Morgunblaðið - 18.07.1998, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 7
FRÉTTIR
Tívolíið á Miðbakka
Meiri að-
sókn og
engar
kvartanir
AÐSÓKN að tívolfinu á Miðbakk-
aiium í Reykjavík hefur verið
svipuð og í fyrra og kannski
heldur meiri ef eitthvað er, að
sögn Jörundar Guðmundssonar
sem stendur fyrir komu tívolísins
hingað til lands. I ár er boðið upp
á fleiri tæki en gert hefur verið
síðastliðin sumur.
Jörundur þakkar góðu veðri
aðsóknina auk þess sem nú er
boðið upp á fleiri fjölskyldutæki
en áður. „Við erum með meira af
tækjum fyrir minna fólkið því ég
vil höfða meira til fjölskyldu-
fólks. Þetta er jú fjölskyldu-
skemmtun og þannig vil ég halda
því,“ sagði Jörundur í samtaii við
Morgunblaðið.
Undanfarin ár hefur þónokkuð
verið kvartað yfir hávaða sem
berst frá tívolfinu en Jörundur
segir að í ár hafi engar kvartanir
borist. „Þetta gengur alveg skín-
andi og eldra fóik sem kemur
með barnabörnin hefur sagt við
mig að þetta sé mun þægilegra
núna. Nú heyrist tóniistin bara
rétt við tækin.“
Þýskur sirkus væntanlegur
Tívolfið verður í Reykjavík til
3. ágúst næstkomandi. Jörundur
gerði í fyrra nýjan 5 ára samning
við fyrirtækið sem á tívolfið
þannig að von er á því hingað til
lands næstu íjögur ár, að
minnsta kosti.
Gatnamálastjóri vegna framkvæmda verktaka á vegum Reykjavíkurborgar
Akveðnar
reglur gilda
um merkingar
ÁKVEÐNAR reglur gilda hjá
Reykjavíkurborg fyrir verktaka
varðandi merkingar vegna gatna-
framkvæmda. Segir Sigurður
Skarphéðinsson, gatnamálastjóri í
Reykjavík, aðspurður að við útboð
sé beinlínis gert ráð fyrir kostnaði
vegna slíkra merkinga. I 86. grein
umferðarlaganna segir m.a. að þar
sem vegavinna fari fram eða vegi
sé raskað þannig að hætta stafi af
sé þeim er stjórnar verki skylt að
sjá um að staðurinn sé merktur á
fullnægjandi hátt.
Tilefni fyrirspurnarinnar er les-
endabréf Steinunnar Önnu Gunn-
laugsdóttur í Morgunblaðinu í gær
þar sem hún kvartar yfir lélegri
merkingu vegna framkvæmda við
Skálholtsstíg og lýsir hættu sem
börn hennar stóðu frammi fyrir á
gangstétt götunnar.
Gatnamálastjóri segir að um-
ræddar framkvæmdir séu ekki á
vegum borgarinnar en hugsan-
lega eigi einhver borgarstofnun í
hlut. Hann segir þá reglu hafa
verið setta nýverið að við útboð
framkvæmda á vegum borgarinn-
ar sé verktökum bent á að til-
greina kostnað vegna áætlaðra
merkinga. Slíkar merkingar segir
hann nauðsynlegar og reynt sé að
ýta undir þær. Þá hafi fulltrúar
borgarinnar rætt sérstaklega við
verktaka og lögreglu vegna slíkra
mála. Sigurður segir að mikið hafi
breyst til batnaðar í þessum mál-
um en Ijóst sé að gera þurfi enn
betur.
Þá má geta þess, vegna atburðar
sem Steinunn Anna lýsir í blaðinu í
gær er fjögurra dóttir hennar
neyðist til að hörfa upp að girðingu
á gangstétt þegar bflar aka framhjá
á gangstéttinni þar sem skurður sé
á götunni, að umferðarlögin leggja
ökumönnum sérstakar skyldur á
herðar gagnvart gangandi vegfar-
endum. Segir svo í byrjun 26.
greinar: „Ökumaður, sem mætir
eða ekur fram hjá gangandi vegfar-
anda, skal gefa honum tíma til að
víkja til hliðar og veita honum
nægilegt rými á veginum.
Ökumaður, sem ætlar að aka yfir
gangstétt eða gangstíg eða aka út á
akbraut frá lóð eða svæði við veg-
inn, skal bíða meðan gangandi veg-
farandi fer fram hjá.“
Bílheimar ehf.
Sœvarhöfða 2a
S: 525 9000
Aksturseiginleikar eru ekki spurning um
hámarkshraða. Saab aksturseiginleikar
snúast um að hafa stjórn á kröftum. Bæði
þeim utanaðkomandi kröftum sem verka á
bílinn, og þeim kröftum sem billinn skapar.
Hröðun, hemlun, tog og viðnám eru allt
kraftar sem hafa áhrif á bílinn og stjórnun
hans. Og allir þessir kraftar eru nýttir til
hins ýtrasta í Saab 9-5. Þegar við bætast
öflugar Saab forþjöppuvélar verður útkoman
betri aksturseiginleikar en i flestum
sportbílum.
Saab 9-5 vinnur á æðra stigi en aðrir bílar.
Bæði hvað varðar samskipti ökumans og
bíls, og hvað varðar getu bílsins til að auka
og draga úr hraða hratt og örugglega.
Fá fyrirtæki eru jafn upptekin af hárfinum
blæbrigðum hagnýtrar eðlisfræði og Saab,
enda hafa verkfræðingar Saab verið á mcðal
helstu brautryðjenda í biliðnaði síðustu 50
árin.
Saab 9-5 er nýjasta afurð þcirrar hefðar. Þu
verður að upplifa liana að Sævarhöfða 2a.
y
Alíir kraftar eru á þínu valdi.
Saab