherra
Tyrklands, í Lúxemborg en þar
sitja þeir fund utanríkisráðherra
Atlantshafsbandalagsins. Fjallaði
Halldór um málefni Sophiu G.
Hansen og dætra hennar og óvið-
unandi fullnustu á dómi hæsta-
réttar Tyrklands varðandi um-
gengnisrétt Sophiu við dætur
sínar. Samkvæmt dómi hæsta-
réttar snemma árs 1997 eiga
dæturnar að dvelja hjá móður
sinni á tímabilinu júlí-ágúst og
óskaði utanríkisráðherra eftir
því að viðkomandi tyrkneskir
ráðherrar sæju til þess að eftir
þessu yrði farið.
Skattadag-
urinn
snemma á
ferðinni í ár
SKATTADAGURINN, sem
er dagurinn þegar vinnu
skattgreiðenda fyrir skyldu-
greiðslum til hins opinbera og
lífeyrissjóða lýkur, er í dag og
heíur ekki verið fyrr á ferð-
inni í áratug. Dagurinn hefur
færst fram um fimm daga frá
síðasta ári. Þetta kemur fram
í fréttatilkynningu frá Heim-
dalli en félagið minnir lands-
menn árlega á þennan dag.
Skattbyrði 40,4%
Utgjöld rílds og sveitarfé-
laga og iðgjöld lífeyrissjóða á
síðasta ári voru 212,9 milljarð-
ar króna segir í tilkynning-
unni og verg landsframleiðsla
527,2 milljarðar. Skattbyrði
landsmanna er 40,4% sé þetta
hlutfall notað til útreikninga.
í dag hafa landsmenn sem
sagt lokið við að borga þetta
hlutfall árslauna sinna til hins
opinbera og unnið í alls 148
daga fyrir því.
„Helsta ástæðan fyrir því
að miðað hefur í rétta átt und-
anfarin þrjú ár er að hægt
hefur á vexti í útgjöldum hins
opinbera en á sama tíma hef-
ur hagvöxtur verið meiri en
áður og landsframleiðsla auk-
ist,“ segir í tilkynningunni.
Jarðalög
endurskoðuð
Landbúnaðarráðherra hefur
skipað nefnd til að endur-
skoða lagaákvæði sem snerta
jarðir. Hlutverk nefndarinnar
er að athuga sérstaklega eft-
irfarandi atriði: Kaupskyldu
jarðeiganda á framkvæmdum
fráfarandi ábúanda; ákvæði
ábúðarlaga um erfðaábúð;
skipan og hlutverk jarða-
nefiida í sýslum landsins;
stofnun lögbýla; lagaákvæði
um óðalsjarðir og lög um
jarðasjóð ríkisins.
Óskað eftir tillögum
Telji nefhdin ástæðu til að
taka tíl umfjöllunar fleiri atriði
en að ofan eru nefnd, er jafn-
framt óskað eftir tillögum
nefndarinnar að lagabreyting-
um um það atriði, þyki ástæða
til.
Formaður nefndarinnar er
Jón Höskuldsson, skrifstofu-
stjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu. Aðrir nefndarmenn eru
Jón Kristjánsson alþingis-
maður, Sturla Böðvarsson al-
þingismaður, Gunnar Sæ-
mundsson, bóndi í Hrúta-
tungu, og Sigurgeir Þorgeirs-
son, framkvæmdastjóri
Bændasamtaka íslands.
Kjarni málsins
Sérblöð í dag
.[OrigiimMaíbi^
8SÍDUR
Þórey Edda Elísdóttir bættu
Norðurlandamet Völu / C1
Þjálfarar lýsa furðu sinni á
ummælum Guðjóns / C3
Konur í köst-
ulum og karlar
í sokkabuxum
Appelsínur
geta verið
ruslfæði líka
Á FÖSTUDÖGUM
dadmtXá