Morgunblaðið - 29.05.1998, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998 9
FRÉTTIR
Hússtj órnarskólum try ggð
áframhaldandi starfsskilyrði
BJÖRN Bjarnason menntamála-
ráðherra hefur undirritað samn-
inga sem fela í sér breytt rekstrar-
form hússtjórnai-skólanna tveggja
sem starfandi eru í landinu og hafa
hingað til verið reknir af ríkinu.
Með samningunum verða skól-
arnir sjálfseignarstofnanir, og tek-
ur Bandalag kvenna í Reykjavík að
sér rekstur Hússtjómarskólans í
Reykjavík og fjögur samtök á
Austurlandi taka að sér rekstur
hússtjórnarskólans á Hallorms-
stað. Samtökin á Austurlandi eru
Samtök sveitarfélaga í Austur-
landskjördæmi, Ferðamálasamtök
Austurlands, Búnaðarsamband
Austurlands og Samband aust-
firskra kvenna.
„Skólarnir fá að lifa“
I samningunum felst meðal ann-
ars sú breyting að menntamála-
ráðuneytið greiðir ákveðinn kostn-
að fyrir hvern nemanda er stundar
nám í skólunum, sem hins vegar
þuifa að hafa tiltekinn lágmarks-
fjölda nemenda til að samningarnir
gangi eftir.
Gildistími samninganna er þrjú
ár og lýsti Björn Bjarnason yfir
ánægju sinni með þá við undirrit-
unina á miðvikudag. Hann sagði að
með samningunum væri þeirri um-
ræðu um að skólarnir yrðu lagðir
niður eða felldir inn í námsbrautir
annarra skóla, loks lokið og það
væri afar ánægjulegt. Hann lýsti
einnig yfir ánægju sinni með samn-
ingaferlið og sagði skólana hafa
sýnt að þeir ættu fullt erindi við
nemendur og að þeir gegndu mikil-
vægu hlutverki í samfélaginu.
Helga Hreinsdóttir formaður
skólanefndar Hússtjórnarskólans á
Hallormsstað sagði samningana
mikilvæga að því leytinu til að þeir
tryggðu skólunum áframhaldandi
líf. „Skólarnir fá að lifa, það átti að
leggja þá niður eða undir aðrar
stofnanir, en með því að gera þá að
sjálfseignarstofnunum þá starfa
þeir svipað og aðrir einkaskólar, og
samið hefur verið um að ríkið
greiði ákveðna upphæð á hvern
nemenda og einnig í viðhald," sagði
Helga, og aðrir aðilar sem komu að
samningunum lýstu einnig yfir
ánægju sinni með þá.
"slime-line"
dömubuxur frá
gardeur
Uéuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
SAMNINGARNIR undirritaðir í húsakynnum Hússtjórnarskólans í
Reykjavík. F.v. eru Jóna Ingibjörg Guðmundsdóttir formaður skóla-
nefndar Hússtjórnarskólans í Reykjavík, Þórey Guðmundsdóttir, for-
maður Bandalags kvenna í Reykjavík, Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra, Helga Hreinsdóttir formaður skólanefndar Hússtjórnarskól-
ans á Hallormsstað og Arnbjörg Sveinsdóttir alþingiskona á Austur-
landi. Til hægri stendur Örlygur Geirsson skrifstofustjóri í mennta
málaráðuneytinu.
Nýkomnir bolir
í stærðum 52-60.
Opið laugardag kl. 10-14.
Eddufelli 2,
sími 557 1730
Tískuverslunin
Smart
Sumarkjólar
st. 36-52
Grimsbæ v/Bústoðaveg
Stretch buxur st. 38-52
Mikið úrval af fallegum bolum
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15. Sími 588 8488
Póstsendum
Léttar sumar-mokkasínur með tökkum undir sóla
Ljósir, brúnir, bláir og svartir
Stærðir 36-42
Verð frá kr. 5.990
SKÓVERSLUNIN
Kringlunni, 1. hæð, s. 568 9345.
Mikið úrval
af drögtum, strets-buxum,
peysum og skyrtum
hjtLQýGafithiUi
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.30, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Litrík
undirfatasett
Ný sending
- Gott verð
Laugavegi 4, simi 551 4473
Urval af frönskum gallabuxum
og holiim frá stærð 34
Opið virkadaga 9-18,
laugardag 10-14.
TliSS^
neðst við Dunhaga
sími 562 2230
Dugleg og góð börn eiga skilið
góð og falleg föt.
Full búð af fallegum sumarfötum.
ENGíABÖRNÍN
Bankastræti 10, s. 5522201.
Ps. Tilboðsverð á sundfötum.
4
2>
LA BAGUETTE
Ekta franskt bakarí
15% afsláttur af kökum
Frítt Whittard kaffi og 1 smjörhorn
í dag og næstu viku frá kl. 15—18.
Verið velkomin
GLÆSIBÆ, SÍMI 588 2759.
Opið frá kl. 12-18, föstudaga frá kl. 12-19
og laugardaga firá kl. 10-14.
-engu líkt-
Laugavegi 32 • SÍMl 552 3636