Morgunblaðið - 12.06.1998, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 12.06.1998, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Reiðskólinn Hrauni Grímsnesi Reiðnámskeið fyrir 10 til 15 ára Allt um hesta og hestamennsku. Dvalið er í viku á heimavist. Hestbak alla daga, kvöldvaka, sund, borðtennis, ratleikur, þrautreið og margt fleiral!! Upplýsingar og bókanir í sa 897 1992 486 4444 og 567 1631. Reiðskólinn Hrauni þar sem hestamennskan hefst! t. Dilbert daglega á Netinu BURSTAMOTTUR Urvalið er hjá okkur $§k Jýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001 IBESTAI KVIKMYNDIR/Sambíóin hafa tekið til sýninga myndina For Richer or Poorer með Tim Allen og Kirstie Alley í aðalhlutverkum. Uppar í afskekktri sveit FÓLK í FRÉTTUM BRAD situr fundi með hinum Amish-köllunum. BRAD og Caroline Saxton flytja út í sveit og þykjast tilheyra Amish-samfélaginu. TIM Allen leikur Brad Saxton, milljónamæring sem lendir upp á kant við skattinn. BRAD (Tim Allen) og Caro- line Sexton (Kirstie Alley) eru vellauðug. Brad hefur auðgast á vafasömum fasteigna- og jarðaviðskiptum og Caroline er eiginkona hans. Þau hafa verið gift í 10 ár og eru búin að fá nóg hvort af öðru og virðast ekki eiga neitt eftir annað en að skilja. Aður en þau geta hins vegar komið því í verk að ganga frá skilnaði komast þau í vandræði. Endurskoðandi Brads stelur af honum fímm millj- ónum dollara og lætur líta út fyrir að um skattsvik sé að ræða og stingur af úr landi. Þetta leiðir til þess að skattalögreglan fer að elt- ast við Brad, sem leggur á flótta í stolnum leigubíl. Einhvern veginn slysast Caroline upp í bílinn á götuhorni og þar með eru þau hjónin saman á flótta undan yfir- völdum og þurfa að láta fara lítið fyrir sér. Brad kann bíómyndina Witness utanað og þess vegna ákveður hann að gera eins og söguhetjan í þeirri mynd og fela sig í Pennsyl- vaníu hjá Amish-fólkinu sem hafn- ar allri nútímatækni, gengur alltaf svartklætt, ferðast um á hestvögn- um og lifir í samræmi við bókstaf Biblíunnar. Brad og Caroline þykj- ast þess vegna vera glataði Amish- sonurinn og frá, fjarskyldir ætt- ingjar Yoder fjölskyldunnar í bæn- um Intercourse. Myndin For Richer or Poorer er rómantísk gamanmynd með tveim- ur sjónvarpsstjömum í aðalhlut- verkum og sagan spinnst eftir kunnuglegum slóðum þar sem sagt er frá borgarbörnunum sem eru eins og þorskar á þurru landi í sveitinni og lenda þar í því að sinna kúnum, temja hesta og sauma út. Eins og fyrr sagði eru aðalleik- endumir tvær þekktar sjónvarps- stjörnur. Tim Allen leikur í Hand- lögnum heimilisföður, sem verið hefur einn vinsælasti sjónvai-ps- þátturinn vestanhafs mörg undan- farin ár. Allen hóf feril sinn sem gamanleikari í uppistandi áður en hann komst á samning við ABC- sjónvarpsstöðina sem hefur sent út þáttinn um heimilisföðurinn und- anfarin ár. For Richer or Poorer er þriðja kvikmyndin sem hann leikur í. Aður hefur hann leikið í The Santa Clause og Jungle 2 Jungle. The Santa Clause varð mest sótta myndin í Bandaríkjunum sömu vikuna og Handlaginn heimilisfaðir var vinsælasta sjónvarpsefnið og mest selda bókin þá viku var einnig eftir Tim Allen; ævisaga hans sem heitir Don’t Stand Too Close to a Naked Man og vísar titillinn til hegðunarreglu sem Tim Allen lærði þegar hann sat í fangelsi og afplánaði hálfs árs fangelsisdóm fyrir kókaínmisferli. Kirstie Alley er aðalleikkonan í sjónvarpsþáttunum Veronica’s Closet, sem nú eru sýndir í Sjón- varpinu. Hún lék áður í hinum vin- sælu þáttum Staupasteini. Hún er þekkt úr kvikmyndum á borð við Look Who’s Talking og Look Who’s Talking Too. Leikstjóri myndarinnar er Bi-yan Spicer. Þetta er þriðja mynd hans; hinar fyrri hétu Mighty Morphin Power Rangers og McHale’s Navy. Sumarsólstöðuhátíð undir Jökli Magnað fímm daga sumarsólstöðuævintýri undir Jökli frá 17.-21. júní eða helgina 19.-21. júní. Sólarserimóníur, jarðarheilun, hugleiðslur, seiðvinna að hætti víkinganna, bátsferð með hvalaskoðun og veiðum, fuglaskoðun, grasaferð og fræðsla um notkun íslenskra jurta, heim- sóknir í hella og orkulínur, orkustaðir skoðaðir, ferð upp á Snæfellsjökul á miðnætti 20. jiíní. Komið endilega með trommur, hringlur eða önnur ásláttarhljóðfæri. Gisting, fæði og allt framan- talið innifalið. Verð kr. íyrir 5 daga 29.900, verð fyrir helgi kr. 12.000 + aukagreiðsla fyrir jöklaferð í báðar ferðir. SNÆFELLSÁS SAMFÉLAGŒ) - BREKKUBÆ - 355 SNÆFELLSBÆ. Sími 4356754 fax 4356801 netfangleidar@akiietj3

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.