Morgunblaðið - 14.07.1998, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
Öðruvísi fyrirtæki
1. Billjardstofa, ein sú elsta í borginni og þekktasta. Vönduð
atvinnumannaborð. Ertilbúinn að skipta stofunni fyrir skyndi-
bitastað. Laus strax. Mikill áhugi er fyrir þessari íþrótt.
2. Einstök föndurverslun til sölu. Nýlegar innréttingar. Fráþær
staðsetning. Nú eru allir að föndra. Óteljandi möguleikar. Sann-
gjarnt verð.
3. Söluturn með tveimur bílalúgum og góðri veltu. Vinsæll staður
með löngum opnunartíma. Góð og þægileg innkeyrsla. Góður
kostur til tekjuöflunar.
4. Söluturn í strætóskýli. Spilakassar sem gefa miklar tekjur.
Bílalúga. Þekktur staður. Vel staðsettur. Gott verð. Ótrúlega
lág húsaleiga.
5. Skyndibitastaður sem selur mest til þeirra sem taka með sér
heim. Einn þekktasti kjúklingastaður landsins á frábærum stað.
Góð stöðug velta. Mikið af góðum tækjum fylgja með.
6. Blómaverslun sem er eins og blóma- og gjafavörumarkaður.
Stór og mikil verslun vel, staðsett innan um fjölmenni. Full
búð af listrænum hlutum. Frábær söluaðstaða og vinnuaðstaða.
Öðruvísi blómabúð og skemmtilegri með endalausa möguleika.
Sanngjarnt verð.
7. Verktakafyrirtæki.Til sölu körfubíll, einstaklega vel útbúinn
og í góðu standi. Er með öll leyfi. Frábærtvinnutæki og góðir
tekjumöguleikar fyrir aðra en hvítflibba. Hafðu samband.
8. Að lokum eitt besta og þekktasta steikhús landsins í hjarta
borgarinnar. Endalausir möguleikar enda býður staðsetningin
upp á það. Nautin fjúka út jafnvel í logni. Mikil velta.
Aldrei meira úrval af góðum fyrirtækjum á skrá.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUÐURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
VIÐSKIPTI
s
Urskurður Samkeppnisráðs um lyíjaútboð sjúkrahúsa
Leiðir ekki til skaðlegrar
fákeppni í lyfjadreifingu
SAMKEPPNISRÁÐ telur ekki
ástæðu til að bregðast við kvörtun
Samtaka verslunarinnar - Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna - f.h. lyfja-
hóps samtakanna, yfir sameiginleg-
um innkaupum sex sjúkrahúsa, í
samstarfi við Samstarfsráð sjúkra-
húsanna, á ákveðnum flokkum lyfja.
Deilan snerist um lögmæti út-
boðsins út frá 10. grein samkeppn-
islaga sem er svohljóðandi:
„Samningar og samþykktir, hvort
heldur þær eru bindandi eða leið-
beinandi, og samstilltar aðgerðir
milli fyrirtækja á sama sölustigi eru
bannaðar þegar þær lúta að eða er
ætlað að hafa áhrif á:
a. Verð, afslætti eða álagningu.
b. Skiptingu markaða eftir svæðum,
eftir viðskiptavinum eða eftir sölu
og magni.
c. Gerð tilboða.
Samvinna á sama sölustigi um
leiðsögn við útreikning á verði, af-
slaetti og álagningu er bönnuð.
í erindi Samtaka verslunarinnar
til Samkeppnisstofnunar hinn 15.
júlí 1997 er m.a. bent á að útboðið
leiði til þess að kaupendum á lyfja-
markaði fækki, um leið og þeir verði
stærri. Slíkt dragi ótvírætt úr virkri
samkeppni enda aðeins um einn
kaupanda að ræða í stað sex annars.
Væru sjúkrahúsin hvert fyrir sig og
óháð hvert öðru á markaðnum væru
mun meiri Iíkur á að sum næðu hag-
stæðari kaupum en önnur og þannig
væri um virka samkeppni að ræða á
viðkomandi markaði. Þá er einnig
bent á að verðlagning lyfseðils-
skyldra lyfja sé ekki frjáls. Sam-
kvæmt 40. grein lyfjalaga ákvarðar
opinber nefnd, lyfjaverðsnefnd, há-
marksverð lyfja bæði í heildsölu og
smásölu. Því sé það í hæsta máta
óeðlilegt að á sama tíma og umrædd
nefnd, sem starfi í þágu og á ábyrgð
heilbrigðisráðherra, skammti inn-
flytjendum og framleiðendum lyfja
hámarksverð íyrir vöru sína, sækist
heilbrigðisstofnanir eftir öðru og
lægra verði en því sem heilbrigðis-
yfirvöld ákvarða. Samtökin telja
hinar samstilltu aðgerðir draga úr
samkeppni á lyfjamarkaði. Þær feli
í sér ólögmætt samráð og brjóti því
í bága við 10. grein samkeppnislaga.
Samtökin telja einnig að útboðið
brjóti í bága við 53. grein samnings-
ins um Evrópska efnahagssvæðið
en þar er skýrt tekið fram að allt
samráð varðandi kaup- eða söluverð
sé bannað.
Utgjöldin greidd
úr einum sjóði
Samkeppnisráð sér hins vegar
ekki ástæðu til að aðhafast í málinu.
I niðurstöðu ráðsins er bent á sam-
eiginleg innkaup sjúkrahúsanna
sex: Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri, Landspítalans í Reykja-
vík, Sjúkrahúss Reykjavíkur,
Sjúkrahúss Akraness, Sjúkrahúss
Suðurlands á Selfossi og St. Jósefs-
spítalans í Hafnarfirði, lúti ekki að
sölustarfsemi á neinn hátt, heldur
sé um að ræða innkaupastarfsemi
fyrir innanhússnotkun umræddra
sjúkrahúsa. Þá er einnig tekið mið
af því að þrátt fyrir að um sé að
ræða samvinnu sex sjúkrahúsa, þá
eru útgjöld þeirra greidd úr einum
sjóði, ríkissjóði. Þannig sé í raun
ekki hægt að líkja sameiginlegum
innkaupum sjúkrahúsanna til eigin
nota við samstarf óskyldra íyrir-
tækja á markaði.
Þau sex sjúkrahús sem taka þátt í
umræddu útboði óska eftir tilboðum
í ákveðna lyfjaflokka, þ.e. krabba-
meinslyf, blóðskortslyf, svæfingar-
lyf og þunglyndislyf. Þrír fyrst
nefndu flokkarnir eru að megin-
stefnu til aðeins notaðir innan
sjúkrahúsa eða læknastofa, en
þunglyndislyf má einnig kaupa sam-
kvæmt lyfseðli í almennum apótek-
um. Af ofangreindu dregur sam-
keppnisráð þá ályktun að lyfja-
markaðurinn sem um ræðir í þessu
máli sé að mestum hluta lyf til notk-
unar á þeim sjúkrahúsum sem taka
þátt í útboðinu enda þótt þunglynd-
islyf séu hluti af hinum almenna
lyfjamarkaði.
I niðurstöðunni segir einnig:
„Binditími útboðs þess sem mál
þetta snýst um er aðeins eitt ár, þ.e.
gengið er til samninga til eins árs í
senn við hlutaðeigandi tilboðsgjafa.
Að þeim tíma liðnum eru að öllu
jöfnu sömu og/eða fleiri lyf boðin út.
Það sem samkeppnisyfirvöld þurfa
að meta eru hin samkeppnislegu
áhrif sameiginlegra innkaupa í kjöl-
far útboðs. Hvort útboðið kunni að
leiða til fákeppni á markaði lyfja-
birgjanna. Að teknu tilliti til þess að
binditími skv. útboðinu er tiltölu-
lega stuttur og samið kann að vera
við fleiri en einn birgja hvers lyfs,
telur samkeppnisráð ekki ástæðu til
að ætla að útboð eins og það sem
hér um ræðir leiði til skaðlegrar fá-
keppni í lyfjadreifingu sbr. 17. gr.
samkeppnislaga".
OIOOHO
1010-1 j
lOIOlOIOIOOOOOIiOOIOIOOlOIOOOOOOH!!
)01 1000 1 100 00 1 1,01 1 1 1 00010 1 01
or
Mfi*6?d!b1?,WfR(i.ftyi88g(Pil8RiqgA8R,9ó?cm,Wt6!
■mr 'ú, i__m ~ii~tó-{-*
ÖI8W<P.&
ði JÍX &■■■■■■■■
i i i \ .■ :*.-.. •. ■. c -o
■ jjrj' r í 'f f v< f t v- i '
viðskiptatölvur
-J- löOOOOOlOOOOli
0 0.101 0101
clioooioooon
sSÉ
, Dell OptiPlex™ GX1
InteÞPentium® II 266 MHz örgjörvi
iiitiiiioiiioioioioic32 MB minni »3,2 GB diskur•
15" VL skjár»2xAGP 4MB skjákort • Hljóðkort
Uppfæranleg í 400 MHz örgjörva
3Com FastEtherlink XL 10/100 netkort
Verð kr. 139.900,-
Dell OptiPlex™ G1
IntePPentium'' II 266 MHz örgjörvi
32 MB minni • 2,1 GB diskur •
15" VL skjár • AGP 2MB skjákort
Uppfæranleg í 400 MHz örgjörva
Verð kr. 129.900,- stnr.m.usk*
pentlum'J
OptiPlex™
meú Intel® Pentium®ll örgjörvum
Dell, Dell merkiö og OptiPlex*1 eru skrásett
vörumerki Dell Computer Corporation.
IntekE) inside mertaö og Intel® Pentium® eru skrásett
vörumerti og MMX er vörumerki Intel® Corporation.
Dell OptiPlex™ E1
IntePCeleron"1 II 266 MHz örgjörvi
32 MB minni • 3,2 GB diskur •
15" VLskjár* AGP 2MB skjákort
3Com FastEtherlink XL 10/100 netkort
Verð kr. 119.900,- «ar.m.vsk»
*Verð fyrir aðila að rammasamningi Ríkiskaupa RK-302
Tilboðið gildirtil 31. júlí 1998 - 3ja ára ábyrgð
ftp://www.ejs.is • sala@ejs.is