Morgunblaðið - 29.05.1998, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Svar Ríkisendurskoðunar til bankaráðs LI
Aðhefst ekki án
nýrra upplýsinga
Formaður bankaráðs
hr. Kjartan Gunnarsson
Landsbanka Islands
Austurstræti 11
101 Reykjavík
1. nóvember 1996.
Vísað er til bréfs yðar dags. 26.
september 1996 um málefni eign-
arleigufyrirtækisins Lindar hf.
í bréfínu er lýst afstöðu banka-
ráðsins til flestra efnisþátta sem
fjallað var um í bréfi Ríkisendur-
skoðunar hinn 29. mars sl. um
málefni nefnds fyrirtækis. I fram-
haldi af þeim upplýsingum mun
Ríkisendurskoðun ekki aðhafast
frekar í máli þessu nema til komi
nýjai- upplýsingar.
I nefndu bréfi óskaði bankaráð
Landsbankans eftir því að Ríkis-
endurskoðun framkvæmdi athug-
un á útlánareglum Landsbankans
og með hvaða hætti staðið er að
upplýsingagjöf til bankaráðsins
er varðar stjómunar- og eftirlits-
skyldur ráðsins. Með bréfi þessu
staðfestir Ríkisendurskoðun að
hún muni taka þetta verkefni að
sér í samráði við bankastjórn
Landsbankans og löggiltan end-
urskoðanda Landsbankans.
Sigurður Þórðarson
ríkisendurskoðandi
lánastofnana. í tilefni af þeim hug-
leiðingum sem þar eru settar fram
vill bankaráðið taka fram að það er
ekki fyrr en Árni Tómasson löggilt-
ur endurskoðandi er fenginn til
endurskoðunar á Lind hf. að
bankaráðinu, bankastjórn Lands-
bankans og stjórn Lindar hf. ber-
ast raunhæfar upplýsingar um
stöðu félagsins. Því miður var það
hlutverk endurskoðandans eftir að
hann kom að fyrirtækinu að gera
fyrst og fremst grein fyrir nauð-
synlegri afskriftaþörf eftir ná-
kvæma rannsókn á útlánum fyrir-
tækisins svo og að leiðbeina um
hvernig herða bæri og þrengja
reglur. Bankaráðið hefur ítrekað
snúið sér til endurskoðandans
varðandi umfjöllun þess á Lind hf.
og sótt til hans miklar upplýsingar
og fróðleik varðandi fyrirtækið og
atburðarásina í því og telur að þær
upplýsingar hafi verið ómetanlegar
fyrir það til þess að komast að nið-
urstöðum varðandi málið.
VI.
I niðurstöðum Ríkisendurskoð-
unar segir að ljóst sé að fjölmargt í
ákvarðanatöku, stjórnun, fram-
kvæmd og eftirliti hafi brugðist hjá
Lind hf. Bankaráðið er sammála
þeirri niðurstöðu Ríkisendurskoð-
unar að fjölmargt í ákvarðanatöku,
stjórnun, framkvæmd og eftirliti
hafi brugðist í Lind hf. Það er
greinilegt þegar að skoðaðar eru af-
skriftatillögur fyrirtækisins og
þeim skipt niður á ákvörðunaraðila
og þau ái' sem skuldbindingarnar
mynduðust á að slappleiki á öllum
þessum sviðum hefur verið ríkjandi
í fyrirtækinu frá upphafi. Umtals-
verð umskipti verða eftir að fulftrú-
ar Landsbankans hafa alfarið tekið
við stjórn fyrirtækisins, hert og
breytt útlánareglum og endurskoð-
að eftirlitskerfi og nýr endurskoð-
andi tekið til starfa. Fram hjá því
verður þó ekki litið að allt frá í mars
1991 eiga fulltrúar Landsbankans
sæti í stjóm fyrirtækisins og hafa
þar með aðstöðu til þess að hafa
áhrif á starfshætti og starfsreglur
fyrirtækisins. Erfitt eða ókleift er
að meta hvort sjá hafi mátt örlög
Lindar hf. fyrir þegar á árinu 1991
þegar Landsbankinn eignaðist hlut
í Lind hf. Bankaráðið hallast þó
mjög eindregið að því að það hafi
verið nánast ókleift og bendir í þvi
sambandi á skýrslur eftirlitsaðila,
endurskoðenda og framkvæmda-
stjóra, en svo seint sem í nóvember
1992 taldi bankaeftirlit Seðlabank-
ans afskriftaþörf fyrirtækisins ekki
vera meiri en 46-51 milljón króna.
Það er öllum hlutaðeigandi ljóst að
rekstrai'niðurstaðan varðandi Lind
hf., sem í dag bendir til hugsan-
legra heildarafskrifta á bilinu
600-790 milljónir króna auk þess að
allt eigið fé fyrirtækisins tapast, er
eitthvert allra þyngsta áfall sem
Landsbankinn hefur orðið fyrir á
þessu sviði. Fyrirtækið tapaði um
þriðjungi allra útistandandi eigna
sinna og hækkar afskriftaþörf
Landsbankans á ári á þriggja ára
tímabili um 200-250 milljónir króna
vegna þessara tapa. Bankaráð
Landsbankans telur mikilvægast í
þessu máli að fyrirbyggja að at-
burðarás af þessu tagi geti nokkru
sinni endurtekið sig í fyrirtækjum
Landsbankans eða í Landsbankan-
um sjálfum. Til þess að tryggja það
er nauðsynlegt að eftirlitskerfi þau
sem starfað er eftir séu ítarleg og
gefi á hverjum tíma réttar upplýs-
ingai' og þau séu þannig úr garði
gerð að útilokað sé að óviljandi eða
vísvitandi séu gefnar með þeim
rangar upplýsingar. Jafnframt er
nauðsynlegt að útlánaákvarðanir
séu á hverjum tíma eins vandaðar
og nokkur kostur er. Það verður þó
að hafa í huga að útiánaákvarðanir
á hveijum tíma hljóta ávallt að vera
að nokkru leyti byggðar á mati við-
komandi lánastofnunar á lántaka og
endurgreiðslumöguleikum hans, því
reynslan sýnir að jafnvel hinar ör-
uggustu og bestu tryggingar eru
ekld einhlít vöm fyrir lánastofnanir
þar sem verðmæti þeirra getur á
skömmum tíma hrapað eða jafnvel
orðið að engu. Bankaráð og banka-
stjóm Landsbankans hafa leitast
við að ti'yggja að allar útlánareglur
séu mjög nákvæmar og ítarlegar og
að eftirlitskei-fin gefi ávallt réttar
upplýsingar. Samkvæmt bankalög-
um setur bankaráðið útlánareglur
þar sem dregnar em meginlínur
um útlán bankans og um þær upp-
lýsingar sem bankaráðinu em veitt-
ar til þess að fylgjast með því að
reglunum sé fylgt, en bankastjóm
setur síðan íýllri og nákvæmari
reglur. Bankaráð bera samkvæmt
bankalögum mjög þunga ábyrgð á
rekstri og starfsháttum viðkomandi
banka. Þau era eins og stjórnir
annarra fyrirtækja mjög háð þeim
upplýsingum sem þau fá á hveijum
tíma frá daglegum stjórnendum
fyrirtækisins. Bankaráð Lands-
bankans telur að þær upplýsingar
sem því berast, bæði samkvæmt
settum reglum og að frumkvæði
bankastjómar eða samkvæmt sér-
stökum óskum bankaráðsins í heild
eða einstakra bankaráðsmanna séu
ávallt réttar, nákvæmar og veittar
eftir bestu vitund og án undan-
dráttar. Bankaráðið hefur því enga
ástæðu til að draga í efa nokkra
þætti í upplýsingamiðlun banka-
stjórnar og annarra starfsmanna til
sín.
Með tilvísun til afdrifa Lindar hf.
og að höfðu samráði við banka-
stjórn Landsbankans hefur banka-
ráðið hins vegar ákveðið að óska
eftir því við Ríkisendurskoðun að
hún framkvæmi fyrir bankaráðið
athugun á útlánareglum Lands-
bankans, bæði þeim sem bankaráð
bankans setur og þeim reglum sem
bankastjórn bankans setur á
gmndvelli þeirra. Athugunin bein-
ist að því hvort reglurnar séu að
mati Ríkisendurskoðunar fullnægj-
andi til þess að tryggja sem vand-
aðastar ákvarðanir um útlán bank-
ans. Telji Ríkisendurskoðun nauð-
syn á breytingum á reglunum ósk-
ar bankaráðið eftir að hún geri til-
lögur um það til sín. Jafnframt ósk-
ar bankaráðið eftir að Ríkisendur-
skoðun kanni með hvaða hætti
staðið er að því í Landsbankanum
að veita bankaráði bankans upplýs-
ingar annars vegar samkvæmt
þeim ákvæðum sem koma fram í
útlánareglum bankaráðsins og lúta
að upplýsingagjöf um helstu við-
skiptamenn fyrirtækisins og hins
vegar um aðra þætti varðandi
rekstur og stjórnun bankans sem
bankaráðinu er nauðsynlegt að fá
upplýsingar um til þess að geta
rækt stjórnunar- og eftirlitsskyldu
sína. Athugun þessi nái einnig til
dótturfyrii'tækja bankans, Lands-
bréfa hf. og Hamla hf. Bankaráðið
leggur áherslu á að hér væri um að
ræða starf sem unnið væri í sam-
ráði við bankastjóm bankans og
endurskoðanda hans Arna Tómas-
son, löggiltan endurskoðanda, og
að skýrslugerð í málinu yrði ein-
vörðungu beint til bankaráðsins.
Bankaráð leggur mikla áherslu á
nauðsyn þess að ótvírætt trúnaðar-
traust rfld milli Landsbanka ís-
lands og Ríkisendurskoðunar og
óskar eftir því að Ríkisendurskoð-
un taki málaleitanina til jákvæðrar
athugunar. Þá vill bankaráðið að
lokum leggja áherslu á, að verði
Ríkisendurskoðun við þessari
beiðni þá verði athuguninni hraðað
svo sem kostur er, einkum með til-
liti til fyi-irhugaðrar breytingar á
Landsbanka Islands í hlutafélag.
Virðingarfyllst,
Kjartan Gunnarsson,
formaður bankaráðs
Landsbanka Islands.
Skrifstofa Norðurskautsráðsins
um verndun lífríkis á norðurslóðum (CAFF)
óskar eftir húsnæði á Akureyri eða í nágrenni
fyrir finnskan starfsmann skrifstofunnar og fjöl-
skyldu hennar (2+2) frá og með byrjun júlí, má
vera eitthvað síðar, og til loka júlí 1998.
Upplýsingar veittarísíma 4623350 á
skrífstofutíma annars ísíma 4613292.
Á Fótboitavef Morgunblaðsins
finnur þú
alla réttu
takkana
www.mbl.is/boltinn
Nýjustu fréttir,
innlendar og
erlendar
Beinar útsendingar
Hverjir skora
Staðan og næstu leikir
Tölfræði
Fótboltavefur mbl Þar sem þú getur fylgst með boltanum í sumar.