Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 41 «• LÚCÍA GUÐNÝ ÞÓRARINSDÓTTIR + Lúcía Guðný Þórarinsdóttir fæddist á Breiða- bólsstað í Suður- sveit 11. janúar 1899. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Skjólgarði, Höfn, 26. ágúst síð- astliðinn. Foreldr- ar hennar voru Þórarinn Steinsson og Guðleif Bene- diktsdóttir. Systk- ini Lúcíu voru fímm og eru þau öll látin. Lúcía giftist Jóni Jóns- syni, bónda á Smyriabjörgum, árið 1920. Foreldrar Jóns voru Jón Jónsson og Sigríður Hálf- dánardóttir. Börn Jóns og Lúc- íu eru: 1) Sigurjón, f. 21.10. 1921, búsettur á Höfn. 2) Nanna Halldóra, f. 13.1. 1923, búsett á Smyrlabjörgum. Hennar maður er Karl Bjama- son, f. 18.8. 1919. Þau eignuð- ust átta böm og em sjö á lífi. 3) Þóra Guðleif, f. 14.10. 1924, búsett í Borgarhöfn, hennar maður Þorsteinn Jónasson, f. 28.7. 1917, d. 7.6. 1987. Þau eignuðust íjögur börn og em þrjú á lífi. 4) Þorbjörg, f. 20.2. 1927, búsett á Höfn, hennar maður er Ragnar Sigfússon, f. 20.7. 1917. Þau eignuð- ust tvö böm. 5) Jör- undur, f. 27.1. 1929, búsettur í Reykjavík, hans kona er Anna Jóns- dóttir, f. 18.1.1925. Þau eiga eina dótt- ur. 6) Snorri, f. 24.11. 1930, búsett- ur á Höfn, kona hans er Torfhildur Ólafsdóttir, f. 28.5. 1927. 7) Baldur, f. 15.3. 1932, búsettur á Höfn. 8) Ingunn, f. 19.8. 1935, búsett á Höfn, hennar maður Þórarinn Gunnarsson, f. 5.2. 1932. Þau eiga eina dóttur. Lúcía átti þijátíu bamabarnabörn, af því er eitt látið, og sjö barna- bamabarnabörn. Lúcía og Jón bjuggu á Smyrlabjörgum þar til Jón lést 11.11.1968, en eftir það bjó hún þar áfram með sonum sínum tveimur til ársins 1988 er hún flutti á hjúkrunarheimilið Skjólgarð. Utför Lúcíu fer fram frá Kálfafellsstaðarkirkju í Suður- sveit í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ég kveð þig elsku mamma mín, og þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Mér finnst þetta ljóð eiga svo vel við þig. Ég hugsa um mynd þina hjartkæra móðir og höndina mildu, sem tár strauk af kinn. Það yljar á göngu um ófamar slóðir, þó yfir sé harmþrungið rökkur um sinn. Ljósið er slokknað á lífskerti þínu, þú leiddir mig örugg á framtíðarbraut. Hlýja þín vakir í hjartanu mínu, frá hamingjudögum, er fyrrum ég naut. Minningarlj ósið á lífsvegi mínum lýsir upp sorghúmið, kyrrlátt og hljótt. Höfði nú drúp’ ég hjá dánarbeð þínum þú Drottni sért falin, ég býð góða nótt. (Hörður Björgvinsson.) Ég bið algóðan Guð, að vernda þig- Þín dóttir, Þóra. Elsku Lúlla amma, nú ertu farin yfir móðuna miklu og eftir situr minningin um þig, fallega, duglega og góða langamma. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til þín í sveitina og eitt sumar var ég í vist hjá þér, Baldri og Sigurjóni. Það var skemmtilegur tími, líka vegna þess að ég hafði ömmu Dóru og Kalla afa í næsta húsi. Ég man svo vel þegar við hituðum upp kartöfl- ur með kvöldmatnum því það var svo mikill afgangur frá hádegi, en upphitaðar kai-töflur borðuðu Sig- urjón og Baldur alls ekki. Þú baðst mig um að segja þeim ekki frá og þeir borðuðu þær með bestu lyst. Svona varstu úrræðagóð og á kvöldin þegar ég og Lúcía áttum að fara að sofa inni hjá þér, en stillt- um útvarpið hátt á óperuþátt, sett- um það út í glugga svo hundurinn spangólaði með, svo undir tók í Suðursveitinni, skammaðir þú okk- ur aldrei heldur hlóst með, en minntir okkur á klukkuna eftir smástund. Svona varstu góð og skemmtileg. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Blessuð sé minning þín. Kristín Jónsdóttir. Okkur langar til að minnast elsku ömmu okkar með örfáum orðum. Þótt aldurinn hafi verið hár, og við öll vitað að lífsgöng- unni myndi brátt ljúka, þá er alltaf sárt að kveðja hinstu kveðju. Við eigum svo margar hlýjar og góðar minningar um þig elsku amma, sem við geymum í hjarta okkar. Flestar þessar minningar eru frá þeim tíma, þegar þú bjóst á Smyrlabjörgum. Við munum sér- staklega vel tímann, sem við yngri systkinin tvö dvöldum hjá ykkur þegar mamma fór með Kollu til lækninga til Reykjavíkur í nokkrar vikur. A kvöldin þegar við fórum að sofa fórstu með Faðirvorið og bænirnar með okkur og sagðir að nú myndum við sofna vel. Þið reyndust okkur svo vel að við fundum varla fyrir því, að vera ekki heima hjá okkur. Við styttum okkur stundir við að spila manna, rommý svartapétur og fleira við afa, því spilamennska var líf hans og yndi, þegar ekkert annað var við að vera. Afa misstir þú svo fyrir þrjátíu árum, en áfram hélstu full af lífs- orku þrátt fyrir það, studd af son- um þínum tveimur, Sigurjóni og Skilafrestur mianingargreina EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útnmninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Baldri, sem ávallt reyndust þér svo vel. Já, elsku amma, við munum alltaf hvað það var notalegt að koma til ykkar. Þegar við hugsum til baka finnst okkur eins og hver heimsókn að Smyrlabjörgum hafi jaftiast á við jólin. Allir svo glaðir, allt var svo hreint og fínt og rausn- arskapurinn alveg einstakur. En aldrei fannst þér þú veita nógu vel, og hafðir áhyggjur af því að gestir þínir færu svangir heim. Alltaf munum við góða hangi- kjötið, það var hvergi eins gott og hjá ykkur, eða ömmutertan með rjómanum, ávöxtunum og súkkulaðispónunum, þvílíkt sæl- gæti. Já á langri ævi verða minn- ingamar margar. Við munum glæsilegu konuna í íslenska búningnum, húsfreyjuna sem stóð á tröppunum á Smyrla- björgum í eldhúskjólnum sínum, og tók á móti gestum sínum með bros á vör, við munum líka gömlu konuna í hjólastólnum á Skjól- garði. Öll þessi hlutverk hæfðu þér jafnvel. Við erum þakklát fyrir að hafa átt þig, og þakklát fyrir að í stað þess að jafna bæinn ykkar við jörðu hafa hjónin á Smyrlabjörg- um, Laufey og Bjössi, endurbætt hann til eigin nota, og mun hann því áfram standa sem minnisvarði um merkishjón sem þar bjuggu. Við kveðjum þig elsku amma með sorg í hjarta, en jafnframt gleði yfir hvað Guð var góður að láta þig ekki líða miklar þjáningar. Þökk fyrir allt og góða nótt. Kolbrún, Inga Lúcía og Jón. Lúcía Guðný Þórarinsdóttir frá Smyrlabjörgum í Suðursveit undir Vatnajökli er nú öU á hundraðasta aldursári. Hún var borin og bam- fæddur Suðursveitungur, ólst upp á Breiðabólsstað með frændum sínum sem gerðu síðar Suðursveit fræga sem rithöfundar og sögu- menn. Hún giftist Jóni Jónssyni bónda frá Smyrlabjörgum 1920 og eignuðust þau átta böm. Efth’ lát Jóns 1968 bjó hún með tveimur sonum sínum Sigurjóni og Baldri að Smyrlabjörgum fram til 1988. Lúcía var hluti Suðursveitar og þeirri lensku samfélags sveitarinn- ar að vera með eindæmum gestris- in og hafa áhuga á annarra hag. Gestrisni þeirra á Smyrlabjörgum átti sér engin takmörk, borðin svignuðu undan veitingum og skift um meðlæti á meðan það var verið að borða. Kurteisin og einlægur áhugi þeirra á annarra hag vom þeim í blóð borin þannig að borgar- barni leið eins og litlum prinsi í ná- vist þessara mannvina. Ekki man ég eftir að ég hafi heyrt menn kvarta eða telja eftir sér að gera nokkum hlut, en aldrei látið ótalið ef aðrir tóku til hendinni eða sýndu tilþrif við vinnu. Það varð því að áhugamáli sumarstráksins að finna óunnið verk og klára það. Að laun- um hlaut maður ekki bara hrós, heldur var þetta rifjað upp við hvert tækifæri sem gafst, og fylgt eftir með vorkunnarorðum um hve það hljóti hafa verið erfitt. Fyrir strák í sveit var þetta vinalega við- mót svolítið öðravísi en það sem tíðkaðist í borginni, en manni leið vel þarna í þessu andrúmslofti og varð lítill Suðursveitungur yfir sumai-tímann. Þetta viðmót átti svo kannski ekki við þegar maður kom heim að hausti, síhjálpandi, á gúmmískóm og talandi hornfirsku. Engu að síður hefur þetta náð að innprentast í mann og er ekki frá því að maður sé enn að leita að óunnu verki fyrir Lúllu og þá bræður Sigurjón og Baldur. Eg veit að við sem höfum verið sumar- strákar að Smyrlabjörgum eram mótaðir af Lúllu, eða Ommulúllu eins og sumir okkar kölluðu hana, nokkuð sem við komum til með að minnast með þakklæti. Við komum til með að bera Suðursveitunginn í okkur, sem hlýja minningu og þökkum Lúllu fyrir framlag sitt í okkar líf. Páll Ólafsson. SÆVAR MAGNÚSSON + Sævar Magnús- son fæddist á Akureyri 27. mars 1941. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 26. ágúst síð- astliðinn. Foreldr- ar hans eru Ragn- hildur Guðrún Ólafsdóttir frá Oddhól í Vest- mannaeyjum, f. 8.4. 1917, og Magnús Jóhannsson, vél- stjóri og sjómaður frá Akureyri, f. 20.10. 1910, d. 13.8. 1958. Systkini Sævars eru Reynir, f. 4.9. 1937, Erla, f. 3.2. 1939, Arnar Þór, f. 4.7. 1947, d. 31.1. 1948, Amar Jóhann, f. 19.12. 1948, og Ólafur Sigurbjörn, f. 3.10. 1955. Sævar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Anna Sigurðar- dóttir. Synir þeirra eru Rúnar Freyr, f. 27.4. 1971, í sambúð með Bjarteyju Sigurðardóttur, og Vignir Már, f. 4.2. 1973. Hans dóttir er Edda Eik, f. 12.3. 1998. Hjá Sævari og Önnu ólst upp son- ur Önnu, Sigmar Helgi Gunnarsson, f. 22.11. 1965. Kona Sigmars er Ing- veldur Ingibergs- dóttir, f. 23.6. 1966, og eru dætur þeirra íris Hildur 12 ára, Valdís Hrönn sjö ára og Elín Heiða þriggja ára. Fyrir átti Sæv- ar dótturina Ragn- heiði Hólm, f. 24.4. 1964, í sambúð með Jóni Þór Gunnarssyni. Synir þeirra eru Elvar, f. 22.10. 1986, og Hrannar, f. 8.5. 1991. Seinni kona Sævars er Tui Donjai frá Tælandi. Sævar starfaði við sjó- mennsku á ýmsum skipum frá 15 ára aldri, síðast á frystitog- aranum Höfrungi III frá Akranesi uns hann lét af störfum í apríl 1997 vegna veikinda. Utför Sævars fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Með örfáum orðum langar mig til að minnast bróður míns Sævars Magnússonar sem látinn er eftir harðskejrtta bai’áttu við krabba- mein. Sævar bróðir minn var ekki einn þeima sem alltaf rataði hinn guUna meðalveg. Skólaganga hans var ekkert sérlega löng eða ströng því hann fór ungur til sjós og sjó- mennskan varð líka hans ævistarf, með öllum þeim ævintýrum og freistingum sem hún býður upp á og þar voru á stundum tekin stór hliðarspor milli þess sem réttri stefnu var náð. Auðvitað setti sjómennskan og hin stutta skólaganga Sævars svip á ýmislegt sem hann gerði, en hann las hins vegar mikið og var stálminnugur á ýmislegt sem aðr- ir höfðu löngu gleymt. I gegnum lífið hafði bróðir minn líka lag á því að vefja fólki um fingur sér og fá það til þess að vinna hin ýmsu viðvik fyrir sig í landlegum. Á meðan gerði hann eitthvað annað og að hans mati skemmtilegra og það vora fáir, a.m.k. í fjölskyld- unni, sem ekki voru boðnir og búnir að aðstoða hann við það sem beðið var um. Til sjós var hann hins vegar öllum hnútum kunnug- ur og ég hef engan hitt eða heyrt í sem ekki talaði um hann sem hörkusjómann sem gott væri að sigla með. Samband okkar Sævai-s var ekk- ert sérlega náið framan af, það gerði aldursmunur okkar, atvinna hans og búseta. Auðvitað vora fjöl- skylduböndin ræktuð á réttum augnablikum eins og alsiða er, en það er fyrst er bróðir fluttist í Engihjalla í Kópavogi að tengsl okkar uxu og döfnuðu. Því var ekki síst að þakka hinu nána trúnaðar- sambandi Sævars við eiginkonu mína, sem hann oftar en ekki leit- aði til með hin ýmsu mál sem leysa þurfti. Þau leysti hann síðan á sinn hátt og með sínu lagi. I veikindum sínum sýndi hann síðan fólki hverslags karlmenni hann í raun og vera var, aldrei var kvartað sama hversu mikið á gekk. Kæri bróðir, þú varst alltaf snöggur upp á lagið, staldraðir stutt við og vildir afgreiða hlutina með hraði. Það var því kannski al- veg í þínum anda að leysa landfest- ai’ í síðasta sinn jafn snöggt og þú gerðir og halda út á hafið sem skil- ur milli þessa heims og annars. En þú ert búinn að ýta frá landi, bróð- ir, og snýrð ekki aftur - ég á eftir að sakna vallarferðanna með þér, hinna stuttu heimsókna þinna og símtalanna. Það vora svo sem sjaldan alvarlegu málin sem við ræddum, þau voru þú og kona mín búin að afgreiða - við skemmtum okkur hins vegar konunglega yfir hinum ýmsu sögum sem þú kunnir og sagðir af sjálfuro þér og sam- ferðamönnum þínum í gegnum tíð- ina. Við ætluðum, kæri bróðir, að skjóta upp flugeldum saman árið 2000 og þannig sýna sjúkdómi þín- um fram á að þú hefðir enn yfir- höndina. Ég skýt þeim bara upp í himininn fyrir okkur báða og reyni þannig að senda þér kveðju frá öll- umsem þótti vænt um þig. Ég vil að lokum fyrir hönd allra aðstandenda Sævars þakka lækn- um og hjúkranarfólki sem gerðu honum síðustu mánuðina léttbær- ari. Far þú í friði, bróðir. Fyrir hönd fjölskyldunnar. Olafur Magnússon. Elsku frændi. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefúr hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem) Hvíldu í friði. Þínar frænkur, Margrét, Marta og María. ^fftRARSTOf^ is I.AN'OS Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjöri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.