Morgunblaðið - 10.06.1998, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
JRtfgtuifrliifcife
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
BANDAMENN VIÐ
EYSTRASALT
ÞÆR HLÝJU móttökur sem íslenzku forsetahjónin, Ólaf-
ur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir,
og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hafa fengið í opin-
berri heimsókn sinni til Eistlands, bera vott um þau sterku
vinabönd, sem orðið hafa til milli Islands og Eystrasaltsríkj-
anna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litháen. Að sumu leyti
hvíla þau tengsl á gömlum merg, en þakklátastir eru þó íbúar
Eystrasaltsríkjanna fyrir stuðning íslands við sjálfstæðis-
baráttu ríkjanna í byrjun þessa áratugar og það hvernig ís-
land hefur síðan talað máli Eystrasaltslandanna á alþjóða-
vettvangi og hvatt til aðildar þeirra að Atlantshafsbandalag-
inu og að Evrópusamstarfinu.
Vegna þessarar góðu vináttu á milli ríkjanna er vel viðeig-
andi að forsetahjónin fari í opinbera heimsókn til Eystra-
saltsríkjanna næst á eftir hefðbundnum heimsóknum nýs
þjóðhöfðingja til Norðurlandanna. En óneitanlega er það til
marks um þær sérkennilegu vendingar, sem orðið geta á
vettvangi stjórnmálanna, að það skuli vera fyrrverandi for-
maður Alþýðubandalagsins, sem forseti Islands, sem innsigl-
ar þessa vináttu með heimsókn sinni. Alþýðubandalagið og
forveri þess Sósíalistaflokkurinn sýndu aldrei minnstu við-
leitni til þess að berjast fyrir sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna í
þá tæpu hálfu öld, sem þau bjuggu við kúgun kommúnism-
ans. Það féll í hlut annarra að halda því merki á lofti í ís-
lenzkum þjóðmálaumræðum.
Forseti íslands og Lennart Meri, forseti Eistlands, ræddu
m.a. á fundi sínum í fyrradag hvaða hlutverki smáríki gætu
gegnt í alþjóðakerfínu. Segja má að þau áhrif, sem málflutn-
ingur íslands í þágu Eystrasaltsríkjanna hefur haft á alþjóð-
legum vettvangi, sé dæmi um að smáríki geti látið til sín taka
þrátt fyrir smæðina.
Þess kann hins vegar að vera skammt að bíða að dæmið
snúist við og ísland leiti til Eystrasaltsríkjanna að tala máli
sínu í alþjóðlegu samstarfi. Öll þrjú eru ríkin væntanleg að-
ildarríki Evrópusambandsins og búast má við að a.m.k. Eist-
land verði gengið í ESB innan fárra ára. Island er í mjög
nánum tengslum við Evrópusambandið vegna samningsins
um Evrópskt efnahagssvæði og á mikið undir því að geta
komið hagsmunum sínum á framfæri við aðildarríki sam-
bandsins.
Eins og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra benti ný-
lega á, er starf ESB stöðugt að breytast og ekki sjálfgefið að
Island fái sjálfkrafa aðgang að nýjum samstarfssviðum. Það
er því mikilvægt að rækta tengslin við ESB-ríkin og ekki síð-
ur ríkin, sem verða í hópi aðildarríkja eftir fáein ár, því að
þau munu hafa sitt að segja um aðgang íslands að Evrópu-
samstarfinu. Telja má víst að Eystrasaltsríkin verði góðir
bandamenn Islands í því samstarfi, og í öðrum alþjóðastofn-
unum, þar sem þau hasla sér nú völl.
STARFSAÐSTAÐA
ALÞINGIS
FRUMKVÆÐI og faglegur undirbúningur lagasetningar
kemur í sívaxandi mæli frá framkvæmdavaldinu. Fram-
kvæmdavaldið og stofnanir þess hafa í mun ríkara mæli en
löggjafarvaldið, Alþingi, á að skipa þeirri sérfræðiþekkingu,
sem oft er nauðsynleg til að leysa flókin viðfangsefni nútím-
ans. Málþing lögmanna og dómara, sem haldið var á dögun-
um í Valhöll á Þingvöllum, var að hluta til helgað undirbún-
ingi lagasetningar hér á landi. Hrafn Bragason hæstaréttar-
dómari sagði á málþinginu að kveikjan að flestum lagafrum-
vörpum kæmi úr ráðuneytum, sem er í samræmi við framan-
sagt. Helgi Bernódusson, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis,
sagði á hinn bóginn að starfsaðstaða þingflokka og þingheims
væri bágborin, sem er alvarlegt íhugunarefni.
Ef Alþingi á að veita framkvæmdavaldinu það aðhald, sem
til er ætlast í stjórnarskrá, og gæta hagsmuna umbjóðenda
sinna með viðunandi hætti, þarf að bæta starfsaðstöðu þess
til muna. Til þess að svo megi verða - og til þess að stefnu-
mótun færist ekki frá löggjafarvaldinu yfir á vettvang sér-
fræðistofnana framkvæmdavaldsins og hagsmunasamtaka -
verður að tryggja þingflokkum og þingmönnum greiðari að-
gang að sjálfstæðri sérfræðiþekkingu á vegum Alþingis
sjálfs. Aðgangur þingsins að sjálfstæðri sérfræðiþekkingu
gerir það betur í stakk búið til að meta með gagnrýnum
hætti tillögur framkvæmdavaldsins, gæta almannahagsmuna
og móta stefnu í þýðingarmeiri málaflokkum samfélagsins.
Alþingi hefur í hendi sér að bæta starfsaðstöðu þingsins að
þessu leyti. Fjárveitingavaldið er í þess höndum en ekki
framkvæmdavaldsins.
Reuters
STARFSMAÐUR hreinsar sætin á nýja þjóðarleikvanginum í Frakklandi, Stade de France, sem verður miðpunktur heimsins í dag, þegar blásið verður til
fyrsta leiks HM ‘98 á milli Skota og heimsmeistara Brasilíumanna.
37 milljarðar manna fylgj-
ast með HM í Frakklandi
Augu heimsins munu beinast að Frakklandi
næstu vikurnar en heimsmeistaramótið
í knattspyrnu, hið sextánda í röðinni, hefst
þar í dag. Orri Páll Ormarsson skoðaði
umgjörð mótsins sem verður einn stærsti
íþróttaviðburður sem haldinn hefur
verið fyrr og síðar.
Á ER komið að því! í frek-
lega fjórar vikur á fjögurra
ára fresti hættir jörðin að
snúast. Drjúgur hluti mann-
kyns ýtir stjórnmálum, viðskiptum
og hinu daglega amstri eins og það
leggur sig til hliðar - lífið hverfíst um
fáeinar afmarkaðar grasflatir.
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu
(HM) fer fram. Ekki hrífast að vísu
allir með og einhver rökvís höfuð eiga
ugglaust eftir að hristast á næstunni
og fárast yfir tilgangsleysinu - 22
fullvaxnir karlmenn að eltast við eina
uppblásna leðurtuðru!
Tvær og hálf milljón manna hafa
komið höndum yfir aðgöngumiða á
leikina 64 í Frakklandi og 37 milljarð-
ar munu horfa á þá í beinni útsend-
ingu í sjónvarpi, að því er spáð er.
Þar af er búist við að 1,7 milljarðar
manna muni horfa á úrslitaleikinn í
París 12. júlí - meira en fjórðungur
mannkyns. Skyldi engan undra að
sala á sjónvarpstækjum hafi aukist
um rúm 10% í löndum á borð við
Frakkland, Þýskaland og Ítalíu síð-
asta kastið, þar sem markaðurinn
hefur lengi verið staður. Aðdráttarafl
knattspyrnunnar er með ólíkindum!
Sú var tíðin að knattspyrna var
bara leikur. Sá dagur hlaut þó að
koma að markaðsöflin héldu innreið
sína á völlinn, slíkt er aðdráttarafl
íþróttarinnar. Aldrei hefur íburður-
inn þó verið meiri en nú. Frakkar
leggja allt í sölurnar, hafa varið ein-
um og hálfum milljarði bandaríkja-
dala í uppbyggingu leikvanga og efl-
ingu samgangna. AJIar aðstæður eiga
að vera eins og best verður á kosið.
Af sem áður var
Þegar Frakkinn Jules Rimet
kynnti hugmyndina um heimsmeist-
aramót í knattspyrnu á ofanverðum
þriðja áratugnum bar hugtök á borð
við „kostun“ og „styrktaraðila" aldrei
á góma, í það minnsta er hvergi að
fínna heimildir um það hvernig Ri-
met hugðist fjármagna herlegheitin.
í dag verja fyrirtæki á borð við Coca-
Cola, Adidas, Opel, Mastercard, Can-
on, Fuji Film, Gillette, JVC, McDon-
alds, Philips og Snickers um 30 millj-
ónum bandaríkjadala til að fá að vera
styrktaraðilar keppninnar.
Jafnvel þótt framkvæmd fyrsta
mótsins, í Úrúgvæ 1930, gengi brös-
uglega, svo ekki sé meira sagt, réð
ólympíuhugsjónin ríkjum - hvers
konar kostun var alfarið hafnað þótt
hún væri óðum að ryðja sér til rúms í
vöggu knattspyrnunnar, Englandi,
og víðar. Kaupskaparandinn átti ekk-
ert erindi á heimsmeistaramótið!
En tímarnir breytast og mennimir
með. Á heimsmeistaramótinu í Sviss
1954 mætti liðið sem átti eftir að
verða heimsmeistari, Vestur-Þýska-
land, til leiks á nýstárlegum skóm
með þremur hvítum röndum. Frekar
munu skórnir þó hafa verið hannaðir
með þægindi leikmanna en markaðs-
hugsjón að leiðarljósi. Merkið átti þó
eftir að festa sig í sessi - Adidas.
Á mótinu í Englandi 1966 kom
lukkudýr HM fyrst fram á sjónar-
sviðið, World Cup Willy. Hafa þau
verið ómissandi þáttur allar götur
síðan og handhafar höfundarréttar
halað inn ófáar milljónirnar.
Það var síðan í Mexíkó 1970 að
auglýsingatekjur alþjóða knatt-
spyrnusambandsins (FIFA) af HM
voru fyrst í frásögur færandi. Alls
tók sambandið inn 1,5 milljónir
bandaríkjadala vegna auglýsinga-
skilta á Azteca-vellinum í Mexíkó-
borg. Að drjúgum hluta urðu þessar
tekjur þó til fyrir tilviljun því skipu-
leggjendur mótsins höfðu ekki haft
rænu á að fjarlægja skilti sem fyiúr
voru á vellinum. Kostunaraðilarnir
höfðu, með öðrum orðum, ekkert
frekar ætlað að auglýsa sig á HM.
Nú til dags er þetta óhugsandi, öllu
auglýsingarými inni á leikvöngunum
er ráðstafað í þágu opinberra styrkt-
araðila keppninnar. Slegist er um
hvern fermetra.
FIFA færir sig upp á skaftið
I Þýskalandi 1974 og í Argentínu
1978 hafði FIFA töluverðar tekjur af
auglýsingum en það var ekki fyrr en
á Spáni 1982 að skrefíð var stigið til
fulls - markaðssetning HM var hafín.
í hópi kostunaraðila voru risafyrir-
tæki á borð við Coca-Cola, Gillette,
Canon, Fuji Film og JVC sem enn
sjá hag sinn í að styrkja HM, eins og
áður er getið.
Á þessum tíma lapti FIFA dauð-
ann úr skel - sjóðir sambandsins
voru tómir. Aukið fjármagn kom sér
því vel fyrir reksturinn, sem óx
stöðugt að umfangi. FIFA samdi við
svissneska markaðsfyrirtækið ISL
eftir HM á Spáni og hefur það annast
alla samninga við kostunaraðila síð-
an. Með þessu kvaðst FIFA á sínum
tíma vera að tryggja afkomu sína og
skapa ISL svigrúm til að hrinda af
stokkunum öflugri kynningarherferð
fyrir sína hönd og HM. Hafa sumir
gagnrýnt þetta íyrirkomulag, vilja að
FIFA semji milliliðalaust við kostun-
araðila líkt og alþjóða ólympíunefnd-
in, en þeirri gagnrýni hefur sam-
bandið jafnan visað á bug og bent á
að FIFA hafí haldist einstaklega vel
á styrktaraðilum vegna HM. FIFA
veltir nú um 70 milljörðum króna á
árí.
I heimi, þar sem hlutir eiga sér í
auknum mæli „stað“ heima í stofu,
hefur sala á sjónvarpsrétti einnig
verið snar þáttur í fjáröflun FIFA, en
sambandið var þegar í byrjun níunda
áratugarins farið að hagnast veru-
lega á sölu sjónvarpsréttar vegna
HM. Þótti reyndar sumum forsvars-
menn sambandsins um tíma full ákaf-
ir í þeim efnum, en Joao Havalange,
ft-áfarandi forseti FIFA, seldi sjón-
varpsréttinn frá HM í Frakklandi
þegar árið 1988 fyrir ,,Iitlar“ 90 millj-
ónir bandaríkjadala. Á tækniöld þyk-
ir ekki slæmt að semja um jafn stór
mál með svo miklum fyrirvara og til
samanburðar má nefna að sjónvarps-
rétturinn vegna HM í Japan/Suður-
Kóreu 2002 var ekki alls fyrir löngu
seldur á ríflega einn milljarð dala.
„Samningurinn gerði okkur kleift
að skipuleggja fram í tímann," sagði
Havalange á sínum tíma, en auðséð
er að FIFA varð af umtalsverðu fé
vegna þessa meinta æðibunugangs.
Aðferðir FIFA við sölu á sjónvarps-
rétti hafa reyndar oftar valdið titr-
ingi. Þannig var rétturinn vegna
keppninnar í Mexíkó 1986 seldur fyr-
irtæki Guillermos heitins Canedos,
þáverandi varaforseta FIFA, fyrir 33
milljónir dala. Hleypti þá margur
brúnum!
Engin takmörk
Tæknin virðist engin takmörk
þekkja. Það þarf því ekki að koma á
óvart að stærsta upplýsingatækni-
verkefni sögunnar í tengslum við ein-
stakan íþróttaviðburð hafi verið
hrundið í framkvæmd í tengslum við
HM í Frakklandi. Fjögur fyrirtæki
annast þessa framkvæmd: Hewlett-
Packard, Sybase, France Teleeom og
EDS. Koma þau að ótal þáttum í
framkvæmd keppninnar, svo sem
miðasölu, öryggiseftirliti, fjölmiðlun í
víðum skilningi, skipulagi leikvanga
og úrvinnslu upplýsinga um lið og
leikmenn. Ekkert má fara úrskeiðis,
enda reiða 12.000 fjölmiðlamenn og
milljónir áhugamanna sig á þjónust-
una, en búist er við um 70 milljón
heimsóknum á dag á vefsíðu mótsins,
www.france98.com.
Fjölmiðlamönnum verður veitt sér-
stök þjónusta, meðal annars verður
þeim gert kleift að skoða einstök at-
vik í hverjum leik strax að honum
loknum. Það verða því ekki aðeins
leikmenn, þjálfarar, stuðningsmenn
og dómarar sem munu svitna í
Frakklandi í sumar, heldur einnig
svejt tæknimanna.
Á þessu stigi málsins á upplýsinga-
tækniverkefnið sér „enga fortíð og
enga framtíð“, eins og einn talsmaður
þess komst að orði. Reynist það aftur
á móti vel má draga þá ályktun að
grunnur sé lagður að framtíðinni -
nýrri öld. Tæknin er orðin órjúfanleg-
ur hluti af knattspymunni eða eins og
Michel Platini, forseti undirbúnings-
nefndar HM í Frakklandi og einn
besti knattspyi’numaður sögunnar,
segir: „Tölvur bæta ekki gæði knatt-
spyrnunnar. Eigi að siður er öflug
upplýsingatækni ómissandi, þar sem
knattspyrnan snýst um viðskipti og
öll markaðssetning veltur á því að
viðurkenndum viðskiptaaðferðum sé
beitt.“
Höfum þau orð í huga þegar við
höldum inn í 21. öldina
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 29 V
Aukafundur allsherjarþings SÞ um baráttu gegn útbreiðslu ffkniefna
Clinton hvetur til
alþjóðlegrar eindrægni
Ríkar og fátækar þjóðir heims skella skuld-
inni hvorar á aðra vegna fíkniefnavandans,
segir fréttaskýrandi Reuters. Saka þær ríku
hinar fátæku um að gera ekkert til að hindra
útflutning fíkniefna, en þær fátæku segja
hinar ríkari ekki lyfta litla fíngri til að draga
úr eftirspurninni.
FJÖLMARGIR þjóðarleiðtog-
ar tóku undir með Bill Clint-
on, forseta Bandaríkjanna,
er hann lagði áherslu á að
jafnvægis yrði gætt í að vinna bug á
útflutningi fíkniefna frá fátækuin
löndum og baráttu gegn neyslu
þeirra í ríkari löndum. Voru þetta
skilaboð forsetans til aukafundar
Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna
sem nú stendur, um baráttuna gegn
ólöglegri framleiðslu, sölu, dreifingu
og neyslu á fíkniefnum.
Fulltnlar 185 ríkja sitja fundinn og
við upphaf hans kastaðist nokkuð í
kekki með Clinton og Ernesto
Zedillo, Mexíkóforseta, en þeim síð-
arnefnda hefur gi'amist að bandarísk
yfirvöld létu til skarar skn'ða á laun
gegn mexíkóskum peningaþvættis-
mönnum að mexíkóskum yfírvöldum
forspurðum. Sagði Zedillo að ekkert
ríki mætti virða lög annars að vettugi
til þess að framfylgja sínum eigin.
Einnig atyrti hann rík lönd fyrir að
gera ekki nægilega mikið til þess að
hefta eftirspurn eftir fíkniefnum.
„Við berum öll ábyi'gð, njótum
sömu réttinda og höfum sömu skyld-
ur; við verðum öll að virða sjálfstæði
hvers ríkis og enginn má setja sig í
dómarasæti yfir öðrum,“ sagði
Zedillo er hann ávaa-paði allsherjar-
þingið. Clinton hvatti til alþjóðlegrar
eindrægni í baráttu við útbreiðslu
fíkniefna, en Bandarfkjamenn hafa
oft setið undir ámæli fyrir að heyja
þá baráttu einir síns liðs og án tillits
til annarra ríkja.
„Ríki sem framleiða fíkniefni og
ríki sem neyta þeirra hafa of lengi
deilt harkalega um það, hvor eigi sök
á vandanum," sagði Clinton. „Ásak-
anir eru bara truflandi. Þær leysa
ekki upp einn einasta eiturlyfjahring,
hjálpa ekki einum einasta fíkniefna-
sjúklingi, koma ekki í veg fyrir einn
einasta glæp, koma ekki í veg fyrir að
böm fíkti við og jafnvel deyi af völd-
um fíkniefna."
„Umtalsverður árangur"
fyrir 2008
Fundurinn mun taka undir tillögur
sem settar hafa verið saman nú þegar
um að ríkisstjórnir leggi sitt að mörk-
um til þess að gerðar verði nýjar eða
endurbættar áætlanir fyrir 2003 um
hvernig draga skuli úr eftirspurn og
berjast gegn peningaþvætti, og „ná
umtalsverðum og mælanlegum ár-
angri“ fyrir 2008, með því að útrýma
ópíumvalmúa og kókaínjurtinni.
Bandarískir embættismenn hafa
hins vegar verið tregir til að lofa
meira fjármagni til áætlana SÞ um
hvernig aðstoða skuli bændur við að
hefja aðra ræktun, og eru Banda-
ríkjamennimir sérstaklega fullir efa-
semda um að veita fé til Talibana-
hreyfíngarinnar í Afganistan og her-
stjórnarinnar í Búrma. Þessi tvö lönd
eru stærstu útflytjendur ópíumval-
múa, sem heróín er unnið úr.
Stjómvöld í Bólivíu hafa gert fímm
ára áætlun um útrýmingu kókaínjurt-
arinnar, og segir forseti landsins,
Hugo Banzer, að hann þurfi að fá
Kólumbía
Fíkniefnaneysla í heiminum
Vandinn teygir sig nú til allra heimshoma
Helstu framleiðendur fíkniefna: É{ ^ •» J|p?
“+ 90% allrar ópíumframleíðslu:
Afganistan
Búrma
i 'í 98% allrar U 1 ^^kíMyanmar)
kókaínframleiðslu:! ,!7 Vi'Pak,%tan %Laos
Éc n ú \ '
BoHvía Heimsneysla vímuefna:
I milljónir neytenda
Heimild:
Sameinuðu þjóðirnar Kannabis Samsett Kókaín Heróín
KRT og Morgunblaðið efni
r
sem svarar 58 milljörðum íslenski-a
króna í aðstoð frá ríkum löndum í
heiminum til þess að hrinda áætlun-
inni í framkvæmd. „Baráttan gegn
fíkniefnum er gífurleg fjárhagsleg
fórn fyrir Bólivíu, og krefst þess að
nauðsynlegum jiróunarverkefnum
verði skotið á frest,“ sagði Banzer.
Áhersla á „heildstæða aðferð“
John Prescott, aðstoðarforsætis-
ráðherra Bretlands, segir að „ékki
dugi að útrýma eftispurninni eftir
fíkniefnum, án þess að takast á við
framboðið“. Sagði Prescott, að í Bret-
landi, líkt og öðrum ríkjum Evrópu-
sambandsins, „hefur okkur lærst að
árangursrík barátta gegn fíkniefnum
hlýtur að beinast að öllum sviðum
samfélagsvandamála, húsnæðis-
vanda, atvinnuleysi, fátækt, glæpum
og fjölskyldulífi. Áðferðin þarf að
vera heildstæð."
Ýmis evrópsk og bandarísk samtök
hafa hvatt til þess að tekin verði upp
frjálslegri stefna hvað varðar sum
fíkniefni, en Jacques Chirac, forseti
Frakklands, lagði áherslu á að hvergi
mætti hvika frá „andstöðu við að lítið
sé gert úr fíkniefnum“. Sagði forset-
inn að nauðsynlegt væri að segja
ungu fólki sannleikann. „Þótt sum lyf
valdi ekki beinlínis líkamlegri fíkn er
engu að síður mikil hætta á sálrænni
fíkn.“
Flestir þeirra sem tóku til máls
lögðu áherslu á að enginn mætti loka
augunum lýrir því að fíkniefni virtu
engin landamæri og að skilin á milli
framleiðenda og neytenda yrðu sífellt
óljósari. Carlos Menem, forseti Ai’-
gentínu, sagði að „sameiginleg
ábyrgð" fæli í sér að vandinn væri
öllum sameiginlegur.
Menem sagði einnig, að það væri
ráðlegt að gera málssóknir gegn
þeim sem stunda fíkniefnasmygl al-
þjóðlegar. Gaf hann í skyn að þetta
gæti orðið einn þeirra glæpa sem
vera myndu innan lögsagnarumdæm-
is alþjóðlegs glæpadómstóls, en
stofnun hans á að ræða á fimm vikna
ráðstefnu sem hefjast mun í Róm síð-
ar í mánuðinum.
Avarp Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra á aukafundi SÞ
Fíkniefnaneysla
ungmenna á Is-
landi verði upprætt
ÞORSTEINN Pálsson, dómsmála-
ráðherra, kynnti í ávarpi sínu á
aukafundi SÞ á mánudag áætlanir
íslenskra stjórnvalda er miða að
fíkniefnalausu íslandi 2002, og
hleypt var af stokkunum í febrúar
í fyrra. „Með stefnu þessari skuld-
binda íslensk stjórnvöld sig til
þess, að uppræta fíkniefnaneyslu
meðal ungs fólks og draga stór-
kostlega úr áfengis- og tó-
baksneyslu þess,“ sagði Þor-
steinn.
Verkefnið ætti að vinnast á
fímm árum, og því yrði staldrað
við árið 2002 og athugað hvernig
til hefði tekist. „Verkefnið Fíkni-
efnalaust ísland er metnaðarfullt,
en þegar um fíkniefni er að ræða
er óhugsandi að setja nokkurt
annað markmið en þetta. Það
verður ekki auðvelt að ná þessu
markmiði og árangur okkar mun
að miklu leyti byggjast á alþjóð-
legri staðfestu í baráttu gegn
fíkniefnavandanum í heiminum.
Að þessu leyti er ekkert ríki í
heiminum einangrað frá öðrum.
Auknar fjárveitingar til
toll- og löggæslu
Markmiðið með Fíkniefnalausu
Islandi er að sameina alla þjóðina
til átaks og ná samkomulagi allra
um að markmiðið skuli vera fíkni-
efnalaust Island.“ Þorsteinn gerði
nánari grein fyrir helstu þáttum
verkefnisins, og nefndi meðal ann-
ars að reglulega væru gerðar
kannanir á fíkniefnaneyslu, sér-
staklega á meðal ungmenna. Þá
hefðu fjárveitingar til bæði toll- og
löggæslu verið auknar til þess að
styrkja varnir gegn ólöglegum
innflutningi.
Samstarf væri haft við foreldra-
samtök í því augnamiði að vekja
athylgi foreldra á þeim hættum
sem stöfuðu af fíkniefnaneyslu, og
hversu miklu skipti að foreldrar
verðu tíma með börnum sínum.
Þorsteinn sagði ennfremur að
athyglinni væri sérstaklega beint
að unglingum sem hefðu orðið
háðir fíkniefnum. „Ymislegt hefur
komið í ljós, sem bendir til þess að
iwuiers
ÞORSTEINN Pálsson, dómsmálaráðherra, ávarpar aukafund allsheijar-
þings Sameinuðu þjóðanna um fíkniefnavandann í heiminum.
sú meðferð sem við bjóðum tán-
ingum nú skili takmörkuðum
árangri. Því erum við nú að huga
að öðrum aðferðum sem miðist
meira við langtímamarkmið en
þær aðferðir sem nú er beitt."
Fíkniefnavandinn verður aðeins
leystur með alþjóðlegri samvinnu
og samhæfðum aðgerðum í hverju
ríki fyrir sig, sagði Þorsteinn.
Kvað liann Sameinuðu þjóðirnar
gegna lykilhlutverki í að hvetja al-
þjóðasamfélagið til dáða í þeirri
baráttu.
Það væri ákaflega hvetjandi að
sjá, að markmið þau, er íslensk
stjórnvöld hafi sett sér, séu að
miklu leyti í samræmi við þær að-
gerðir gegn fíkniefnavandanum
sem hvatt væri til í drögum að
ályktunum þessa aukaallsherjar-
þings.