Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Markað á stólbrík tímans TOrVIJST Listasafn Islands SJÓVÁ-ALMENNRA KVARTETTINN Kynning á fjóruni strengjahljóðfæruin, sem smíðuð voru af Hans Jóhannssyni. Bernandel strengjakvartettinn frumreyndi hljóðfærin með verkum eftir Carl Nielsen og Ludwig van Beet- hoven. Mánudagurinn 31. ágúst 1998. SAMSPIL tímans og aðstæðna er sér- kennilegt, því í framvindu tímans er grunnur allra framfara en aðstæður hverju sinni kalla menn til athafna, sem oft á tíðum marka skil þess sem liðið er og nýrra viðhorfa. í tímans rás hefur kunnátta og geta okkar Is- lendinga á sviði tónlistar blómstrað og sú kynslóð, sem nú sýnir mann- dóm sinn, hefur notið þess sem gert var á fyrri árum, þrátt fyrir erfíðar aðstæður, sem voru yfirstignar með tímanum. Það sem gerðist í Lista- safni íslands, á mánudagskvöldið, hefði vart mátt eiga sér stað fyrr, því til þess þarf svo margt að falla að einu. Hljóðfæra- leikarar hafa skapað sér virðingu með frammistöðu sinni, aukið skilning manna á mikilvægi tónlistar en samhliða þeirri þróun hefur smíði hljóðfæra hér á landi sífellt orðið umsvifameiri og er framlag Hans Jóhanns- sonar einn glæsilegasti þáttur þessarai- ný- sköpunar. íslensk fyrirtæki hafa einnig fylgt þessari þróun og vaxið að afli og umfangi. Skilningur stjómenda þessara iyrirtækja er, að tilvist þeirra byggist á samskiptum við fólkið í landinu og að þangað sæki þau kraft sinn, og því sé lögmálið að vemda mannlífið með því að endursá hluta af arðinum. Um þetta við- horf má sjá mörg dæmi hin síðari árin, ekki aðeins á sviði lista, heldur og vísinda og margvíslegra íþrótta. Þessi endursáning, sem Sjóvá-Al- mennar stóðu fyrir með tónleikun- um í Listasafni Islands, mun auka fjölbreytnina í samskiptum manna og geta af sér ný og mannbætandi auðæfi. Þeir þrír aðilar sem saman stóðu að þessum atburði vora tónlistar- mennirnir, smiðurinn og fjármála- fyrirtækið og þeir sem um ókomna framtíð munu njóta þess era nemendur, sem trúlega eiga eftir að standa að margvíslegi-i menningarsköpun. Hljóðfærin, tvær fiðlur, BERNANDEL strengjakvartettinn frum- reyndi hljóðfæri Hans á tónleikunum í Listasafni Islands. lágfiðla og selló, era listasmíð, og markar gerð þeirra tímamót í íslenskri tónlistarsögu og var Hans Jóhannsson því raunveralegur sigurvegari kvöldsins. Flytjendurnh-, Bemandel kvartettinn, sem í leika Auður Hafsteinsdóttir, Gréta Guðna- dóttir, Guðmundur Kristmundsson og Bryn- dís Halla Gylfadóttir, fluttu fyrst strengja- kvartett op. 5 eftir Carl Nielsen (1865-1931). Verkið er samið 1890 og er í raun fjórði kvar- tettinn eftir Nielsen en á þessum áram starf- aði hann sem fiðlari í hljómsveit Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn. Tónmál kvar- tettsins er sambland af rómantík og klassík og vora þrír þættir verksins sérlega vel leikn- ir, sérstaklega sá fyi-sti og einnig hægi þátt- urinn, þar sem heyra mátti tónfegurð hljóð- færanna í alls konar einleiksstrófum, sem nutu sín sérlega vel í lágfiðlunni og sellóinu. Þá var þriðji þátturinn með sinni skemmti- legu „fiðlusóló“ mjög vel fluttur. Lokaþáttur- inn, sem er sérlega tilfinningaþranginn, var á köflum ekki í góðu jafnvægi, einkum er varð- aði tónstöðuna. Seinna verk tónleikanna var op. 135 eftir Beethoven, sem er í raun síðasti kvartett meistarans. Verkið er annað og meira en tón- smíð, nær því að vera vandmeðfarin hugleið- ing. Fyrirsögn lokaþáttarins er „Erfið álykt- un“ og við upphafsstefið ritaði Beethoven „Muss es sein?“ og þegar hraði hluti þáttar- ins hefst, birtist stefið í spegilmynd og þá með textanum „Es muss sein!“. Hvað sem olli því, þá vai- leikur kvartettsins í þessu sér- stæða verki ekki sannfærandi, það vantaði fínleikann og þá leikandi hrynskei-pu, sem einkennir þetta sérkennilega verk og ekki næst með því að spila ofursterkt, eins og stundum átti sér stað en tvöfalt forte er að- eins að finna á tveimur stöðum í verkinu, í hárisi skersókaflans og við ítrekun spuming- arinnar „muss es sein?“ en svarið fylgir á eft- ir og niðurlag verksins er mettað feginleika þess sem veit að svarið er fengið. Það er ekki á hvers manns valdi að taka þátt í slíku lífs- uppgjöri, sem þarna er að finna. Að loknum tónleikunum tóku Halldór Har- aldsson skólastjóri og nemendur Tónhstar- skólans í Reykjavík við hljóðfæranum og meistari kvöldsins, Hans Jóhannsson, var hylltur af tónleikagestum. Þar með hefur verið markað á stólbrík tímans, að 31. ágúst 1998 hafi átt sér stað merkur atburður, sem vert er að gleymist ekki. Jón Ásgeirsson HANS Jóhanns- son fíðlusmiður Frábæru FIIA Frábær poki fyrir allt skóladðtið j á aðeins kr. I fuhorðinsstærðir toppurLvw/ ú útíMv&t Kuldaúlpur Verð frá: Opið n.k. iaugardag kl. 10-16 SEtSILA.tSERÐ'UNI Æ G t R Skeifan 6 • Reykjavík ■ Sími 533 4450 Skeifunni 6, Reykjavík Norræna húsið EIN náttúrulífsmynda Andy Horner frá Álandseyjum. Náttúrulífsljós ^myndir frá Álandseyjum SÝNING á náttúrulífsljósmynd- um, sem Andy Horner hefur tek- ið á Álandseyjum, verður opnuð í anddyri Norræna hússins föstu- daginn 4. september. Andy Horner er fæddur í Englandi og bjó þar til ársins 1991, er hann fluttist til Álandseyja og settist þar að. Hann er menntaður myndlistar- kennari, og kennir ljósmyndun og listasögu, og er kennslustjóri í þessum greinum við Lýðháskól- ann á Álandseyjum. Einnig sljórnar hann sumarnámskeiðum í náttúruljósmyndatökum (Natur- foto pá Áland). í ljósmyndum sinuin sameinar Andy Horner tvö aðaláhugamál sín, myndlist og náttúru og um- hverfi. Hann tekur ekki heim- ildarmyndir, heldur einbeitir sér að náttúrunni í allri sinni litadýrð. Hann notar form og liti náttúrunnar til þess að skapa listrænar, stemmnings- hlaðnar og oft óhlutbundnar ljósmyndir. Hann einbeitir sér að hinu smáa í náttúrunni í allri sinni litadýrð. Hann notar form og liti náttúrunnar til þess að skapa listrænar, stemmnings- hlaðnar og oft óhlutbundnar ljósmyndir. Hann einbeitir sér að hinu smáa í náttúrunni. Myndefnið er margskonar gróð- ur, skordýr, steinar, vatn, ís og snjór, en sjaldnar fuglar og spendýr, segir í fréttatilkynn- ingu frá Norræna húsinu. Andy Horner hefur margoft haldið ljósmyndasýningar á Álandseyjum og í Svíþjóð. Mynd- ir hans hafa birst í sænska nátt- úruljósmyndatímaritinu Camera Natura. Ahugasvið hans spannar landafræði, veðurfræði og um- hverfismál og sést þetta í mynd- um hans. Andy Horner vinnur nú að verkefni sem felst í því að bera saman náttúru Álandseyja og íslands. Fyrirlestur Andy Horner heldur fyrirlest- ur mánudaginn 7. september kl. 17.15 í fundarsal Norræna húss- ins og nefnir hann „Álands natur och miljö". íslensk-finnski menningarsjóð- urinn og Norræna stofnunin á Álandseyjum veittu Andy Horner styrk til fararinnar hingað til lands. Ljósmyndasýningin í Norræna húsinu stendur til 30. september og er opin frá kl. 9-18, nema sunnudaga frá kl. 12-18.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.