Morgunblaðið - 14.07.1998, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HVALFJARÐARGÖNGIN
ÞóssvmKi
sinii.ni
wBBm
Morgunblaðið/Ámi Sæberj
KLIPPT á borðann. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, nýtur hér aðstoðar Páls Sig’urjónssonar, stjórnarformanns Fossvirkis, en þeini til halds og trausts er barnabarn Páls, Sigríður C
Johnson. Að baki þeim má sjá Halldór Blöndal, samgönguráðherra.
Hátíðarstemmning við opnun Hvalfjarðargangamia
Dýrasta samgöng’umann-
virki landsins tekið í notkun
ÞAÐ ríkti sannkölluð hátíðar-
stemmning þegar Hvalfjarðar-
göngin voru opnuð síðastliðinn
laugardag. Fjölmargir gestir voru
viðstaddir athöfnina sem fram fór
við gangamunnann sunnanmegin.
Þeirra á meðal voru þingmenn,
ráðherrar og sveitastjórnarmenn,
fulltrúar Vegagerðarinnar, fulltrú-
ar Spalar ehf. og Fossvirkis og
starfsmenn þeirra. Veðrið var eins
og best verður á kosið, heiðskírt
og hægur andvari og hafði fólk það
á orði að þarna ríkti sannkölluð
þjóðhátíðarstemmning.
Opnunarhátíðin hófst með því að
lúðrasveit Akraness spilaði en að
því búnu hélt Páll Sigurjónsson
stjómarformaður Fossvirkis ávarp
og bauð gesti velkomna. í ræðu
sinni sagði hann að þessi nýi kafli á
þjóðvegi 1 væri mikilvægur hlekk-
ur í vegakerfi landsins og þáttur í
auknu öryggi vegfarenda sem um
Hvalfjörð fara. Þá lýsti hann verk-
inu og sagði að unnið hefði verið
samkvæmt ýtrasta gæðakerfi. Fyr-
irfram hefðu verið gerðar verk-
lagsreglur þar sem fram kæmi
hvemig bmgðist skyldi við tilvik-
um sem upp kæmu. Sagði hann að
meðal annars þess vegna hefðu
engin alvarleg slys orðið á fólki og
verkinu lokið mörgum mánuðum á
undan áætlun. í lok ræðu sinnar
þakkaði hann öllum þeim sem
lögðu hönd á plóginn og þá sér-
staklega Skanska og Pihl & Son.
Margir voru
vantrúaðir
Fjölmenni var við opnun Hvalfjarðar-
ganganna sem tekin voru 1 notkun á laug-
ardag. Hugi Hreiðarsson var á staðnum
og fylgdist með því sem fram fór.
Gísli Gíslason, stjórnarformaður
Spalar ehf. og bæjarstjóri Akra-
ness, tók síðan til máls og sagði
hann að verkið hefði í upphafi
mætt vantrú margra. „Við Spalar-
menn emm stoltir yfir að hafa
fengið tækifæri til að glíma við
þetta verkefni sem þola mátti van-
trú margra en einnig stuðning öfl-
ugra og framsýnna aðila sem lögðu
lóð sín á vogarskálarnar." Lýsti
hann síðan aðdraganda ganga-
gerðarinnar og sagði hann það
flókið samspil smárra og stórra at-
vika en þó væri gmnnurinn sam-
starf Sementsverksmiðju ríkisins,
íslenska jámblendifélagsins og
Akraneskaupstaðar. Að endingu
færði hann fram þakkir fyrir
stuðning Davíðs Oddssonar, for-
sætisráðherra. „Það er ekki á allra
vitorði að góða hlutdeild átt þú í
þessu verki og lengi höfum við vilj-
að þakka þér fyrir þann stuðning
sem þú hefur veitt.“ Að því búnu
Morgunblaðið/Hreinn Magnússon
UM 2000 manns tóku þátt í hlaupinu undir Ilvalfjörð og þótti mörgum
síðustu metrarnir upp brekkuna erfiðir.
óskaði hann mannvirkinu farsæld-
ar og gæfu.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, hélt síðan ávarp og sagði
hann að opnun ganganna væri
handan þeirra drauma sem menn
höfðu um samgöngumannvirki
íyrr á öldinni. Sagði hann stundina
góða og gleðilega og að opnunin
væri tímabært þjóðþrifaverkefni.
„Við skulum vænta þess að þessi
atburður muni hvetja okkur til
áframhaldandi dáða landi og lýð til
heilla og blessunar." Að því búnu
lýsti hann göngin formlega opnuð.
Mikill manníjöldi
fylgdist með
Þegar athöfninni við suðurenda
ganganna var lokið hélt hópurinn
sem leið lá inn í göngin og fór þar
fyrstur bfll forsætisráðherra.
Rúmum tíu mínútum síðar voru
gestirnir komnir út norðanmegin
og dagskráin hófst. Mikill mann-
fjöldi var þar samankominn og
Karlakór Reykjavíkur söng fyrir
gesti. Fyrstur tók til máls Anton
Ottesen, oddviti Innri-Akranes-
hrepps og héraðshöfðingi. Þótti
ræða hans bæði skemmtileg og
frumleg. Sagði hann forvera sína í
sveitinni vafalaust mundu hafa