Morgunblaðið - 14.07.1998, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 14.07.1998, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998 15 HVALFJARÐARGÖNGIN GÍSLI GÍSLASON, stjórnarformaður Spalar ehf. var glaður í bragði enda miklum áfanga MYNDAST hafði löng röð við opnun ganganna og til að tryggja að mengun færi ekki upp lokið. Með Gísla á myndinni er Hallbera Jóhannesdóttir eiginkona hans, Ólafur Þór fyrir leyfileg mörk var bifreiðum hleypt niður með vissu millibili. Hauksson sýslumaður á Akranesi og Guðný Ólafsdóttir eiginkona hans og Haraldur Jo- hannessen, ríkislögreglustjóri. INGÓLFUR Gissurarson kom fyrstur hlaupara í mark á tfmanum 22.40 í þessu eina Hval- fjarðargangahlaupi sem haldið verður. í LOK hátfðar var gestum boðið í hóf í Akraborginni og sigldi hún með gesti yfír göngin í Hvalfirði og þaðan til Reykjavíkur. KARLAKÓR Reykjavíkur söng fyrir gesti norðanmegin ganganna. Þótti hljómburður munnans mjög góður og var kórnum ákaft fagnað í lok hátfðar. notið góðs af göngunum ef þein’a hefði notið við. „Ekki er ótrúlegt að þessi leið hefði verið farin þegar farið var með Jón Hreggviðsson í varðhald á Bessastaði en Jón bjó við rætur Akraíjalls. Þá segir sag- an að hinn frækni útileguþjófur Hannes Pálsson hafi haldið til í hellisskúta í Akrafjalli og er trú- legt að hann hefði brugðið sér í göngin af og til enda var hann af Kjalarnesinu. Þá hefði líklega einnig farið um hann ef hann hefði frétt að gera ætti Akrafjall að um- ferðareyju." Þá tóku einnig til máls Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra og fyrsti þingmaður Vesturlands, og Halldór Blöndal, samgönguráð- heira, sem sagði m.a. daginn vera sigur fyrir íslendinga. „í dag er sigurdagur og mér finnst ég vera að horfa til framtíð- ar þegar að ég horfi á þann mikla mannfjölda sem er hér samankom- inn og ég held að þeir möguleikar sem göngin bjóða upp á séu jafn margir og fjöldinn sem hér er staddur." Þá sagði hann göngin opna nýja möguleika í atvinnumálum og ferðaþjónustu, sem og skapa aukið öryggi og spara tíma. Þá tók hann undir orð Páls Sigurjónssonar stjórnarformanns Fossvirkis, um að notkun mannvirkisins yrði slík að þörfin fyrir önnur göng við hlið- ina á hinum nýju væru raunhæfur kostur. Formlegri opnunardagskrá lauk með söng Karlakórs Reykjavíkur og þótti hljómburður munnans skila söng kórsins prýðisvel og var honum ákaft fagnað í lok dag- skrárinnar. Eftir sönginn héldu boðsgestir til Akraness og fóru þar um borð í Akraborgina. Þar var haldið hóf og var gestum boðið upp í siglingu til Reykjavíkur. í stað þess að fara hina hefðbundnu leið var siglt inn Hvalfjörð og yfir göngin þar sem þau lágu 165 metrum neðar. Þótti ferðin góður endii’ og um leið tákn- rænt lokaverkefni skipsins fyrir samgöngukerfi landsins. Fjölmargir tóku þátt í hlaupinu Síðar um daginn tóku hátt í 2000 manns þátt í Hvalfjarðarganga- hlaupinu sem Reykjavíkurmara- þon stóð fyrir. Þátttakendur voru á öllum aldri bæði hjólandi, hlaup- andi, gangandi og á línuskautum. Fyrstur í mark kom Einar Jó- hannsson, hjólreiðakappi, en það tók hann rúmar 12 mínútur að hjóla göngin. Fyrsti hlauparinn í mark var Ingólfur Gissurarson en hann hljóp á tímanum 22.40. Sagði hann hlaupið hafa verið erfitt og að nokkur mótvindur hefði verið á leiðinni upp brekkuna. Margir þeirra sem hlupu fóru síðan í sund á Akranesi en aðrir héldu strax sömu leið til baka. Umferð var síðan hleypt á göng- in klukkan 18:56 en þá hafði mynd- ast rúmlega 100 bíla röð. Að sögn lögreglu var sá fjöldi minni en bú- ist hafði verið við og þakkaði hún réttri kynningu forsvarsmanna ganganna en þeir höfðu varað við umferðaröngþveiti. Þóttu göngin standast vel þá umferð sem hleypt var á fyrsta daginn og engin stór vandamál komu upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.