Morgunblaðið - 23.06.1998, Síða 58

Morgunblaðið - 23.06.1998, Síða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Sumarið er tíminn... Bubbi Morthens verður með tónleikaröð á Kaffi Reykjavík í sumar þar sem hann tek- ur fyrir eina plötu úr safni sínu og spilar í bland nýtt efni. Rakel Þorbergsdóttir hitti Bubba í sumarblíðunni í miðbænum. BUBBI sat í hjólabuxum og með vasadiskó fyrir utan Kaffí Reykjavík, sportlegur Og afslappaður þegar blaðamaður ónáðaði hann. Hann leikur um þessar mundir í söng- leiknum Carmen Negra en næst- komandi mánudag heldur hann fyrstu tónleikana í fyrirhugaðri röð þar sem veglegu plötusafni hans verða gerð skil auk þess sem nýtt efni mun hljóma á Kaffi Reykjavík. Bubbi hefur ferðast á hverju ári vítt og breitt um landið með tónleika- hald en í ár eni það höfuðborgarbú- ar sem eiga þess kost að hlusta á kappann. - Hvaðan kemur hugmyndin að tónleikaröðinni? „Hugmyndin er sprottin út frá því að í fyrsta sinn á mínum ferli er ég bundinn hér í borginni í sumar vegna vinnu minnar í Islensku óper- unni. A þessum árstíma er ég venju- lega að spila á tónleikum úti á landi og hef gert það í 18 ár. Mér leiðist rosalega að vinna bara þrisvar til fjórum sinnum í viku og til að brjóta upp þessi leiðindi datt mér í hug að halda tónleika í Reykjavík og velja fremur óhefðbundna daga til þess. Mánudagar og miðvikudagar eru ekki dagar sem kaffihúsin eru alla jafna að bjóða upp á einhverja skemmtun og vonandi brýtur það upp mynstrið. Hugmyndin er að spila á kassagít- ar og fyrsta kvöldið ætla ég að spila lög af plötunni Isbjarnarblús og bjóða upp á nýtt efni og_ fikra mig svo áfram þegar á líður. Eg ætla að spila í einn og hálfan klukkutíma og hafa þetta hreina og klára tónleika. Fólk getur komið á hlustað á mig spila, segja sögur og spjalla. Það getur slappað af og dmkkið kaffi eða eitthvað létt. Ég er ekki pöbbaspilari og kann ekki þá list. Ég hef alltaf haldið tónleika og ætla ekki að breyta út frá þeirri hefð. Þetta er mjög spennandi verkefni og fróðlegt að vita hvort þetta er hægt.“ - Er til einhver fyrirmynd að svona tónleikaröð þar sem ein plata er tekin fyrir í einu? „Það hlýtur eiginlega að vera. Það sem er skemmtilegt við þetta er að ég verð bara með kassagítarinn og þar af leiðandi verður þetta fremur frábrugðið öðrum tónleikum. Ef það á að líkja þessu framtaki við eitt- hvað eða einhvern má segja að ég sé afsprengi af gömlu trúbadúrunum eins og Bob Dylan og Neil Young sem eru deyjandi tegund tónlistar- manna. Þetta er kannski líka nokk- urs konar andsvar við rokkkeyrsl- unni og þeim hörðu hlutum sem eru í gangi núna. Ég hef tröllatrú á þessu tónlistarformi, sögunni og ein- faldleikanum." - Pað verður þá meira en tónlist í boði? „Já, ég hef haft þann sið í gegnum tíðina að segja jafnvel sögur og vera með smá spjall meðfram tónlistinni. Það fer eftir því hvað ég nenni _að gera og hvernig stemmningin er. Ég hef til dæmis mikið rætt um siðferði íslenskra stjórnmálamanna. Svo hef ég líka rætt um hluti sem eru al- mennt ekki ræddir opinberlega, eins og typpastærð karlmanna og hvað þeir eru uppteknir af henni. Það er mjög misjafnt hvernig fólk tekur þessum umræðum mínum og ég hef lent í því að fólk hefur gengið út af tónleikum hjá mér.“ - Er það orðið eitthvað sérstakt markmið hjá þér að tala til fólks á tónleikum? „Já, ég lít svo á að ég hafi tæki- færi til að segja hluti sem að öllu jöfnu er ekki talað um á opinberum vettvangi. Einn maður með gítar getur haldið athyglinni í ákveðinn tíma en svo þarf að brjóta tónleik- ana upp. Fólk er búið að missa at- hyglina eftir tíu lög ef þau eru spiluð í einum rykk. Ég þarf að vita hvenær ég á að stoppa og hvíla fólk- fimmtud. 25. júní uppselt lau. 27. júní kl. 23 fimmtudag 2. júli föstudag 26. júnf uppselt laus sæti föstudag 3. júli lau. 27. júní kl. 20 uppselt sunnudag 28. júní laugardag 4 júlí laus sæti Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega. Miðasala simi 551 1475. Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir fró kl. 10 virka daga og fró kl. 13 um helgar. SÖNGLEIKIR, LEIKRIT OG KABARETTAR Ingveldur Ýr og Gerrit Þri. 23/6 kl. 20.30. Miðasalan opin 12—18. Sími í miðasölu 530 30 30 LEIKSKÓLINN sýnir ÞÆTTI ÚR SUMARGESTUM e. Maxím Gorkí FYRIRHUGAÐAR SYNINGAR: 23. júni 25. júní 26. júní... 27. júní... 28. júní.. 30. júní... 1. julí. 2. júlí. .3. sýning 4. sýning ...5. sýning ...6. sýning ...7. sýning ...8. sýning ...9. sýning .10. sýning Sýningar hefjast kl. 20:00 Sýnter í LEIKHÚSINU Ægisgötu 7. Miðaverðkr. 500,- Mi&pantanir í síma: 561-6677 & 898-0207 milli kl. 16-19. LEIKSKÓLINN FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Árni Sæberg BUBBI Morthens verður með tónleikaröð á Kaffi Reykjavík í sumar. ið með því að fara yfir í eitthvað annað. Þetta er ákveðið form sem mér finnst mjög skemmtilegt, þetta er fyrst og fremst gaman.“ - Ertu með einhvern ákveðinn markhóp í huga? „Nei, ég held að allir ættu að geta notið þess að koma á tónleikana. A síðustu tónleikum mínum í Borgar- leikhúsinu var allt frá unglingum upp í miðaldra fólk. Elsta mann- eskjan á tónleikum hjá mér var 87 ára, ég held hún hafi verið frá Hrís- ey, og sú yngsta var fjögurra mán- aða. Hún svaf reyndar allan tím- ann.“ - Er grundvöllur fyrir þessu tón- leikaformi í borginni? „Við vitum ekkert hvað við erum að fara út í en ég tel að þetta tónlist- arform vanti. Það er nóg af helg- arglaumi og það er mín skoðun að fólk geti vel hugsað sér að fara út í tvo tíma og átt notalega kvöldstund í miðri viku. Það er hefð fyrir ball- markaðnum yfir sumartímann en tónleikar á sumrin eru mjög sjald- gæfir.“ - Að hverju ertu að vinna núna? „Ég hef verið að vinna upp úr vikivakahandritum frá 15. öld til 17. aldar sem mér fmnst vera óplægður akur. Þau gefa mikla möguleika. Ég hef einnig verið að vinna með þulu- formið sem mér finnst vanmetið. Ég hef reynt að draga þuluna inn í nú- tímann og notað hana við að gera lög um óregluveröldina og eitur- lyfjanotkun. Þessi form eru ómæld náma og arfur okkjir og ættu að nýtast næstu kynslóð. íslenskir rapparar ættu að geta nýtt sér þessi form og sjá hvernig hægt er að nota tungumálið. Það er mikill misskilningur að ekki sé hægt að syngja eða rappa á ís- lensku. Mér finnst skipta miklu máli að gefin sé út tónlist sem er ein- göngu ætluð fyrir innlendan mark- að. Ég held að einhver verði að sinna þessu og það eru mörg ár síð- an ég ákvað að þetta væri mín deild. Stjórnvöld ættu að taka við sér og hjálpa til við að varðveita tunguna með því að styrkja tónlistarmenn sem vilja flytja á íslensku. Dægur- tónlistin er öflugasta og bein- skeyttasta listformið sem til er í dag og ein greiðasta leiðin að fólki.“ - Er sumarið besti tíminn ? „Já, mér líður aldrei eins vel og á sumrin enda er ég sumarbarn og á afmæli í júní. Mér finnst sumarið á íslandi vera ævintýri líkast. Ég hef búið erlendis og sumarið annars staðar í Skandinavíu er allt annars eðlis. Sumrið er svo stutt hérna og það er varla hægt að tala um að við eigum vor. Það er hin síbreytilega birta sem við höfum og íslenska náttúran sem vaknar þennan stutta tíma. Fuglarnir, bíflugurnar, sætu stelpurnar og allir krakkarnir í bænum. Jú, mér finnst sumarið vera tíminn." Skemmtileg þvæla Georg konungur skógarins (George of the Jungle) G a in a n iii y n il ★ ★★ Framleiðsla: Lou Arkoff. Leiksljdrn: Sam Weisman. Handrit: Dana Olsen og Audrey Wells. Kvikmyndataka: Thomas E. Ackerman. Tónlist: Marc Shaiman. 91 mfn. Bandarísk. Sam- myndbönd, júni' 1998. Leyfð öllum aldurshópum. URSULA Stanhope er á ferð í frumskóginum að skoða apa þegar stæltur ofurtöffari steypir sér niður úr trjánum og bjargar henni frá hungruðu mannætuljóni. Hetjan heitir Ge- orge, týndist í flug- slysi einhverjum árum áður og var alinn upp meðal apanna. Hann hef- ur vaxið og dafnað þegar hér er komið sögu og stjórnar konungsríki sínu - því hann er auðvitað konungur dýr- anna - með mildi, visku og styrk. Ursula og George heillast að vonum hvort af öðru en það stendur ill- skeyttara ljón en George á að venjast í veginum, móðir hinnar heittelskuðu. „George of the Jungle" er góðlát- leg háðsádeila á Tarsanmyndir allra tíma og unnin upp úr samnefndri teiknimyndaseríu frá 1967. Myndin er afkvæmi Disney fyrirtækisins og sækir sætt og fallegt yfirborðið frá ættinni. Frásögnin er í sjálfu sér engin nýjung, en húmorinn er bráð- skemmtilegur og greinilegt að menn hafa ekkert verið að taka sjálfum sér of alvarlega við gerð hennar. Persónur eru ýktar og ein- faldar. Þetta kemur ekki að sök heldur rennur vel saman við söguna sem öll fer fram í ævintýraheimi þar sem raunveruleikinn skiptir minstu. Tæknilega er myndin í hæsta gæðaflokki, enda framleidd af einum ríkasta risa Hollywood. Ekkert er heldur að leiknum eða leikstjórninni, þótt lítið mæði reyndar á leikurunum í einföldum hlutverkum sínum. Hetjurnar eru fallegar og góðar en skúrkarnir Ijót- ir, vondir og vitlausir. Að flestu leyti er hér á ferðinni hefðbundin Dis- neymynd, miðuð við alla fjölskyld- una. Hún leynir þó nokkuð á sér og áhorfendur verða að fylgjast vel með til að taka eftir öllu sem fram fer. Það mikilvægasta sem hún hef- ur fram yfir flestar myndir sinnar ættar er þó einfaldlega það að hún er skemmtilegri og á köflum sprenghlægileg. I stuttu máli, ör- ugg skemmtun fyrir alla fjölskyld- una. Guðmundur Ásgeirsson MYNDBÖND

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.