Morgunblaðið - 18.07.1998, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 19
NEYTENDUR
Verðkönnun Alþýðusambandsins, BSRB og Neytendasamtak-
anna í stórmörkuðum í Reykjavík, á ísafírði og Akureyri
Mesta lækkunin hjá
10-11 og Hagkaupi
Hlutfallslegur verðmunur milli mat-
vöruverslana á höfuborgarsvæðnu
meðalverð úr21 verslun = 100
BONUS
74
Ef matarkarfan kostar
að meðaltali 10.000 kr
á landsvisu, þá kostar
hún 7.400 kr.
I Bónus
102
102
104
Hlutfallslegur verðmunur milji mat-
vöruverslana í Eyjafirði og á ísafirði
meðalverð úr öllum verslunum = 100
KEA NETTO, Akureyri
83
HAGKAUP, Akureyri
89
KEA, Hrisalundi
93
SAMKAUP, Isafirði
VALBERG, Olafsfirði
KEA, Sunnuhlíð
KJORBUÐIN, Kaupangi
KEA, Byggðavegi
ELÓ, Skeiði Isafirði
KEA, Dalvik
JÓNSABÚÐ, Grenivík
KEA, Hrísey Ö—Q
Ef matarkarfan
kostar að
meðaltali
10.000 kr.á
landsvisu, þá
kostar hún
8.300 kr.i
Nettó
101
104
106
106
107
108
113
114
116
VERÐLÆKKUN í Hagkaupi eftir
breytinguna Hagkaup/Nýkaup varð
til að lækka verð í 10-11 verslunun-
um og fleiri verslunum að því er
fram kemur í verðkönnun ASI,
BSRB og Neytendasamtakanna 8.
júlí sl. Matarliður vísitölunnar
lækkaði um 2,2% vegna lækkunar á
matvöru samkvæmt upplýsingum
Hagstofunnar. Könnunin náði til 8
matvöruverslana á höfuðborgar-
svæðinu, 11 verslana á Eyjafjarðar-
svæðinu og 2 á Isafirði. A höfuð-
borgarsvæðinu var verðið lægst í
Bónusi, þá 10-11 og svo í Hagkaupi.
Á Eyjafjarðarsvæðinu og Isafirði
var verðið lægst í KEA Nettó.
Hæst var verðið í KEA Hrísey.
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs sem er eigandi Hagkaups,
Nýkaups og Bónuss, segir að niður-
staða könnunarinnar komi ekki á
óvart. „Parna kemur fram að verð
hafi lækkað í Hagkaupi og lækkunin
hafi jafnvel orðið meiri en talað var
um eða 6-7%. Ekki hafi heldur orðið
verðhækkun í Nýkaupi. Á hinn bóg-
inn sýna okkar kannanir ekki sömu
niðurstöðu varðandi 10-11 og Hag-
kaup. Annars virðist skipta miklu
máli hvað velst í körfuna í 10-11 því
að í nýlegri DV-könnun er 10-11
dýrari en Nýkaup. Hagkaup er
alltaf á svipuðu róli. Hvað þjónustu
varðar er þjónustustig Hagkaups
mun hærra en 10-11. I Hagkaups-
búðunum geta viðskiptavinir valið
úr hátt í 40.000 vöruliðum á meðan í
10-11 eru aðeins 2.500 vöruliðir.
Þjónustustigið er svo enn hærra í
Nýkaupi. Eg get nefnt í því sam-
bandi kjöt- og fiskborð, heitan mat
og salatbar og svona væri hægt að
telja áfram,“ segir Jón Ásgeirs og
leggur áherslu á að verðmunur í
Bónusi, Hagkaupi og Nýkaupi verði
íyrst og fremst rakinn til mismun-
andi þjónustustigs.
Hann tekur íram að gerð hafi verið
athugasemd við könnun Neytenda-
samtakanna. „Við höfum ýmislegt við
könnunina að athuga. Ég get t.a.m.
nefnt að ekki er eðlilegt að taka alltaf
íyrir sömu vöruliðina, ljóst verður að
vera að verið sé að bera saman verð á
sömu vörunni, t.d. ungnautasnitsel,
og áfram væri hægt að telja,“ sagði
hann. „Við emm sjálfir að gera mun
öflugri verðkannanir, byggðar á 700
til 800 vöruliðum. Valið byggist á því
hvað vísitalan gerir ráð íyrir að rað-
ist í matarkörfuna en því miður virð-
ast Neytendasamtökin ekki hafa far-
ið sömu leið.“
Ætlum að halda okkar sæti
Eii-íkur Sigurðsson, kaupmaður í
10-11, segir að fyrir utan langan af-
greiðslutíma sé áhersla lögð á
hreinar og fallegar búðir, hágæða
vöru og lágt vöruverð í 10-11 búðun-
um. Stefnt sé að því að verðlagning
sé um eða undir Hagkaupsverði.
„Við erum auðvitað mjög ánægð yf-
ir því að vera lægri en Hagkaup.
Með því að fylgjast með og lækka
verð hjá okkur höfum við gert betur
en að vera með sama verð. Ekki
verður heldur litið fram hjá því að
verð hækkaði í Hagkaupi fyrir Hag-
kaup/Nýkaup breytinguna í vor.
Verðið í Hagkaupi þurfti því að
lækka enn meira. Annars vekur at-
hygli að með því að lækka verð í
Hagkaupi, þ.e. Hagkaupsverslunun-
um í Reykjavík, á Akureyri, í
Njarðvík og svo í Smáranum, er að-
eins verið að lækka verðið í 25% af
matvöruverslun fyrirtækisins.
Stærsti hluti viðskiptavinanna eða
75% greiðir áfram hærra verðið í
Nýkaupi. Þar fyrir utan verð ég að
játa að mér finnst vera óheiðarleg
vinnubrögð gagnvart viðskiptavin-
inum að kaupa vöru inn á sama
verði og selja á þremur jafn mis-
munandi verðum og í Bónusi, Hag-
kaupi og Nýkaupi."
Eiríkur var spurður að því hvern-
ig fyrirtækinu tækist að halda verð-
inu jafnlágu. „Verslunarkeðjan hef-
ur stækkað hratt eða í 11 verslanir
á sex og hálfu ári. Þróunin hefur
hjálpað okkur að minnka kostnað-
inn því með meira umfangi fást
betri innkaup. Við höfum reynt eftir
bestu getu að láta tæknina hjálpa
okkur og spörum með því talsverð-
an kostnað. Ótalið er að við höfum
alltaf lagt áherslu á að yfirbygging-
in í fyrirtækinu sé í algjöru lág-
marki. Annars erum við baráttuglöð
og ætlum að halda okkar sæti.“
Ekki ósáttir
Einar Jónsson, framkvæmda-
stjóri Nóatúns, segir að verðlagning
hafi verið að lækka í Nóatúni. „Við
höfum verið að lækka okkur og
nálgast gamla Hagkaupsverðið. Nú
erum við á sama verði og því alls
ekki ósáttir. Framhaldið er að gera
enn betur og bjóða upp á lægra
vöruverð en sambærilega þjónustu
og Nýkaup. Annars höfum við haft
ákveðinn fyrirvara á könnunum
Neytendasamtakanna. Vinnuað-
ferðir eru að sumu leyti gagnrýnis-
verðar fyrir utan að á meðan jafn-
mikill titringur er á markaðnum
getur mismunurinn á milli tveggja
verslana falist í dagsformi. Mér
finnst heldur ekki rétt að sleppa
ákveðnum aðilum eins og Þinni
verslun úr. Sú verslunarkeðja gefur
sig út fyrir að vera stærri en við í
samningum við birgja," segir Einar
og tekur fram að könnunin gefi til
kynna að ekkert sé hæft í orðrómi
um að verð hafi hækkað í Nýkaupi.
„Þar höfum við komist að sömu nið-
urstöðu," bætir hann við.
Mismunandi verð í KEA
Eins og áður segir var kannað
verð í ellefu verslunum á Eyjafarð-
arsvæðinu og í tveimur verslunum á
fsafirði. Eins og fram kemur á
neðra súluritinu var verðið lægst í
KEA Nettó. Verslunin er lágvöru-
verslun ems og Bónus og því nokk-
uð frábrugðin öðrum matvöruversl-
unum. Á hæla KEA Nettó er Hag-
kaup á Akureyri og er ódýrust
keðjuverslana og stórmarkaða á
Eyjafjarðarsvæðinu. Á eftir Hag-
kaup kemur svo KEA Hrísalundi.
Eins og í fyrri könnunum er verð
í KEA á Dalvík rúmum 3% hærra
en KEA á Ólafsfirði. KEA er eina
verslunin í Dalvík en á Olafsfirði er
KEA í samkeppni við verslunina
Valberg sem tekur þátt í innkaupa-
samstarfi undir heitinu Þín verslun.
Verðið í Valberg er 5% lægra en í
KEA. Verð var kannað í tveimur
verslunum á ísafirði, eins og áður
segir, Samkaupum og Eló. Verðlag
var lægra í Samkaupum eins og
fram kemur á súluritinu.
A galdraglóðum
Náttúrulegar grill
og steikarolíur
Morgunblaðið/Arnaldur
SIGFRÍÐ og Sævar við sýnishorn af afurðum Pottagaldra.
Rekstur fyrirtækisins hefur undið upp á sig og til stendur að
ráða þriðja starfsmanninn til fyrirtækisins í haust. Hingað til
hefur Jónína Haraldsdóttir starfað með Sigfríð.
SIGFRIÐ segist vera að þreifa fyrir sér
með Pottagaldra á erlendum markaði, í
Bandaríkjunum og Bretlandi. Þá séu
uppi áform um að flytja ákveðið magn
til Kanada.
Víkinga grillteinn
I BOKINNI Pottagaldrar-
Galdrabók er að finna ýmsar
uppskriftir af ljúffengum máls-
verðum með kryddblöndum frá
Pottagöldrum. Ein uppskrift-
anna er Víkinga grillteinn.
Byrjið á því að tína saman hrá-
efnið:
Góðir bitar af vöðva
sveppir
laukur, skorinn í bita
paprika eða annað hentugt
grænmeti eftir smekk,
skorið í bita
Víkinga grili- og steikarolía
Víkings grill- og steikarolían er
borin yfir allt hráefnið. Þá er hrá-
efnið þrætt á tein, penslað með
olíu og síðan grillað.
Kebab kjúklingur á grillið
Kebab-kryddblöndunni er
stráð vel yfir kjúklingabita báð-
um megin. Kjúklingabitarnir eru
látnir bíða í nokkrar klukku-
stundir og því næst grillaðir á
gas- eða kolagrilli.
„ÉG VERÐ að viðurkenna að Sig-
fríð var svolítið erfið en á jákvæðan
hátt. Hún stóð nefnilega á því fastar
en fótunum að engin aukaefni
mættu vera í grillsósunum. Mun
þægilegra hefði verið að stytta sér
leið og grípa til ýmissa tilbúinna
efna,“ segir Sævar Kristinsson,
verkefnisstjóri hjá Iðntæknistofn-
un, á blaðamannafundi til kynning-
ar á Víkinga og Kebab grill- og
steikarolíu, auk Kebab-krydds, frá
Pottagöldrum.
Sigfríð Þórisdóttir, eigandi Potta-
galdra, bara hlær og tekur fram að
frá upphafi hafi verið miðað við að
nota aðeins náttúruleg efni í krydd-
blöndur fyrirtækisins. Sigfríð hóf
rekstur Pottagaldra með 8 krydd-
blöndum í 20 fm húsnæði árið 1993.
Smám saman undu viðskiptin upp á
sig og eru kryddblöndumar orðnar
24 talsins. Önnur afurð er Potta-
galdrar í Vínanda, sérvaldar krydd-
blöndur, vættar með ýmsum vínum.
Auk kryddblandnanna fer fram
pökkun á hefðbundnu kryddi, s.s
steinselju, oregano, timian o.s.frv. í
neytendapakkningar.
Sköpunarandi á sveimi
Nýjustu afurðir Pottagaldara og
tilefni blaðamannafundarins eru
Víkinga og Kebab grill- og steikar-
olía og Kebab-krydd. Sigfríð segir
að Jónas Þór kjötiðnaðarmaður,
sem er nýlátinn, hafi átt hugmynd-
ina að Víkinga grill- og steikarolí-
unni. „Jónas lét mig vita af því að
hann hefði verið að blanda saman
nokkrum kryddblöndum frá mér,
örlitlu af hinu og þessu, og olíu með
góðum árangri. Skemmst er frá því
að segja að ég og systir mín grilluð-
um ekki öðruvísi en með heimalag-
aðri grillolíu allt sumarið í fyrra."
Sköpunarandinn var aftur á
sveimi um veturinn. „Ég hafði
ákveðið að bjóða gestum í mat og
kjúklingurinn lá ókryddaður á borð-
inu. Allt í einu var ekki um að villast
að þrjár af kryddblöndum Potta-
galdurs drógust saman svo úr varð
ný kryddblanda, vætt í olíu í skál á
borðinu. Ilminn af kjúklingnum
lagði út úr húsinu og kallaði fram
spurnarsvip á andlit matargest-
anna. „Hvað er eiginlega í matinn?"
var spurt um leið og komið var inn
úr dyrunum," segir Sigfríð og tekur
fram að Kebab-kryddið hafi orðið til
síðar í þróunarfcrlinu.
Iðntæknistofnun kemur
til skjalanna
Eftir að Víkinga grill- og steikar-
olían varð til óskaði Sigfríð eftir
stuðningi Iðntæknistofnunar um
framhaldið. Sævar Kristinsson hélt
utan um verkefnið fyrir hönd Iðn-
tæknistofunar og fólst stuðningur
stofnunarinnar annars vegar í fag-
legri aðstoð og hins vegar í fjár-
hagslegum stuðningi. Sigfríð leitaði
til Sól-Víking, Myllunnar, svína-,
nauta-, lambakjöts- og kjúklinga-
bænda þegar kom að kynningar-
átaki í vor.
Á hugann leitar hvernig gengið
hafi að koma „samkeppnisaðilunum“
saman. „Ég bauð þeim einfaldlega í
mat og allir voru sammála um að
taka höndum saman. Við höfum ver-
ið með kynningu í stórmörkuðunum,
boðið grillað kjöt eða kjúkling með
grillsósunum og Nan brauð frá
Myllunni skolað niður með Víkings-
pilsner," segir Sigfríð. Hún segir að
kynningarátakið hafi gengið mjög
vel og hægt sé að fá grillsósumar í
flestum matvömverslunum.
Hvað faglegar ráðleggingar
áhrærir kom fram á blaðamanna-
fundinum að Víkinga grill- og steik-
arolían hentaði sérstaklega vel á
lamba- og nautakjöt og Kebab grill-
og steikarolían hentaði betur á
svína- og kjúklingakjöt. Kjúklinga-
bitar með Kebab-kryddi fengu sér-
stakt hrós. Að lokum er mælt með
að kjötið sé látið liggja í grillolíunni
í nokkrar klukkustundir, helst sól-
arhring, áður en matreiðslan hefst.