Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 18

Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 VIÐSKIPTI MORGUNB LAÐIÐ Samherji GmbH eykur hlut sinn í Deutsche Fischfang Union A nií 99% eignarhluta íþýska fyrirtækinu SAMHERJI GmbH í Þýskalandi, dótturfélag Samherja hf., hefur fest kaup á 49,5% hlut í þýska út- gerðarfélaginu Deutsche Fisch- fang Union KG (DFFU) í Cux- haven í Þýskalandi af þýska fyrir- tækinu THS Tiefkuhlhaus und Service. Fyrir átti Samherji GmbH jafnstóran hlut í DFFU og á því 99% í félaginu nú en Cuxhaven- borg 1%. Þetta kemur fram í frétt frá Samherja hf. Samherji GmbH eignaðist 49,5% hlut í DFFU í nóvember 1995 og var þá þegar hafíst handa við að endurskipuleggja rekstur þess. Sú endurskipulagning hefur staðið yf- ir síðan og hefur þegar skilað um- talsverðum árangri. Aflaheimildir í uppsjávarfíski og bolfísktegundum DFFU gerir út fjögur skip, þar af þrjú eigin skip og eitt leiguskip. Tvö af skipunum eru búin tækjum til flakavinnslu á bolfisk, síld og makríl. A liðnu ári veiddu skip fé- lagsins 21.400 tonn en það sem af er þessu ári hafa þau veitt um Eigum á lager ýmsar stærðir og gerðir af góðum loftpressum sem standa fyrir sínu. Mjög hagstætt verð. ÞAÐ LIGGUR í LOFTINU AVSHACfÆICI HF. Garösenda 21, 108 Reykjavík, sími 568 6925, fax 568 5311. 24.000 tonn. Þar af eru 14.500 tonn af kolmunna en skip félagsins stunduðu ekki slíkar veiðar á árinu 1997. Aflaheimildir DFFU eru í uppsjávarfiski og bolfisktegundum; í Norðursjó, við Noreg, Svalbarða, Grænland, Færeyjar, Island og Kanada. Samherji GmbH á jafnframt 50% hlut í hlutafélaginu Schiff- stechnik Anlage - und Maschinen- bau - GmbH (S.A.M. GmbH) sem stofnað var um rekstur vélaverk- SAMÞYKKT var samhljóða á hlut- hafafundi Islenskra aðalverktaka hf. í gær að lækka hlutafé félagsins um 800 milljónir króna eða úr 2.200 í 1.400 milljónir. Lækkunarfjár- hæðinni verður ráðstafað til greiðslu til hluthafa í samræmi við hlutafjáreign þeirra í félaginu. Bróðurpartur upphæðarinnar, 591 milljón, rennur til ríkisins og Landsbankans en samtals eiga þessir aðilar 71% hlut í Islenskum aðalverktökum hf. Fundinn sóttu hluthafar iyrir 76,5% hlutafjár í félaginu. Þar kom fram að það væri mat stjómar og sérfræðinga hennar að slík lækkun væri eðlileg og muni treysta grundvöll viðskipta með hlutabréf félagsins á markaði. Samkvæmt samþykktinni verð- ur greiðsla til hluthafa innt af hendi innan fimm mánaða án vaxta og verðbóta gegn afhend- ingu hlutabréfa þeirra í félaginu. Fundurinn samþykkti jafnframt að innkalla og ógilda áður útgefin hlutabréf í félaginu. Ný hlutabréf verða gefin út í þeirra stað eftir lækkun hlutafjárins og þau að- greind með sérstökum og skýrum hætti frá eldri hlutabréfum. Þá var samþykkt tillaga á fund- inum um breytingu á samþykkt aðalfundar um heimild stjómar til kaupa á eigin hlutum vegna lækk- unar hlutafjár. Var stjórn ís- stæðis DFFU. Þar starfa um 60 manns en starfsemin felst í við- gerðum og viðhaldi skipa og þjón- ustu við matvælaiðnaðinn á svæð- inu. Samherji á allt hlutafé í Sam- herja GmbH. Höfum fulla trú á rekstri DFFU „Meginástæðan fyrir þessum kaupum er að við höfiim fulla trú á rekstri DFFU til framtíðar. Rekst- ur þess fellur vel að rekstri Sam- lenskra aðalverktaka hf. veitt heimild til að kaupa hluti í félag- inu að nafnverði 140 milljónir króna. Kaupverð hlutanna má ekki vera lægra en nafnverð hluta margfaldað með 1,5 og ekki hærra en nafnverð hluta margfaldað með 2,5. Ríkið fær bróðurpartinn Ljóst er að stærstur hluti þess- arar 800 milljóna króna útgreiðslu eða 591 milljón króna mun renna herja á íslandi, bæði hvað varðar veiðar og markaðssetningu afurða og styrkir því félagið í heild sinni,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Hann segir að samkomulag hafi náðst milli eig- enda um að annar færi út. „Það má segja að starfsemi DFFU henti okkur betur en hinum eigandanum, sem er söluíyrirtæki. Við sérhæf- um okkur í veiðum og útgerð og því má segja að reksturinn henti okkur betur.“ beint til ríkisins og Landsbankans. Ríkið á rúman helming hlutafjár og Landsbankinn um 20% í gegnum eignarhaldsfélagið Regin hf. 568 milljónir munu skila sér beint til ríkisins og Landsbankans. Afgang- urinn, 232 milljónir, skiptist á milli annarra hluthafa Islenskra aðal- verktaka, sem nú eru 490 talsins eftir uppskiptingu Sameinaðra verktaka. 10% þeirrar upphæðar eða 23,2 milljónir króna munu renna beint til ríkisins í formi skatts á arðgreiðslur. Farsíma- laus svæði í lestum í Sviss Ztirich. Reuters. FARSÍMALAUS svæði verða í járnbrautarlestum, sem eru í förum milli stærstu borga Sviss, vegna kvartana um fólk sem rausi í farsíma í farþega- klefum að sögn talsmanns rík- isjárnbrautanna, SBB. SBB segir að ferðamenn kvarti yfir ónæði frá farsím- um, en farsímar verði ekki bannaðir með öllu, þar sem þörf virðist vera fyrir þá. Farsímar verða bannaðir í einum klefa á fyrsta farrými og einum á öðru farrými í öl- um hraðlestum sem eru í för- um milli Ziirich, Basel og Genfar frá 27. september. Milljón dala fyrir bók New York. Reuters. BÓKAÚTGÁFAN Bantam hefur komið á óvart með því að bjóða rithöfundinum Alice Blanchard 1,2 milljónir dollara fyrir birtingarrétt á skáldsög- unni Darkness Peering. Darkness Peering er líkt við Blood Work eftir Michael Connelly og fjallar um lög- reglumann, sem grunar son sinn um að hafa myrt þroska- hefta stúlku. Dóttir lögreglu- mannsins kannar málið mörg- um árum síðar. Skoðanir um bókina eru skiptar og ýmsir furða sig á háu boði Bantams. Bókin hef- ur vakið áhuga erlendra útgef- enda og kvikmyndaframleið- endur sýna henni áhuga. Seagram vill reka forstjóra PolyGram Los Angeles. Reuters. SEAGRAM Co. Ltd., sem hef- ur samþykkt að kaupa Polygram NV fyrir 10,6 millj- arða dollara, reynir að reka forstjóra tónlistarfyrirtæksins, Alain Levy, samkvæmt heim- ildum í greininni. Búizt hefur verið við brottfór Levys síðan samkomulagið var kunngert og hún mun auðvelda skipun Dougs Morris, stjómar- formanns Universal, músíkfyr- irtækis Seagrams, í stöðu yfir- manns tónlistarumsvifa hins sameinaða fyrirtækis. Samkvæmt heimildunum á Seagram í viðræðum um brottfór Levys, sem átti mik- inn þátt í að tryggja Polygram forystuhlutverk í tónlistar- geiranum. Aðrar heimildir hafa hermt að Levy og Morris mundu eiga erfitt með að vinna saman. Gates á ekki von á tjóni Tókýó. Reuters. BILL GATES hefur sagt Japönum að málsókn banda- ríska alríkisms gegn Microsoft muni ekki hafa áhrif á starf- semina. Gates er í Japan til að kynna nýjan Windows 98 hug- búnað, sem verður settur á markað í Bandaríkjunum 25. júní og í Japan 25. júlí. Hann sagði að einn helzti kostur nýja kerfisins væri samlögun netleitartækisins og stýrikerfisins. Hann sagði að sömu „meginreglur" mundu gilda í þróun næstu útgáfu Windows NT, sem kemur á markað á næsta ári. Vönduð ryðfrí húsaskilti Sérhönnuð með eigin texta PlPAR OG SALT VESTURVOR Klapparstíg 44. Sími 562 3614 Ríkistollstjóri opnar heimasíðu á netinu RÍKISTOLLSTJÓRI hefur opnað vef á alnetinu. Slóðin er: www.toll- ur.is. Á vefnun verður að finna tollahandbækumar: lög og stjórn- valdsreglur um tollamál, tollskrá 1998 og milliríkjasamningar um tollamál. Jafnframt verða á heima- síðunni leiðbeiningar fyrir inn- og útflytjendur, miðlara og hugbún- aðarhús, auk bæklinga og ýmsissa annarra upplýsinga er snúa að tollaframkvæmdinni. rt FASTEIGNA MARKAÐURINN ehf % ÓÐINjGpTV 4- S'MAR 5^1-1^40, S??-1700, FAX ^6?-O540 Herraíatabúð við Laugaveg Höfum fengið í sölu vegna sérstakra aðstæðna herrafataverslun við Laugaveg sem selur með þekkt og viðurkennd vörumerki. Getur verið til afhendingar fljótlega. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-18 if= Jón Guðmundsson, sölust.i, lögg. fasteigna- og skipas. Lækkun á hlutafé Islenskra aðalverktaka hf. samþykkt Ríkið og Landsbankinn fá tæpar 600 milljónir Morgunblaðið/RAX FRÁ hluthafafundi íslenskra aðalverktaka lif. í gær, en þar var sam- þykkt samhljóða að færa hlutafé félagsins niður unt 800 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.