Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 45 Islendinga- slag’ur í fyrstu umferð SKAK Munkebo, Danmörku SVÆÐAMÓT NORÐURLANDA FIMM íslendingar keppa á mótinu, sem er útsláttarkeppni. Fjórir þeirra mætast innbyrðis i fyrstu umferð. 9.- 20. september. SVÆÐISMÓT Norðurlanda verður haldið í Munkebo í Dan- mörku dagana 9.-20. september næstkomandi. Alls taka 24 skák- menn frá öllum Norðurlöndum þátt í mótinu. Prír efstu menn á mótinu fá rétt til þátttöku á heimsmeistara- móti FIDE, sem fram fer í Las Ve- gas í Bandaríkjunum í desember. Svæðismótið er að þessu sinni skipulagt svipað og sjálf heims- meistarakeppnin, þ.e.a.s. sem út- sláttarkeppni, þar sem siguivegar- inn úr hverju einvígi kemst áfram í næstu umferð. Alls taka fimm íslenskir skák- menn þátt í svæðismótinu. Þetta eru stórmeistararnir Margeir Pét- ursson, Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Ólafsson, Þröstur Þórhallsson og Helgi Áss Grétarsson. Eftirtaldir skákmenn hafa verið valdir til þátttöku á svæðismótinu: 1. Curt Hansen (DAN 2610) 2. Margeir Pétursson (2550) 3. Evgenij Agrest (SVÍ 2545) 4. Einar Gausel (NOR 2540) 5. Hannes H. Stefánsson (2535) 6. Lars Schandorff (DAN 2535) 7. Sune Berg Hansen (DAN 2520) 8. Peter Heine Nielsen (DAN 2515) 9. Henrik Danielsen (DAN 2510) 10. Ralf Ákesson (SVÍ 2510) 11. Jonny Hector (SVÍ 2510) 12. Helgi Ólafsson (2505) 13. Rune Djurhuus (NOR 2495) 14. Þröstur Þórhallsson (2495) 15. Stellan Brynell (SVÍ 2485) 16. Jesper Hall (SVÍ 2485) 17. Helgi Áss Grétarsson (2480) 18. Tom Wedberg (SVÍ 2475) 19. Berge Östenstad (NOR 2460) 20. Antti Pihlajasalo (FIN 2450) 21. Olli Salmensuu (FIN 2410) 22. Tapani Sammalvuo (FIN 2410) 23. Roy Fyllingen (NOR 2405) 24. John Rödgaard (FÆR 2310) Keppendum á þessum lista er raðað eftir skákstigum. Samkvæmt reglum keppninnar er skákmönnum sem eru jafnir að stigum næst raðað eftir titli. Ef það dugir ekki til eru notuð skákstig af stigalista FIDE frá því í janúar o.s.frv. þar til mis- munur á skákstigum finnst. Röðun í fyrstu umferð er þannig, að stigahærri hópur keppenda teflir við þann stigalægri. Samkvæmt því munu þeir Margeir Pétursson og Þröstur Þórhallsson tefla saman í fyrstu umferð, sem er svo sannar- lega óheppilegt frá sjónarhorni Is- lendinga, sem vildu helst sjá bæði Margeir og Þröst komast áfram í næstu umferð. Þar með er þó ekki öll sagan sögð, því Hannes Hlífar Stefánsson mun mæta Helga Ass Grétarssyni í fyrstu umferð! Helgi Ólafsson yrði því eini íslenski kepp- andinn sem lenti á móti erlendum keppanda, en hann mun tefla við Færeyinginn Rödgaard. Enn er þó veik von um að röðunin breytist, ef einhver keppandi skyldi forfallast. Upphaflega hafði Jóhann Hjartarson hug á að taka þátt í mótinu, en vegna anna í starfi hans hjá íslenskri erfðagreiningu gat því miður ekki orðið af því. Aður hefur verið greint lauslega frá fyrirkomulagi keppninnar hér í skákþættinum. Hver viðureign fer þannig fram að teflt er tveggja skáka einvígi. Tímamörk eru 100 mínútur á 40 leiki, síðan 50 mínútur á 20 leiki og að lokum eru gefnar 10 mínútur til að ljúka skákinni. Auk þess fær hvor keppandi 30 sekúnd- ur til viðbótar við hvern leik, allt frá fyi'sta leik (Fischer-klukka). Ef tvær skákir duga ekki til að ná fram hreinum úrslitum verða tefldar við- bótarskákir með styttri tímamörk- um, svipað og gert var í síðustu heimsmeistarakeppni. Sigurður Daði sigrar á helgarskákmóti Helgarskákmót fór fram 21.-23. ágúst í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur. Eins og á fyrri helgar- skákmótum voru fyrst tefldar þrjár atskákir á fóstudeginum og síðan fjórar kappskákir um helgina. Keppnin var æsispennandi, en að lokum stóð Sigurður Daði Sigfússon einn uppi sem sigurvegari með 6 vinninga af 7 mögulegum. Sigurður Daði tapaði fyrir Bergsteini Einars- syni í annarri umferð, en góður endasprettur færði honum sigur. Bergsteinn lenti í öðru sæti ásamt Jóni Árna Halldórssyni, en varð ofar á stigum. Sigurður Daði hefur sigr- að á þremur síðustu helgarmótum í TR sem hann hefur tekið þátt í. Röð efstu manna varð sem hér segir: 1. Sigurður Daði Sigfússon 6 v. 2. Bergsteinn Einarsson ö'/z v. 3. Jón Arni Halldórsson 5(4 v. 4. -5. Arnar Þorsteinsson og Sigurður Páll Steindórsson 5 v. 6.-8. Þröstur Heiðar Þráinsson, Stefán Kristjánsson og Sveinn Wilhelmsson 4(4 v. 9.-14. Hjalti Rúnar Ómarsson, Páll Ósk- ar Kristjánsson, Ólafur Kjartansson, Bjami Magnússon, Ómar Þór Ómarsson og Guðni Stefán Pétursson 4 v. 15.-20. Jón Baldur Lorange, Ágúst Ingi- mundarson, Harpa Ingólfsdóttir, Valdi- mar Leifsson, Ólafur ísberg Hannesson, Aldís Rún Lárusdóttir 3(4 v. o.s.frv. Þátttakendur voru alls 31. TR og Hellir í úrslit hraðskákkeppni Hraðskákkeppni taflfélaga á Suð- vesturlandi stendur nú yfir, en þetta er í fjórða skipti sem keppnin er haldin. Átta taflfélög taka þátt í keppninni. í átta liða úrslitum fóru viðureignirnar þannig: Hellir - Skákfélag Hafnarfj. 42(4-29(4 Taflf. Garðabæjar - Taflf. Akraness 39(4- 32(4 Taflf. Reykjavíkur - Taflf. Kópavogs 39(4-32(4 Skákf. Reykjanesbæjar - Skákf. Selfoss og nágr. 29(4- 42(4 Það voru því Hellir, Garðabær, TR og Selfyssingar sem komust áfram í undanúrslitin sem fram fóru 19.-20. ágúst. Þar urðu úrslit þessi: TR - Skákf. Self. og nágr. 57-15 Taflf. Garðabæjar - Hellir 13(4-58(4 Urslitin í þessum tveimur viður- eignum voru því mjög afgerandi og niðurstaðan er sú að Hellir og TR tefla til úrslita í þessari skemmti- legu keppni. Bergsteinn sigrar á helgaratskákmóti Bergsteinn Einarsson sigraði á sterku og spennandi helgaratskák- móti sem Taflfélagið Hellir gekkst fyiir 28.-29. ágúst 1998. Bergsteinn hlaut 6 vinninga í 7 umferðum. Hann tapaði einungis fyrir Stefáni Kristjánssyni. Bergsteinn hafði reyndar afai’ vænlega stöðu í skák- inni, en lenti óvænt í mátneti eftir að hafa leikið kóngnum fram á borðið í endatafli. Sævar Bjarnason, sem sigraði á síðasta helgaratskákmóti Hellis, lenti í öðru sæti með 5!4 vinning. Röð efstu manna varð þessi: 1 Bergsteinn Einarsson 6 v. 2 Sævar Bjarnason 5(4 v. 3-5 Stefán Kristjánsson, Sigurður Páll Steindórsson og Jóhann H. Ragnarsson 4(4 v. 6-7 Gunnar Björnsson og Sigurður Daði Sigfússon 4 v. 8-11 Guðni Stefán Pétursson, Andri Áss Grétarsson, Daði Örn Jónsson og Gústaf Smári Bjömsson 314 v. o.s.frv. Mótið var haldið í Hellisheimil- inu, Þönglabakka 1 í Mjódd. Skák- stjórar voru þeir Gunnar Björns- son, Daði Öm Jónsson og Vigfús Óðinn Vigfússon. Skákviðburðir í september Eftirtaldir skákviðburðir verða m.a. á dagskrá í september: Helgarskákmót hjá TR 4.-6. september. Skemmtikvöld skákáhugamanna 4.9. kl. 20 Ólympíuliðið gegn Pressuliðinu 6.9. Atkvöld Hellis 7.9. kl. 20 Svæðismót Norðurlanda 9.-20.9. íslandsm. í atskák 1999, undanr. 12.-13.9. Skákdagurinn 13.9. Norðurlandam. grunnskólasv. 1998, 18.- 20.9. Atskákmót Reykjavíkur 18.-20.9. Ólympíumótið hefst 26.9. Haustmót Taflfélags Reykjavíkur hefst 27.9. Septeinber-helgarmót TR Helgina 4.-6. september fer fram helgarmót í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur. Samkvæmt venju fara fram þrjár atskákir á fostudags- kvöldið frá kl. 20.00 en svo tvær kappskákir á laugardaginn, sem hefjast kl. 10.00 og kl. 17.00, tvær kappskákir á sunnudag sem hefjast kl. 10.30 og kl. 17.00. Tefldar eru 7 umferðir eftir Monrad-kerfi með umhugsunai’tímanum 1(4 klst. á 30 leiki og síðan 30 mín. til að klára. Verðlaun eru kr. 12.000,- fyrir 1. sæti, kr. 8.000,- fyrir 2. sæti og kr. 5.000,- fyrir 3. sæti. Fyrir hverja 20 þátttakendur umfram 35 bætast við 5.000 kr. á hvert sæti. Þátttöku- gjöld: 16 ára og eldri kr. 1.500 (kr. 2.300 utanfél.), 15 ára og yngri kr. 1.000 (kr. 1.500 utanfél.) Daði Örn Jónsson Margeir Pétursson Heimsmeistaramótið í Lille Bragi, Sigtyggur og Hjördís í úrslit ítalir unnu Rosenblum-keppnina BRIPS Lille, Frakklandi HEIMSMEISTARAMÓTIÐ Heimsmeistaramótið í brids fer fram í Lille dagana 21. ágúst til 4. september. BRAGI Hauksson og Sigtryggur Sigurðsson eru eitt 72 para sem komust í úrslit heimsmeistaramóts- ins í opnum tvímenningsflokki en um 630 pör kepptu um þessi sæti. Þá er Hjördís Eyþórsdóttir í úrslit- um kvennaflokksins en þar keppa 36 pör. Álls hófu yfir 630 pör keppnina og Bragi og Sigtryggur komust nokkuð auðveldlega í 234 para und- anúrslit. Þai’ var keppt um 65 sæti í úrslitum og 7 pör, sem kepptu til úrslita í Rosenblum-keppninni í sveitakeppni, bættust við. Bragi og Sigtryggur enduðu í 49. sæti í und- anúrslitunum og skoruðu mjög jafnt í öllum umferðunum fjórum. Urslit- in hófust í gær og þeim lýkur á föstudag. í kvennaflokki spilar Hjördís Ey- þórsdóttir við Judy Radin frá Bandaríkjunum. Radin er einn sig- ursælasti spiiari heims í kvenna- flokki og hefur unnið alla þá heims- meistaratitla sem keppt er um í þeim flokki. Þær Hjördís og Radin enduðu í 7. sæti i undanúrslitunum og voru stöðugt að bæta sig og það kæmi mér ekki á óvart ef þær stæðu á verðlaunapalli á fimmtu- dagskvöld þegar úrslitunum í kvennaflokknum lýkur. ítalir unnu Rosenblum í Lille er einnig keppt um Rosen- blum-bikarinn í sveitakeppni. Þetta er heimsmeistarakeppni sveita, ekki landsliða, og tæplega 200 sveitir, hvaðanæva úr heiminum, hófu keppnina. Engin sveit frá íslandi var með í keppninni. Að lokum stóðu Itölsku Evrópu- meistararnir uppi sem sigurvegar- ar. Þeir unnu sveit Brasilíumanns- ins Gabriels Chagas auðveldlega í 64 spila úrslitaleik þar sem brasil- ísku spilararnir virtust heillum ÍTÖLSKU Rosenblum-meistararnir. Frá vinstri eru Massimo Lanzarotti, Alfredo Versace, Antonio Sementa, Francesco Angelini, Lorenzo Lauria og Andrea Buratti. horfnir eins og sést á þessu spili: Vestur gefur, allir á hættu Norður ♦ D10 V ÁKG98 ♦ 109 *ÁK65 Austur A ÁK52 ¥ D7643 ♦ D84 *2 Suður ♦ G876 ¥ 102 ♦ G2 ♦ D10984 Við annað borðið sátu Chagas og Marcelo Branco AV og Andrea Buratti og Massimo Lanzarotti NS: Vestur Norður Aiistur Suðui' MC AB GC ML 2tíglar dobl ðtíglai’ Pass Pass dobl/ Það er skritin ákvörðun hjá Chagas að lyfta í 5 tígla á hættunni; varla hefur hann búist við að þeir ynnust. Buratti lyfti laufási og skipti í tígul og Branco di’ap heima og spil- aði hjarta. Buratti stakk upp kóngn- um og spilaði aftur trompi og Branco var tvo niður, 500 til Italíu. Við hitt borðið sátu Alfredo Ver- sace og Lorenzo Lauria AV og Miguel Vilas Boas og Joao Paulo Campas NS: Vestur Norður Austur Suður AV MVB LL JPC Pass 1 hjarta Pass Pass 2 tíglar dobl 3 tíglar 3 spaðar/ Þótt norður eigi góð spil er ekki hættulaust að dobla 2 tígla með tví- lit í spaða en sé gert ráð fyrir slíku má auðvitað ekki melda 3 spaða með suðurspilin; svardobl er betra vilji suður taka þátt í sögnum. 3 spaðar fóru þrjá niður, 300 til Itala sem unnu leikinn á endanum, 155- 76. Guðm. Sv. Hermannsson Vestur *943 ¥5 ♦ ÁK7653 *G73 KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Grafarkirkja í Skaftártungu 100 ára í TILEFNI 10 ára vígsluafmælis Grafarkirkju verður hátíðarguðs- þjónusta sunnudaginn 6. septem- ber kl. 14. Biskup Islands hr. Karl Sigur- björnsson prédikar. Organisti Haukur Guðlaugsson. Samkór Ása- prestakalls syngur undir stjórn Birnu Bragadóttur. Eftir guðsþjónustuna verður há- tíðarsamkoma í Tunguseli, þar sem m.a. ágrip af sögu kirkjunnar verð- ur rakið. Allir velkomnir. Sóknar- nefnd. Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 14-17. Háteigskirkja. Kvöldsöngur með taizé-tónlist kl. 21. Kyrrð, íhugun, endumæring. Allir velkomnir. Hallgrímskirkja. Kyirðai’stund kl. 12. Orgelleikur, íhugun, altaris- ganga. Léttur málsverður í safnað- arheimilinu. Digraneskirkja. Bæna- og kyrrð- arstund kl. 18. Bænarefnum má koma til sóknarprests eða kirkju- varðar, einnig má setja bænarefni í bænakassa í anddyri kirkjunnar. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 22, kaffi og létt meðlæti á eftir. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Al- menn samkoma, ræðumaður Mike Bradley. Allir hjartanlega vel- komnir. Nýr frábær bókhaldshugbúnaður C71KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 • Sími 568 8055 www.islandia.is/kerlisthroun Silki-damask í metratali í úrvali Póstsendum Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050. www.mb l.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.