Morgunblaðið - 10.06.1998, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Banni létt af útflutn-
ingi íslenskra hrossa
ÍSLENSKI geimfarinn Bjarni
Tryggvason er væntanlegur til
landsins í tíu daga heimsókn.
Islenski
geimfarinn
væntanlegur
ÍSLENSKI geimfarinn Bjarni
Tryggvason er væntanlegur í heim-
sókn til Islands 16. júní nk. og mun
hann dvelja hér til 26. júní í boði for-
seta Islands. A þjóðhátíðardaginn
17. júní, er gert ráð fyrir að hann
taki þátt í hátíðarhöldunum á vegum
Reykjavíkurborgar.
Bjarni tók ásamt fimm öðrum
geimförum þátt í ellefu daga leið-
angri Discovery í ágúst árið 1997 og
voru íslensku forsetahjónin viðstödd
á Canaveralhöfða þegar geimferj-
unni var skotið á loft. I samtali, sem
forsetinn átti við Bjania, bauð hann
honum í heimsókn til Islands og kom
fram að Bjarni mundi færa íslensku
þjóðinni að gjöf islenskan fána, sem
hann bar úti í geimnum.
Bjarni hefur ekki komið til íslands
síðan hann flutti héðan sjö ára að
aldri til Kanada ásamt fjölskyldu
sinni. Hann varð fyrsti maðurinn,
sem fæddur er á Norðurlöndum til
að fara út í geiminn.
HM-vefur
opnaður
í DAG opnar Morgunblaðið
nýjan vef í tengslum við heims-
meistarakeppnina í knatt-
spyrnu í
Frakklandi.
Hægt er að
nálgast vef-
inn frá
Fréttavef og
núverandi
Boltavef eða
með því að slá inn slóðina
www.mbl.is/boltinn.
Meðan á keppni stendur
verða beinar lýsingar frá hverj-
um leik og hefst sú fyrsta í dag
þegar Brasilíumenn og Skotar
leika upphafsleikinn. A vefnum
má fá upplýsingar um umferðir
keppninnar, ' tölfræði, bæði
hvað varðar landslið og leik-
menn, ásamt upplýsingum um
hvem leikmann og löndin sem
keppa. Þá má lesa ýtarlegar
upplýsingar um allar heims-
meistarakeppnir sem haldnar
hafa verið og einnig fróðleik
um núverandi keppni. Frá
HM-vefnum er síðan hægt að
tengjast ýmsum öðrum erlend-
um boltavefjum.
Frekari upplýsingar um
notkun vefjarins má síðan finna
á íþróttasíðum blaðsins í dag.
MJÖG ákveðnar vísbendingai’ bein-
ast að því að svokallaðar entero-
veirur valdi hitasóttinni sem herjað
hefur á islensk hross á undanförn-
um mánuðum. Á grundvelli þess og
varnaraðgerða sem beitt hefur ver-
ið hér á landi hefur banni á útflutn-
ingi á íslenskum hrossum til Evr-
ópusambandsins verið aflétt. Yfir-
völdum í Bandaríkjunum hefur ver-
ið kynnt þessi niðurstaða og hafa
borist jákvæðar undirtektir þaðan.
Er búist við að fljótlega verði einnig
hægt að flytja út hross til Banda-
ríkjanna.
Sigríður Bjömsdóttir dýralæknir
hrossasjúkdóma sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að þessi niður-
staða hefði fengist á mánaðarlegum
fundi dýralæknanefndar ESB. Þar
kom fram að leyft verður að flytja
hesta til ESB-landa án skilyrða og
þurfa þeir ekki að fara í sóttkví úti.
MÁLI Lindar, sem bankaráð
Landsbanka Islands hf. óskaði að
ríkissaksóknari tæki til rannsókn-
ar, var í gær vísað til meðferðar
hjá efnahagsbrotadeild embættis
ríkislögreglustjóra. Ríkissaksókn-
ari fór fram á að embættið tæki að
sér rannsókn málsins.
Jóni H.B. Snorrasyni, saksókn-
ara ríkislögreglustjóraembættisins
og settum ríkislögreglustjóra í
fjarveru Haraldar Johannessen,
ríkislögreglustjóra, sem er í sum-
arleyfi erlendis, hefur verið falin
stjóm rannsóknarinnar í samráði
við ríkissaksóknara. Arnar Jens-
son, sem er yfir efnahagsbrota-
deildinni, tjáði Morgunblaðinu í
Entero-veirur
taldar valda
hitasóttinni
Þetta byggist á því að aðeins séu
flutt út hross sem ekki hafa haft
samneyti við sýkt hross í nokkrar
vikur og hafa verið í 10 daga sóttkví
hér á landi áður en þau eru flutt út.
Verið er að kynna dýralæknum
reglur um þetta og verður sérstök
reglugerð gefin út eftir helgi.
Talið er víst að hitasóttin sé af
völdum svokallaðra entero-veira.
Veirurnar em útbreiddar víða um
heim og byggja hross yfirleitt upp
mótefni gegn þeim á unga aldri.
Þær valda ekki eins auðsjáanlegum
sjúkdómum og þær gerðu hér á
landi og hafa því lítið verið rannsak-
aðar.
Sigríður segir mjög sterkar vís-
gær að verið væri að fara yfír gögn
málsins og vinna ýmsa grunnvinnu.
Ekki væri á þessu stigi hægt að
segja nánar til um umfang málsins,
hvort frekari liðsstyrk þyrfti við
rannsóknina né hvenær mætti bú-
ast við að henni lyki.
Bankaráð Landsbanka Islands
hf. samþykkti í lok síðasta mánað-
ar að óska eftir því við ríkissak-
sóknara að tekið yrði til opinberrar
rannsóknar hvort stjórnendur fjár-
mögnunarieigufyrirtækisins Lind-
ar hf. hafi eftir að Landsbankinn
eignaðist meirihluta í fyrirtækinu í
lok ársins 1991 með athöfnum sín-
um eða athafnaleysi framið eða
tekið þátt í refsiverðri háttsemi.
bendingar beinast að þessum veir-
um sem styrktar hafa verið af far-
aldsfræðilegum athugunum sem
gerðar hafa verið hér á landi með-
an hitasóttin hefur geisað. Þó sé
ekki hægt að staðfesta þetta nema
að rækta upp veiruna og gera
margvíslegar rannsóknir. Ekki
hafa verið til mótefnapróf fyrir
entero-veirurnar.
Sigríður segir að nú sé tímabært
að fara að láta hjólin snúast eftir
þessar ánægjulegu fréttir. Mikil-
vægt sé að hrossaútflytjendur hafi
samband við sína dýralækna eða yf-
irdýralæknisembættið til að fá nán-
ari upplýsingar um hvemig standa
eigi að útflutningnum. Hugmyndir
þeirra um hvar sé best að setja upp
sóttkvíar séu vel þegnar. Héraðs-
dýralæknar þurfi að samþykkja
sóttkvíarnar og hafa eftirlit með
þeim.
Keppni í
leiklist
EFNT verður til keppni í leiklist
í Iðnó 15. júní næstkomandi og
munu margir af fremstu leikur-
um þjóðarinnar etja kappi sam-
an. Er þetta þekkt fyrirbrigði er-
lendis.
Sænski leiksljórinn Martin
Geijer, sem stofnaði leikhús af
þessum toga í Stokkhólmi árið
1992, stendur fyrir leiksmiðju um
þessar mundir í Kramhúsinu þar
sem hann veitir íslenskum leikur-
um og leikstjórum tilsögn í
spunavinnu.
Keppnin verður svo milli
tveggja liða og mæta keppendur
óundirbúnir til leiks. Svo er það
þeirra verkefni að spinna sögu
út frá uppástungum áhorfenda
og munu dómarar úrskurða um
hversu vel tekst til.
■ Þar sem ímyndunaraflið/50.
Góð
sfldveiði
ÍSLENSKI síldveiðiflotinn var
kominn í síld síðdegis í gær og
var góð veiði. 26 skip voru
komin eða voru á leið á miðin
um það leyti.
Fyrstu skipin komu á miðin
upp úr hádegi og var Júpíter
fyrstur til að fylla sig seinni
pai’t dags. Skipverjar á Júpíter
gáfu þeim á Guðrúnu Þorkels-
dóttur það sem af gekk hjá
þeim og eru nú bæði skipin á
leið í land.
Síldin virðist vera á svipuð-
um slóðum og nokkur færeysk
skip fundu hana á mánudaginn,
eða tíu til tólf mílur fyrir innan
landhelgislínuna norðaustur af
landinu.
Kókaín fínnst
í Eyjum
LÖGREGLAN í Vestmanna-
eyjum hefur á einni viku haft
afskipti af sjö einstaklingum
vegna fíkniefnamisferlis. Hald
var lagt á hass, amfetamín og
kókaín. Ekki er algengt að
kókaín finnist í Vestmannaeyj-
um, enda efnið dýrt, eða um
15.000 kr. grammið.
Lögreglan í Vestmannaeyj-
um hefur verið með átak í gangi
að uridanfömu vai-ðandi meint
fíkniéfnamisferli og verður
átakinu haldið áfram. Lögregl-
an óskar eftir aðstoð frá al-
menningi og em allar upplýs-
ingar vel þegnar er varða ein-
staklinga sem stunda neyslu,
sölu eða dreifingu á fíkniefnum.
Nýr vegar-
slóði í Núps-
staðarskóg
í KJÖLFAR skriðunnar sem
féll á sunnudag úr Lómagnúpi,
og lokaði vegarslóðanum inn að
Núpsstaðarskógi, hefur Vega-
gerðin ákveðið að leggja nýjan
slóða inn dalinn.
Á um 120 metra kafla er veg-
urinn lokaður og að sögn Gylfa
Júliussonar umdæmisstjóra
Vegagerðarinnar í Vík er hag-
stæðara að leggja nýjan slóða
en að fara í gegnum skriðuna.
Nefhjólið
sökk í
sandinn
LÍTILLI einkaflugvél af gerð-
inni Cessna 172 hlekktist á í
fjörunni á eynni Knarrai-nesi
undan Mýrum laust eftir há-
degi í gær. Sökk nefhjólið ofan
í sandinn þegai- vélinni var ekið
til. Engan sakaði.
Vélin hafði lent án vandræða
í fjörunni í Knarrarnesi og var
flugmaðurinn að aka henni til
þegar nefhjólið sökk í sandinn.
Við það bognaði skrúfan. Þurfti
að fá viðgerðarmenn úr
Reykjavík og var unnið að við-
gerð í gærkvöld.
MARTIN Geijer veitti leikurum tilsögn í Kramhúsinu í gær.
Lindarmálið hjá efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóraembættisins
Jóni Snorrasyni falin
stjórn rannsóknarinnar
í dag
www.mbl.is
8SÍSUR
► VERIÐ í dag fjallar meðal annars um minnkandi
lúðuveiði, fiskistefnu sem haldin var í Bremen og útgerð
trillukarla sem flykkjast vestur á vorin. Þá er rætt við
framkvæmdastjóra UA um reynsluna af rekstri MHF.
4 SÍDUft
VK>
BJOÐUM
UTALEIKS Sliell-
LIGO
4 SÍDUR
Vala ' Fyrsta Eiður
bætti ; þrennaní Smári iék
metið ; sumar með KR
B1 B4 B2