Morgunblaðið - 12.06.1998, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998________________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Æði misjöfn viðbrögð við samkomulagi Dana og Færeyinga
Danskir fjölmiðlar harð-
orðir en Færeyingar fagna
SAMNINGUR danskra og fær-
eyskra stjórnvalda fær harða útreið
í dönskum fjölmiðlum og hjá stjóm-
arandstæðingum en í Færeyjum
hefur honum verið fagnað mjög. I
leiðumm danskra blaða er ýjað
mjög sterklega að því að stjómin
hafi keypt stuðning Færeyinga við
umdeildar efnahagsaðgerðir, svo-
kallaðan „hvítasunnupakka", dým
verði. Þá hefur Framfaraflokkurinn
krafist þess að samningurinn verði
tekinn fyrir á þingi og aðrir stjóm-
arandstöðuflokkar segja óvíst að
þeir styðji það. I Færeyjum vöktu
fréttirnar hins vegar gleði og
nokkra undrun, þar sem fáir bjugg-
ust við svo góðum samningi og það
svo fljótt. A meðal þeirra sem lýst
hafa yfir ánægju með hann er Sig-
urd Poulsen, bankastjóri færeyska
landsbankans, sem segir samning-
inn betri en búast hefði mátt við og
að hann muni hafa jákvæð áhrif á
efnahagslíf eyjanna.
Leiðarahöfundur Ekstra Bladet
segir dönsku stjómina hafa fært
Færeyingum um 2,2 milljarða dkr.,
um 22 milljarða ísl. kr., á silfurfati
og „keypt sér dýran frið við Færey-
inga til að ná völdum í þinginu“.
Pakistan-
ar bjóða
Indverjum
til við-
ræðna
Islamabad. Reuters.
STJÓRNVÖLD í Pakistan til-
kynntu í gær að þau hygðust
stöðva allar tilraunir með
kjamavopn og hvöttu þau
Indverja til að gera slíkt hið
sama. Sagði í yfirlýsingu
stjómvalda að Pakistanar
hefðu engan áhuga á vígbún-
aðarkapphlaupi við Indverja
og að þeir vildu leggja sitt af
mörkum til að draga úr
spennu í Suður-Asíu.
Tilkynningin kom nokkuð á
óvart því Gohar Ayub Khan,
utanríkisráðherra, hafði látið
þau orð falla stuttu áður að
deila Indveija og Pakistana
um Kasmír-héraðið gæti
„hvenær sem er“ valdið kjam-
orkustríði.
Samhliða tilkynningu um
stöðvun kjarnavopnatilrauna
buðu Pakistanar Indveijum
til friðarviðræðna um framtíð
Kasmír en Indland ræður 2/3
hlutum svæðisins og berst
hart gegn íslömskum aðskiln-
aðarsinnum sem sameinast
vilja Pakistan.
Indveijar tómlátir
Indverjar létu sér í gær
hins vegar fátt finnast um yf-
irlýsingar Pakistana, sögðust
nú þegar hafa stöðvað kjam-
orkutilraunir sínar. Lýstu
þeir einnig yfir mótmælum
sínum við þá tillögu Pakistana
að þriðji aðili miðli málum í
samskiptum landanna, sögð-
ust vilja eiga beinar viðræður
við stjómvöld í Islamabad.
Fréttaskýrendur sögðu að
tilkynning Pakistana benti til
þess að vestræn ríki, sem hafa
áhyggjur af þróun mála í S-
Asíu, myndu leggja sitt að
mörkum til að hefta frekara
vígbúnaðarkapphlaup.
Telur leiðarahöfundurinn að samn-
ingur Dana og Færeyinga svari til
þess að hver íbúi eyjanna fái sem
svarar 45.000 dkr., tæpa hálfa millj-
ón ísl. kr., í aðstoð frá dönskum
skattgreiðendum. „Upphæðin er
hryllileg og það er aðeins hægt að
skýra með því að stjórnin vilji fá
Færeyingana tvo á þingi til að
skipta sér ekki af hvítasunnupakk-
anum.“
Stuðningur Breck-
manns ótryggur?
í Jyllands-Posten segir að fær-
eysku samningamennimir hafi
samið vel og nýtt sér þau spil sem
þeir höfðu á hendi; sérstaklega til-
boð um stuðning Óla Breckmanns,
sem situr á danska þinginu fyrir
færeysku borgaraflokkana. í frétt
blaðsins er hins vegar fullyrt að því
fari fjarri að stuðningur hans við
önnur frumvörp stjómarinnar en
það sem kennt er við hvítasunnu sé
tryggur. Hann hafi tekið skýrt fram
að um þetta tiltekna frumvarp væri
að ræða, auk þess sem hann sé
þekktur fyrir baráttu sína gegn
vinstrimönnum, sem styðja stjóm
jafnaðarmanna.
ÚKRAÍNSKIR námamenn lemja í
hjálma siha framan við þinghúsið
í Kiev. Þeir komu þangað hund-
ruðum saman í gær eftir að hafa
gengið frá borginni Pavlohrad,
BT segir í leiðara að samningur-
inn innihaldi „kaup og sölu atkvæða,
flótta undan ábyrgð og skort á
hreinu mjöli í pokahominu“ og
Berlingske Tidende segir það
áhyggjuefni hve mjög samningur-
inn lykti af atkvæðakaupum. Þessi
illi granur styrkist við það er hver
Færeyingurinn á fætur öðram hrósi
samningnum í hástert. Politiken er
hins vegar jákvæðara og í leiðara er
því fagnað að Færeyingar hafi náð
samkomulagi um greiðslu skulda,
sem þeir eigi möguleika á að standa
við. Því verði tap danska ríkissjóðs-
ins varla meira vegna samningsins
en það hefði orðið ella.
Efasemdir Færey-
inga fyrir bí?
Þegar virðist hafa dregið úr tor-
tryggni og andúð Færeyinga í garð
Danmerkur í kjölfar samningsins.
Ivan Nicklasen, fréttastjóri fær-
eyska útvarpsins, segir engan hafa
vænst svo góðrar niðurstöðu úr
samningnum þar sem stjómmála-
samskipti landanna hafi ekki verið
góð undanfarin ár. Telur Nicklasen
sýnt að efasemdir Færeyinga um
heilindi Dana muni nú hverfa eins
um 600 km leið. Krefjast þeir
þess, að fá greidd laun sem þeir
eiga inni og að hætt verði að
flytja inn ódýr kol frá Rússlandi
og Póllandi.
og dögg fýrir sólu, ekki síst vegna
þess að Danir hætti afskiptum af
fjölmörgum málefnum er varða
Færeyjar, svo sem Fjármögnunar-
sjóðnum.
Landsbankastjórinn segir samn-
inginn styrkja færeyskan efnahag
en Anfinn Kallsberg, lögmaður
Færeyja, segir landsmenn ekki
eiga að búast við því að neyslan
aukist, þrátt fýrir að efnahagurinn
batni.
í leiðara Sósiahirin segir að ekki
leiki nokkur vafi á ágæti samnings-
ins, sem tryggi bættan efnahag á
Færeyjum á næstu áram. I
Dimmalættingu, sem styður Sam-
bandsflokkinn, en hann er fylgjandi
óbreyttu ríkjasambandi við Dani,
er hins vegar lýst efasemdum með
að samkomulagið skapi grandvöll
fyrir sjálfstæðu færeysku ríki. Þá
minnir leiðarahöfundur á að Danir
spari sér umtalsvert fé með samn-
ingnum, þar sem þeir hætti afskipt-
um af fjárfrekum stofnunum. For-
maður Sambandsflokksins, Ed-
mund Joensen, fyrrverandi lögmað-
ur, er hins vegar hæstánægður með
samninginn, sem hann segir eftir
sínu höfði.
Bonn. Reuters.
YFIR fjörutíu tilraunir hafa verið
gerðar til að vinna skemmdarverk á
jámbrautarlestum í Þýskalandi á
þessu ári og fór hraðskreið lest,
ekki ósvipuð þeirri sem fórst rnn
miðja síðustu viku við bæinn Es-
hede í Norður-Þýskalandi, næstum
út af sporanum í mars þegar
skemmdarverkamenn settu sem-
entshrauka í veg hennar.
Þetta kemur fram í leyniskýrsl-
um úr innanríkisráðuneytinu þýska
en dagblaðið Bild sagði í gær að
ekki væri vitað hverjir stæðu að
skemmdarverkunum. Jafnframt
sagði blaðið að vísbendingar gæfu
fremur til kynna að skemmdarverk-
in væru af pólitískum toga en að
þau hefðu verið unnin af óprúttnum
pörapiltum.
Reiði í
Jerúsalem
REIÐIR Palestínumeim kasta
gijóti að bflum gyðinga í Jer-
úsalem í gær, er þar fór fram
útför Abdallahs Anwars, 26 ára
Palestínumanns, sem stunginn
var til bana af ísraelskum sam-
starfsmanni sínum á Vestur-
bakkanum í fyrradag.
Lögregla telur að mönnunum
hafí sinnast og komið til átaka.
Ekki er talið lfldegt að missætti
þeirra hafí verið af pólitískum
toga.
Viðræður um framfylgd
mannúðarlaga
Palestínskir og ísraelskir
fulltrúar luku í gær í Genf
þriggja daga viðræðum er mið-
uðu að því að bæta framfylgd
mannúðarlaga á svæðum sem
ísraelar hafa hertekið. I sam-
eiginlegri yfirlýsingu sem gefin
var út að fundinum loknum
sagði að alþjóðlegir sérfræðing-
ar skyldu koma saman til fund-
ar í haust.
Haft var eftir sfjómarerind-
rekum að Israelar hefðu fallist
á að slíkur fúndur sérfræðinga
yrði haldinn, en ekki viljað fund
sfjórnmálamanna um efnið.
Hvorki hefur gengið né rekið í
friðarumleitunum milli Israela
og Palestínumanna síðan í mars
á síðasta ári, og sljórnmála-
tengls milli þeirra eru stirð.
Eitt helsta þrætueplið er
framtíð Jerúsalem.
Níutíu og átta manns fórast í
slysinu í síðustu viku og er það
versta lestarslys í Evrópu frá því
1974. Fulltrúar þýsku jámbraut-
anna sögðu í síðustu viku að orsök
slyssins gæti veri brotið hjól og var
í kjölfarið ákveðið að innkalla allar
samskonar lestir til frekari rann-
sókna.
Skemmdarverkin sem unnin voru
í mars gerðu það að verkum að lest-
in tók að hristast mjög án þess þó
að fara út af sporanum og tókst að
koma henni til næstu jámbrautar-
stöðvar. Skemmdarverkamennirnir
hafa einnig fleygt jámkrókum yfir
rafmagnskapla ofan við jámbraut-
arspor og sett trjáboli, steina og
sand yfir teinana.
Reuters
Krefjast launanna
Reuters
Skemmdarverk unnin á þýskum lestum
Markmiðið
talið pólitískt