Morgunblaðið - 23.06.1998, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 23.06.1998, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 35 rei unnið handtak í landi, nema að plægja kálgarðinn hans pabba þegar ég var ungur.“ HORFT á haf út. Langvíur á klettasyllu í Heimaey. Morgunblaðið/RAX á hvítu klcttasyllunum í Eyjum virtust hinar ánægðustu með sambúðina. GUÐJÓN Hjörleifsson bæjarstjóri Vestmannaeyja og Johnsen þingmaður virtu fyrir sér Klettsvfkina. Árni FÉLAGARNIR Jón í Sjólyst og Ágúst Óskarsson dyttuðu að Hlýra, bátnum hans Jóns, á bryggjunni í Vestmannaeyjum. þannig með suma menn að þeir afla meira en aðrir. Og það er sama á hvaða bát þeir eru, hvaða veiðar- færi þeir eru með og hvaða áhöfn þeir eru með, alltaf fyllast bátarnir þeirra af fiski. Þessir menn eru ein- faldlega fisknari en aðrir, þeir skera sig úr í veiðiskap, samanber Binna í Gröf sem er nú landsfrægur aflakóngur. Jafnvel þegar hann fór á lundaveiðar veiddi hann manna mest, eða þegar enga veiði var að fá fyllti hann alltaf bátinn sinn. Hann var bara svo mikill veiðimaöur." Öldungar á besta aldri Jón segist hafa misst marga fé- laga sína á sjó og telur sig einstak- lega heppinn að vera enn á lífi eftir öll þessi ár á sjónum; hann hafi oft lent í stórsjó en alltaf sloppið. „Það kom einu sinni fyrir mig að ég strandaði hérna uppi á sandi í Landeyjunum. Þá var maður ekki með allan þennan tölvubúnað sem nú er í bátunum og ekki annað að treysta á en heilann og kompásinn. Ég hafði misreiknað stefnuna og var allt í einu lentur uppi á sandi. Ég var með tvo peyja með mér og bað þá um að segja ekki nokkrum Iifandi manni frá þessu. Þegar ég kom í land vissi þetta allur bærinn!'1 segir Jón og glottir. Hann segir að halda þurfi ró sinni og hugsa skýrt þegar eitthvað komi fyrir. Það sé öruggasta aðferðin. Hann hefur ekki sleppt úr ári á sjó frá því um fermingu, þá reri hann með föður sínum á sumrin. Sextán ára var hann orðinn háseti á fyrsta mótorbátnum og síðan skip- stjóri. Hann er 78 ára og sækir á miðin þegar honum hentar og fer oftast einn. Þennan dag var hann í landi, veðrið var ekki nógu gott fyr- ir sjóinn og auk þess þurfti hann að dytta að Hlýra. Báturinn þykir vel farinn, enda hefur hann ávallt feng- ið góða meðferð, bæði hjá Jóni og fyrri eigendum. Eftir að hafa kvatt Jón á bryggj- unni sögðu kunnugir Eyjamenn blaðamanni að Jón í Sjólyst málaði alltaf bílinn sinn í sama lit og bát- inn. Hvort það er satt eða logið skal ekki dæmt um hér og nú, enda ekki alltaf hægt að treysta á sannsögli innfæddra sem virðast oft á tíðum hafa gaman af að villa um fyrir auð- trúa gestum, sem og hvorum öðr- um. Hið öfluga hrekkjalómafélag Vestmannaeyinga, sem líklega er það öflugasta í landinu, rennir stoð- um undir það. ÞÆR Iialldóra Björk og Margrét Rut byrjuðu að spranga þegar þær voru fjögurra ára og eru stundum að í þrjá til fjóra tíma á dag. „Þú mátt ekki sprikla með fótunum, þá snýstu í hringi og lendir með bakið í veggnum," sögðu þær til útskýringar. LEÓ Sveinsson og Hlynur Már ívarsson ætluðu vestur fyrir eyjarnar að veiða þorsk. var ungur. Og þó, annað hef ég gert líka, og það er að stela eggjum og veiða lunda," bætir hann við sposk- ur á svip. Hann fór fyrst í björgin 12 ára þegar föðurbróður hans vantaði peyja með sér. „Ég var svo léttur j bandi þannig að það hentaði vel. í fyrstu ferðinni sem ég fór, seig ég niður um hundrað metra hátt bjarg og þá var ég hræddur. En það var bara þegar ég var að fara fram af brúuinni, þegar ég var kominn nið- ur í bjargið og farinn að spranga hvarf hræðslan og hefur ekki gert vart við sig síðan. Ég stundaði mik- ið lundaveiðar þegar ég var ekki á sjó og hafði tíma til. Hér áður fyrr var farið í þriggja daga túra, tvo túra í viku, og svo vorum við alltaf heima á sunnudögum því maður veiðir aldrei lunda á sunnudögum." Jón sagði að farið hefði verið út í eyjarnar á bátum, kostur tekinn ineð og svo hamast allan daginn. I dag eru hins vegar veiðihús í nokkrum eyjanna. Þangað er farið til veiða frá og með 1. júlí og lund- inn veiddur fram í miðjan ágúst eða þangað til hann kveður landið. Sumir fisknari en aðrir Jón hefur eytt mestum tíma sín- um á sjó. „Á sjónum veiði ég aðal- lega þorsk og ýsu. Áður veiddi ég á línu en er hættur því, nú eru það bara handfærin. Eða ég get nú varla kallað það handfæri, þetta eru tölvufæri," segir Jón og brosir. Hann segist ekki vera sérstaklega fiskinn, en fullyrti að sumir væru fisknari en aðrir. „Það er bara
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.