Morgunblaðið - 29.05.1998, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
Sumardagskrá að
hefjast í Viðey
SUMARDAGSKRÁIN í Viðey
hefst 1. júní, annan dag hvítasunnu.
Þá flytur sr. Þórir Stephensen há-
tíðarmessu í Viðeyjarkirkju kl. 14
með aðstoð dómorganista og Dóm-
kórs. Sérstök bátsferð verður með
kirkjugesti kl. 13.30. Eftir messu
verður staðarskoðun sem tekur
rúman hálftíma og þá verður veit-
ingahúsið einnig opið fyrir þá sem
vilja fá sér kaffi.
Nokkrar nýjungar verða í starf-
inu á þessu ári. Má þar nefna að í
næstu viku tekur til starfa reið-
hjólaleiga og einnig verður grill-
skálinn Viðeyjarnaust opinn án end-
urgjalds á tímanum frá kl.
13.30-16.30 alla daga. Þangað geta
allir Viðeyjargestir komið á þessum
tíma með nesti sitt, snætt það þar
inni ef þeir vilja og fengið að grilla á
ágætu útigrilli sem þarna er. Við
skálann verða, á þessum tíma, fáein
leiktæki til að dunda sér við. Þeim,
sem gleyma nestinu, verður hægt
að sjá fyrir molakaffi eða svala-
drykk. Utan þessa tíma verður skál-
inn til útleigu og sér afgreiðsla Við-
eyjarferjunnar um það.
Gönguferðir verða með hefð-
bundnum hætti, raðgöngur tvisvar í
viku, á þriðjudagskvöldum kl. 20.30
og á laugardagseftirmiðdögum kl.
14.15. Sá sem kemur í fimm göngur
í röð sér allt hið helsta er fyrir augu
ber í eynni. Fyrsta kvöldgangan
verður næsta Jmiðjudag um norð-
austureyna. A sunnudögum kl.
14.15 eða strax eftir messu er svo
staðarskoðun, gengið um heimahlöð
og kirkjan og Stofan sýndar. Slíkt
tekur 30-40 mínútur og er öllum
auðvelt.
Veitingahúsið í Viðeyjarstofu
verður opið alla daga og leggur
áherslu á fjölskylduvænar veitingar
síðdegis, bæði í verði og gæðum.
Ljósmyndasýningin í Viðeyjar-
skóla verður opnuð 20. júní. Hesta-
leigan verður opnuð þriðjudaginn 2.
júní.
Bátsferðir verða úr Sundahöfn
virka daga kl. 13 og 14 og í land aft-
ur kl. 15.30 og 16.30. Um helgar eru
ferðir á klukkutíma fresti kl. 13-17
og á hálfa tímanum í land aftur.
Þess utan eru kvöldferðir og hægt
er að panta aukaferðir eftir þörfum.
RÚNAR Antonsson, starfsmaður Morgunblaðsins á Akureyri,
afhenti Huldu Pétursdóttur vinninginn.
Hlaut GSM-síma
í verðlaun
HULDA Pétursdóttir var svo
heppin að vinna Eriksson GA 628
GSM-síma frá BT tölvum í US
Marshais leik Morgunblaðsins og
Sambíóanna á Netinu.
Skömmu eftir að Hulda tók
þátt í leiknum fór hún norður til
Akureyrar en þar vinnur hún í
sumar. Þrátt fyrir að henni hafi
verið sendur tölvupóstur, eins og
öðrum vinningshöfum, og ítrekað
hringt í hana náðist ekki sam-
band við Huldu til að láta hana
vita af vinningnum.
Það gekk svo ioks fyrir
skömmu og var henni þá sendur
vinningurinn norður með næstu
flugvél. Það má því segja að tölu-
verður eltingaleikur hafi verið
við aðalvinningshafann í leiknum
og er það alveg í anda myndar-
innar sem leikurinn er kenndur
við. Um leið og aðstandendur
ieiksins óska Huldu og öðrum
vinningshöfum til hamingju vilja
þeir koma á framfæri þakklæti
til allra þeirra fjölmörgu sem
tóku þátt.
Rétt mynd
af dux
scholae
MYND af röngum
nemanda birtist í frétt
Morgunblaðsins um
dux scholae við braut-
ski'áningu nemenda úr
Fjölbrautaskólanum
við Ánnúla. Beðist er
velvirðingar á þessum
mistökum og birtist
hér rétt mynd af írisi
Traustadóttur dux
scholae úr Fjölbrauta-
skólanum í Ánnúla.
IRIS Traustadóttir dux scholae frá
Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
FRÁ úthlutun náms- og athafnastyrkja íslandsbanka. Björn Bjarnason menntamálaráðherra og Ásmundur
Stefánsson, framkvæmdastjóri hjá íslandsbanka afhentu styrkina.
Viðurkenningar fyrir nýsköpun
og góðan árangur
NÁMS- og athafnastyrkir ís-
landsbanka voru afhentir mið-
vikudaginn 20. maí. Veittir voru
sex námsstyrkir, hver að upphæð
150 þúsund krónur og einn at-
hafnastyrkur að íjárhæð 200 þús-
und krónur.
Markmið íslandsbanka með
þessum styrkjum er að veita
námsmönnum viðurkenningu fyr-
ir frábæran árangur í námi og
hvatningu til frekari átaka. Jafn-
framt er tilgangurinn að örva ný-
sköpun og frumkvæði meðal ís-
lenskra námsmanna. Styrkirnir
eru veittir í tengslum við
Menntabraut, námsmannaþjón-
ustu lslandsbanka.
I úthlutunarnefnd áttu sæti:
Ingjaldur Hannibalsson dósent,
Lúðvík Bergvinsson alþingismað-
ur, Ásmundur Stefánsson fram-
kvæmastjóri og Hilmar Gunnars-
son markaðsstjóri.
Námsstyrki hlutu eftirtaldir:
Edda Hrund Harðardóttir,
sópransöngkona. Edda hefur
stundað nám við Menntaskólann í
Hamrahlíð og Söngskólann í
Reykjavík. í haust heldur hún ut-
Leiðrétt
kosningaúrslit
VEGNA mistaka við birtingu kosn-
ingaúrslita í þriðjudagsblaðinu eru
úrslit í nokki-um sveitarfélögum birt
hér að nýju. Lesendum skal bent á
að úrslit kosninganna í öllum sveit-
arfélögum er að finna á Kosninga-
vef Morgunblaðsins, httpT7www.-
mbl.is/kosningar/.
Nýtt sveitarfélag við Eyjafjörð
í nýju sveitarfélagi við utanverð-
an Eyjafjörð, þar sem nafnið Ár-
dalsvík varð hlutskarpast í skoðana-
könnun sem gerð var samhliða
kosningunum, hlaut B-listi Fram-
sóknarflokks 489 atkvæði eða
42,3%, D-listi Sjálfstæðisflokks 394
atkvæði eða 34,1% og S-listi sam-
einingar 272 atkvæði, eða 23,5%.
Eftirtaldir náðu kjöri í bæjarstjórn:
Katrín Sigurjónsdóttir (B), Svan-
hildur Árnadóttir (D), Kristján
Hjartarson (S), Kristján Ólafsson
(B), Kristján Snorrason (D), Sveinn
Elías Jónsson (B), Ingileif Ástvalds-
dóttir (S), Jónas M. Pétursson (D)
og Gunnhildur Gylfadóttir (B).
Hrísey
í Hrísey hlaut H-listinn 82 at-
kvæði, eða 57,7%, og U-listinn 60 at-
kvæði, eða 42,3%. í sveitarstjóm
náðu kjöri: Narfi Björgvinsson (H),
Kristinn Árnason (U), Þórunn Ai'n-
órsdóttir (H), Þorgeir Jónsson (U)
og Smári Thorarensen (H).
Grímsnes- og Grafningshreppur
í Grímsnes- og Grafningshreppi
hlaut C-listi lýðræðissinna 99 at-
an til frekara söngnáms við
Royal Academy of Music í
London.
Almar Halldórsson, sálfræð-
ingur. Almar hefur lokið námi
frá Háskóla íslands og er að
helja framhaldsnám í haust við
háskólann í Exeter í Englandi.
Þar ætlar hann að stunda frekari
rannsóknir í tengslum við BA-
verkefni sitt sem fjallar um and-
Iitsskynjun ungbarna.
Einar Guðbjartsson, viðskipta-
fræðingur. Hann er í doktors-
námi í viðskiptafræði við Við-
skiptaháskólann í Gautaborg.
Rannsóknaverkefni hans er
stærsti hlutabréfasjóður í opin-
berri eigu í Svíþjóð.
Yrsa Björt Löve. Yrsa er nemi
í læknisfræði við Háskóla ís-
lands. Hún vann rannsóknar-
verkefni um meðfædda hjarta-
galla hjá tvíburum og stefnir að
sérhæfingu í barnalækningum
með hjartasjúkdóma barna sem
undirsérgrein.
Lena Rós Ásmundsdóttir. Hún
er á öðru ári í læknisfræði við
Háskóla íslands. Lena hefur
kvæði eða 52,7%, K-listi óháðra
kjósenda 53 atkvæði eða 28,2% og
S-listi Samstöðu og framfara 36 at-
kvæði eða 19,1%. Kjörnir í sveitar-
stjórn voru því Gunnar Þorgeirsson
(C), Böðvar Pálsson (K), Guðmund-
ur Þorvaldsson (C), Þórunn Drífa
Oddsdóttir (S) og Guðrún Þórðar-
dóttir (C).
Eyja- og Miklaholtshreppur
í Eyja- og Miklaholtshreppi náðu
eftirtaldir kjöri í óbundinni kosn-
ingu: Jón Oddsson, Halla Guð-
mundsdóttir, Guðbjartur Gunnars-
son, Helgi Guðjónsson og Eggert
Kjartansson.
Þingvallahreppur
í Þingvallahreppi var óbundin
kosning og náðu þessir kjöri: Ragn-
ar Lundborg Jónsson (24 atkv.),
Ingibjörg Steindórsdóttir (19) og
Halldór Ki'istjánsson (15).
Þá féll út nafn efsta manns í
Broddaneshreppi. Það er Sigríður
Guðbrandsdóttir, sem hlaut 32 at-
kvæði.
-------------------
■ „PLAYSTATION" mót verður
haldið á Egilsstöðum laugardaginn
30. maí kl. 14 í Bíó Valaskjálf. Þátt-
tökugjald er 500 kr. Skráning fer
fram í Skóvinnustofu Konráðs. Fyr-
irkomulag keppninnar er sem hér
segir: Keppt verður í Need For
Speed III, tvær umferður á kepp-
anda, tveir keppa í einu upp á tíma,
sextán bestu tímarnir komast áfram
og keppa í undanúrslitum án tíma-
töku.
ávallt sýnt afburða námsárangur.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanuin í Reykjavík
með einkunnina 9,26 og í inn-
tökuprófum læknadeildar varð
hún efst með einkunnina 9,03.
Hermann Þór Snorrason. Her-
mann er í BA-námi í prenttækni
og stjórnun við London College
of Printing í Englandi. Þetta nám
hentar vel til undirbúnings
stjórnunarstarfa á sviði prentun-
ar, auglýsinga, útgáfu, umbúða-
iðnaðar, markaðsmála og tækni-
þróunar í prent- og útgáfuiðnaði.
Athafnastyrkinn hlaut að
þessu sinni Gísli Reynisson.
Styrkurinn er veittur vegna
hjálpartækis við ákvarðanatöku
fyrir stjórnendur í loðnu-, rækju-
og síldarvinnslu. Gísli er ásamt
öðrum að þróa og hanna bestun-
arlíkan sem framleiðslustjórar
geta stuðst við þegar ákveða á
hvaða afurðaflokka skuli fram-
leiða. Tækið reiknar út hvaða af-
urðasamsetningu gefur hæsta af-
urðaverðmætið miðað við gefnar
forsendur í hveijum afurða-
flokki.
LEIÐRÉTT
Fundur í Melaskóla í gær
Fundur foreldra í Melaskóla um
byggingarmál var í gær, fimmtu-
dag, en verður ekki í kvöld eins og
misskrifaðist í fimmtudagsblaðinu á
bls. 40. Beðist er afsökunar á þessu.
Röng auglýsing frá Nýheija
Á BAKSÍÐU blaðsins í gær birtist
röng auglýsing frá Nýherja. Aug-
lýst var IBM notenda ráðstefna
dagana 23. og 24. mars. Ekki er um
rangar dagsetningar því ráðstefnan
var haldin þessa daga. Morgunblað-
ið biðst velvirðingar á mistökunum.
Karrí og karríréttir
í ÞÆTTI Kristínar Gestsdóttur,
Matur og matgerð, í blaðinu í gær
límdist myndin yfir byrjun textans
sem varð óskiljanlegur en upphaf
textans var svona:
EN hvað er karrí? Því er vandsvar-
að þar sem karrí er blanda af mörg-
um kryddtegundum - allt upp í 20.
Vissar tegundir krydds eru þó alltaf
í karrí svo sem kardimommur,
kanill, negull, koriander, kúmen,
múskat, pipar og turmerik sem gef-
ur karríinu gula litinn en annað
krydd svo sem anís, fennel, fenu-
greek, lárviðarlauf, masi, valmúa-
fræ, sesamfræ, cayennepipar og
saffron er líka oft með en það eins
og turmerik gefur líka sterkgulan
lit. Notkun karrís í Asíu við trúarat-
hafnir og til matargerðar er
ævaforn...
Kristín og lesendur blaðsins eru
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum.