Morgunblaðið - 18.07.1998, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 18 . JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Sveitarstjóri Skútustaðahrepps segir
vanta reglugerð vegna nýrra áfengislaga
Þrjú vínveitingaleyfi
í hreppnum í uppnámi
REGLUGERÐ vegna nýrra áfeng-
islaga, sem tóku gildi 1. júlí síðast-
liðinn, hefur enn ekki verið gefin út
en er væntanleg frá dómsmálaráðu-
neytinu í lok mánaðar. Sigbjörn
Gunnarsson, sveitarstjóri Skútu-
staðahrepps, segir sveitarstjórnum
ekki gerlegt að veita leyfi til áfeng-
isveitinga á veitingastað meðan
reglugerðin er ekki fyrir hendi og
séu þrjú leyfi í hans hreppi í upp-
námi.
Sigbjörn segir að í 14. grein
áfengislaganna sé krafist trygging-
ar af hálfu umsækjanda áður en vín-
veitingaleyfi er gefið út vegna
krafna á hendur honum ef til gjald-
þrotaskipta komi. Segir að dóms-
málaráðherra ákveði með reglugerð
upphæð og skilmála tryggingar.
Sigbjörn Gunnarsson segir því leyf-
isveitingamál í biðstöðu meðan
reglugerðin sjái ekki dagsins ljós.
Má veita Ieyfí með fyrirvara
Kolbeinn Árnason í dómsmála-
ráðuneytinu tjáði Morgunblaðinu að
þau boð hefðu verið látin ganga út
að meðan reglugerðin væri ekki
komin út væri heimilt að veita leyfi
með fyrirvara um setningu trygg-
ingar síðar.
Þá sagði Sigbjöm illmögulegt að
verða við því ákvæði að synja um
útgáfu leyfis ef hlutaðeigandi skuld-
aði skatta. Sveitastjóm hefði ekki
aðgang að skattaskuldum manna
hjá sýslumanni og því sæi hann ekki
hvernig þetta gæti komið til fram-
kvæmda. Hann sagði þrjú vínveit-
ingaleyfi í sínu sveitarfélagi í upp-
námi vegna þessa meðan reglugerð-
in væri ekki fyrir hendi. Hann sagði
hátt í tug aðila hafa vínveitingaleyfi
í sveitarfélaginu.
Hækkandi gengi skilar
sér óbeint til neytenda
GENGI íslensku krónunnar hefur
styrkst á undanfómum mánuðum
og til viðbótar gerir Seðlabankinn
ráð fyrir lækkun á innflutnings-
verði í erlendri mynt um 0,5% til
áramóta. Mat bankans tekur mið af
spá OECD frá því í júní en hún
gerir ráð fyrir 1,8% lækkun á út-
flutningsverði viðskiptalanda ís-
lands.
I samtölum við forráðamenn
hinna ýmsu innflutningsfyrirtækja
kemur fram að sterk staða krón-
unnar og stöðugleiki hennar hefur
skilað sér til neytenda en í mis-
miklum mæli þó. Nefndu nokkrir
að kreppan í Asíu hefði haft áhrif
en þar hafa þrengingar heima fyrir
kallað á aukinn útflutning ríkja álf-
unnar vegna minni eftirspumar
innanlands. Þá töldu sumir síaukna
samkeppni hluta af ástæðunni sem
jafnframt ylli meiri þrýstingi á
hagræðingu og aðhald í fyrirtækj-
um.
Meiri kaupauki
Hjá Toyota hefur verðlag haldist
óbreytt en að sögn Emils Gríms-
sonar, fjármála- og framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins, hefur kaup-
auki fyrir neytendur aukist. „Það
hafa engar beinar lækkanir átt sér
stað en aukabúnaður í bflum er
meiri. Sem dæmi má nefna að loft-
púðum og ABS-hemlakerfi hefur í
mörgum tilfellum verið bætt inn í
staðalbúnað nýrra bfla án þess að
það hafi hækkað verð þeirra,“
sagði Emil.
Hjá Heklu varð Sigfús Sigfússon
forstjóri fyrir svörum en hann seg-
ir að verð á bflum umboðsins hafi
verið óbreytt síðustu misseri.
„Verð á bflum okkar hefur haldist
óbreytt um langan tíma og litlar
breytingar eru í vændum, hvort
sem er til hækkunar né lækkunar.
Við gerum innkaup okkar með
framvirkum samningum þannig að
gengisáhætta er óveruleg. Þetta
fyrirkomulag hefur reynst vei en
þó eru öll okkar innkaup í stöðugri
endurskoðun til þess að tryggja að
við séum alltaf með samkeppnis-
hæft verð,“ sagði Sigfús.
Erfiðleikar í Asíu
Jón Eyjólfsson hjá Bflabúð
Benna, sem flytur inn Musso-jeppa
frá Suður-Kóreu, segir lækkun
hafa átt sér stað. „Við höfum frá
áramótum lækkað verð á Musso-
jeppum um 200 þúsund krónur og
þar hafa spilað inn í þær þrenging-
ar sem átt hafa sér stað í Asíu. Við
þurftum að ýta á eftir því að fá
lækkun en nú hefur hún gengið í
gegn. Þá teljum við þetta stöðuga
Áætlanir innflylj-
enda betri vegna
stöðugleikans
gengi undanfarin misseri hafa auk-
ið mikið söluna þar sem almenn-
ingur hefur bæði átt auðveldara
með að taka lán sem og að greiða af
þeim.“
Lækkun staðreynd
Að sögn Williams Gunnarssonar,
deildarstjóri söludeildar Heimilis-
tækja hf., hefur lækkun á inn-
kaupsverði skilað sér til neytenda.
„Það er engin spurning um það að
verðlækkun hefur skilað sér til
neytenda bæði hjá okkur og hjá
samkeppnisaðilum, og kemur þar
til bæði lækkun á innkaupsverði
sem og aukinni samkeppni. Sem
dæmi má nefna að algengt er að
sjónvarpstæki séu nú um 5.000
krónum ódýrari en um áramót og
einnig eru tilboð tíðari. Hins vegar
kaupum við inn í Norðurlanda-
gjaldmiðlum en þeir hafa lækkað
tiltölulega lítið.“
Draumastaða innflytjenda
Hjá Raftækjaverslun Islands
fengust þær upplýsingar hjá Þor-
keli Stefánssyni framkvæmda-
stjóra að verðlag frá áramótum
hefði að jafnaði lækkað um 1%.
„Þetta stöðuga gengi og styrking
íslensku krónunar hefur skapað
draumastöðu fyrir innflytjendur.
Sem dæmi má nefna að allar áætl-
anir eru betri, og þær taka yfír
lengri tíma. Við fáum alltaf morg-
unfréttir frá bönkunum þar sem
mjög ítarlegar upplýsingar koma
fram í gengismálum og ég hef
reynt að taka mið af þeim. Þetta
upplýsingastreymi hjálpar því okk-
ur á hverjum degi. Það er mjög
misjafnt í hvaða myntum við versl-
um en í heildina er það um 1%
lækkun sem átt hefur sér stað og
hefur það hefur skilað sér til neyt-
enda hjá okkur,“ sagði Þorkell.
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
HLJÓMSVEITIN Stormar var í gær að æfa fyrir dansleikinn í kvöld.
Þeir sögðust vera í jafngóðu formi og áður nema þeir þurfa gleraugu
til að Iesa texta og nótur.
Stormar spila
eftir 30 ára hlé
Sigluflrði. Morgunblaðið.
í KVÖLD mun hin sívinsæla en
næstum-því-gleymda hljómsveit
Stormar frá Siglufirði halda
stórdansleik á Hótel Læk á Siglu-
firði.
Hljómsveitin er að halda upp á
þau merku tímamót að þijátíu og
fimm ár eru síðan hún tók til
starfa og 30 ár síðan hún hætti.
Stormar spiluðu siðast á dansleik
árið 1968. Því fannst hljómsveit-
armeðlimum tilvalið að koma
saman nú á afmælisári Siglufiarð-
ar. Þeir eru allir í fínu formi eins
og fyrr þó þeir þurfi nú gleraugu
til að Iesa texta og nótur.
Hljómsveitarmeðlimir, sem all-
ir eru Siglfirðingar í húð og hár
þótt þeir búi víðs vegar um land-
ið, eru Árni Jörgensen (gítar),
Friðbjörn Björnsson (gítar), Hall-
varður Óskarsson (trommur),
Jósep Blöndal (píanó), Ómar
Hauksson (bassi) og Theódór Júl-
íusson (söngur og gítar). Hljóm-
sveitin sem stofnuð var 1963
byijaði sem skólahljómsveit. Hún
spilaði víða á Norðurlandi og á
stöðum eins og Glaumbæ og Lídó
í Reykjavík.
Komu fram á öðrum útsending-
ardegi Sjónvarpsins
Hljómsveitin Stormar var líka
ein fyrsta hljómseitin sem spilaði
í íslenska Sjónvarpinu, en hún
kom fram á öðrum útsendingar-
degi þess.
Hljómsveitarmeðlimir segjast
vera með svipaða efnisskrá og
fyrir rúmum 30 árum, þ.e. lög
frá 6. og 7. áratugnum, lög með
Kinks, Rolling Stones, Presley,
Bitlunum og Shadows enda eru
þeir Storma-menn sammála um
að sjöundi áratugurinn hafi verið
sannkölluð gullkista því það voru
svo mörg góð lög sem þá komu
fram og því yndislegt að rifja
upp þessa slagara þó það sé orðið
svolítið djúpt á þeim.
Þeir segja aðalmálið vera það
hversu óskaplega gaman er að
koma aftur saman. Þeir segja
framhaldið óráðið „en gamli um-
boðsmaðurinn okkur, Björn Jón-
asson sparisjóðsstjóri, tekur á
móti pöntunum og segja má að
Sparisjóður Siglufjarðar sé um-
boðsskrifstofan okkar“.
Fulltrúi starfsmanna í stjórn Samvinnulífeyrissjóðsins um skerðingu réttinda
GUÐRÚN Gísladóttir, annar full-
trúa starfsmanna í stjóm Sam-
vinnulífeyrissjóðsins og starfsmað-
ur Landflutninga Samskipa, segist
telja að félagsmenn í sjóðnum séu
almennt sammála um að það hafi
verið rétt ákvörðun hjá stjórn líf-
eyrissjóðsins að skerða áunnin rétt-
indi sjóðsfélaga um fimm prósent
frá síðustu mánaðamótum. Einstak-
ir sjóðfélagar hafa þó haft samband
við Morgunblaðið og sagst afar
óánægðir með ákvörðun stjórnar-
innar.
„Ég held að menn séu almennt
sammála um að til lengri tíma litið
sé þetta rétt ákvörðun," sagði Guð-
rún. „Við þetta kemur sjóðurinn til
með að eiga fyrir skuldbindingum,
sem gerir að verkum að það er búið
að tryggja að við öll fáum ellilífeyri
þegar þar að kemur. Hins vegar er
alveg ljóst að þeir sem eru að þiggja
greiðslur úr sjóðnum í dag eru ekki
jafnsáttir við þetta. En við sem er-
um að borga í sjóðinn erum heldur
ekki tilbúin til þess áfram að vera
að greiða niður íyrir hina eins og
hefur verið gert í gegnum árin.“
Hópur starfsmanna Landflutn-
inga Samskipa hefur á undanfóm-
um misserum verið fluttur úr Líf-
eyrissjóði verslunarmanna yfir í
Samvinnulífeyrissjóðinn í andstöðu
við a.m.k. hluta hópsins. Guðrún
kvaðst ekki telja að þessi ákvörðun
um skerðingu réttinda mætti sér-
stakri andstöðu þess hóps.
Starfsmenn
almennt sam-
þykkir ákvörð-
un stjórnar
„Það er búið að gera ákveðnar
breytingar. Við höfum verið að
borga meira í þennan sjóð en aðrir
borga, eða 11,5%. Um áramótin
verður sú breyting að þessi um-
framgreiðsla okkar fer í séreignar-
sjóð,“ sagði hún.
Guðrún sagði að fyrir fáum árum
hefðu fáir innan við sextugt hugsað
um hvernig þeir ætluðu að lifa af í
ellinni. „I dag erum við öll farin að
hugsa meira um þetta og gera okk-
ur grein fyrir að þetta skiptir máli.
Það er ekki ólíklegt að menn hafi
áður verið ósáttir við að greiða í
Samvinnulífeyrissjóðinn þegar hann
stóð mjög illa. Það á ekki við lengur
og ég held að fólk telji hagsmunum
sínum ágætlega borgið innan þessa
sjóðs. Það hlýtur að skipta öllu mál-
ið að sjóðurinn sem maður er í eigi
fyrir skuldbindingum," sagði Guð-
rún. „Samvinnulífeyrissjóðurinn á
það sannanlega í dag. Það eru hins
vegar ekki mörg ár síðan ég sá fram
á eins og margir aðrir að ellilífeyrir-
inn minn væri horfinn og ég fengi
ekki neitt. Þá var ég að borga í Líf-
eyrissjóð VR en ekki í neinn Sam-
vinnulífeyrissjóð. Þetta eru erfið-
leikar sem flestir hafa verið að
ganga í gegnum."
Meiri réttindi en
iðgjöld stóðu undir
Margeir Daníelsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnulífeyris-
sjóðsins, sagði í samtali við Morg-
unblaðið af og frá að ákvörðun um
skert réttindi tengdist erfiðleikum
vegna uppgjörs skulda Sambands-
ins eða kaupum Samvinnulífeyris-
sjóðsins á húseign Sambandsins við
Kirkjusand enda hefði sjóðurinn
engu tapað á þeim viðskiptum.
I Morgunblaðinu í gær sagði
Hrafn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Sambands almennra lífeyris-
sjóða, að lækkunin yrði best skýrð
með því að Samvinnulífeyrissjóður-
inn hefði þurft að sæta því að búa
við neikvæða vexti á tímum óða-
verðbólgu lengur en aðrir sjóðir
sem stofnaðir voru löngu síðar.
Margeir var spurður álits á þessum
ummælum og sagði þá að sjóðurinn
væri sextíu ára gamall. „Það er ekki
bara það heldur var réttinda-
ávinnslan framan af miklu meiri en
hún er í dag, hún var mun meiri en
iðgjöldin gátu staðið undir."
Margeir sagði að uppbygging
sjóðsins væri mjög lýðræðisleg. At-
kvæðamagn færi eftir innborguðum
stigum og í fjögurra manna stjórn
sjóðsins sætu tveir fulltrúar starfs-
manna og tveir fulltrúar launagreið-
enda. Margeir sagði að réttinda-
breytingin snerti að mjög takmörk-
uðu leyti þá hópa sem gengið hafa í
sjóðinn síðustu mánuði. „Það er
bara verið að skerða eldri tímann.
Nýi tíminn er óskertur og réttindin
frá 1. júlí í raun betri en þau voru
áður. Menn borga í raun 10% fyrir
sömu réttindi og 11,5% áður.“