Morgunblaðið - 12.06.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 51
FÓLK í FRÉTTUM
FÖSTUDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Stöð 2 ► 22.55 Einn athyglisverðasti
leikstjóri Bandaríkjanna, John Sayles,
stýrir Leyndarmáli Roan Inish (The
Secret of Roan Inish, ‘94), sem mun
vera komin út fyrir nokkru á mynd-
bandi hérlendis. Hér fæst Ameríku-
maðurinn við íramandi efnivið (næst á
eftir Texasmyndinni góðu, Lone Star),
er kominn á vit keltneskra goðsagna
um missi og sáluhjálp. Aðalsögupersón-
an er litil stúlka sem fær foreldra sína
til að flytjast til lítillar eyju undan ír-
landsströnd, þai' sem forfeður hennar
bjuggu. Það verður horft á hana á þess-
um bæ. Rober Ebert gefur
Sýn ► 21.00 Keisari Norðurpólsins
(Emperor of the Noi-th, ‘73). Sjá um-
fjöllun í ramma.
Sjónvarpið ► 21.15 Brúðkaup El-
inóru (Elinors Bröllup, ‘96), er sænsk
gamanmynd um ungan mann sem ger-
ir allt til þess að bjarga stúlkunni sinni
frá þvi að giftast öðrum manni. Er það
ekki undarlegt? Með Ewu Fröling,
Jonas Malmsjö og Finny Risberg.
Leikstjóri Henry Meyer.
Stöð 2 ► 22.50 Svikahrappur John
Leguizamo fer í fjölda gerva til að
sleppa undan kvölurum sínum, skosk-
um í Plágunni (The Pest, ‘97), sem var
einn af skellum síðasta árs. Leguizamo
er flinkur leikari en hefur ekki enn
fengið hlutverk sér sæmandi. Box
Offiee gefur ★.
Sjónvarpið ► 22.50 Fráskihn síma-
stúlka (Sissy Spacek) reynir að hafa í
sig og bömin á meðan á heimsstyrjöld-
inni síðari stendur í Bjargvættinum -
(Raggedy Man, (‘81). Málin taka betri
stefnu þegr titilpersónan (Erie Ro-
berts) kemur til sögunnar. Falleg og
persónuleg mynd um mannlegar til-
finningai', með Spacek í einu af sínum
betri hlutverkum og undir handleiðslu
eiginmannsins, Jack Fisk, sem lítið hef-
ur sést til síðan. ★★★
Sýn ► 23.40 Man einhver hvort hann
hefur séð mynd sem heitir Handan
óttans (Beyond Fear, ‘94)? Bætir úr
skák að hún fjallar um meistara í aust-
urlenskum barsmíðaíþróttum sem ger-
ist leiðsögumaður sem lendir í útistöð-
um við óþjóðalýð? Varla.
Stöð 2 ► 0.20 Einkaspæjarinn (Devil
in Blue Dress, ‘95), er fyrsta myndin
sem Carl Franklin gerir fyrir stóru
kvikmyndaverin, sú fyrsta sem hann
gerir fyrir einhverja peninga og með
frægum stjörnum, og fyrsta myndin
sem hann gerir eftir spennutrylhnn
góða, One Galse Move. Mynd í „film
noir“ geiranum, um einkaspæjara í
snúnum málum. Fullsnúnum en um-
gjörðin og leikararnir flottir. Franklin
gerir betur næst. Með Denzel Was-
hington. ★★'/>
Stöð 2 ► 2.00 Sjaldan er góð visa of oft
kveðin; enn gefst fólki kostur á að sjá
öndvegismynd meistara Johns Huston,
Svipul sæmd (Fat City, ‘72) ★★★1/z
Sæbjörn Valdimarsson
/r
9{(Zturfla(mn
Smiðjuveffi 14, %$pavogi, sími 587 6080
í kvöld og laugardagskvöld leikur
Galabandið ásamt Önnu Vilhjálms
Sjáumst hress!
J
Kreppu-
slagur um
keisara-
dæmi
Sýn ► 21.00 Keisari Norður-
pólsins (Emperor of the North)
fjallar ekki um hefðbundið keis-
aradæmi, landvinninga né nokk-
uð í þá veru og öll rómantík er
eins fjarri og hugsast getur.
Þetta er mynd um karlmennsku,
heiður og stolt og Norðurpóllinn
er ekki þessi efst á landakortinu
heldur járnbraut sadistans og
brautarvarðarins Ernest
Borgnines. Hann beitir öllum
brögðum og ómældu ofbeldi til
að frýja lestina sína flækingum
kreppuáranna, sem eru í al-
gleymingi. Borgnine á þó í erfið-
leikum með að sjá við gamla
klækjarefnum ,A Nr. l.“, (Lee
Marvin), sem orðinn er lifandi
goðsögn meðal brautarstarfs-
manna og flækinga. Ungur
kjaftaskur (Keith Carradine)
reynir að svipta hann titlinum í
skondinni hliðarsögu. Myndin
snýst uppí lokaeinvígi milli þess-
ara gömlu, ódrepandi harðjaxla,
Borgnines og Marvins, sem báð-
ir lifa sig inní rullurnar og gæða
þær þeirra eftirminnilega,
ósveigjanlega persónuleika. Og
höfum hugfast að báðir voru
þeir afbragðsleikarar og hér eru
þeir í essinu sínu. Dæmigerð
mynd frá Robert Aldrich, sem
aldrei átti daufan dag. Þetta er
stórkostleg mynd fyrir alla unn-
endur átakamynda með ósvikn-
um hörkutólum.
PCIlímogfúguefni
[Sfp1^:::
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
simi 567 4844
4