Morgunblaðið - 10.06.1998, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 35*
HELSTA sam-
keppni fiskmarkaða á
íslandi er bein við-
skipti enda fara aðeins
30% bolfisks um fisk-
markaði. Kvótabrask
fiskvinnslunnar jók
samkeppnismuninn og
fiskmarkaðir reyndu
þá að jafna samkeppn-
isstöðuna með þvi að
taka þátt. Fyrir þá
| sem ekki vita þá fer
kvótabraskið þannig
1 fram að fiskvinnsla
leigir til sín kvóta og
fær óskyldan bát til að
veiða hann. Fyrir
þetta greiðir fisk-
vinnslan verð sem er fundið út
þannig að kvótinn er dreginn frá
markaðsverði á fiskmörkuðum (í
dag: 130-85= 45). Virðisaukinn er
_ notaður til að leigja kvótann. Ekki
er markmið fiskvinnslunnar að
græða á viðskiptunum með kvót-
| ann, heldur að fá meiri fisk til
* vinnslu, selja meiri afurðir og
græða á því.
Meðan fiskmarkaðir buðu ekki
upp á slík viðskipti fóru bátarnir
nauðugir viljugir úr viðskiptum og
í kvótabrask með fiskvinnslunum.
Forsvarsmenn fiskmarkaða sáu að
þetta var alvarleg og varanleg
samkeppni sem varð að bregðast
við og tóku þátt í kvótabraskinu,
einnig nauðugir viljugir. Mark-
| miðið var það sama og hjá fisk-
vinnslunni, að græða ekki á kvóta-
viðskiptunum sjálfum, heldur um-
sýslunni með þorskinn og meðafl-
ann.
Á Reiknistofu fiskmarkaða hf.
(RSF) var ákveðið að gera þetta
eins og fiskvinnslan, nema í stað
þess að verka fiskinn þá var hann
seldur strax á fiskmarkaði og þar
fékk sú fiskvinnsla fiskinn sem
2 best borgaði. Leigður var kvóti,
I bátur fenginn til að veiða hann
gegn ákveðnu gjaldi og hann síðan
seldur á markaði. Allt eins, nema
hvað kaupendur RSF
verkuðu fiskinn.
Lögð var áhersla á
að allt yrði uppi á
borðinu. Þess vegna
voru kunnáttumenn í
bókhaldi beðnir um
álit, og gaf bókhaldið
rétta mynd af því sem
við gerðum, að þeirra
áliti.
Samt er svo komið
að ég ásamt félögum
mínum hjá RSF hef
verið dæmdur fvrir
bókhaldsbrot (ekki
kvótasvindl eins og
fram kom í fjölmiðl-
um) vegna viðskipta
með kvóta. Megin niðurstaða
dómsins er fengin út frá því að
RSF hafi, að áliti dómsins, aldrei
átt kvótann heldur verið að fjár-
Þrátt fyrir að við RSF
félagar höfum verið
dæmdir til hárra fé-
Jóhannsson, þá heldur
kvótabraskið áfram.
magna kaup á kvóta fyrir bátinn.
Ákæran gegn okkur RSF félögum
var í þrem köflum: 1) að bókfæra
kvótann ekki rétt. 2) gáfum út
rangan reikning. 3) áttum aðild að
fjársvikum sem áttu sér stað við
undanskot á kvóta (kvótabrask).
Við RSF félagar vorum dæmdir
fyrir 1) og 2). Eg skil það þannig að
við (sem erum fiskvinnslan í þessu
máli) erum ekki dæmdir fyrir
kvótabrask. Kvótabraskið heldur
áfram hjá fiskvinnslunum, þrátt
fyrir þennan dóm, en við hættum.
Hver er glæpur okkar RSF fé-
laga? Eg ætla að taka dæmi úr
annars konar atvinnurekstri.
Kaupmaður rekur litla fataversl-
un og verslar m.a. með gallabuxur.
Honum reynist erfitt að fá galla-
buxur vegna þess að þessir stóru
kaupa alla framleiðsluna hjá
saumastofunum. Hann missir við-
skipti einnig vegna þess að sala á
öðrum fatnaði minnkar þar sem
viðskiptavinum fækkar þegar
gallabuxurnar vantar. Hann ákveð-
ur að flytja inn efni og fær sauma-
stofu til að sauma fyrir sig galla-
buxur úr því. Hann greiðir sauma-
stofunni kr. 1.500 fyrir að sauma
hverjar buxur, og selur buxumar á
kr. 7.000 sem er að hluta kostnaður
fyrir efnið og að hlua eðlileg álagn-
ing hans þar ofan á. Markmiðið er
ekki að græða á innflutningi efnis-
ins heldur sölu buxnanna og að fá
fólk inn í búðina aftur.
I þessu dæmi er efnið eins og
kvótinn í máli okkar RSF félaga,
sem erum í hlutverki kaupmanns-
ins, saumastofan er báturinn, og
viðskiptavinir kaupmannsins eru
eins og kaupendur á fiskmarkaði.
Meðferð í bókhaldi er sú sama:
Kaupmaðurinn gjaldfærir kaupin
á efninu, borgar saumastofunni
skv. reikningi og selur viðskipta-
vinunum og gefur honum reikning
(kassakvittun) fyrir greiðslunni.
Enginn hefur neitt við þetta að at-
huga.
Nú segir einhver: þetta er allt
annað en hjá ykkur RSF mönnum
því þetta hefur ekki áhrif á kaup
fólksins á saumastofunni eins og
gerir í tilfelli sjómannsins í kvóta-
braskinu.
Þar skilur á milli. Við vorum
dæmdir vegna áhrifa á kaup sjó-
mannanna. Hvað með kaupmann-
inn? Verður hann ekki að ganga
sjálfur í buxunum, líkt og fisk-
vinnslan verkar fiskinn sjálf? Hvað
ef samningur fólksins í saumastof-
unni er tengdur hlutfalli af veltu?
Er það eitthvað sem kaupmaður-
inn þarf að hafa áhyggjur af? Að
sjálfsögðu ekki. Það gilda sömu
reglur áfram þó saumastofan
semji við þriðja aðila. Það sem ger-
ir mál okkar RSF manna erfitt er
að um viðskipti með kvóta er að
ræða þó kvótabraskið sé fiskmörk-
uðum ekki þóknanlegt. Umræðan
um kvótann og kvótabraskið í
þjóðfélaginu er orðin svo þrungin
tilfinningu að orðið boðar illt. Þeg-
ar á það er minnst sér fólk ljótu
karlana sem græða svo mikið á að
selja og leigja kvóta. Þeir nota
sameign allrar þjóðarinnar til að
maka krókinn. Viðskiptamenn
þeirra eru litnir hornauga og þá
skal hengja. Svona er al-
mannarómur og ekki lýgur hann.
Eg hélt að dómstólar væru hafnir
yfii' tilfinningasemi og þeim mætti
treysta hvað svo sem á dynur í
þjóðfélaginu og hver umræðan er.
Af lyktum þessa máls hefur sú af-
staða mín breyst.
Þegar ákæran var gefin út í
byrjun mars var séð svo um að allir
fjölmiðlar fengju ákæruna á faxi.
Nú ætluðu stjómvöld að stöðva
kvótabraskið. Það gi-átlega við
þetta allt er að þrátt fyrir að við
RSF félagar höfum verið dæmdir
til hárra fésekta þá heldur kvóta-
braskið áfram. Nú loksins hefur
okkur verið sagt að við vorum ekki
að kaupa kvótann fyrir okkur held-
ur einhvem annan (vissum ekki
hvem, þar til við fengum einhvem
til að veiða hann fyrir okkur).
Héraðsdómur Reykjaness hefur
nú búið til lög um að RSF megi
ekki leigja kvóta til sín og fá bát til
að veiða hann gegn gjaldi. En
þetta gildir ekki um fiskvinnslur,
eða hvað? Vandamálið er að af
þessum 18.000 tonnum sem leigð
vom til Suðumesja á síðasta ári
vomm við aðeins með 3-4%. Áfram
heldur kvótabraskið með hin 96-
97% en að sjálfsögðu neðanjarðar
svo enginn fái ofbirtu í augun.
Þrýst hefur verið á löggjafarvaldið
að taka á kvótabraski en það hefur
ekki þorað. Þrýst hefur verið á.
framkvæmdavaldið að beita lög-
um, sem það loksins gerir í máli
okkar RSF félaga. Þar er vandan-
um ýtt til dómsvaldsins og það hef-
ur nú sett lögin um hvemig fara
skal með kvóta í bókhaldi, sem að
öðm leyti er ekki til. Heitir þetta
ekki að hænan komi á undan egg-
inu?
Iliifundur er framkvæmdastjórí
Fiskmarkaðs Suðumesja hf. og
stjórnarmaður i RSF.
__________AÐSENPAR GREINAR
Kvótabrask eða
bókhaldsbrot
Ólafur Þór
Jóhannsson
---------------——-p----------
sekta, segir Olafur Þór
Enn um Hvamm
í Morgunblaðinu,
J þann 3. júní s. 1., fæ ég
undirritaður kveðju
frá konu sem heitir
Selma Júlíusdóttir og
titlar sig „ilmolíusér-
fræðing“ og „barna-
bókahöfund“. Ég
þekki þessa konu ekki
neitt og man ekki eftir
'J að hafa heyrt hennar
getið. Hún aftur á
® móti virðist þekkja
1 nokkuð til mín ef mið-
að er við þær lýsingar
sem hún gefur af mér.
Orðbragðið sem hún
notar um mig ætla ég
auðvitað ekki að
dæma. Það gera lesendur og sá
fjölmenni hópur af fólki, sem hefur
kynnst mér á langri lífsleið. Það
9 setti að liggja nokkuð ljóst fyrir les-
endum Morgunblaðsins, hvaðan
• Selma Júlíusdóttir hefur upplýs-
ingar um mig.
Þann 28. maí s.l. ritaði ég grein
hér í blaðið, sem ég kallaði „Saga
úr sveitinni“. Grein Selmu á að
heita svar við henni. Af henni leiðir
að ég kemst ekki hjá að gera grein
fyrir viðskiptum mínum við þuríði
og Gunnar í Hvammi II. En það
verður að bíða betri tíma.
Hins vegar tel ég alveg nauðsyn-
legt vegna þeirra sem lesa greinina
en þekkja ekki til málavaxta að
koma strax á framfæri leiðrétting-
t
um, vegna rakalausrar
ósvífni og blekkinga,
sem þar eru bomar á
borð.
1. Greinarhöfundur
segir: „Hallgrímur
Guðjónsson var
dæmdur sekur en ekki
Þuríður og Gunnar.“
Þarna var ekki um
sakamál að ræða. En
það er kannski til of
mikils mælst að Selma
Júlíusdóttir skilji
hvaða munur er á
sakamáli og skaða-
bótamáli. Aftur á móti
er það greinilegt að
hún finnur hvöt hjá
sér til þess að koma því á fram-
færi við lesendur skrifa sinna að
ég sé dæmdur sakamaður. Þessi
málaferli gegn mér voru með mjög
óvenjulegum hætti, svo ekki sé
meira sagt. Þau gerðu ótrúlega
margar dómkröfur á hendur mér
um hin ólíklegustu efni. En það er
skemmst frá að segja að ég var
sýknaður af öllum dómkröfum
þeirra í Héraðsdómi. En í Hæsta-
rétti var ein krafa tekin til greina,
sem var vegna steypuskemmda á
haughúsi.
Það er sannleikurinn í málinu,
hvort sem „ilmolíusérfræðingnum"
líkar betur eða verr.
2.1 öðru lagi vil ég benda á eftir-
farandi í grein Selmu Júlíusdóttir:
„í Hvammi II hafa komið upp ljót
mál þar sem dýrum þeirra hjóna
hefur verið misþyrmt. Ekki hefur
verið hægt að upplýsa hver hefur
gert þetta. Þegar svo rætin grein
kemur í svo virt blað er spurt:
Hvað liggur á bak við þessa gjörn-
inga?
Vonum við öll að Hallgrímur
Guðjónsson láti þessa fjölskyldu í
friði.“ Við hjónin vorum stödd
norður í Húnavatnssýslu þegar
mér barst í hendur Morgunblaðið
3. júní s.l. með þessum furðulegu
tilvitnuðu ummælum eftir Selmu
Júlíusdóttir, á blaðsíðu 45. Ég hafði
strax samband við sýslumanns-
embættið á Blönduósi. Eftir
nokkra athugun þar kom í ljós að
lögreglan hefur tvisvar verið kvödd
í útkall að Hvammi II. í annað
skiptið til þess að athuga orsakir
þess að hestur, sem var á húsi,
hengdist. Það var í janúar s.l. í hitt
skiptið var líka um hross að ræða,
sem voru á húsi og höfðu þau af
einhverjum ástæðum hlotið áverka.
En þá kvaddi lögreglan héraðs-
dýralækni á vettvang. Hrossin
voni skaflajárnuð með langan
taum og náðu þar af leiðandi hvort
til annars. Það var samdóma álit
lögreglu og dýralæknis að hér
hefði verið um slys að ræða í bæði
skiptin, en ekki verknað af manna-
völdum.
Þessar upplýsingar voru mér
veittar munnlega og góðfúslega af
Ég tel nauðsynlegt,
segir Hallgrímur Guð-
jónsson, að koma á
framfæri leiðréttingum
vegna rakalausrar
ósvífni og blekkinga
sem bornar eru á borð í
grein Selmu.
fulltrúa við embættið á Blönduósi
(sýslumaðurinn var ekki viðstadd-
ur). Selma Júlíusdóttir hefur látið
leiðast út í að saka ótilgreinda aðila
um slík ódæðisverk að til eindæma
má telja. Orð hennar verða ekki
skilin á annan veg en að það sé ég
sem hef staðið á bak við þessi voða-
verk.
Hvað sem mér líður þá verður
mér hugsað til fólksins heima í
Vatnsdalnum og annarra, sem
ómaklega liggja undir grun.
Ég geri þá kröfu til Selmu Júlí-
usdóttir að hún taki orð sín aftur
og biðjist afsökunar og að það
verði birt á áberandi stað í Morg-
unblaðinu.
Höfundur er fv. bóndi og hrepp-
stjóri í Hvammi.
Hallgrímur
Guðjónsson
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Opið hús í Þönglabakkanum
á meðan HM stendur yfir
Sumarbrids 1998 og getrauna-*”
deildin hafa í samráði við Bridssam-
band íslands ákveðið að hafa opið
hús á meðan heimsmeistarakeppnin
í knattspyrnu stendur yfir. Allir
bridsáhugamenn sem og aðrir eru
hvattir til að koma og fylgjast með
beinum útsendingum RUV. Von-
andi skapast góð stemmning og get-
raunadeildin verður opin allan tím-
ann. Hver veit nema það verði
bryddað uppá skemmtilegum nýj-
ungum við að kanna getspeki
manna.
Sunnudagskvöldið 7. júní lauk
þriðju spilaviku sumarsins. Alls
mættu 22 pör til leiks og þá varð
staða efstu para þessi (meðalskor
216):
NS
Gylfi Baldurss. - Sigurður B. Þorsteinss. 265
Hrólfur Hjaltason - Friðjón Þórhallsson 249
Friðrik Jónsson - VOhjálmur Sigurðsson jr. 243
GuðniIngvarsson-SigurðurSiguqónsson 239
AV
ísak Öm Sigurósson - Aron Þorfinnsson 245
Jón Stefánsson - Amar Geir Hinriksson 238
JónV. Jónmundsson - Þorsteinn Joensen 234
Dúa Ólafsdóttir - Cecil Haraldsson 234
Lokastaða þriðju vikunnar
varð þessi:
Gylfi Baldursson 85
ísak Öm Sigurðsson 61
Steinberg Ríkarðsson 39
Jón Steinar Ingólfsson 38
AmarGeirHinriksson 37
Jón Stefánsson 37
Heildarstaðan í bronsstigum
er nú þessi:
Jón Steinar Ingólfsson 122
Friðjón Þórhallsson 120
Anton R. Gunnarsson 118
Jón Stefánsson 98
VilhjálmurSigurðssonjr. 94
Hermann Friðriksson 88
Gylfi Baldursson 8^-*-
Þorsteinn Joensen 82
Þórir Leifsson 82
Guðlaugur Sveinsson 77
Spilað er öll kvöld nema laugar-
dagskvöld og hefst spilamennskan
alltaf kl. 19:00. Spilastaður er að
venju Þönglabakki 1 í Mjódd, hús-
næði Bridgesambands íslands. Allir
eru hvattir til að mæta, hjálpað er
til við að mynda pör úr stökum spil-
urum.
Austfirðingar efstir
í alheimstvímenningnum
Góð þátttaka var í alheimství-
menningnum í Reykjavík. Á fóstu-
dag spiluðu 54 pör í tveim riðlum og
14 pör mættu til leiks á laugardeg- ~
inum.
Hæsta skor föstudag:
Július Snorrason - Guðlaugur Sveinsson 62,21%
SigfúsÞórðarson-GunnarÞórðarson 61,54%
Eyþór Hauksson - Heigi Samúelsson 61,42%
ErlaSigurjónsdóttir-GuðniIngvarsson 60,96%
Meryl Morgan - John Morgan 60,04%
Hæsta skor laugardag:
Óh Bjöm Gunnars. - Sturla Snæbjöms. 59,38%
Ásgeir Gunnarsson - Einar Oddsson 58,42%
GunnarÓmarsson-EinarL.Pétursson 55,67%
Á Egilsstöðum var einnig góð
mæting. Hæstu skor þar fengu for-
seti BSÍ Kristján Kristjánsson og
Ásgeir Metúsalemsson 62,91%, sem
jafnframt var hæsta skor yfir land-
ið. Næstir komu:
Gauti Halldórsson - Stefán Guðmundsson 61ý5%: *“
Pálmi Kristmanns - Guttormur Kristmanns 58,91%
Hjörtur Unnars. - Jón Hahd. Guðmunds. 57,79%
Víðförlir
bridsspilarar
íslenzkir bridsspilarar fara víða
og oftar en ekki eru þeir í röð efstu
þátttakenda. Um síðustu helgi spil-
uðu tveir spilarar frá Bridsfélagi
Hreyfils í sterku móti sem konung-
legi snekkjuklúbburinn á Mallorca
hélt í tilefni 50 ára afmælis. Þetta
voru þeir félagar Óskar Sigurðsson
og Sigurður Steingrímsson en þeir’'*
lentu í þriðja sæti í mótinu af 30
pörum.
Að sögn Óskars höfðu þeir félag-
ar verið að spila tvisvar í klúbbum á
svæðinu og hafi þeim verið boðið í
mótið. Þama voru margir sterkir
spilarar en við höfðum meðbyr og
þriðja sætið var okkar, sagði Öskar
í örstuttu spjalli.