Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 37 *J.
Landlækni og fleirum er vel
ljóst að geymslu sjúkraskráa verð-
ur ekki vel fyrirkomið fyrr en allar
skrár eru tölvuvæddar og aðgang-
ur lyklaður og miðaður við þarfir
hverju sinni. Tölvu- og netvæðing
sjúkraskráa getur engu að síður
falið í sér hættur við varðveislu
gagna og er mikilvægt að skapa
strangar reglur um meðferð raf-
rænna gagna og að haft sé eftirlit
með þeim. Embætti landlæknis er
um þessar mundir að semja reglur
um meðferð tölvuski-áa á heilsu-
gæslustöðvum í tengslum við nýtt
skráningarkerfi frá Gagnalind og
er reiknað með að því verki verði
lokið eftir u.þ.b. mánuð.
Nokkur mál hafa risið vegna
meintrar dreifingar upplýsinga úr
sjúkraskrám. Nær undantekning-
arlaust hefur slíkur leki verið rak-
inn til aðstandenda. Ollum sem
legið hafa á sjúkrahúsum er vel
kunnugt um að sjúklingar ræða
gjarnan sín á milli um sjúkdóma er
þá hrjá. Sjúklingur er liggur í
næsta rúmi er ekki bundinn þagn-
arskyldu og því síður aðstandandi
hans. Trúi ég að þannig megi rekja
flestar „sögur“ frá sjúkrahúsum.
Vissulega getur þú treyst náunga
þínum eða vini en ekki þar með
sagt að þú treystir viðmælanda
hans. Aðgangur, varðveisla og
geymsla sjúkraskráa er í stöðugri
endurskoðun og meðal annars
vegna þeirrar umræðu eru málin
rædd nánar. Landlæknir getur
ekki fallist á að sjúkragögn liggi á
glámbekk. Athugasemdir hafa
borist um tíðar umræður heil-
brigðisstarfsfólks um heilsuhagi
sjúklinga. Slíkar umræður skulu
vera í lágmarki nema um ráðgjöf
sé að ræða. Yfirmönnum ber að
gæta þess að umræða um sjúk-
linga sé innan eðlilegra marka.
Annars er hætta á að „hlaupasög-
ur“ myndist sem hrekkja og
svekkja sjúklinga og aðstandend-
ur. En hvarvetna sem mannshönd
kemst að má búast við mistökum
og þá er brugðist við því. Ef við
lærum ekki af mistökum lærum
við aldrei neitt.
Þessi umræða hefur verið efnis-
lega mjög nauðsynleg. Ljóst er að
sumum sjúklingum hefur ekki ver-
ið nægilega kunnugt um rétt sinn
sem sjúklinga.
Höfundur er landlæknir.
mér að draga þetta í efa. Sjúkling-
amir hafa einmitt tekið þessum
rannsóknum fegins hendi. Eg leyfi
mér að benda á grein sem Vilborg
Traustadóttir, formaður MS-félags-
ins á Islandi, skrifaði í þetta blað 6.
júní síðastliðinn. Læknar hafa verið
yfirgnæfandi í hópi þeirra, sem
skrifað hafa um gagnagrunnsfrum-
varpið. Það er í sjálfu sér eðlilegt,
eins og aðstæður hafa verið en þeir
mega ekki yfirgnæfa raddir sjúk-
linganna. Mörgum hefur virst, að
læknar standi mikið á móti Is-
lenskri erfðagreiningu. Þar eru í
rauninni læknar að kljást við
lækna. Læknar stjóma Islenskri
erfðagreiningu og tæplega hundrað
læknar starfa með fyrirtækinu í
dag. Það er þó augljóst að af öllum
hópum samfélagsins hafa læknar
staðið mest á móti gagnagrunns-
fmmvarpinu, og það af skiljanleg-
um ástæðum. Þeir þekkja að mörgu
leyti hvaða siðferðilegu spurningar
koma upp, og vita hvað er í húfi frá
sjónarhóli heilbrigðisfræðanna.
Þeir munu líka missa ákveðna
stöðu, því þeir munu ekki ráða upp-
lýsingum á heilbrigðissviði í eins
miklum mæli og hingað til. Þetta
gerist þó ekki þannig að upplýsing-
ar verði teknar frá þeim, heldur
mun fyrirtæki, stýrt af læknum,
búa til nýja þekkingu. Atvinnu-
sköpunin sem verður við þetta er
óumdeild. Hagsmunir almennings
era miklu meiri af því að þessi
gagnagrannur verði byggður en að
standa án hans, þó það muni breyta
mörgu í lífi íslendinga.
Hjörtur P.Jónsson og Isak Cuðjónsson við nýja
rallbílinn sem BM Flutningar fluttu til landsins.
mmmvMm
J J
Þeir Hjörtur og Isak voru orðnir örvœntingarfullir um
að bíllinn peirra kæmist til landsins í tæka tíð fyrir Alþjóðarallið
sem hefst ídag. Með aðstoð BM Flutninga kom bíllinn hins vegar
á þotuhraða til landsins. Þeir félagar hugsa örugglega hlýlega til
fólksins hjá BM Flutningum þegar þeir rjúka afstað í dag.
Hratt og vel eru lykilorð íþjónustu BM Flutninga.
Líka stórt og smátt og hvert sem er, hvenær sem er.
Hringdu íBM Flutninga þegar þú þarft hraða og öryggi
í flutningum.
<
iipyiiipik
IBM TRANSPORT LTD./VRN
BM FLUTNINGAR EHF. *<3S5
Holtabakka v/Holtaveg
104 Reykfavík, sími 569 8000
Alhliða flutningsmiðlun
Höfundur cr upplýsingafræðingur,
Samvinnuháskólanum Bifröst.