Morgunblaðið - 23.06.1998, Blaðsíða 1
124 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
138. TBL. 86. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þýskalandskanslari fordæmir ofbeldi á HM og krefst skjótra aðgerða
Óróaseggir
verði sak-
sóttir strax
Bonn, París. Reuters.
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, sagði í gær að framferði
þýskra óeirðaseggja á Heimsmeist-
aramótinu í Frakklandi, sem börðu
franskan lögreglumann til óbóta á
sunnudag, væri „þjóðarskömm" og
krafðist þess að þeir yrðu leiddir
fyrir rétt sem allra fyrst.
Alþjóðaknattspyrnusambandið
(FIFA) efndi til skyndifundar í gær
vegna atburðarins og buðust þar
fulltrúar þýska knattspymusam-
bandsins til að draga þýska liðið úr
heimsmeistaramótinu. Því boði var
hins vegar hafnað, að sögn Sepp
Blatters, forseta FIFA, og sagði
hann fundarmenn hafa verið sam-
mála um að láta ofbeldi ekki spilla
heimsmeistaramótinu.
Nýnasistar að verki?
Eftir leik Þjóðverja og Júgóslava
í Lens á sunnudag, sem lauk með
jafntefli, blossuðu upp átök og fékk
þar 44 ára franskur lögreglumaður
slæm höfuðmeiðsl eftir að hafa ver-
ið barinn í höfuðið. Liggur hann enn
þungt haldinn á sjúkrahúsi. 27 ára
Þjóðverji var handtekinn vegna
verknaðarins og var mjög drukkinn.
Alls fengu 15 að dúsa í fangaklefa
yfir nóttina.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, sagði að ofbeldið væri óviðun-
andi og Lionel Jospin forsætisráð-
herra lýsti óeirðaseggjunum sem
heiglum.
Fulltrúar þýskra knattspyrnu-
yfirvalda kváðust í gær hafa haft
vitneskju um hóp manna, sem
tengjast samtökum nýnasista, er
hugðust leggja leið sína á heims-
meistaramótið. Sögðust þeir hafa
gert frönskum ráðamönnum grein
fyrir því að búast mætti við ólátum
af hálfu þessara manna. Reyndar er
ekki fullljóst hvort nýnasistar hafi
staðið fyrir ofbeldinu á sunnudag en
blaðamenn sem voru á vettvangi
segja óeirðaseggina hafa hrópað
vígorð öfgahægrisinna.
Óspektir meðal
Englendinga
í vikunni sem leið kom til óeirða í
Marseille þegar Englendingar og
Túnismenn áttust við. Franska lög-
reglan var því með mikinn viðbúnað
í borginni Toulouse í gær vegna
leiks Englands og Rúmeníu. Eng-
Reuters
TUGÞUSUNDIR Rúmena söfnuðust saman i' miðborg Búkarest í gær-
kvöldi til að fagna sigri Rúmena á Englendingum á HM.
lendingar töpuðu 1:2 og óeirðir gærkvöldi. Um 10.000 Englending-
blossuðu upp meðal enskra knatt- ar voru í borginni, þar af um helm-
spymuáhugamanna eftir leikinn í ingurinn án miða á leikinn.
Ekki horfa
af nýju
brúnni yfír
Stórabelti
ÓVÆNT vandamál hefur skotið
upp kollinum í tengslum við
nýju brúna yfir Stórabelti í
Danmörku. Um helgina varð
lögreglan að bjarga manni af
miðri brúnni sem gat ekki ekið
lengra vegna lofthræðslu, að þvi
er segir í Jyllandsposten.
Maðurinn, sem er um fertugt,
var á leið frá Sjálandi til Fjóns,
og komst klakklaust yfir eystri
brúna. En er hann ók inn á
vestari brúna og leit rúmlega
250 metra háa stólpana, sem
halda brúargólfinu í 72 metra
hæð yfir sjó, fylltist hann ofsa-
hræðslu.
Ók maðurinn inn á neyðar-
akreinina á brúnni og hringdi til
að óska eftir aðstoð. Skömmu
síðar kom dráttarbíll honum til
hjálpar, dró bílinn til baka til
Sjálands en bílstjórinn loft-
hræddi sat í aftursætinu og hélt
fyrir augun. Er komið var aftur
á fast land strengdi hann þess
heit í votta viðurvist að reyna
aldrei aftur að aka yfir Stóra-
beltisbrúna, heldur myndi hann
taka á sig krók og fara með
ferju yfir Kattegat.
Að sögn dönsku lögreglunnar
er þetta í annað sinn sem öku-
maður heíúr lent í vandræðum
vegna lofthræðslu. Árið 1971
varð að aðstoða þýskan öku-
mann á brúnni yfir Litlabelti
þar sem hann var sannfærður
um að brúin myndi gefa sig þá
og þegar.
Til varnar
skjaldbökum
í Mexíkó
GRÆNFRIÐUNGAR efndu til
mótmæla í Mexíkó í gær til að
krefjast þess að hætt verði við
áform um að reisa 450 her-
bergja hótel á strönd við
Karíbahafið. Umhverfisvernd-
arsinnamir segja að fram-
kvæmdirnar stefni sjaldgæfri
skjaldbökutegund í hættu.
Grænfriðungar saka stjórnvöld
í Mexíkó um að hafa ekki gert
nóg til að vemda vistkerfið við
Karíbahafsströndina, meðal
annars næstlengsta rif heims.
vemo$
Reuters
66 manns látnir af völdum
ofneyslu heróíns í Osló
ÓVENJU mörg dauðsfóll hafa orð-
ið af völdum eiturlyfjaneyslu í Ósló
það sem af er þessu ári. Hafa 66
manns í borginni látist af of stórum
skammti, þar af tveir nú um helg-
ina. Helsta ástæða þessa er talin
vera óvenju ódýrt og hreint heróín.
Óslóarlögreglan segir í Aften-
posten að síðastliðin 5-6 ár hafi
verið svo auðvelt að verða sér úti
um heróín, að nær hver sem er geti
nálgast það. Sé mun auðveldara að
ná sér í heróínskammt en kann-
abisefni og fólk sem áður hafi hald-
ið sig við áfengi freistist til að
prófa heróínið. Segir talsmaður
samtaka er aðstoða eiturlyfjaneyt-
endur, að margir þeirra sem fund-
ist hafa látnir af of stórum
skammti hafi ekki verið á skrá
vegna eiturlyfjaneyslu. Er talið að
einhverjir þeirra hafi verið að
prófa heróin í fyrsta sinn en einnig
sé í einhverjum tilvikum um að
ræða fólk sem hafi „fallið" eftir að
hafa verið laust úr viðjum neysl-
unnar um nokkurn tíma.
Eiturlyfjavandinn í Ósló er ekki
nýr af nálinni, þótt dauðsföllin hafi
aldrei verið fleiri en nú. Arið 1996
létust 104 af of stórum eiturlyfja-
skammti og á sama tíma árs höfðu
fimmtíu manns látist. Að sögn lög-
reglu fjölgar dauðsföllunum á
sumrin eftir því sem fleiri sækja
borgina heim.
NATQ íhugar íhlutun í Kosovo
Gæti hafíst með
stuttum fyrirvara
Vín, Moskvu. Reuters.
HATTSETTUR embættismaður
hjá Atlantshafsbandalaginu (NATO)
sagði í gær að bandalagið gæti hafið
hernaðaríhlutun í Kosovo með nokk-
urra daga fyrirvara en bætti við að
bandalagið vildi komast hjá því að
heyja allsherjarstríð í héraðinu.
Embættismaður í Vín, sem vildi
ekki láta nafns síns getið, sagði að
til greina kæmi að gera loftárásir í
því skyni að binda enda á aðgerðir
serbneskra öi-yggissveita gegn alb-
önskum uppreisnarmönnum í
Kosovo. Hins vegar væri ekki gert
ráð fyrir því sem stendur að her-
sveitir yrðu sendur í héraðið.
„Það er spuming um nokkra daga
eftir að pólitisk ákvörðun hefur ver-
ið tekin,“ svaraði embættismaðurinn
þegar hann var spurður hvenær
bandalagið gæti hafið íhlutunina.
Javier Solana, framkvæmdastjóri
NATO, sagði að þjóðir heims þyrftu
að hafa hraðan á ef þær vildu leysa
Kósovo-deiluna með friðsamlegum
hætti. „Tíminn er að renna út,“
sagði hann.
Elizabeth Rehn, sendimaður
Sameinuðu þjóðanna í Bosníu, sagði
að hernaðaríhlutun væri nauðsynleg
til að afstýra því að átökin færðust í
aukana og yrðu jafn mannskæð og í
stríðinu í Bosníu. „Við höfum beðið
of lengi.“
Vesturlönd sýni biðlund
Talsmaður rússneska utanríkis-
ráðuneytisins sagði hins vegar að
leiðtogar Vesturlanda þyi-ftu að
vera þolinmóðir og bíða eftir niður-
stöðum viðræðna tveggja aðstoð-
arutanríkisráðherra Rússlands við
ráðamenn í Serbíu og Albaníu sem
hófust á sunnudag. Hann sagði að
rússneska stjórnin væri því andvíg
að tengslahópurinn svokallaði kæmi
saman í London á morgun til að
ræða Kosovo-málið og vildi að fund-
inum yrði frestað um nokkra daga.
Jevgení Prímakov, utanríkisráð-
herra Rússlands, sagði að Vestur-
lönd þyrftu að gefa Slobodan Milos-
evic, forseta Júgóslavíu, meiri tíma
til að hefja friðarviðræður við alb-
anska aðskilnaðarsinna í Kosovo
eins og hann hefur lofað. Hann
bætti við að rússneska stjómin teldi
að krafa Vesturlanda um að allt
serbneska herliðið yrði flutt frá
Kosovo gæti orðið til þess að
serbneski minnihlutinn í héraðinu
flýði þaðan. 150.000 Serbar búa í
Kosovo en um 90% íbúanna eru af
albönskum uppruna.