Morgunblaðið - 23.06.1998, Page 62

Morgunblaðið - 23.06.1998, Page 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Byrjaði á fyrstu skáldsögunni á Islandi Jane Smiley fékk Pulitzer-verðlaunin fyrir bókina Þúsund ekrur og nýlega var gerð kvikmynd byggð á skáldsögunni. Smiley bjó hér á landi á námsárum sínum. Birna Anna sló á þráðinn til hennar og spjallaði við hana um ritstörfin og dvölina á Islandi. ~yr vikmyndin I / Þúsund ekrur var nýlega JL ^L-tekin til sýn- ingar í Háskólabíó. Myndin er gerð eftir samnefndri skáldsögu Jane Smiley sem kom út árið 1991 og fékk Pulitz- er-verðlaunin ári síðar. Sagan fjallar um bónda sem er kominn á efri ár og ákveður að eftirláta dætrum sínum þremur býli sitt. Þegar sögunni vindur íram kemur í ljós að ekki er allt slétt og fellt innan fjöldskyld- Jane Smiley unnar og kræðileg leyndarmál koma upp á yfírborðið. Byrjaði að skrifa á íslandi Hvenær varst þú á Islandi? „Það var veturinn 1976 til 1977. Ég varþá íHáskóla íslands á Fulbright- námsstyrk og bjó í litlu herbergi á Nýja Garði." Var þetta áður en þú byrjaðir að skrifa? „í rauninni byrjaði ég að skrifa mína fyrstu skáldsögu á íslandi þannig að dvöl mín þar var mjög þýð- ingarmikil fyrir mig. Ég hafði verið í háskólanámi bæði í fomíslensku og skapandi skrifum og kom til Islands til að gera ritgerð um íslendingasög- umar. En þegar ég kom sat ég tíma í íslensku og þá gerði ég mér grein fyrir því að íslenskan mín yrði aldrei nógu góð til að ég gæti skiifað fræði- lega ritgerð um íslend- ingasögumar svo að í staðinn byrjaði ég að skrifa og skrifaði heO- mikið á meðan ég var á íslandi.“ Undir áhrifum frá Halldóri Laxness Hún segir það hafa verið merkilega reynslu að búa hér á landi og að Islandsdvölin sé ennþá mjög skýr og lifandi fyrir henni. A íslandi kynntist hún verkum Halldórs Laxness sem hún segir hafa haft mjög sterk áhrif á sig. Á forsíðu nýlegrar endurútgáfu ensku þýðingarinnar á Sjálfstæðu fólki er einmitt vitnað í Smiley þar sem hún segir „Ég elska þessa bók. Hún er snilldarverk sem afhjúpar listræna sýn og fæmi - ein af bestu bókum tuttugustu aldarinnar. Ég get ekki ímyndað mér meiri ánægju en að koma að Sjálfstæðu fólki í fyrsta sinn.“ Nú fjallar bók þín Þúsund ekrur um bónda og það gerir Sjálfstætt fólk líka þó að þeir séu nú kannski heldur ólíkir bændur. Hafði bókin einhver áhrif á skrifþín? „Sjálfstætt fólk var mjög mikilvæg bók fyrir mig og hjálpaði mér að skilja hugsunarhátt og hugarfar bóndans. Bjartur í Sumarhúsum er ólíkur bóndanum mínum í Þúsund ekrum en bara af því að hann býr við FÓLK í FRÉTTUM tWY N OW jSlMjsi MICHELLE Pfeiffer fer með stórt hlutverk í myndinni. dreymdi á nóttunni mjög skýrir, skýrari en á nokkrum öðrum stað sem ég hef verið á og ég hef ekki hugmynd um hvers vegna.“ Bók verður að bíómynd JESSICA Lange hefur margsinnis fengið Óskarsverðiaun. frumstæðari aðstæður. Það sem mér fannst þó einna merkilegast við Sjálfstætt fólk er hvernig Laxness tekst að spinna inn í söguna ýmsum undarlegheitum þrátt fyrir að hún sé raunsæ skáldsaga. Dæmi um slíkt er kaflinn um það þegar hreindýrið fór yfir ánna og kaflarnir um drauga- ganginn. Þetta er yndisleg bók, ynd- isleg skrýtin skáldsaga og ég held að það sem hún hafí kennt mér í sam- bandi við skrif er að það er hægt að setja hvað sem er inn í sögu og það getur gengið upp.“ Hefðin og hugarfarið hér á íslandi er líka þannig að það getur þótt full- komlega eðlilegt að yfírnáttúrieg fyrirbæri komi til sögunnar í raun- særri skáldsögu. „Það er rétt og það er svolítið skrýtið að ég man að þegar ég var á Islandi þá voru draumarnir sem mig Hún segist ekkert hafa unnið sjálf við kvikmyndina Þúsund ekrur, handritshöfundurinn skrifaði hand- ritið upp úr bókinni upp á eigin spýt- ur. En er ekkert óþægilegt að láta verk sitt algjörlega í annarra manna hendur og sjá svo bara útkomuna? „Nei, það er bara hluti af pakkan- um. Ég hef ekki áhuga á handrits- gerð eða neinum öðrum listformum, ég er fyrst og fremst skáldsagnahöf- undur. Það er vissulega gaman að sjá persónur sínar lifna við á skján- um, mjög gaman, en það er ekkert sem skiptir mig neinu verulegu máli.“ Ertu ánægð meðkvikmyndina? „Á vissan hátt er ég það, ég held að þau hafi gert eins vel og þau gátu, en að mínu mati getur engin bíó- mynd verið eins áhugaverð og skáld- saga. Ef þér líkar við skáldsögu er það að hluta til vegna þess að hún er skáldsaga og eiginleiki skáldsagna er að þær eru margslungnar á með- an bíómyndir eru einfaldar. Þetta er fín kvikmynd en samt er þetta bara kvikmynd.“ Smiley býr á landareign sinni í Kaliforníu ásamt eiginmanni sínum og þremur bömum þeirra. Hún hef- ur ekki komið til Islands síðan hún var hérna fyrir rúmlega tuttugu ár- um en segist þó gjarnan vilja heim- sækja landið aftur. Þegar hún er spurð að því hvort hún tali íslensku svarar hún án þess að hika „bara lít- ið“, með góðum íslenskum fram- burði. Sólarferðir • Ævintýraferðir Borgarferðir • Málaskólar Frábær fargjöld Ungmenni allra landa: F rðist Interrail kortið er fyrir þá sem vilja ferðast frjálsir og óháðir um Evrópu. Mánaðarkort fyrir yngri en 26 ára: 2 svæði kr. 21.500 3 svæði kr. 24.800 Öli svæði kr. 28.100 V « ferðaskrifstoFa | stúdenta £ Slmi: 561 5656 WWW.fs.ia/stadtravel ...ogferðin erhafin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.