Morgunblaðið - 14.07.1998, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
KIRKJUSTARF
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, vinur og afi,
KRISTJÁN JÚLÍUSSON
bifvélavirkjameistari,
Kambsvegi 16,
Reykjavík,
sem lést þann 9. júlí sl., verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 17. júlí kl. 13.30.
Soffía Kristjánsdóttir, Jóhannes Ó. Sigurðsson,
Vilborg Kristjánsdóttir,
Guðmundur Kristjánsson,
Ólöf Svandís Eiríksdóttir
og barnabörn.
t
Móðir okkar,
FJÓLA LÚTHERSDÓTTIR
frá Bláfeldi,
lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
sunnudaginn 12. júlí.
Jóhannes Lúther Gíslason,
Sæmundur K.B. Gíslason
og fjölskyldur.
t
Fóstursonur okkar,
ARNBJÖRN GÍSLI HJALTASON,
lést á heimili sínu, Selvogsgrunni 3, mánudaginn 6. júlí.
Útförin hefur farið fram. Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug.
Fyrir hönd barna hans og annarra aðstandenda,
Sigríður Sigurðardóttir
og Ólafur Karvelsson.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, fóstur-
móður, ömmu og langömmu,
EMILÍU DAGNÝJAR
SVEINBJARNARDÓTTUR,
síðast til heimilis á Dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
sem jarðsett var fimmtudaginn 9. júlí.
Börn, tengdabörn, barnabörn og stjúpbörn.
ELIN
BJÖRGHEIÐUR
ANDRÉSDÓTTIR
+ EIín Björgheiður Andrés-
dóttir fæddist á Snotrunesi
í Borgarfirði eystra 16. febr-
úar 1920. Hún lést á sjúkra-
húsinu á Egilsstöðum 6. apríl
síðastliðinn og fór útför henn-
ar fram frá Bakkagerðiskirkju
11. apríl.
Björgheiður frænka mín er látin
eftir stutt en erfið veikindi.
Það eru margar myndir sem
koma fram í hugann er ég minnist
hennar. Björgheiður var mjög
kraftmikil og einstaklega dugleg
kona, kvik í hreyfingum og létt á
fæti. Hún hafði létta lund og var
hláturmild, sá oft spaugilegu hlið-
arnar á málunum.
í svona nánu sambýli eins og
var heima á Nesi kynnist fólk
mjög vel og var Björgheiður af-
skaplega góður og ljúfur ná-
granni. Hún var barnelsk og fékk
ég ekki síður en aðrir að njóta
þess. Það var oft svo notalegt að
sitja í eldhúsinu hjá henni, spjalla
og horfa á hana vinna, því það var
gaman að horfa á hana vinna,
handtökin voru svo örugg og rösk-
leg. Það var sama hvað hún gerði,
hvort hún var úti á túni í heyskap
eða að skúra gólfin, allt var unnið
fljótt og vel. Heimili hennar bar
vitni um að þar fór kona sem tók
til hendinni, alltaf var hreint og
snyrtilegt hjá Björgheiði.
Það sem einkenndi hana fyrst
og fremst var þó umhyggja fyrir
öðrum, bömin hennar og barna-
börnin nutu mikillar umhyggju
hennar og eins var um aðra, hún
var alltaf tilbúin að gefa af sér,
þarfir annarra gengu fyrir.
Eftir að þau Björgheiður og
Hjalti fluttust í Egilsstaði, fannst
mér óskaplega tómlegt að koma
heim í Nes, enginn umgangur yfir
í enda, ekkert hlaupið niður stig-
ann og engin notaleg hljóð úr eld-
húsinu bárast yfir til okkar. Ég
saknaði þess mikið.
Síðustu skiptin sem ég hitti
Björgheiði voru síðastliðinn vetur
þegar hún dvaldi á sjúkrahúsinu
hér í Neskaupstað. Hún var sjálfri
sér lík, þrátt fyrir veikindin, gerði
að gamni sínu og spjallaði létt við
mig, spurði mikið um börnin mín
og hvort mér liði ekki vel, alltaf
sama góða Björgheiður.
Ég vil þakka Björgheiði góða og
gefandi samveru í gegnum öll árin
sem við áttum saman.
Blessuð sé minning hennar.
Hulda Eiðsdóttir.
t
Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og langa-
langamma,
MARGRÉT HJÖRDÍS PÁLSDÓTTIR,
Fannafelli 4,
Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 9. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 15. júlí kl. 10.30.
Jarðsett verður frá Siglufirði fimmtudaginn 16. júlí kl. 10.30.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Guðlaugur Ch. Guðjónsson,
Alma Birgisdóttir,
Elíngunnur Birgisdóttir,
Runólfur Birgisson, Hólmfríður Alexandersdóttir,
Kristrún Gunnlaugsdóttir,
Björn Birgisson, Álfhildur Þormóðsdóttir,
Filippus Hróðmar Birgisson,
Þorsteinn Birgisson, Ragnheiður Steinbjörnsdóttir,
Þormóður Birgisson, Eyrún Pétursdóttir
og barnabarnabarnabörn.
Sumarstarf í
Garðasókn
í SUMAR verða guðsþjónustur í
Garðasókn kl. 20.30 í stað 11 á
sunnudagskvöldum, og munu þær
vera með svolítið léttara sniði. Þess-
ar kvöldguðsþjónustur verða í
Vídalínskirkju og einu sinni í mán-
uði í Garðakirkju.
Kirkjan er opin frá kl. 9 á morgn-
ana til kl. 21 á kvöldin. Hún er at-
hvarf frá erli hversdagsins þar sem
möguleiki gefst til að hugsa málin í
ró og næði.
í kirkjunni er ljósberi þar sem
hægt er að kveikja á kerti til minn-
ingar um ástvini eða þá til bæna-
gjörða. Tekjum af ljósberanum er
varið til styrktar ungu fólki í Garða-
bæ.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, altarisganga, fyrirbæn-
ir. Léttur málsverður á eftir.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Langholtskirkja.Ungbarnamorg-
unn kl. 10-12.
Seltjarnarneskirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma tO sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara í Kirkjuhvoli milli kl. 13-16
alla þriðjudaga í sumar. For-
eldramorgnar eru á miðvikudögum
kl. 10-12. Bæna- og kyrrðarstundir
eru á fimmtudagskvöldum kl. 22,
kaffi og létt meðlæti á eftir.
Skilafrestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: I sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. I mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eft-
ir að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu
greina, enda þótt þær birtist
innan hins tiltekna skilafrests.
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Söluskáli Skeljungs
Þorlákshöfn
Leitum aö áhugasömum aðila til aö taka
aö sér rekstur skálans í Þorlákshöfn.
Gott tækifæri fyrir einstakling eöa samhent
hjón til aö byggja upp sjálfstæðan
atvinnurekstur og vinna að frekari þróun
verslunar og þjónustu á staðnum.
Nánari upplýsingar veita
Arndis Sigurgeirsdóttir rekstrarstjóri
Shellstööva eða Rebekka lngvarsdóttir
starfsmannastjóri Skeljungs hf.
i síma 560-3800.
Pípulagnir
Vantar pípulagningamenn í vinnu. Einnig
nema í pípulagnir.
Upplýsingar í síma 892 3639, fax 565 3167.
Snittvélin ehf.
Ólafur Guðmundsson pípuiagningameistari.
Frá Hafralækjarskóla
Laus er staða yfirmanns
skólamötuneytis
Staðan veitist frá 1. september nk. Laun sam-
kvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfé-
laga og Verkamannasambands íslands.
Umsóknarfrestur er til 21. iúlí nk.
Nánari upplýsingar veitir Dagur Jóhannesson
oddviti á skrifstofu Aðaldælahrepps í síma
464 3510, þriðjudaga—föstudaga frá 13.30—
17.30. Heimasími 464 3520.
Leikskólinn Sælukot
óskar eftir leikskólakennara eða aðstoðar-
manneskju í fullt starf frá 17. ágúst. Um fram-
tíðarstarf er að ræða. Uppl. gefurforstöðukona
í síma 552 7050 eða 562 8533.
Tölvumyndvinnsla
Viljum ráða starfsmann til vinnslu á myndefni
fyrir sjónvarp. Unnið er í tölvu og SP-Beta-
tækjum. Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl.
merktar: „Tæknimaður" fyrir 19. júli.
Traustur hluthafi
óskast með allt að 50% eignaraðild í
huga að þekktu innflutningsfyrirtæki
með 300 millj. króna ársveltu.
Miklir framtíðarmöguleikar.
Áhugasamir sendi inn umsóknir á
afgreiðslu Mbl. merktar: „A — 5341"
fyrir laugardaginn 18. júlí.