Morgunblaðið - 12.06.1998, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998
LANDIÐ
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Silli
FRÁ undirritun samninga milli Eastport og Húsavíkur.
Y inabæj asamstarf
Eastport og Húsavíkur
Húsavík - í framhaldi af heimsókn
hafnarstjóra Eastport og nokkurra
frammámanna í Maine í Bandaríkj-
unum í marsmánuði sl. kom um síð-
ustu helgi 17 manna hópur til Is-
lands og dvaldi einn dag á Húsavík
þar sem stofnuð var formlega vina-
bæjarsamband milli Húsavíkur og
Eastport.
Upphaf samskiptanna við Maine
var stofnun trjávinnslufyrirtækisins
Aldins hf. á Húsavík sem flytur inn
óunninn trjávið, sagar hann hér og
þurrkar við mun ódýrari orku en yf-
irleitt fæst.
Markmið vinabæjarsamskiptanna
er að aðstoða sveitarfélögin til að
öðlast betri skilning á menningu
ólíkra heima. Með samkomulaginu
eru bæjarfélögin að staðfesta vilja
sinn til að skapa íbúum, atvinnulíf-
inu og stjórnsýslunni gnmdvöll til
að kanna þá möguleika sem felast í
alþjóðlegri fjölbreytni á sviði menn-
ingar, stjórnsýslu og tengslum á
sviði viðskipta og félagsmála. Sam-
bandið á milli Húsavíkur og East-
port á m.a. að beina athygli að eftir-
farandi:
„Þróun á samstarfi milli mennta-
kerfa bæjanna. Með því að koma
þessu samskiptaformi á munu bæ-
irnir bjóða bömum upp á það tæki-
færi að sjá út fyrir landsteinana og
þýðingu þess að þekkja mismun á
milli menningarsvæða.
Með því að læra meira um stjórn-
kerfi hvors annars gætu þátttak-
endur verið færir um að koma
breytilegum aðferðum í þeim til-
gangi að straumlínulaga stjórnkerfi
bæjanna.
Með skiptum á tækni sem gæti
verið notuð til þess að örva efna-
hagsþróun innan bæjanna.
Með því að sterkari bönd milli
bæjanna gæti opnað viðskipta-
möguleika milli einhverra okkar
fyrirtækja."
Bæjarstjórar og forsetar bæjar-
stjórna viðkomandi bæja undirrit-
uðu samninga þessu til staðfesting-
ar við hátíðlega athöfn á Hótel
Húsavík.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
|Uyp vm
' m +j i2
• t -f a Itú l
b 1 4 14 - ► > 1» jjTl fm 8? p 1
, m w & ■ ■ LS > ... s w Lx . sí ÍÆæBEssss fSSSBBmWr
Tilboð
Nýja Sikileyjarpizzan með 2 áleggjum
og 2 gtösum af Pepsi í sal
0 heimsendingu: 2 Iftra Peps0.
Gimileg pizza með miklu hvMauksbragði
og Oregano.
kr. 1400,-
Ef þú kaupir og sækir miðstærð af pizzu
og brauðstangir, þá fylgir ókeypis Margaríta pizza.
Nýiar brauðstangir
PiIjfr
flut
Nú bjóðum við brauðstangir
með osti og kryddi.
Lfb'U skammtur (6) kr. 290
Stór skammtur (12) kr. 490
533 2000
Hötel Esja
KR
heimsækir
Hveragerði
Hveragerði - Körfuknattleiksdeild
Hamars í Hveragerði bauð nýlega
börnum úr körfuknattleiksdeild KR
til sín í æfingabúðir. Dvöldu KR-
krakkarnir í Hveragerði yfir helgi
og æfðu körfubolta með jafnöldrum
sínum frá morgni til kvöíds. Eirnúg
fóru krakkamir saman í sund og
Hótel Örk bauð þeim í bfó.
Þótti heimsóknin takast með
miklum ágætum og voru forráða-
menn deildanna ánægðir með þau
kynni sem þama tókust. Vom þeir
sammála um að láta verða framhald
á samskiptum þessara félaga. Á
myndinni má sjá allan hópinn ásamt
forvígismönnum körfuknattleiks-
deilda KR og Hamars.
Norskur sjóður
eykst í 16 millj-
arða dala
Stokkhóhni. Morgnnblaðið.
SÉRSTAKUR hráolíusjóður
norsku stjórnarinnar, sem notar
tekjuafgang af olíuauðnum úr Norð-
ursjó til fjárfestinga, hefur aukizt
um 6,3% í 120,5 milljarða norskra
króna á fyrstu þremur mánuðum
þessa árs síðan farið var að fjár-
festa í alþjóðlegum hlutabréfum í
fyrsta skipti, að sögn norska lands-
bankans, Norges Bank.
Bankinn sagði að markaðsvirði
verðbréfanna hefði aukizt um 7,2
milljarða norskra króna og spáði því
að verðmæti þeirra gæti aukizt í 670
milljarða norskra króna fyrir árslok
2002.
Um leið staðfesti bankinn að
norska stjórnin hefði eignazt hlut í
um 2.000 alþjóðlegum fyrirtækjum
með tilstyrk hráolíusjóðsins, sem
hefur breytt 40% verðbréfa sinna úr
skuldabréfum í hlutabréf á þessu
ári.
Bankinn gerði sér grein fyrir því
að ef horft væri til 20-30 ára hefði
hann ekki efni á að treysta ein-
göngu á skuldabréf og að Ijóst væri
að hagkvæmasta lausnin væri sam-
bland hlutabréfa og skuldabréfa,
sagði Knut Kjær, forstöðumaður
fjárfestingararms Norges Bank.
Þessi þróun hófst þegar norska
stjómin ákvað í fyrra að breyta allt
að helmingi sjóðsins úr erlendum
ríkisskuldabréfum í alþjóðleg hluta-
bréf. Þessi stefna hefur borið þann
árangur að sjóðurinn er í fremstu
röð á sínu sviði í heiminum.
Varzla hlutabréfanna var falin
Chase Manhattan í Bandaríkjunum.
Einnig hefur verið notið aðstoðar
Stata Street Global Advisors í
Bandaríkjunum og Barclays Global
Advisors auk Bankers Trust í New
York og Barclays Gartmore Invest-
ment Management í London.
Um 140 sjóðstjórar hafa sótt um
hlut í nýjum umboðum sjóðsins á 21
hlutabréfamarkaði, 14 í Evrópu og í
New York, Tókýó, Hong Kong,
Singapore, Toronto, Sydney og
Auckland, Nýja-Sjálandi.
Starf sjóðstjóranna verður að
auka sem mest hagnað norska
sjóðsins, sem upphaflega var komið
á fót til að tryggja fjárráð norsku
stjórnarinnar þegar olíutekjur
Norðmanna þrytu. Sjóðstjórarnir
hafa svigrúm til að velja hlutabréf
til þess að fjárfesta í, en verða að
hlíta ströngum reglum sem norska
stjórnin setur.
Sjóðstjórunum verður ekki leyft
að fjárfesta í þróunarlöndum og
þeir mega ekki eiga meira en 1% í
hverju fyrirtæki. „Þeir verða að
vera viðbúnir því að þeir þurfi að
hafa meira samband við okkur en
venjulega viðskiptavini," sagði
Kjær.
Atvinniivegasýning á fsafírði
Saga rafeinda-
vogarinnar kynnt
GESTUM á Tindi, atvinnuvega-
sýningu Vestfjarða sem haldin
verður á Isafirði um helgina, gefst
kostur á að sjá í bási Póls hf. sögu-
og þróunarferli íslensku rafeinda-
vogarinnar frá upphafi til dagsins í
dag.
Fyrsta íslenska rafeindavogin
leit dagsins ljós í júní 1978 eða fyr-
ir 20 árum. Þessi íyrsta vog Póls
var innviktunarvog sem sett var
upp í Hraðfrystihúsinu Norður-
tanganum hf. „Þar með fór boltinn
að rúlla og markviss þróun og
hönnun á rafeindavogum með þarf-
ir fiskvinnslunnar sérstaklega í
huga var kmnin á fulla ferð. Fisk-
vinnslan á Islandi sem hefur verið
sókndjörf í innleiðingu á tækninýj-
ungum og gerir miklar kröfur til
búnaðar hefur verið ákjósanlegt
þróunarumhverfi,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Póls hf.
Fljótlega í kjölfarið kom Póls
með fyrstu íslensku pökkunarvog-
ina íyrir frystihús. Umhverfið
krafðist stöðugt nýjunga sem leiddu
til nýrra þróunarverkefna. Sem
dæmi er nefnt í fréttatilkynningu að
Póls var fyrst með flokkara, tíma-
skráningarkerfí tengd við tölvu-
stimpilklukku og skipavogir. Seldar
hafa verið 3.000 skipavogir, um 90%
til útlanda. „Þetta frumherjastarf
Póls hefur lagt grunninn að öflug-
um íslenskum hátækniiðnaði sem
skapað hefur milljarða króna í út-
flutningsverðmætum. Póls getur
því litið stolt um öxl á þá þróun sem
það hefur leitt í tvo áratugi.“
Fyrirlestur um árang-
ur smáfyrirtækja
DR. Hermann Simon, fram-
kvæmdastjóri Simon-Kucher &
Partners ráðgjafarfyrirtækisins í
Bonn og Cambridge, heldur erindi
á hádegisverðarfundi Þýska-ís-
lenska verslunarráðsins í dag.
Fundurinn verður í Víkingasal
Hótels Loftleiða og stendur frá 12
til 13.30.
Hermann Simon er þekktur ráð-
gjafi í Þýskalandi og hefur raunar
verði ráðgjafi fyrirtækja í yfir 27
löndum, meðal annars margra
þekktra fyrirtækja auk þess sem
hann hefur skrifað bækur og grein-
ar um fyrirtækjarekstur.
Fyrirlestur Simon hér byggir á
bók hans Hidden Champions sem
fjallar um 500 lítt þekkt þýsk fyrir-
tæki og rannsókn hans á velgengni
þeirra. Þau vöktu athygli hans eftir
að honum varð ljóst að smærri fyr-
irtæki, aðallega fjölskyldufyrir-
tæki, standa undir stærstum hluta
þeirrar söluaukningar sem orðið
hefur á þýskum vörum erlendis
undangengin ár. Til að fyrirtækin
kæmust í úttekt Simons þurftu þau
að vera númer eitt eða tvö á heims-
markaði í sinni grein, númer eitt í
Evrópu og nógu lítil til að vera al-
menningi óþekkt.
I fréttatilkynningu frá Þýsk-ís-
lenska verslunaráðinu segir að nið-
urstöður Simon séu í senn mikil-
vægar og að þær nýtist öllum þeim
sem áhuga hafa á rekstri fyrir-
tækja. Spurt er: Hvað geta stjórn-
endur íslenskra fyrirtækja lært af
reynslu Þjoðverja? Hver er lykill-
inn að velgengni þeirra?
Fyrirlesturinn fer fra á ensku.
Aðgangseyrir er 3.000 kr. og er há-
degisverður innifalinn.