Morgunblaðið - 03.09.1998, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
198. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tíðindalitlum leiðtogafundi Clintons og Jeltsins í Moskvu lokið
Clinton hvetur Rússa til
að halda umbótum áfram
Moskvu. Reuters.
BILL Clinton Bandai-íkjaforseti
hélt í gær frá Moskvu áleiðis til N-
írlands eftir tveggja daga leiðtoga-
fund með Borís Jeltsín, forseta
Rússlands. Lítill árangur er talinn
hafa orðið af fundinum og ræddu
ieiðtogarnir á mjög almennum nót-
um um áframhaldandi vináttu og
samstarf. Clinton bauð Jeltsín enga
fjárhagsaðstoð vegna efnahag-
skreppunnar í Rússlandi. Itrekaði
Clinton að forsenda frekari aðstoðar
vesturveldanna væri sú að Rússar
héldu áfram umbótastarfi í efna-
hagsmálum.
A blaðamannafundi með Clinton
strengdi Jeltsín þess heit að halda
umbótastarfinu áfram og kvaðst
staðráðinn í að hafa betur í viðureign
sinni við dúmuna, neðri deild þings-
ins, sem reynst hefur honum óþægur
ljár í þúfu. Dúman hafnaði tilnefn-
ingu Viktors Tsjernómyrdíns í emb-
ætti forsætisráðherra á mánudag og
kveða lög á um að ekki sé hægt að
mynda ríkisstjórn fyrr en forsætis-
ráðherra hefur verið tilnefndur.
Jeltsín skipaði samt sem áður ráð-
herra í ríkisstjórn í gær.
Forsetarnir skrifuðu undir sameig-
inlega yfu-lýsingu þar sem deiluaðilar
í Kosovo eru hvattir til að hætta átök-
um og setjast við sáttaborðið. Jeltsín
lýsti þó vonbrigðum sínum með
stefnu Bandaríkjanna í málefnum
Kosovo og Iráks. Sagði hann hemað-
aiihlutun ekki viðunandi lausn og
kvaðst illa geta sætt sig við þá hug-
mynd að Atlantshafsbandalagið
(NATO) stæði fyiir öryggi í Evrópu.
Clinton fundaði með rússnesku
stjórnarandstöðunni í gær og hvatti
Reuters
BILL Clinton og Borís Jeltsín brostu hvor til annars í gær er þeir hófu blaðamannafund sinn. Lítill árangur
varð hins vegar af fundi forsetanna þótt þeir segðust vera „hinir bestu vinir.“
fulltrúa hennar til að draga til baka
kröfur um að Rússland hverfi af um-
bótabraut og til miðstýringar í efna-
hagsmálum. Reyndi hann að sann-
færa Gennadí Sjúganov, leiðtoga
kommúnista, Alexander Lebed, rík-
isstjóra í Krasnojarsk og Grígorí Ja-
vlinský, leiðtoga Jabloko-flokksins,
sem allir era líklegir frambjóðendur
í næsta forsetakjöri, um að mark-
aðsþjóðfélag væri ekki boðskapur
Bandai-íkjanna heldur einfaldlega
nauðsyn hverju landi sem vildi
vegna vel. Eftir fundinn voru full-
trúar stjórnarandstöðunnarsam-
mála um að Clinton hefði komið
nokkuð vel fyrir. „Eg öfunda Mon-
icu Lewinsky," sagði Dimitrí Ayat-
skov, ríkisstjóri í Saratov, „Bill
Clinton er frábær náungi.“
Bæði Madeleine Albright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, og Bill
Richardson, orkumálaráðherra
Bandaríkjanna, sögðu Jeltsín hafa
virst við bestu heilsu á leiðtogafund-
inum. Fullyrðingum um að Jeltsín
væri nú fjarstýrt, m.a. af dóttur
sinni Tatjönu, var einnig vísað á bug
af Nainu, eiginkonu Jeltsíns, sem
sagði alla fjölskylduna skella upp úr
þegar þessu væri haldið fram. „Bor-
ís hlustar ekki á neinn. Hann hefur
aldrei á ævinni tekið mark á eigin-
konu sinni eða dætrum."
■ Jeltsín virðist/24
Tafír á
flugi
sjaldan
meiri
London. The Daily Telegraph.
SEINKANIR á flugi í Evr-
ópu eru nú meiri en verið hef-
ur í níu ár og tafir verða á
hátt í 30% áætlunarflugferða,
samkvæmt skýrslu sem Sam-
tök evrópskra flugfélaga
(AEA) birti í vikunni. Er mik-
il flugumferð sögð vera helsta
orsökin.
Samtökin segja í skýrslunni
að tveir þriðju seinkananna
stafi af umferðartöfum og eru
ríkisstjórnir gagnrýndar fyrir
að bæta ekki flugumferðar-
stjórnkerfi.
Flugumferð í Evrópu er
þéttust yfir suðausturhluta
Bretlands og á þessu ári hafa
flugumferðarstjórar þar til-
kynnt oftar en nokkru sinni
fyrr um hættuástand vegna of
mikillai’ umferðar.
Bitnar á farþegum
I skýrslu AEA segir að
hlutfall þeirra ferða sem tefj-
ist um meira en 15 mínútur
hafi hækkað verulega síðan í
febrúar, og nam 29,1% í júní,
sem er hæsta hlutfall á einum
mánuði síðan 1989 og næst-
hæsta hlutfall síðan farið var
að halda skrá með núverandi
hætti í byrjun níunda áratug-
ai’ins.
Samtökin segja ástandið
slæmt og bitna á farþegum.
Staðan geti versnað ef stjórn-
málamenn haldi áfram að
virða það að vettugi.
Alþjóðleg lögregluaðgerð gegn
dreifíngu barnakláms á Netinu
Yfír 100 barnaníð-
ingar handteknir
Fj ármálamarkaðir
Nokkur
lækkun rétt
fyrir lokun
New York. Reuters.
GENGI hlutabréfa féll nokkuð síð-
asta hálftímann fyrir lokun mai’kaða
á Wall Street í Bandaríkjunum í gær
og fór því fyrir lítið sú hækkun sem
átt hafði sér stað fyrr um daginn.
Leit allt út fyrir að fjárfestar hefðu
ekki sannfærst nægjanlega um að
erfiðleikum á fjármálamörkuðum
heimsins væri lokið. Dow Jones-vísi-
talan var 7,782.37 punktar við lokun í
gær, 45.06 punktum lægri en við
upphaf dags. Fyrr um daginn hafði
hún hins vegar verið komin í
7,952.56, 125.13 punktum hærri en
við upphaf viðskipta.
Nokkur hækkun átti sér hins veg-
ar stað á mörkuðum í Evrópu, þrátt
fyrir lækkun alls staðar rétt fyrh’
lokun. FTSE-100 vísitalan í London
var við lokun 5.235 punktar, hafði
hækkað um 66 punkta, eða 1,3%.
Þýska DAX-vísitalan hækkaði um
178 punkta, eða 3,7%, og franska
CAC 40-vísitalan hafði hækkað um
2,3% við lokun. I Japan var Nikkei-
vísitalan við lokun 14,376.62 punktar,
eða 6,99 punktum hærri, og 0,05%,
en við opnun markaða.
Reuters
För loft-
belgsins
á enda
KANADÍSKI veðurathugunar-
belgurinn, sem raskaði flugum-
ferð yfir Atlantshafi fyrir og
um síðastliðna helgi, féll til
jarðar í Finnlandi í gær. Missti
loftbelgurinn loks flugið og
seig til jarðar á akri í Ahvenan-
maa-skerjagarðinum skammt
frá borginni Turku.
Loftbelgnum var skotið á loft
í Kanada fyrir tíu dögum en
taug í hann slitnaði með þeim
afleiðingum að hann steig hátt
til lofts og rak austur yfir
Norður-Ameríku og út á Atl-
antshaf.
Langt suður af íslandi tók
hann stefnu norður á bóginn og
kom inn á íslenska flugstjórn-
arsvæðið sl. laugardag. Rak
hann norður fyrir land og inn í
norska og síðar rússneska lög-
sögu yfir Barentshafi á mánu-
dag. Þaðan sveif hann um uns
hann í gær rak inn yfir Finn-
land þar sem hann endaði loks
for sína.
Lundúnuin. Reuters.
UM EITT hundrað manns var
handtekið í tólf löndum í gær í
stærstu samræmdu alþjóðlegu lög-
regluaðgerð sem gerð hefur verið
gegn starfsemi barnaníðinga sem
dreifa barnaklámi á Netinu.
Brezka lögreglan hafði yfirum-
sjón með samræmingu aðgerð-
anna, sem báru leyniyfirskriftina
„Dómkirkjuaðgerðin“. Látið var til
skarar skríða gegn meintum
barnaníðingum í samtals fjórtán
löndum, í Evrópu, N-Ameríku og
Astralíu. Lagt var hald á yfir
100.000 myndir ósæmilegs eðlis,
sem sýna kynferðislega misnotkun
barna allt niður í tveggja ára ald-
ur. Flestar þessar myndir fundust
hjá mönnum sem tengdust félagi
barnaníðinga upprunnu í Banda-
ríkjunum og kallast „Wonder-
land“.
„Þetta efni myndi snúa við mag-
anum á hvaða rétt þenkjandi
manni sem væri; þetta er viðbjóðs-
legt,“ sagði John Stewardson, yfir-
lögreglufulltrúi hjá Scotland Yard,
sem stýrði aðgerðum í Bretlandi.
Norðmenn, Svíar og Finnar
meðal handtekinna
Lögregla réðst í dögun inn í hús
úti um allt Bretland, 32 í Banda-
ríkjunum, 18 í Þýzkalandi, 16 á
Ítalíu, 8 í Noregi og eitt eða tvö í
Svíþjóð, Finnlandi, Belgíu, Austur-
ríki, Frakklandi og Portúgal. Full-
trúar lögreglunnar frá öllum þess-
um löndum höfðu hitzt nokkrum
sinnum í sumar í bækistöðvum
Interpol í París til að undirbúa að-
gerðimar.
Talsmenn brezku lögreglunnar
sögðu að meirihluti hinna hand-
teknu væri karlmenn, en konur
væra einnig þar á meðal. Sum
barnanna sem sjást á níðings-
myndunum eru, að sögn lögregl-
unnar, úr fjölskyldum nokkurra
hinna handteknu.