Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 23 SEGA Dreamcast. Vinstra megin við tövuna, sem er 19x19,5 cm að flatarmáli og 7,8 cm á hæð, er stýripinni, en hægra megin er Visual Memory minniskortið. Sega-stjórar brattir SLAGURINN á leikjatölvumark- aðnum er langt í frá búinn, þó einn helsti keppandinn, Sega, hafi farið halloka með Saturn-leikjatölvu sína. Sega-menn hyggjast ótrauðir halda áfram að glíma, enda eftir miklu að slægjast, og horfa þá til væntan- legrar leikjatölvu sinnar, Dr- eamcast, sem þer telja muni koma fyrirtækinu á toppinn að nýju. Dreamcast-tölvan var kynnt með hamagangi í síðastliðnum mánuði, en framan af voru upplýsingar nokkuð á reiki um hvers kyns tölv- an yrði, aukinheldur sem myndir voru af skornum skammti. Úr því rættist fyrir skemmstu og þá bárust fjölmiðlum ítarlegar upplýsingar um tölvuna og myndir fylgdu. Vél- búnaður Dreamcast er mjög öflug- ur, enda er tölvunni ætlað að slá við Nintendo 64, sem er í dag fullkomn- asta leikjatölva á markaði. Sega Dreamcast verður með 200 MHz 128 bita RISC örgjörva frá Hitachi sem skilar 360 MIPS, millj- ón aðgerðum á sekúndu, eða 1,4 GFLOP. Grafíkin verður keyrð með endurbættri gerð PowerVT ör- gjörvans frá NEC, sem skilað getur þremur milljónum fjölflötunga á sekúndu sem er talsvert meira en fáanlegt er í PC-samhæfðum tölv- um í dag en verður fáanlegt á næstu misserum. Sérstök þrívídd verður í höndum VideoLogic. Yamaha legg- ur til örgjörvasett fyrir hljóðstýr- inguna. Kjarninn í því setti verður 32 bita RlSC-örgjörvi en rásir verða 64. Yamaha og Sega hafa hannað í sameiningu sérstakt geisladrif sem lesið getur diska sem rúma meira en hefðbundir geisla- diskar, aukinheldur sem það er samhæft stýrikerfi til að auka lestr- arhraða, en snúningshraði er 12x. Innra minni tölvunnar verður 16 MB, en hægt að geyma 4 MB af gögnum, og stýrikerfið Windows CE sem sniðið verður fyrir hana. Litapalettan verður 16,77 milljónir lita. Rúsínan í pylsuendanum verð- ur síðan að Windows CE styður TCP/IP sem er samskiptastaðall Netsins og því hægt um vik að tengja mótald við tölvuna og spila netleiki. Fyrstu fregnir hermdu reyndar að mótald yrði innbyggt í tölvuna, en það fékkst ekki staðfest. Einnig gerðu margir því skóna að geisladrifið yrði DVD, en sam- kvæmt fréttatilkynningunni er það ekki svo. í kynningarefni leggur Sega einna mesta áherslu á það sem fyr- irtækið kallar sjónminni, Visual Memory. Það er minnisspjald með stýrihnöppum og skjá. Það má til að mynda tengja beint við stýripinn- ann og nota þá sem minni til að geyma leiki, breyta leikstillingum eða álíka. Hægt er að nota minniskortið sem eins konar auka- skjá í leik, til að mynda þegar tveir eru að keppa samtímis. Þannig get- ur sá sem hefur minniskort sér til halds og trausts breytt leikskipulagi í íþróttaleik án þess að andstæðing- urinn sjái hvað hann er að gera, notað skjáinn á minniskortinu sem ratsjá eða kannað hvað hann á af vopnum og verjum. Einnig má nota minniskortið til að lesa stöðu í leik, setja inn á aðra Dr- eamcast-tölvu og taka upp þráðinn, eða setja uppáhalds fígúruna sína þar inn eða höggfléttu í slagsmála- leik. Á skjánum er hægt að sjá hvaða gögn eru í minni án þess að tengjast Dreamcast-tölvu. Síðan má tengja tvö minniskort saman og þannig skiptast á gögnum og fara í leiki. Eftir því sem kynningarfulltrúar Sega segja verður grúi af leikjum til í tölvuna þegar þær fyrstu koma á markað í Japan síðar á árinu, enda stýrikerfíð Windows CE eins og getið er með DirectX stuðningi og tilheyrandi. Leikjaframleiðendum muni því reynast auðvelt að semja leiki fyrir vélina eða breyta leikjum til að þeir gangi í hana, en það varð meðal annars Saturn fjötur um fót hversu snúið var að semja fyrir hana leiki. LEIKUR Cardinal Syn, leikur fyrir PlaySta- tion frá Kronos Digital Entertain- ment. Leikurinn styður anaiog- stýripinna og -titrara. KRONOS Digital Entertainment gaf nýlega út slagsmálaleikinn Car- dinal Syn. Kronos hefur verið held- ur lítið þekkt til þessa en nú lítur allt út fyrir að það slái í gegn með Cardinal Syn. Cardinal Syn er leikur sem líkist töluvert nýlegum leikjum eins og Dead Or Álive og War Gods. í Car- dinal Syn er þó ekki hægt að deyða persónumar í lok hvers bardaga og ekki eins miklu blóði úthellt. I byrjun leiksins sést myndband sem sýnir sögu leiksins og einnig er sýnt myndband þegar hver persóna er valin. Þessi myndbönd eru þau allra flottustu sem greinarhöfundur hefur séð á PlayStation til þessa og gefa leiknum meiri trúverðugleika og drunga en þekkst hefur til þessa. Hægt er að velja um átta persón- ur til þess að slást með í jafnmörg- um borðum. Hver persóna hefur eigið borð sem á greinilega við hana auk gjörólíkra hreyfinga og mis- munandi sögu á bak við sig. Mikil vinna hefur verið lögð í persónurnar og ekki verið til einskis, persónurn- ar hreyfast eins og þær væru tekn- ar upp með myndbandstökuvél og ekki sést ein villa þegar kemur að útliti eða hljóði. Tónlistin í leiknum er öll frum- MARGMIÐLUN Engin dráp takk samin og breytist ört eftir borðum, á hún án vafa stóran part í því hversu spennandi leikurinn er. Nýjung er í Cardinal Syn sem hefur hingað til ekki sést mikið í slagsmálaleikjum. Hægt er að fá aukinn styrk, vopnið getur orðið öfl- ugra og fleira. Þetta er hægt með því að brjóta kassa sem liggja á víð á dreif um baráttuvöllinn. Þetta er ótrúlega þægilegt þegar kemur að því að berjast við þann allra erfiðasta í leiknum, Syn sjálfa. Ef lesandi á tvo stýripinna og vin getur hann barist við hann, ákveðið hversu margar lotur hann vill hafa, hvort blóð sjáist eða ekki, hvort um- hverfið í borðunum geti verið skað- legt og svo framvegis. Margir val- möguleikar eru í þessum leik. Það, sem ábótavant hefur verið í fyrri slagsmálaleikjum, er góður söguþráður. Þessi leikur hefur raunar söguþráð eins og allir hinir slagsmálaleikirnir en það sem fram- leiðendur þessa leiks gera er að þeir gera söguna áhugaverða. Þetta ger- ir leikinn mun meira spennandi því maður bíður alltaf eftir að eitthvað sérstakt gerist eftir því sem maður kemst lengra í leiknum. Cardinal Syn er slagsmálaleikur af bestu gerð en því miður bara enn einn slagsmálaleikur. Ingvi M. Árnason Lyklabrot á mettíma í TAKT við aukin tölvusamskipi og flutning á ýmsmum persónu- legum gögnum yfir Netið skiptir dulritun æ meira máli. Fram að þessu hafa menn yfirleitt látið sér nægja að notast við svonefnda 56 bita dulritun sem gríðarlega erfitt er að brjóta upp. I vikunni kynntu áhugamenn um dulritun vél sem brotið getur upp 56 bita lykluð skilaboð á hálfum þriðja sólar- hring. Yfirvöldum víða um heim óar við því hvað gerast mun ef allir hafa aðgang að dulritun, enda telja þau að með því væri misind- ismönnum aukin leti. Því þurfi hið opinbera að eiga höfuðlykil sem opnað geti alla lása og að auki lögðu bandarísk yfii’völd blátt bann við útflutningi á öflugri dul- ritun en 56 bita. Þau halda því reyndar fram að 56 bita dulritun sé kappnóg og vilja lögleiða svo- nefndan DES-staðal, því ill- eða ómögulegt sé að brjóta hana upp. Tölvufróðir hafa margir mót- mælt þessu enda var lásinn brot- inn upp á sínum tíma með tugþús- undum tölva sem tengdar voru yf- ir Netið. Tók 86 MlPS-ár, en MIPS er mælieining yfir milljónir aðgerða á sekúndu, að brjóta upp ein stutt skilaboð. Gefur augaleið að svo mikið mál er að koma slíku í kring að er ekki á færi nema vis- indamanna. Lengi hafa fræði- menn reyndar rætt þann mögu- leika að búa til tæki sem brotið gæti upp DES-lykiI á skömmum tíma .og almennt verið sammála um að það sé mögulegt. Þá var það að áhugamenn um dulritun í Electronic Frontier Foundation, EFF, tóku sig til og settu saman slíkt tæki, hlóðu örgjörvum á spjald og tengdu við venjulega heimilistölvu. Tæpt ár tók að búa tækið til og kostaði um fimmtán milljónir króna sem er mun minna en nokkur ætlaði. EFF-menn kalla tækið DES Cracker og það var ekki nema þrjá daga að brjóta upp DES-dul- rituð skilaboð. Tækið, sem er ör- gjörvasafn á móðurborði, byrjaði vinnu á mánudagsmorgni og leit- aði að rétta lyklinum án afláts í 56 tima þar til það gat brotið upp skilaboðin. Alls prófaði það 88 milljarða lykla á sekúndu. I tilefni af smíði vélarinnar gaf síðan O’ReilIy útgáfan út bók um tilurð hennar, en frekari upplýsingar er að fá á slóðinni http://- www.eff.org/descracker/. Metaðsókn að HM-vefnum VEFUR heimsmeistarakeppninnar í Frakklandi sló öll met í aðsókn þá daga sem keppnin stóð og þegar mest lét, 20. júní sl., voru heim- sóknirnar 74 milljónir, sem telst met. Gamla heimsóknametið átti vefsetur Ólympíuleikanna í Naga- no, 58 milljón heimsóknir. í fréttatilkynningu frá Hewlett Packard, HP, kemur fram að fyrir- tækið annaðist allar tölvutengingar og umstang vegna þeirra á keppn- inni. Þannig hýsti HP vefsetrið www.france98.com, og setti reynd- ar upp spegla í Bandaríkjunum og Japan til að anna eftirspurninni. Einnig voru miðar á keppnina seld- ur fyrii’ tilstuðlan sölukerfis sem HP setti upp og prentaðir á HP prentara, hálf þriðja milljón miða alls. Flestir þeir sem rötuðu inn á vefslóð HP voru að leita að upplýs- ingum um keppnina, leiki og fleira, en þeir voru einnig fjölmargir sem kynntu sér hvað var á boðstólum í vefverslun keppninnar, því þangað ráku nefið inn þrjátíu milljónir manna og af þeim keypti milljón sér eitthvað til minja um mótið. SIEMENS Léttur og nettur DORO SlimLite SEIUSOR 300 Flottur simi fínu verði með Simi r numerabirti Geymir 30 númei BT • SKEIFAN 11 • SIIVII 550-4444 • POSTKROFUSIIVIINN 550-4400

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.