Morgunblaðið - 14.07.1998, Page 22

Morgunblaðið - 14.07.1998, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Morgunblaðið/Páll Pálsson SÉÐ yfir mótssvæðið. Melgerðismelar stóðust landsmótsprófið og eru nú komnir á kortið eins og einn viðmælenda blaðamanns orðaði það. Melgerðis- melamenn stóðust lands- mótsprófið Allt er gott sem endar vel. Þau orð eiga vel við um afstaðið landsmót hestamannafé- laga á Melgerðismelum í Eyjafírði. Eftir langa og stranga göngu, sem aldrei virtist ætla að ljúka, urðu lyktir þær að glæsilegt landsmót var haldið á Melgerðismelum. Hestamannafélögin á Norðausturlandi stóðust allar raunir og buðu Valdimar -------------*--—-------------- Kristinssyni, Asdfsi Haraldsdóttur, Asdísi Asgeirsdóttur og öðrum áhuga- mönnum um hestamennsku sem fylgdust með upp á eitt glæsilegasta mót sem haldið hefur verið hér á landi. Mótið hafði vissulega alþjóðlegt yf- irbragð og var það jafnvel enn meira áberandi fyrstu daga móts- ins, en þá var fjöldi erlendra aðdá- enda íslenska hestsins mættur á mótsstað. Var haft á orði að varla heyrðist íslenska tóluð og er talið að aldrei hafi jafnmikill fjöldi útlend- inga komið á landsmót. Fyrr á árinu óttuðust margir að hitasóttin og fylgifiskar hennar hefðu þær afleið- ingar að útlendingar hættu við að koma á landsmót, en þær spár rætt- ust svo sannarlega ekki. Þetta leiðir hugann að því hvort ekki mætti gera betur við erlenda gesti á stór- mótum. Til dæmis að þýða helstu fyrirsagnir í annars ágætri móts- skrá á ensku og þýsku. Þess ber þó að geta að útvarpað var á þýsku og ensku á mótinu og hefur það án efa hjálpað mikið. Eftir því sem nær dró helginni fjölgaði gestum jafnt og þétt og á laugardag og sunnudag var þéttset- ið í áhorfendabrekkunni. Talið er að Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson HÓPREIÐ landsmótsins var haldin að þessu sinni á laugardagskvöldi sem mæltist vel fyrir þegar áhorfenda- brekkan var þéttskipuð í stað þess að örfáir morgunhanar hafa fylgst með hópreiðinni á sunnudagsmorgni. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdðttir Frá keppni í skeiði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.