Morgunblaðið - 12.06.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 23
Tólf fórust
í Alsír
AÐ MINNSTA kosti tólf fór-
ust þegar sprengja sprakk um
borð í lest suðvestur af Al-
geirsborg, höfuðborg Alsír, í
gær. Dagblöð í Alsír sögðu fyrr
um morguninn að íslamskir
uppreisnarmenn hefðu skotið
sjö meðlimi alsírska stjórnar-
hersins í umsátrum víðs vegar
um landið. Vargöld ríkir í Alsír
og er talið að 60.000 manns
hafi fallið í átökum síðan 1992.
Baktería
gegn svörtum
STJÓRNVÖLD í S-Afríku
höfðu uppi hugmyndir um það
á tímum aðskilnaðarstefnunn-
ar að þróa og dreifa bakteríu
sem aðeins myndi gera út af
við svarta menn, eða gera þá
ófrjóa. Petta kom fram í vitnis-
burði vísindamanns sem stýrði
eiturverksmiðju stjórnvalda
fyrir sannleiks- og sáttanefnd-
inni sem sett var upp til að
takast á við drauga fortíðarinn-
ar.
Videla
ákærður
DÓMARI á Spáni sagðist í
gær vera með í undirbúningi
ákæru á hendur Jorge Videla,
fyrrverandi forsætisráðherra
Argentínu, sem handtekinn
var í fyrradag í heimalandi
sínu og ákærður fyrir mannrán
á tímum „óhreina stríðsins"
sem ríkti í landinu á tímum
herforingjastjórnarinnar 1976-
1983. Spánski dómarinn vill
með sinni ákæru kanna hversu
mikla ábyrgð Videla bar á
dauðsföllum spánskra ríkis-
borgara í Argentínu á þessum
tíma.
f ImáL Á ", ^ l ■—ilTf ' '
550 fórust
á Indlandi
TALA látinna vegna hvirfil-
bylsins á Indlandi er nú komin
upp í 550 en Haren Pandya,
innanríkisráðherra, sagði í gær
að hið versta væri yfirstaðið
þótt reiknað sé með því að tala
látinna eigi enn eftir að hækka.
Herþyrlur dreifðu í gær mat-
vælum til íbúa á einangruðum
svæðum ríkisins Gujarat, þar
sem hvirfílbylurinn gerði mest-
an usla.
Bretar vilja
svínum vel
JOHN Reid, ráðherra hermála
í bresku ríkisstjórninni, til-
kynnti í gær að Bretar væra
hættir þátttöku í æfíngum
NATO sem kallaðar hafa verið
„danskt beikon“ en þær fela í
sér að svín eru aflífuð og
hjúkrunaríólk fær síðan tæki-
færi til að æfa skyndiskurðað-
gerðir líkt og á vígvellinum
væri.
Mótmæli
prófsteinn
á Abubakar
Lagos. Reuters.
ABDUSALAM Abubakar, sem tók
við embætti forseta Nígeríu fyrr í
vikunni, fór í gær fram á það við
stjórnarandstæðinga að þeir aflýstu
mótmælum sem fyrirhuguð eru í
höfuðborginni Lagos í dag. Óvissa
ríkir í stjórnmálum landsins eftir að
ljóst varð að Abubakar hygðist
fylgja lýðræðisáætlun Sanis
Abacha, fyrrum forseta, sem lést á
mánudag, en hún hefur hlotið for-
dæmingu bæði stjórnarandstæð-
inga í Nígeríu og erlendra ríkja.
I gær voru skólabörn í Lagos
send í langt helgarleyfi vegna mót-
mælanna. „Við viljum ekki að sak-
lausir námsmenn lendi í eldlínu
átaka þannig að við báðum þá um að
fara heim til sín,“ sagði fulltrúi
menntamála í gær. Yfirvöld lög-
gæslumála hafa krafist þess að mót-
mælunum verði aflýst þannig að
ekki sverfi til stáls. Segjast þau ella
ætla að koma í veg fyrir mótmælin,
„fólk á ekki að komast upp með
ólögleg mótmæli," sagði talsmaður
lögreglunnar.
Farið fram á lausn Abiolas
Mótmælin í dag eru haldin í til-
efni þess að fímm ár eru liðin frá
forsetakosningum sem Moshood
Abiola er talinn hafa sigrað. Abacha
ógilti hins vegar kosningarnar og
lokaði Abiola inni í fangelsi þar sem
hann er enn. Þessir atburðir eru
undirrót spennunnar sem ríkir í
stjórnmálum landsins í dag. Stjórn-
arandstæðingar segja Abubakar
sams konar leiðtoga og Abacha og
var tekið fram í yfirlýsingu samtak-
anna Sameinað átak fyrir lýðræði
að mótmælin „marki algera and-
stöðu fólks við áframhaldandi her-
foringjastjórn". Þau fara fram á
lausn Abiolas og að hann taki við
stjórn landsins.
Vestræn ríki voru ósátt við
hversu illa Abacha hélt loforð sín
um lýðræðisþróun í landinu en þau
hafa hins vegar enn sem komið er
látið Abubakar njóta vafans í þessu
efni. Hefur Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
boðist til þess að aðstoða Abubakar
við að koma á lýðræði í landinu.
Varfærni einkenndi fjármála-
markaði í Nígeríu í gær en gjald-
miðill landsins, naíran, styrktist þó
um 2% og virtust aðilar á fjármála-
mörkuðum því ætla að taka orð
Abubakars trúanleg en hann hefur
sagst ætla að hverfa frá völdum eft-
ir kosningar í október.
Barist í Afríkuríkinu
Guinea-Bissau
Brottflutn-
ingur er-
lendra borg-
ara hafinn
Lissabon. Reuters.
ERLENDIR borgarar yfirgáfu Af-
ríkuríkið Guinea-Bissau í hundraða-
tali í gær en barist er um völdin í
landinu og er óttast að átök upp-
reisnarmanna og stjórnarhers nái
brátt hámarki en þau hafa staðið
síðan á sunnudag. Um eitt þúsund
manns söfnuðust saman í höfuð-
borginni Bissau og áttu framundan
20 klukkustunda siglingu til Dakar í
Senegal.
Rólegt var í Bissau í gær en á
miðvikudag fóru fram skotbardagar
nærri höfn borgarinnar og tafði það
flótta fólksins en flestir útlending-
anna í Guinea-Bissau eru portú-
galskir að uppruna, enda landið
fyiTum portúgölsk nýlenda. Flótti
loftleiðis var ekki mögulegur þar
sem bækistöð uppreisnarmanna er í
húsaþyrpingu nærri flugvellinum.
Ekki er vitað hversu margir hafa
fallið í átökunum.
Bæði Sameinuðu þjóðirnar og
Samtök Afríkuríkja hafa fordæmt
uppreisnina sem á rætur sínar að
rekja til þess að Ansumane Mane,
leiðtogi uppreisnarmanna, var rek-
inn úr starfi yfirmanns hermála í
síðustu viku eftir að hafa lýst því
yfir að hann hygðist fella ríkis-
stjórn Joao Bernardo Vieiras. Vi-
eira rændi sjálfur völdum árið 1980
en fékk sig kjörinn forseta árið
1994.
FÉLAO
GARÐPLÖNTU-
FHAMLEIÐENDA
í beð og á svalir 4 o í heimagarða og sumarbústaðalönd