Morgunblaðið - 29.05.1998, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998 15
FRÉTTIR
hann hefur svo og almennri
ábyrgðarkennd hans og stjórnun-
arhæfileikum.
Ríkisendurskoðun telur í niður-
lagi þessa kafla bréfs síns fyllstu
ástæðu fyrir bankaráð Landsbank-
ans að láta kanna með einum eða
öðrum hætti starfshætti fyrrum
framkvæmdastjóra Lindar hf. og
grípa síðan til viðeigandi ráðstaf-
ana á grundvelli þeiiTa upplýsinga
sem þá liggja íýrir. Af þessu tilefni
vill bankaráð taka fram að gríðar-
legt magn upplýsinga liggur nú
þegar fyrir um allt sem gerðist í
fyrirtækinu Lind hf. a.m.k. síðustu
4-5 starfsár þess. I raun er sú
ákvörðun sem taka þarf hvað þetta
snertir fyrst og fremst sú hvort
óska eigi opinberrar rannsóknar á
starfi og starfsháttum fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Bankaráðið ákvað að snúa sér til
viðskiptaráðherra með tilvísun til
sameiginlegrar stjórnar viðskipta-
ráðherra og bankaráðs á málefnum
ríkisviðskiptabanka. Petta var gert
með bréfi dagsettu 19. apríl 1996
þar sem gerð var grein fýrir mál-
efnum Lindar hf. og lokum fyrir-
tækisins. Jafnframt var viðskipta-
ráðhen-a send skýrsla og niður-
staða Ríkisendurskoðunar sem hér
er fjallað um, þ.e.a.s. bréf Ríkis:
endurskoðunar frá 29. mars sl. í
bréfi bankaráðs var greint frá því
að það hefði enga ákvörðun tekið
að svo komnu máli um frekari að-
gerðir í málinu en óskaði eftir sam-
ráði við viðskiptaráðherra um
framhald málsins samanber ákvæði
bankalaga um yfirstjórn málefna
ríkisviðskiptabanka. Hinn 14. júní
sl. barst bankaráðinu svofellt bréf
viðskiptaráðherra:
„Vísað er til bréfs yðar, dags. 19.
apríl sl., þar sem óskað er eftir
samráði við viðskiptaráðherra um
málefni eignarleigufyrirtækisins
Lindar hf. Með bréfinu fylgdi
skýrsla Ríkisendurskoðunar um at-
hugun hennar á málefnum fyrir-
tækisins. Samkvæmt 39. gr. laga
nr. 43/1993 um viðskiptabanka og
sparisjóði hefur bankaráð yfirum-
sjón með starfsemi viðskiptabanka,
eftirlit með rekstri þeirra og tekur
ákvarðanir um veigamikil atriði í
stjórn og rekstri stofnunarinnar.
Það er því hlutverk bankaráðs að
taka ákvörðun um aðgerðir í til-
vitnuðu máli. Telji bankai'áð
ástæðu til sérstakra aðgerða í mál-
inu, er því rétt að leita til þeirra að-
ila sem fara með opinbert vald í
hverju tilviki. I því sambandi er
rétt að benda á að mat á þeim
skuldbindingum sem bankinn tók á
sig vegna Lindar hf. og áhrifum
þeirra á fjárhagsstöðu hans, heyrir
undir eftirlit bankaeftiriits Seðla-
banka íslands skv. XIV. kafla laga
nr. 43/1993, sbr. og IV. kafla laga
nr. 36/1986 um Seðlabanka íslands.
Finnur Ingólfsson (sign.)
Þorkell Helgason (sign.)“
Eins og fram kemur í bréfi við-
skiptaráðherra tekur hann enga af-
stöðu til frekari rannsóknar máls-
ins.
Bankaráðið telur ekki að svo
komnu máli ástæðu til að efna til
opinberrar sakamálarannsóknar á
störfum og starfsháttum Þórðar
Ingva Guðmundssonar, fyrrum
framkvæmdastjóra Lindar hf.
...en mjögstutt
Nýtt simanúmer
BiVI Flutninga
569 80Ö0
BM Flutningar er alhliða flutningsmiðlun fýrir
inn- og útflytjendur. Til aó geta þjónað
viðskiptavinum okkar betur höfum við flutt í
nýtt og stærra húsnæði í Holtagörðum og um
leió verður aðgengi fyrir viðskiptavini okkarenn
betra. Við önnumst vöruflutninga fyrir viðskiptavini
okkar um þveran og endilangan heiminn en
sjálf fluttum við rétt fýrir hornið.
IBM TRANSPORT LTD./^N
BM FLUTNINGAR EHR^SSJj
Holtabakka v/Holtaveg
104 Reykjavík, sfmi 569 8000
- Alhlióa flutningsmiðlun
v.
í bréfi Ríkisendurskoðunar er
vakin athygli á verkefnum og
starfsskyldum endurskoðenda