Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998
AKUREYRI
MORGUNB L AÐIÐ
KEA hvetur bændur til meiri mjólkurframleiðslu
Greiðir fullt verð
fyrir umframmjólk
STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga
hefur samþykkt að greiða bændum
á félagssvæði Mjólkursamlags
KEA fullt verð fyrir alla mjólk um-
fram greiðslumark á yfirstandandi
verðlagsári, sem lýkrn- 31. ágúst nk.
Er þetta gert með það að markmiði
að hvetja bændur á svæðinu til
meiri framleiðslu.
Mál þetta var áréttað á samráðs-
fundi Mjólkursamlags KEA og
bænda nýlega. KEA fór þessa
sömu leið á síðasta verðlagsári og
var mjólk umfram greiðslumark þá
102 þúsund lítrar á félagssvæðinu.
Fyrir þetta magn fengu eyfirskir
bændur greitt fullt afurðastöðva-
verð, eða 30,50 krónur iýrir lítrann,
meðan aðrir bændur urðu að sætta
sig við mun lægri upphæð, eins og
segir í fréttatilkynningu frá KEA.
Vantar mjólk í 135 tonn af osti
Afurðastöðvaverð er nú 32,41
króna á lítrann. Stjórn Samtaka af-
urðastöðva í mjólkuriðnaði hefur
beint því til mjólkursamlaga að þau
greiði a.m.k. sem nemur 75% af af-
urðastöðvaverði fyrir umframmjólk
en stjórn KEA hefur ákveðið að
stíga skrefið til fulls.
Hólmgeir Karlsson, fram-
kvæmdastjóri mjólkuriðnaðarsviðs
KEA, segir mjög brýnt að eyfirskir
bændur auki mjólkurframleiðslu
sína og í raun sé of lítil mjólkur-
framleiðsla bæði í Eyjafirði og á
landinu öllu. „Mjólkursamlag KEA
er aðalostabú landsins og til osta-
gerðar þarf mikla mjólk. Við höfum
þurft að ganga mjög á ostabirgðir
okkar og þurfum nauðsynlega að
bæta þar úr. Mér reiknast til að
okkur vanti mjólk í um 135 tonn af
osti, sem samsvarar 1,3 milljónum
lítra af mjólk,“ sagði Hólmgeir og
hann treystir því að eyfirskir
bændur bregðist vel við og fram-
leiði sem mest.
Siðferðilegur stuðningur
Sigurgeir Hreinsson, bóndi á
Hríshóli og formaður Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar, sagði bændur
ekki hafa mikla möguleika á að
auka mjólkurframleiðsluna mikið.
Hins vegar væri mjög jákvætt að
KEA hygðist greiða fullt verð fyi’ir
umframmjólkina og að í þeirri
ákvörðun fælist viss siðferðilegur
stuðningur. „Menn munu þó reyna
að vanda sig og haga beit þannig að
kýmar mjólki meira. Það er þó ekki
hægt að breyta framleiðslunni mik-
ið á nokkrum vikum,“ sagði Sigur-
geir.
Stjórn KEA leggur áherslu á að
bændur á félagssvæðinu búi við
kjör eins og þau gerast best á land-
inu. I því skyni ákvað hún fyrir
nokkru að greiða yfirverð á mjólk
sem lögð var inn í Mjólkursamlag
KEA á síðasta verðlagsári. Greiðsl-
an nemur 1,08 kr. á lítra, eða sam-
tals 21 milljón króna og greiðist
hún í hlutfalli við verðmæti inn-
lagðrar mjólkur hvers framleið-
anda.
Iðnaðarsafn opnað í Hekluhúsunum á Gleráreyrum
Þverskurður af iðnaðar-
sögu bæjarins í 60 ár
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
ÞESSAR ungu dömur voru að skoða gömul leikföng á Iðnaðarsafninu.
Þar eru kynntar yfir 20 iðngreinar og ein vél eða fleiri frá hverri iðn-
grein til sýnis. Safnið er opið alla daga frá kl. 14-18 nema mánudaga.
IÐNAÐARSAFN var opnað í
Hekluhúsunum á Gleráreyrum á
Akureyri á þjóðhátíðardaginn 17.
júní. Safnið hefur vakið mikla at-
hygli og fjöldi fólks kom í heim-
sókn á opnunardegi þess. Jón Am-
þórsson er aðal hvatamaðurinn að
stofnun safnsins, en hann starfaði
til fjölda ára hjá Gefjun og faðir
hans starfaði þar alla tíð.
„Starfsemin gengur út á að
kynna sem flestar starfsgreinar
sem verið hafa í iðnaði á Akureyri.
Þama er komið upp safn með góð-
um gripum í hverri grein, með lýs-
ingu á því hvenær þessar vélar
vom notaðar og til hvers og hvað
fyrirtækin lifðu lengi eða dóu eða
hvað þau vom marg endurnýjuð.
Þetta er mjög góður þverskurður
af því sem hér hefur verið að ger-
ast sl. 60 ár og jafnvel lengur,“ Jón
Amþórsson í samtali við Morgun-
blaðið.
Jón sagði tilganginn með safninu
að upplýsa fólk um það hvernig
bærinn byggðist upp og hvað það
er sem hefur gert Akureyri að iðn-
aðarbæ í hugum landsmanna.
„Sumir vilja meina að iðnaðurinn
fari minnkandi hér í bæ en ég segi
á móti að fiskvinnsla sem ekki var
talinn iðnaður, er orðinn bullandi
iðnaður í dag með allri fullvinnsl-
unni.“
Á safninu era margir góðir grip-
ir og má þar nefna prjónavél úr
Heklu, skreiðarpressu frá ÚA,
dósalokunarvél frá Niðursuðuverk-
smiðju K. Jónssonar, fyrstu
súkkulaðivélina úr Lindu og vélar
frá Efnaverksmiðjunni Sjöfn og
Kaffibrennslu Akureyrar.
Geflun gekk vel í 80 ár
Elsti gripurinn á safninu er deig-
skurðarvél frá Brauðgerð KEA.
„Samskonar vél er enn í notkun í
Brauðgerð Kr. Jónssonar og hún
fylgdi fyrirtækinu þegar sú fjöl-
skylda keypti það árið 1912. Til
skamms tíma var ég elsti gripurinn
í safninu."
Jón sagði að hugmyndin að safn-
inu sé frá árinu 1993 en sjálfur hafi
hann mikinn áhuga á þessari sögu
sem gamall starfsmaðui- Gefjunar.
„Gefjun gekk vel í 80 ár en illa í ein-
hver 5 ár og það man enginn neitt
nema 5 árin. Þannig að það er reynt
að róa aðeins á móti þeirri umræðu.“
Jón vinnur við safnið í sjálfboða-
vinnu, Akureyrarbær greiðir 2/3 af
húsaleigunni „og ég betla 1/3 hér
og þar,“ sagði Jón sem er mjög
bjartsýnn á framtíð safnsins.
Opinn
fyrirlestur
Þriðjudagur 23. júní 1998 klukkan 20.30.
Staður:
Oddfellowhúsið við Sjafnarstíg.
Bjarni Tryggvason geimfari.
Bjarni segir frá ferð sinni með
geimferjunni Discovery og sýnir myndir.
Ath.: Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku
og er öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Aksjón
Þriðjudagur 23. júní
20.30Þ-Sumar1andið Þáttur
ætlaður ferðafólki á Akureyri
og Akureyringum í ferðahug.
21.00ÞFundur er settur Fund-
ur í bæjarstjórn Akureyrar.
Morgunblaðið/Kristján
Þátttakendum í Kvennahlaupinu
fækkaði milli ára
Elsta konan áttræð
HIÐ árlega Kvennahlaup var
þreytt í 9. sinn sl. sunnudag. A
Akureyri tóku um 1.200 konur á
rás í blíðskaparveðri, eða heldur
færri en þátt tóku í hlaupinu í
fyrra en þá voru tæplega 1.600
konur skráðar til leiks. Elsta kon-
an sem þátt tók að þessu sinni er
fædd árið 1918 en sú yngsta er á
fyrsta ári.
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, sem
hafði umsjón með hlaupinu á
Akureyri, sagðist ekki hafa skýr-
ingu á því að konum fækkaði á
milli ára. Hún sagði sumar konur
hafa sett fyrir sig að bolimir sem
þátttakendur vom í vom svartir
að þessu sinni og öðrum hafi þótt
vegalengdirnar heldur stuttar.
Aðalbjörg sagði nauðsynlegt að
vanda vel til undirbúnings að ári
og jafnvel að gera einhverjar
breytingar á fyrirkomulaginu,
þannig að fleiri konur tækju þátt
í hlaupinu sem þá fer fram í 10.
sinn.
Þessar ungu dömur á mynd-
inni voru að hita upp fyrir hlaup-
ið á sunnudag á Ráðhústorginu á
Akureyri.
• •
Olvaður ökumaður
veldur árekstri
LAUST eftir miðnætti aðfaranótt
laugardags varð umferðarslys í um-
dæmi lögreglunnar á Akureyri. Ölv-
aður ökumaður ók á röngum vegar-
helmingi og olli með því árekstri við
bifreið sem kom á móti og er þetta í
þriðja sinn á stuttum tíma slíkt ger-
ist.
Slys á fólki urðu minni en á horfð-
ist en lögreglan telur þetta atvik
Mikið um að vera í list-
um á Akureyri
Opnun Lista-
sumars og setn-
ing Þjóðlag-a-
daga
LISTASUMAR 98 hefst formlega á
Akureyri í kvöld, þriðjudaginn 23.
júní. Áthöfnin verður í Akureyrar-
kirkju kl. 23.30 að lokinni Jóns-
messugöngu um Ytri-Brekkuna á
vegum Minjasafnsins á Akureyri.
Gangan er undir leiðsögn Áma
Ólafssonar, skipulagsstjóra og
Finns Birgissonar arkitekts og hefst
kl. 21 frá Akureyrarkirkju og lýkur
þar. Opnunarávarp Listasumars
flytur Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri en að því loknu verður setning
Þjóðlagadaga á Akurevri og tónleik-
ar Bjöms Steinars Sólbergssonar
orgelleikara, þar sem hann flytur
þjóðlög og dansa. Á flötinni utan við
Akureyrarkirkju verður síðan stig-
inn Jónsmessunæturdans kl. 0.30.
sýna svo ekki verður um villst að
enn þarf að herða eftirlit með ölvun-
arakstri.
Alls vom 31 ökumaður kærður
íýrir of hraðan akstur í umdæmi
lögreglunnar í síðustu viku og 3 öku-
menn voru grunaðir um ölvun við
akstur. Þá urðu sextán umferðaró-
höpp í vikunni og þar af minni hátt-
ar slys í þremur þeirra.
Dagskrá og upplýsingamiðstöð
Listasumars er á vegum Gilfélags-
ins í Listagilinu í Kaupvangsstræti
en Listasumri lýkur á afmælisdegi
Akureyrar 29. ágúst. Á samfelldri
dagski-á Listasumars eru yfir 120
liðir og búast má við einhverri við-
bót þegar fram líður á sumarið.
----------------------
Fyrirlestur í Deiglunni
Keiko og aðrir
íslendingar
NÍELS Einarsson, forstöðumaður
stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
heldur fyi-irlestur í Deiglunni í dag,
þriðjudaginn 23. júní kl. 13.00.
Fyrirlesturinn sem fram fer á
ensku, ber yfirskriftina; „Keiko the
whale an'd other Icelanders:
Conservation, attitudes^ and
controversies in Iceland.“ I tengsl-
um við fyrirlesturinn verður síðan
farið í hvalaskoðunarferð frá
Hauganesi kl. 18.00. Nánari upplýs-
ingar í síma 463-0900 og 8917985.