Morgunblaðið - 18.07.1998, Síða 27

Morgunblaðið - 18.07.1998, Síða 27
b MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 27 il 1970 í Listasafninu skoða ferða- nsson og Þorvald Skúlason. Morgunblaðið/Jim Smart BARBARA Lustenberger frá Sviss skoðar Vernissage eftir Olaf Gíslason á sýningunni Stiklað í straumnum á Kjarvalsstöðum. „Það gefur landslagssýn íslenskra listmálara enn meira vægi að hafa ferðast um landið og upplifað mótíf þeirra með eigin augum..,“ Morgunblaðið/Amaldur FRÁ austursal Kjarvalsstaða þar sem Qallað er um sýn Kjarvals annars vegar og hins vegar yngri listamanna á fslenskt landslag. Hér fyrir ofan er verkið Regntjöld vorsins eftir Kjarval frá 1926 til ‘64 og til hægri Sumamótt á Þingvöllum (tileinkað J.S. Kjarval) eftir Ein- ar Garibaldafrá þessu ári. Morgunblaðið/Jim Smart pS Morgunblaðið/Arnaldur agu Listasafnsins undir yfirskriftinni Sviptingar á sjöunda ára- myndaröð eftir Þorvald Þorsteinsson. ÁN titils eftir Guðjón Ketilsson frá 1995. Verk í eigu Listasafns Reykjavíkur. hún ákvað að bregða sér á sýningu safnsins í heimsókn „heima“. Síðustu 30 ár hulin ráðgáta? Þegar leitað var álits viðmælenda á verkum frá 7. áratugnum og lokum þess 6. þegar andi súrrealismans og popp-listar svífur yfir vötnum, m.a. í verkum Errós og Jóhanns Eyfells, og síðan áhrif Fluxus-hreyfingarinn- ar hjá listamönnum eins og Magnúsi Pálssyni, Jóni Gunnari Árnasyni, Sigurði og Kristjáni Guðmundsson- um, situr í gestum að svara. Þó að þessi verk í öðrum salnum á efri hæð safnsins séu í beinu framhaldi af abstraktsjónum áranna milli 1950 og 1970 og sum hver meira að segja „hefðbundin" í þeim skilningi að þau eru nálægt því að vera 30 ára þá er eins og listneytendur séu margir f hverjir ekki enn tilbúnir að kyngja hinu nýja myndmáli þar sem gamalli formhyggju er varpað fyrir róða. Listin fer að vísa beint til veruleik- ans og er allt í senn myndir, texti, gjörningur, leikhús og sjónvarp. Jane Connell sagðist hafa það fyr- ir venju að sækja sumarsýningu Konunglegu Listaakedemíunnar í Lundúnum ár hvert. „Og þar er nú ýmislegt að finna sem höfðar engan veginn til mín þó mér þyki forvitni- legt að fylgjast með því sem hæst ber hverju sinni,“ segir Jane. Af nýrri verkum á sýningunni tiltók hún verk eftir Georg Guðna og ann- að eftir Húbert Nóa, Málverk af málverki, hvort tveggja verk frá þeim tíma þegar endurvakning mál- verksins var á 9. áratugnum og lista- menn leituðu ýmist nýrra leiða við að vinna út frá náttúrunni og lands- lagshefð frumherjanna eða grófust fyrir um inntak myndmálsins og listasögunnar - tilvistarvanda mannsins við aldarlok. I sýningarsal í kjallara hanga uppi verk þriggja grafíklistamanna; Sigrid Valtin- gojer, Valgerðar Hauksdóttur og Hafdísar Olafsdóttur. „Þjóðarlista- söfnum ber að halda á lofti list sinn- ar þjóðar,“ segir Jane. „Þess vegna býst ég við að yfirlitssýning sem þessi sé nauðsynlegur árviss við- burður." Samræður ólíkra tíma Stiklað í straumnum er yfirskrift sumarsýningar Listasafns Reykja- víkur á Kjarvalsstöðum en auk þess stendur yfír fram að Menningarnótt í Reykjavík í ágúst sýning á verkum Errós í nýju húsnæði safnsins í Hafnarhúsinu sem opnuð var á Listahátíð. Eins og nafnið ber með sér þá er ekki reynt að rekja sögu nútíma- myndlistar í námkvæmri tímaröð á þessari sýningu heldur fremur leit- ast við að stilla saman verkum sem unnin eru út frá ólíkum forsendum á ýmsum tímum - „það eru listaverkin sjálf sem hafa orðið“, eins og segir í grein Þorbjargar Br. Gunnarsdóttur safnvarðar í bæklingi með sýning- unni. Barbara Lustenberger frá Sviss var stödd á Kjarvalsstöðum ásamt ungum syni sínum og lét vel af tímaflakki verkanna frá fortíð til samtíðar og aftur til baka. Hún var að koma frá því að skoða verk Kjar- vals og yngri listamanna í austursal. Frá Lómagnúp og Skjaldbreið Kjar- vals er horfið til Sumarnætur á Þingvöllum eftir Einar Garibalda, verk sem hann tileinkar Kjarval. Þau Kristinn E. Hrafnsson, Roni Horn, Guðrún Kristjánsdóttir, Elísabet Haraldsdóttir, Daníel Magnússon, Eggert Pétursson og Georg Guðni hafa líka öll sína per- sónulegu nálgun við landslagshefð- ina. Og þar sem Barbara virti fyrir sér hljóðverk Finnboga Péturssonar, Móttaka, á ganginum stóð hún sjálfa sig að því að vera farin að stíga létt dansspor í takt við slátt verksins. Hinum megin veggjar á ganginum, móts við garðinn, standa taflmenn Jóns Gunnars Arnasonar vígreifir. „Það er skemmtilegt að fá sýnishorn af íslenskri myndlist á ólíkum tímum svona sitt á hvað, samspilið er bæði óvenjulegt og athyglisvert," segir Barbara. „Ég glími sjálf við að mála og af þeim verkum sem ég hef séð hér þá er það tvímælalaust Kjarval sem höfðar mest til mín. Hann sýnir íslenska náttúru í svo skemmtilegu ljósi.“ Til að gefa hugmynd um náið sam- spil ólíkra verka í sýningarsölunum má nefna verkin í Vestursal þar * saman eru komin verk eftir Alfreð Flóka, Rúrí, Erró, Guðrúnu Hrönn Ragnarsdóttur, Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur og Önnu Líndal í innsta rými salarins. í þessum sal eru einnig að finna verk eftir Tuma Magnússon, Guðrúnu Gunnarsdótt- ur, Magnús Tómasson, Harald Jóns- son, Ólöfu Nordal, Birgi Andrésson og Halldór Ásgeirsson auk innsetn- ingarinnar Vemissage eftir Ólaf Gíslason. Að lokum hittir blaðamaður að máli Steinar Kjosavik frá Noregi sem staddur var á safninu ásamt fjölskyldu sinni og höfðu þau fariðji, víða og skoðað sitthvað bæði af menningu og náttúru landsins. Steinar kunni ekki síður að meta verk samtímalistamanna en þeirra eldri, „þó að það sé erfiðara að lýsa þvi hvað það er nákvæmlega sem hrífur mig í nútímamyndlist þar sem samsetningar og efnistök verkanna eru svo margvísleg", bætir Steinar við. Hann segir aðspurður að það kunni vel að vera verkin á sýning- unni hafi til að bera einhver sér-ís- lensk einkenni þó að hann hafi ekld fundið áþreifanleg merki þess og að V'" raun virðist sér samtímamyndlist- inni svipa til þess sem hæst beri hjá norskum listamönnum um þessar mundir. Sýningu Listasafns Islands lýkur 6. september og sýning Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum stendur til 30. ágúst. i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.