Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 46
46 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
föstudag 17. júll kl. 20 • laugardag 18. júll kl. 20
• föstudag 24. júlí kl. 20 • laugardag 25. júll kl. 20
Miðasala sfmi 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapanfanir há kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
ÞJONN
í s ú p u n n i
iriið. lSr7Törsýning ÖrTá saetiíaus
fim 16/7 Frumsýning UPPSELT
lau 18/7 UPPSELT
sun 19/7 UPPSELT
fim 23/7 UPPSELT
fös 24/7 UPPSELT
lau 25/7 UPPSELT
Sýningamar hefjast ld. 20.00
Miðasala opin kl. 12-18
* l ■ - - - -*-1 I-Jn Jp „n
usotor pamamr Sciuar oayicua
Miðasölusími: 5 30 30 30
Vesturgötu 3
Gamanleikrit (leikstjóm
Sigurftar Sigurjónssonar
fim. 16/7 kl. 21
lau. 18/7 kl. 23
Miftaverð kr. 1100 fyrir karU
kr. 1300 fyrir konur
Vörðufélagw Ll fá 30% afslltt
Sýnt f íslensku Óperunni
Miftasölusimi 551 1475
SUMARTÓNLEIKARÖÐ
KAFFILEIKHÚSSINS
„Sígild popplög"
Ingveldur Ýr Jónsdóttir syngur perlur úr
poppinu fim. 16/7 kl. 21.00 laus sæti.
„Megasukk í Kaffileikhúsinu”
Hinn eini sanni Megas á tónleikum meö
Súkkat fös. 17/7 kl.22 til 02 laus sæti.
Matsedill sumartónleika
Indverskur grænmetisréttur að hætti
Lindu, borinn fram meö ristuðum furu-
hnetum og fersku grænmeti og 1 eftirrétt:
._______„Óvænt endalok"____,
Miðasalan opin alla virka daga
kl. 15-18. Miðap. allan sólarhringinn
í s. 551 9055.
Netfang: kaffileik@isholf.is
Tilkynning frá fógetanum í Nottingham
25.000 giillpcningar i hoði lyrir |nmn scm
handsamar úilagann Mróa hött
llrói höttur cr í sirkusiíaldinu í Húsdvracarðinum
Miðapantanir • Nótt&Dagur • 562 2570
Miðaverö: 790,- (640,- IVrir liópa)
Innilalið í vcrði cr aðoönguiniði ú Hróa hött.
aðgönguniiði í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn
_________og Irítt í öll tieki i' carðinimi _
STALLONE og Clinton taka höndum saman.
FÓLK í FRÉTTUM
HARRISON Ford í endurútgáfunni af Stjömustríði sem Lucas gerði árið 1977.
GEORGE LUCAS
TÖFFARAR og tryllitæki í Amerícan Graffiti, (‘73).
GEORGE Lucas og Sir Alec Guinness við tökur á Stjörnustríði ■
Star Wars, (‘77).
FINN mikilvægasti slagur kvik-
myndasögunnar var í uppsiglingu
i kringum áramótin, þegar fyrr
„undrabamið" George Lucas var
kominn í gang með fjórða verkið í
frægustu röð kvikmyndanna,
kennt við Stjömustríð - Star
M'ars. Ástæðan að myndin er sú
eina í augsýn sem hugsanlega get-
ur velt Titanic úr efsta sæti mest
sóttu myndar sögunnar. Margir
hugsuðu sér gott til glóðarinnar.
20th Century Fox var dreifingar-
aðili fyrri myndanna fyrir 15 ár-
um, hafði auk þess markaðssett
einstaklega velheppnaða endur-
komu þeirra á síðasta ári, sem
skilaði hundruðum milljóna dala í
kassann, og hóf myndbálkinn til
vegs og virðingar hjá nýjum
áhorfendum. Lucas lét þó ekkert
uppi fyrr en í vor. Universaí, sem
verið hefúr í miklum kröggfum,
gerði hosur sfnar grænar fyrir
Lucas, sem og MGM og Wamer,
sem gerðu honum gylliboð. Það
var þó Spielberg og hið nýstofn-
aða kvikmyndaver og dreifíngar-
fyrirtæki hans, Dreamworks SKG,
sem taldi sig sigurstranglegast,
enda þeir Lucas aldavinir og sam-
starfsmenn til Qölda ára. Vonbiðl-
amir vom því margir, en allt kom
fyrir ekki, Spieiberg var aldrei í
vafa um að það væri Fox sem
fengi alheimsdreifingarréttinn.
Lucas er fyrir löngu orðinn þjóð-
sagnapersóna í kvikmyndaheimin-
um, þrátt fyrir ungan aldur, (fædd-
ur 1944). Þó liggja ekki eftir hann
nema þrjár myndir sem leikstjóri,
en þvflíkar myndir! Lucas heftu-
hinsvegar verið þeim mun athafna-
samari sem framleiðandi, hefúr
unnið að 26 myndum sem sUkur.
Þeirra á meðal em Qölmargar af
stærstu aðsóknarmyndum kvik-
myndasögunnar, einsog þrennum-
ar sem kenndar em við Star Wars
og Indiana Jones. Þessar sex mynd-
ir hafa fært Lucas stjamfræðilegar
upphæðir, sem hann hefúr nýtt
með frábæmm árangri. Ma. í THX
hljóðkerfum, sem bæta hljómburð-
inn í kvikmyndahúsum um allan
heim, og í rekstri Industrial Light
and Magic (ILM), öflugasta tækni-
vers kvikmyndanna. Það stendur
t.d. á bak við liljóð- og sjónbrellur
nánast allra umtalsverðra kvik-
mynda samtímans.
Nú er Lucas semsagt kominn
aftur í gang, og hefúr nýlokið tök-
um á sinni fjórðu mynd í fullri
lengd, og gengur enn undir vinnu-
heitinu Star Wars IV. Myndin er
raunar sú fyrsta í sex mynd bálki,
því Star Wars, The Empire Stri-
kes Back og The Return ofthe
Jedi, vom myndir 3, 4 og 5. Nú er
Lucas semsagt byrjaður á byrjun-
inni. Mynd 1 verður fmmsýnd í
Bandarflgunum 26. maí að ári.
Hún er dýmst Stjömustrfðs-
mynda, kostar á annað hundrað
niilljónir dala. Með aðalhlutverkin
fara m.a. Liam Neeson, Samuel L.
Jackson og Fwan McGregor.
Mynd 2 verður væntanlega fram-
sýnd 2001, og sú þriðja, og síðasta,
2004.
Auk þess að leikstýra og frm-
leiða með undraverðum árangri,
hefur Lucas einnig skrifað hand-
rit margra vinsælustu mynda
sinna, einsog þrennanna beggja
og framhaldsmynda þeirra, en
von er á fjórðu myndina um Indi-
ana Jones árið 2000, heitir hún
Indiana Jones andthe Lost
Continent
Utan myndanna Qögurra í fullri
Iengd leikstýrði Lucas 8 stutt-
inyndum á skólaámm sínum, m.a.
heimildarmynd um jazztónlistar-
manninn Herbie Hancock. Þær
hlutu misjafna dóma, lfkt og
nokkrar þeirra mynda sem hann
hefur komið að sem höfundur eða
framleiðandi (oftast
hvorttveggja). Þ.á m.em skellir
einsog Radioland Murders, Will-
ow, Tucker, og hin alræmda
Howard the Duck. Það breytist
semsagt ekki allt í gull í höndun-
um á þessum snillingi, það em til
undantekningar.
Clinton til í að boxa
LEIKARINN og vöðvafjallið
Sylvester Stallone hjálpaði ný-
lega demókrataflokknum að
safna 60 milljónum króna með
því að halda kvöldverðarboð til
heiðurs Clinton bandaríkjafor-
seta á forvitilegu heimili sínu við
Biscayne-flóa í Miami.
Þangað komu 150 gestir sem
hver og einn borguðu 375.000
krónur í aðgang. Fyrir þann pen-
ing fengu þeir sjávarréttapaté og
nautalundir auk þess að fá að
kíkja á búgarð stórstjörnunnar.
Stallone setti hann á sölu síðasta
sumar, og enn hefur enginn
kaupandi fengist til að borga þá
20 milljarða sem hann vill fá fyr-
ir búgarðinn.
Veislan var haldin í stóm tjaldi
á hinu víðfeðma landi sem um-
lykur eignina, en þar er stöðu-
vatn gert af manna höndum og
neóklassískar styttur á víð og
dreif. í húsinu hans er svo dans-
salur, billjarðsalur, vfnkjallari
með tíu þúsund flöskum, bfósal-
ur, innanhússskotæfíngasvæði og
sérstök hvelfing í kjallaranum
undir pelsa, en það ku ekki vera
algengt í Flérida.
Stallone færði forsetanum box-
hanska úr fyrstu Rocky-myndinni
sinni að gjöf fyrir að vera lifandi
dæmi um mann sem heldur sífellt
áfram að beijast sama hvað
gengur á. Clinton var sammála
honum í því að hann hefði fengið
á sig nokkur högg og að nú væri
kominn tfmi til að hann kýldi til
baka. En eins og allir vita hefur
Ctinton varið miklu af túna sínum
í forsetastólnum til að glúna við
hin ýmsu hneykslismál.
SÍGÍLD MYNDBÖND
STJÖRNUSTRÍÐ
(„STAR WARS“) (1977)
★★★★
Ein vinsælasta mynd allra túna er
stórfenglegt ævintýri fyrir alla ald-
urshópa, og gerist í framtíðinni. Lu-
ke Skywalker (Mark Hamill) fer fyrir
hópi garpa sem telja m.a. tvö vél-
menni, ævintýramann og skipstjóra á
flutningageim.skipi (Harrison Ford)
og hinnar undarlegu áhafnar hans,
auk duiarfuHs-riddarans, valmennis-
ins ; og; visdónibrunnsins Obi-Wan
Kenobi (Alec Guinnes), sem samein-
ast til að bjarga alheimnum frá yfír-
töku hins illa Darth Vaders (rödd
James Earl Jones). Koma þeir Leu
prinsessu (Carrie Fisher), aftur á
stall. Ótrúleg spenna og gaman, hug-
myndaflug Ieikstjórans/handritshöf-
undarins ótrúlegt í þessari betrum-
bót á B-myndum fyrri ára um hetjur
og bófa útheimsins. Sannkallað Bíó.
Hlaut fjölda Óskarsverðlauna.
AMERICAN GRAFFITI (1973)
★★★!4
Stórkostlegur óður til sjöunda
áratugarins, tryllitækja, túberaðra
gellna, rokktónlistarinnar, rúntsins,
amorsleikja í aftursætínu, fyrstu
kynnana af áfenginu og hinu kyninu.
Höfðar til unglinga á öllum aldri, (að
maður tali ekki um ‘44 árganginn!).
Stemmningin er ólýsanleg og hópur,
þá lítt kunnra, ungra leikara, stend-
ur sig með miklum ágætum. Hér
gera garðinn frægan upprennandi
stórstjömur einsog Harrison Ford
og Richard Dreyfuss, auk Charles
Martin Smith, Paul Le Mat, Bo Hop-
kins, Kathleen Quinlain, Suzanne
Somers, Joe Spano, Wolfman Jack,
auk leikstjórans Rons Howard. Sí-
gild, margstæld mynd sem vekur
upp ljúfsárar endurminningar um
löngu gengið sakleysi og unaðslegt
áhyggjuleysi æskuáranna. Ekki orð
um það meira, annars fær maður
kökk í hálsinn!
THX 1138 (1971)
'k'kVír
Vísindaskáldsöguleg mynd sem er
ólík öðrum myndum leikstjórans og
byggð á stuttmynd sem hann gerði á
skólaárum sínum við University oí
South California. Gerist í framtíðinni
þegar allt er steypt í sama mótið og
lífsgleðin gleymd og grafin. Fólkið.
nánast einsog vélmenni. Robert Du-Í
vall leikur mann sem gerir tilraun tí-
il að losna úr helsinu. Ekki skemmtí-
leg mynd en forvitnileg og áhuga-
verð vegna sérstöðu sinnar.
Sæbjörn Valdimarsson