Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flutningur Keikós til Vestmannaeyja undirbúinn
Tilraunalending og
flugtak heppnuðust vel
FLUTNINGAVÉL bandaríska flug-
hersins sem flytja á hvalinn Keikó til
íslands lenti í tilraunaskyni á Vest-
mannaeyjaflugvelli í gærdag. Bæði
lending og flugtak frá vellinum tókst
vel en þó myndaðist sprunga í veliin-
um við lendinguna sem stækkaði
nokkuð við flugtakið.
A þriðja tug bandarískra og ís-
lenskra fréttamanna, auk nokkurra
aðstandenda Free Willy-Keiko-sam-
takanna, voru farþegar í þessu
fyrsta flugi C-17A Globemaster III
flutningavélar til Vestmannaeyja,
stærstu vélar sem nokkurn tíma hef-
ur lent á vellinum. Vélin vegur hátt í
tvö hundruð tonn og hámarksflug-
taksþunginn er 266 tonn. Pótt hátt
sé til lofts og vítt til veggja í vélinni
leið blaðamanni Morgunblaðsins þar
eins og síld í tunnu, eða hval í bala,
því meginhluta rýmisins tók langur
trukkur sem nota á til að flytja
Keiko í og úr flugvélinni, og auk þess
eru nánast engir gluggar á vélinni.
Allir biðu með öndina í hálsinum
meðan hleðslustjóri vélarinnar taldi
niður í aðfluginu til Vestmannaeyja,
400 fet 300 fet, 200 fet, 100 fet, 50
fet. Þeir farþeganna sem reynsluna
höfðu settu fætur á dekk trukksins
sér til stuðnings, því þótt lendingin
væri ótrúlega mjúk var þrýstingur-
inn mikill þegar flugstjórinn kný-
venti og steig á bremsuna. Blaða-
maður Morgunblaðsins hugsaði til
þess að eitthvað hlyti að sullast upp
úr bala Keikós við lendinguna þegar
hann kæmi í eigin persónu að viku
liðinni. En eftir örfáar sekúndur
hafði vélin staðnæmst. Hún þurfti
ekki nema um 300 metra af 1.400
metra langri flugbrautinn í Eyjum.
Mótvindur og halli hjálpaði til
Tim Harris flugstjóri sagði að
lendingin hefði verið auðveldari en
hann hefði gert ráð fyrir. Reyndar
hefði sterkur mótvindur hjálpað til,
auk þess væri brautin hallandi og á
brattann að sækja í lendingunni, en
á móti kæmi að hann hefði ekki
stöðvað vélina eins fljótt og frekast
væri unnt.
í flugtaki nokkrum klukkustund-
um síðar þurfti töluvert stærri hluta
brautarinnar. Harris vildi ekki beita
öllum krafti vélarinnar vegna hættu
á skemmdum á kanti brautarinnar
þar sem aðeins er einfalt slitlag. „Ég
geri nú ráð fyrir að húsin í nágrenn-
inu myndu sleppa óskemmd þótt
fullum krafti yrði beitt,“ sagði Harr-
is „en það er óhætt að segja að
brautin yrði vel hreinsuð".
Meðan fréttamönnum var sýndur
framtíðardvalarstaður Keikós, sem
vakti mikla hrifningu Bandaríkja-
mannanna, var Eyjapeyjum- og pæj-
um hleypt inn í ferlíkið á flugvellin-
um til að dást að tækniundrum
bandaríska flughersins. Mikill fjöldi
fólks kom til flugvallarins til að sjá
hvemig til tækist með lendinguna og
flugtakið enda eru miklar vonir
bundnar við komu Keikós.
Færri fréttamenn
koma en talið var
Eitthvað kann þó að hafa dregið
úr þeim vonum að undanfomu. Nú
lítur út fyrir að færri erlendir frétta-
menn muni koma til Islands til að
íylgjast með flutningnum heldur en
gert var ráð fyrir í upphafi. Bæði
Sjónvarpið og Stöð 2 munu hins veg-
ar hafa mikinn viðbúnað í Vest-
mannaeyjum og þjóna bandarískum
og evrópskum sjónvarpsstöðvum,
sem margar hafa tekið þann kost
frekar en að mæta með mikinn
tækjabúnað sjálfar.
Hallur Hallsson, talsmaður Free
Willy-Keiko Foundation, segir að
samstarfssamningar útlensku sjón-
varpsstöðvanna við þær íslensku
muni þýða að umfjöllunin verði betri
Morgunblaðið/Arnaldur
C-17A-flutningavélin er sú stærsta sem lent hefur á Vestmannaeyjaflugvelli.
SJÓNVARPSMANNAFJÖLDINN við Klettsvík í gær var aðeins for-
smekkurinn að því sem verður þegar Keikó kemur. Þó verða frétta-
menn færri en búist var við í upphafi.
ÞAÐ er hátt til lofts og vítt til veggja í C-17A-flutningavélinni, sem er
nýjasta þotan í herflugflota Bandaríkjamanna en þessi tegund var
fyrst tekin í notkun fyrir þremur árum.
Keikó hótað í þriðja sinn
HALLI Hallssyni, umboðsmanni Keikós, hefur borist þriðja nafn-
lausa viðvörunarbréfið vegna komu háhyrningsins Keikós til ís-
lands. í bréfinu er háhyrningnum hótað drápi í þeim tilgangi að
verja íslenska hagsmuni, sem bréfritari telur að hafi verið varpað
fyrir róða með hvalveiðibanni.
Rannsóknardeild lögreglunnar í Vestmannaeyjum hefur málið
áfram til rannsóknar.
og meiri heldur en ef hver væri að
vinna í sínu homi.
„Ráðgefandi aðili mat það fyrir
okkur að um 500 útlenskir blaða-
menn myndu koma til landsins en nú
sýnist okkur að þeir verði 150-200.
Við gerðum ráð fyrir að það yrði
langtum meiri athygli beint að Vest-
mannaeyjum heldur en Newport,
núverandi dvalarstað Keikós, en
reyndin hefur orðið sú að um tvöfalt
fleiri fréttamenn skrá sig inn á síðari
staðinn. Hugmyndin „America Says
farewell to Keiko“, Ameríka kveður
Keikó, virðist vera mjög sterk.“
Hallur segir að stóru erlendu
fréttastofurnar beri fyrir sig þegar
þær dragi úr áætlunum sínum á ís-
landi að þær hafi þurft að sinna mjög
stórum viðburðum á árinu, meðal
annars samskiptum Monicu Lewin-
sky og Clintons Bandaríkjaforseta,
sprengjutilræðunum í Afríku og
efnahagserfiðleikum í Rússlandi og
því hafi fylgt mikil útgjöld.
Hallur segir að fyrirhugaður flutn-
ingur Keikós hafi hlotið mikla um-
fjöllun í helstu fjölmiðlum heims, og
því fagni Free Willy-Keiko Founda-
tion, en hún sé þó ekki úrslitaatriði
fyrir stofnunina. „Stofnunin getur
ekki verið að hafa áhyggjur af því
hvað fjölmiðlar eru að gera. Hún er
fyrst og fremst að fást við það að
koma Keikó til íslands."
Veðurfarið ræður miklu
Hagur Vestmannaeyinga er þó að
sem flestir ferðamenn komi til að
skoða hin nýju heimkynni Keikós.
Veðurfar kann að setja strik í reikn-
inginn, eins og berlega kom í ljós í
gær þegar hætta varð við bátsferð
með fréttamenn að sjókvínni í
Klettsvík vegna roks. Sjókvíin sjálf
situr þó sem fastast í víkinni og
kunnugir segja að ölduhæð verði þar
aldrei mikil. Veðrátta verði því
Keikó ekki til ama en aftur á móti
geti vindurinn stundum gert umsjón-
armönnum hvalsins erfitt fyrir.
Veðrið ræður líka komutíma
Keikós. Að sögn Halls kemur til
greina að fresta flutningi hans verði
aðstæður slæmar á áætluðum flutn-
ingadegi, 10. september næstkom-
andi. Viðbúnaður er til að flytja Keikó
frá Keflavíkurflugvelli verði ekki
hægt að lenda í Vestmannaeyjum, en
verði vont í sjóinn á leiðinni ft'á landi
til Eyja, verður fremur tekinn sá
kostur að bíða með flutninginn frá
Newport þangað til veðrið batnar.
Báru vitni í
forræðis-
máli Sophiu
Hansen
BENEDIKT Sveinsson og Katrín
Fjeldsted læknar voru kölluð til vitn-
is í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
vegna forræðismáls Sophiu Hansen
gegn barnsföður sínum Halim Al.
Sóknaraðili var sendfráð Tyrklands í
Osló. Voru tvær spumingar lagðar
íyrir Benedikt og Katrínu, sem vörð-
uðu það hvort Halim A1 hefði komið í
veg íyrir að Sophia fengi að hitta
dætur sínar þrátt fyrir úrskurð um
umgengnisrétt hennar og hvort
Halim A1 hefði farið rangt með for-
ræðisrétt sinn, sem kveður á um að
Sophia fái að vera með dætrum sín-
um í júlí og ágúst.
Katrín tók það fram fyrir dómi að
hún væri ekki dómbær um að svara
spurningunum samkvæmt orðanna
hljóðan því hún hefði ekki verið í
Tyrklandi í júlí og ágúst. Katrín fór
sem ráðgjafi fyrir utanríkisráðu-
neytið til Tyrklands fyrir hálfu öðru
ári og var viðstödd þegar Sophia
hitti dætur sínar í fyrsta skipti í
nokkur ár. „Ég hef efasemdir um að
þetta geti hjálpað í málinu í sjálfu
sér að öðru leyti en því að maður
geti vitnað að dæturnar hafi sýnt
móður sinni elsku,“ sagði Katrín.
Benedikt segir að spurningunum
hafí verið auðsvarað því Halim A1
hafi með öllum ráðum komið í veg
fyrir að Sophia fengi að hitta börnin.
„Hann hefur misnotað tyrkneskan
forræðisrétt sinn því þar er kveðið á
um að hún fái að hitta börnin í júlí
og ágúst á hverju ári, en hann hafí
fullan umgengnisrétt hina tíu mán-
uðina samkvæmt tyrkneskum lög-
um,“ sagði Benedikt. Benedikt hefur
verið í daglegu sambandi við Sophiu
og kom síðast til Tyrklands og sá
dætur hennar í maímánuði 1992.
„Ég get ekki vitnað um annað en
það sem ég hef orðið beinn áhorf-
andi að og það hefur í raun öll þjóðin
getað líka því hún hefur fengið að
fylgjast með þessu máli.“
--------------
Ráðist að íslendingi
í Bremerhaven
Meðvitundar-
laus eftir árás
SKIPVERJI af Breka frá Vest-
mannaeyjum liggur meðvitundar-
laus á sjúkrahúsi í Þýskalandi eftir
að ráðist var á hann fyrir utan veit-
ingastað í Bremerhaven aðfaranótt
mánudags. Að mati lækna er hann
úr bráðri lífshættu, en heilsa hans
leyfir ekki að hann sé fluttur heim.
Árásin varð með þeim hætti að
þrír skipverjar á Breka voi-u að
koma út af veitingastað þegar tveir
menn réðust að þeim. Tveir sjó-
mannanna fóru aðeins á undan og
lentu í árásinni en sá þriðji kom á
eftir og hljóp að árásarmönnunum
þegar hann sá hvað var að gerast.
Árásarmennirnir lögðu þá á flótta.
Mennirnir tveir, sem fyrir árásinni
urðu, voru fluttir á sjúkrahús og
reyndist annar þeirra með alvarlega
áverka á höfði. Hinn var skrámaður
en fékk fljótlega að fara af sjúkra-
húsinu að lokinni skoðun og er hann
á leið heim með Breka.
Að sögn Sigurmundar Einarsson-
ar, framkvæmdastjóra Útgerðarfé-
lags Vestmannaeyja, virðist svo sem
árásarmennirnir hafi beðið eftir ís-
lendingunum þegar þeir komu út af
veitingastaðnum og ráðist aftan að
þeim með hafnaboltakylfum. Árásin
hafí verið tilefnislaus. Hann segir að
lögreglan hafí handtekið þá sem
grunaðir eru um árásina.
Skipverjinn sem slasaðist er 28
ára gamall. Hann er enn meðvitund-
arlaus, en er talinn úr bráðri lífs-
hættu. Vegna þess hversu alvarleg
höfuðmeiðslin eru talin vera er ekki
hægt að flytja hann heim fyrr en
hann hefur náð meiri bata. Eigin-
kona hans flaug út til hans í gær.