Morgunblaðið - 23.06.1998, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 23.06.1998, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Lýðskóli Hópur nemenda nær hvorki fótfestu í framhaldsskólum né á vinnumarkaði eftir skólaskylduna. Hvaða úrræði eru til handa þeim? Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að þau glati voninni? Gunnar Hersveinn skoðaði mat á starfi Lýðskólans, en hjálparhönd hans hefur komið mörgum á rétta braut í lífinu. „Skólinn bj argaði lífí sonarmíns“ # Verðmætt starf unnið til að koma í veg fyrir félagsleg vandamál • Tenging verður milli sjálfsþekkingar og kynningar á möguleikum LÝÐSKÓLINN er nú á þriðja ári en hann er hugsaður sem möguleiki fyrir nemendur á fram- haldsskólaaldri. I hann hafa oft leitað nemendur sem hafa horfíð á brott úr framhaldsskólum og ekki fundið sér stað á vinnumarkaðin- um. Stjómendur skólans lýsa markmiðum hans með eftirfarandi orðum: „Lýðskólinn er staður sem nýtist vel þegar nemendur vilja taka sér frí frá hefðbundnu námi, „fínna sjálf sig“ eða búa sig undir frekara framhaldsnám og lífið. Lýðskólanum má líkja við „bensín- stöð“. Þar fær maður orku, kannar stöðuna á kortinu, fær næringu og lesefni. Eftir stoppið fer síðan nemandinn aftur út á þjóðbrautina og tekur virkan þátt í samfélaginu sem frjáls, ábyrgður og skapandi einstaklingur. Flestir fara í fram- haldsskóla.“ (Skólaskýrsla vorið 1998.) Á „einskismannslandi" Nú hefur verið lagt mat á árang- ur Lýðskólans en það hafa Gestur Guðmundsson og Kristín Ólafs- dóttir félagsfræðingar gert að beiðni skólanefndar. Þau tóku við- töl við 53 af 63 nemendum sem voru í skólanum árin 1996 og 1997, en meðalaldur hópsins var 18 ár. Þau ræddu einnig við aðstandend- ur sumra þeirra. Markmiðið var að kanna hvernig nemendum vegnaði áður en þeir fóru í skóla og eftir að þeir luku honum. Komast að því hvernig þeim leið í skólanum o.fl.. „Viðhorfið var almennt jákvætt og margir tóku sterkt til orða. „Ég veit að þetta eru stór orð en skól- inn bjargaði lífi sonar míns,“ full- yrti til dæmis ein móðirin," segir Kristín Ólafsdóttir. Hópur ungs fólks, a.m.k. í Reykjavík, virðist vera áttavilltur eftir að skólaskyldu lýkur og hvorki njóta sín í skóla né vinnu. „Brotthvarf nemenda úr fram- haldsskólum er yfir 30% og fara flestir í vinnu, en ekki allir,“ segir Gestur. „Félagsmálastofnun, foreldrar og vinir hafa bent þeim á Lýðskólann er það er þeim alger- lega frjálst val að fara í hann, og í könnun okkar kom í ljós að það var þeim mjög mikilvægt að fara að eigin frumkvæði." Lýðskólinn er ágætt úrræði handa þeim sem eru á „einskis- mannslandi“, sem þýðir að vera 16-18 ára, ekki í vinnu, ekki í skóla og hafa ekki rétt á atvinnuleysis- bótum. „Þetta getur leikið þau grátt, því þau hafa tilhneigingu til að festast í vonleysi og aðgerða- leysi, og fylgifiskarnir eru gjarnan fíkniefnavandi, afbrot og geðræn vandamál," segir Kristín. Sjálfstraustið vex Lýðskólinn stendur í eina önn í senn og er áhersla lögð á skapandi starf og þess gætt að efla einstak- lingana í stað þess að steypa þá alla í sama mót. Þrátt íýrir áhrif nemenda á skólastarfið hvílir það á Morgunblaðið/Þorkell „ÉG ER undrandi á að engin úrræði fundust í grunnskólanum handa þeim hópi sem þessir krakkar koma úr,“ segir Gestur, sem mat starf Lýðskólans ásamt Kristínu Olafsdóttur. skýrum reglum sem allir fylgja og í ljós kemur að flestir Ijúka náminu. „Hjá langflestum nemendum má greina afgerandi breytingar eftir skólann," segir Gestur, „helmingur þeirra fer í nám og virðist tolla vel og fjórðungur festist í vinnu.“ „Skólavistin virðist gefa þeim sjálfstraust og auðvelda þeim tjá- skipti,“ segir Kristín og vitnar í setningar frá þeim: „Einu skiptin sem ég hef nennt að vakna í skóla,“ segir einn nemandi. „Ég opnaðist - þorði aldrei að tala við neinn áður, var svo feiminn," segir annar. „Ég fékk trú á námi aftur,“ sagði sá þriðji. „Það er líkt og sjálfsþekking þeirra vaxi,“ segir Gestur, „þetta er hópur sem var utangátta í grunnskóla og það er merkilegt að hugsa til þess að enginn virtist geta gert neitt fyrir þau á meðan skólaskyldunni stóð. Enginn í könnun okkar gat gefið grunnskól- anum góða einkunn.“ I könnun Gests og Kristínar kemur í ljós að margir uppgötva að þeir þurfi ekki endilega að fara í menntaskóla til að verða stúdentar eins og tíðarandinn blæs þeim í brjóst, en flest hafa þau áhugalaus verið að eyða tímanum í það. Veran í Lýðskólanum hefur á hinn bóginn gert þeim kleift að uppgötva áhugasvið sín og leita að rétta náminu. „Mér virðist sem það verði teng- ing milli sjálfsþekkingar og kynn- ingar á möguleikum í lífinu,“ segir Gestur, „og einmitt það komi þeim á rétta braut.“ Doðinn gagnvart lífinu Nokkrir nemendur í Lýðskólan- um hafa áður verið í neyslu. Hins vegar virðast þeir finna eitthvert haldreipi meðan á skóladvölinni stendur og hafa sumir farið í með- ferð eftir hana og náð tökum á tilverunni. Gestur og Kristín segja að fæstir í þessum aldurshópi sem eru í því tómarúmi að vera hvorki í námi né vinnu séu í neyslu, fremur sé það doði sem einkenni þau. „Þau hafa ekki efni á neinu og nurla helst saman fyrir sígarettum og vídeó- spólu. Þau hafa beðið tjón á sjálfs- traustinu og margir félagslegir þættir hafa sett þau út af sporinu." „Það vakti athygli okkar þegar við vorum að reyna að hafa uppi á þeim, að þau virtust fylgjast hvert með öðru,“ segir Kristín, „þau verða vinir í skólanum og styðja hvert annað. Þrátt fyrir að vera mikið á ferðinni halda þau sambandi hvert við annað." „Skólinn virðist hafa haft sterk áhrif á þau,“ segir Gestur og vitnar í einn nemanda: „Varð virkari, kynntist sjálfum mér á nýjan leik og lærði að bera ábyrgð á sjálfum mér.“ „Ég var í rugli, en hef sjald- an fílað mig eins vel,“ sagði annar „Ég er undrandi á að engin úr- ræði fundust í grunnskólanum handa þeim hópi sem þessir krakk- ar koma úr, því það virðist í raun ekki þurfa að gera mikið fyrir þau til að koma þeim á réttan kjöl,“ segir Gestur og bendir á að Lýð- skólinn standi ekki nema 14 vikur í senn. „Nokkrir foreldrar drápu á að skólinn mætti vera tvær annir og sumir nemenda leggja það líka til,“ segir Kristín, „á seinni önninni mætti þá dýpka námið og fylgja því eftir sem gert er.“ Niðurstaða Gests og Kristínar er að Lýðskólinn hafi náð verulegum árangri og skipt sköpum í lífi stórs hluta þátttakenda, „og eflt næstum alla til ábyrgi-ar þátttöku í samfé- laginu". Þau telja að skólinn hafi bæði unnið þeim gagn sem átt hafa erfitt og líka þeim sem einfaldlega vora haldnir námsleiða. „Lýðskól- inn vinnur verðmætt starf til að koma í veg íyrir félagsleg vandamál og ráðast gegn vanda einstaklinga áður en hann verður óviðráðanleg- ur,“ segja þau að lokum. Tilraun til að móta líf sitt FLJÓTLEGA eftir að skólastarfið hefst ná nemendur undirtökum í skólanum og fara að ráða stundaskránni. Skólinn er ekki hluti af kerfinu og er ekki fyrir kennarana. Hann er fyrir nemendur sem rækta með sér ábyrgðartilfinningu, efla sköpunargáfuna og brýna hugsun sína. Lýðskólinn er hugsjón á þriðja ári undir lok 20. aldar og er í höndum Odds Aíbertssonar skólastjóra, en Reykjavíkurborg, Rauði krossinn, Nor- ræna húsið og menntamálaráðuneytið reka hann. Slagorð lýðskólans er: Skóli er ekki hús heldur fólk! og er rétt að því leyti að starfsemin skiptir reglulega um húsnæði, þótt það sé ekki stefna, og verður í vetur í JL-húsinu við Hring- braut. Markmið hans er fyrst og fremst að bæta nemandann og að hjálpa honum til að öðlast styrk til að glíma við lífið. Það er gert með því að leitast við að hafa skólann sem skemmtilegt samfélag og vettvang jákvæðrar reynslu. Nem- endum er sýndur réttur sinn í þjóðfé- laginu og líka skyldur og ábyrgð. Útvíkkun tjáningar Lýðskólinn hvílir á hugmyndum um sköpunarmátt einstaklingsins, ábyrgð hans og frelsi. Nemendur eru oft þeir sem hafa ekki fundið sig í framhalds- skólaheiminum m.a. vegna þess að þeir hafa átt bágt með að beygja sig undir skipulag hans og aðferðafræði. Margir þeirra hafa þurft að leita til félagsmála- stofnunar, aðrir hafa orðið leiðir á námi og ekki farið heldur að vinna. Oddur Albertsson segir að í lýðskólan- um sé nemandinn virtur á eigin forsend- um. „Allir eru einstakir, skapandi og í eðli sínu fijálsar tilfinningaverur,“ segir hann, „og eftir námið verður hugsunin skarpari og tjáningin breiðari.“ Mannlegt samskiptakerfi er sérstaklega til skoðunar 1 skólanum og m.a. námskeið í listum eins og leiklist, dansi og tónlist. Oddur segir að hann vilji að nemend- ur uppgötvi nýjar hugmyndir um skóla, skóla þar sem hlustað er á rödd einstak- Morgunblaðið/Þorkell lingsins. Margir nemendur lýðskólans hafa lent undir í skólakerfínu sem að hans mati leggur áherslu á próf, ein- kunnir og einingar en ekki þroska. „Þau eiga að fá á tilfinninguna í Lýð- skólanum að þau geti ráðið einhverju um örlög sín og verið með í því að skapa líf sitt,“ segir hann og þau eiga eftir námið að vera betur í stakk búin til að fara að gera það sem þau langar til að gera.“ Lýðskólinn er 14 vikur í senn og kost- ar önnin 15 þúsund krónur með efnis- kostnaði. I haust er ráðgert að taka 35 nemendur í skólann en gera má ráð fyrir að helmingi fleiri sæki um. Undir lok annar fá þau aðstoð til að velja sér nám í öðrum framhaldsskólum hyggi þau á frekara nám. Oddur segir að undir lokin sé líka farið í lengri ferð og hafi nemendur farið í vor til Danmerkur til að heimsækja aðra lýð- skóla og kynnast nemendum. En þess má geta að árlega koma útlenskir lýðskóla- nemendur í heimsókn til fslands. Dæmi um viðfangsefni í Lýðskólanum eru: Samskipti og tjáning, hvað er menn- ing?, trú, fordómar, ljölmiðlar, listir, stjórnmál, stríð, námsferð og starfskynn- ing. Margir fyrirlesarar eru kallaðir til en fastir kennarar hafa umsjón með náminu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.