Morgunblaðið - 23.06.1998, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.06.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 33 peningar. Þeir sem það vilja verða að hafa möguleika á að lifa af eðli- legri dagvinnu. Deildarstjórar hafa ekki verið öfundsverðir á niðurskurðartímum. Það er mikil streita sem fylgir því að axla þunga ábyrgð í rekstri, svo sem mönnun deilda ásamt öðru, án þess að hafa völd eða ráða fjár- magni. Hverjir ætli það séu sem halda utan um hlutina á deildunum og hafa sparnaðinn að leiðarljósi? Saga St. Jósefssystra, sem út var gefín í Reykjavík 1997 er gleggsta dæmið um baráttu við íslensk stjórnvöld. Þó áttu þar hlut að máli konur sem ekki kröfðust launa, en unnu af fómfysi og voru lands- þekktar fyrir spamað, þar til þær loks gáfust upp í baráttunni um rekstur spítalans og neyddust til að selja. Ráðamönnum var í lófa lagið að leysa þessa deilu við hjúkmnar- fræðinga, ellegar framlengja upp- sagnarfrest hjúkmnarfræðinga um þrjá mánuði til að vinna tíma en kusu að gera hvomgt. Gaf þessi ráðstöfun ef til vill möguleika á meiri sumarlokunum en ella? Hvar er virðingin fyrir veiku fólki? Gott heilbrigðiskerfi felst ekki í magni af steinsteypu, né fjölda rúma, sem em svo meira eða minna lokuð til skiptis allan ársins hring. Horfa má á lokun á rúmum á Bamaspít- ala Hringsins og Barnageðdeild- inni á sama tíma og verið er að tala um að byggja nýjan bamaspítala. Gott heilbrigðiskerfi byggir á fjölda fagmenntaðs starfsfólks, sem getur séð sér og sínum far- borða af launum sínum og viðhald- ið menntun sinni sambærilega við aðrar stéttir með hliðstæða mennt- un. Svo einfalt er það. Þetta ætti hjúkmnarfræðingurinn og heil- brigðisráðherrann manna best að vita. 011 viljum við væntanlega borga skatta. En er okkur sama hvort þeir peningar renna í hendur misvitra fjárglæframanna í pen- ingastofnunum, sem tapa hundmð- um milljóna og láta skattgreiðend- ur borga, eða til þess að bæta heil- brigði og afkomu skattgreiðenda? Er ekki tími til kominn að niður- skurðarhnífnum sé beitt í aðrar áttir. Ef fram heldur sem horfir mun fólkið í þessu landi vakna upp við vondan draum ef martröðin er ekki þegar hafin í formi heilbrigð- iskerfis, sem er eitt flakandi sár með útpínt og óánægt starfsfólk. Hér er ég ekki aðeins verið að tala um hjúkmnarfólk og sjúkraliða, heldur ekki síður Sóknarfólk, sem er látið axla allt of mikla ábyrgð vegna skorts á fagmenntuðu fólki. Síðast en ekki síst bitnar ástandið á öllum þegnum þjóðfélagsins, því mér vitanlega er enginn friðhelgur fyrir sjúkdómum. Er það sama að gerast í heilbrigðiskerfinu og í bankakerfinu að það benda allir hver á annan? Þeir sem fá hæstu launin fyrir mesta ábyrgð bera ekki neina ábyrgð þegar á hólminn er komið. Agæti samborgari. Ég veit hvað ég vil en hvað vilt þú? Ég vil gott heilbrigðiskerfi, sem stendur undir nafni, en er ekki bara gott sem „klisja“ í munni ráðamanna á há- tíðastundum, þegar þeir samtímis taka skóflustungur að nýjum bygg- ingum, skála og loka deildum. Höfundur er fyrrverandi hjúkrunarforstjóri. "slim-line' dömubuxur frá gardeur Uáuntu tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 5611680 vöggusett. Slmlssi 4050 fayklwrfh. GLASADAGAR Einstakt tilboð á gullskreyttum glösum KRINGLAN • SÍMI 568 9955 FAXAFEN • SÍMI 568 4020 m Í'.Æ £f| 1 Jfrl I Hvílík mýkt! Fjórir loftpúðar Framtíðarbíllinn Sirion Frumsýndur 25. - 28. júní Tekur þú é á moti gestu m ísumarfríinu? Auð hús eru auðfengið fé í augum innbrotsþjófa! Öryggismiðstöð íslands er starfrækt allan sólarhringinn. Þar fylgast sérþjálfaðir öryggisverðir með boðum frá öryggiskerfum, brunaviðvörunarkerfum, neyðarkallskerfum og öðrum viðvörunarkerfum. Farandgæsla okkar til eftirlits með húsnæði og tækjabúnaði er sérsniðin að óskum hvers viðskiptavinar. Hafðu samband við öryggisráðgjafa okkar. Síminn er533 2400 Ekki spilla sumarleyfínu með óþarfa úhyggjum! símí 533 2400, fax 533 2412 Öryggiskerfi .................. 1 1 Knarrarvogi 2,104 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.